Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2001, Síða 28
www. ihS
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 2001
Framsóknarflokkur:
Engin af-
staöa til ESB
Engin afstaða er tekin til aðildar að
ESB í niðurstöðu Evrópunefndar
Framsóknar-
flokksins sem
væntanlega verð-
ur skilað til Hall-
dórs Ásgrímsson-
ar, formanns
flokksins, þann
22. janúar.
Skýrslan inni-
heldur 10 blaðsíð-
an greinargerð og
fjögurra blaðsíðna
niðurstöðu sem er afrakstur funda um
26 manna, en um 15 manns gengu frá
þeirri niðurstöðu sem nú liggur fyrir.
Ætlunin var að leggja skýrsluna fram
þann 15. janúar en því hefur verið
frestað vegna anna til 22. janúar. Um
er að ræða málamiðlunarplagg þar
' *%em niðurstaðan er sú að flestir vilja
halda í EES-samninginn og ef hann
heldur ekki, þá verði teknir til skoð-
unar aðrir kostir, m.a. Evrópusam-
bahdsaðild. í skýrslunni mun koma
fram að íslendingar þurfi fyrst aða
skilgreina sín eigin skilyrði, skilmála
og stefnu varðandi fiskveiðar, land-
búnað og fullveldi. -HKr.
, Halldórs
Ásgrímsson.
j Jón Steinar
og Stáistýrið
í Helgarblaði DV á morgun er við-
tal við Jón Steinar Gunnlaugsson
sem staðið hefur í eldlínunni í ör-
yrkjamálinu. Hann er einn þekktasti
lögmaður landsins, vinur Davíðs og
harður gagnrýnandi Hæstaréttar og
Ólafs Ragnars Grímssonar forseta.
Stálstýrið er veitt í fyrsta sinn í
dag og á morgun verður fjallað um
veitinguna. í blaðinu er talað við fé-
lagsráðgjafa um skilnaði og áhrif
þeirra á börn. Rætt er við Úkraínu-
mann sem fékk hvítblæði eftir
Tsjemóbýlslysið, fluttist til íslands
og þakkar Islendingum lífgjöfma.
.{'ý*} Einnig.er fjallað um leyndardóma
legganganna.
DV-MYND ÞORSTEINN GUNNAR KRISTjANSSON
Fjölmenni í Stapanum
Mikill fjöidi manna mætti á fund um tvöföldun Reykjanesbrautarinnar sem haldinn var í Stapanum
í Njarövík í gærkvöldi.
Handboltakonur niðurlægðar á þjálfaranámskeiði:
Konur kunna ekki
að kasta og grípa
- segir stjörnuþjálfarinn Viggó Sigurðsson
Stjömuþjálfar-
inn Viggó Sig-
urðsson lét þau
orð falla á þjáif-
aranámskeiði,
sem haldið var
um síðustu helgi,
að íslenskar
handboltakonur
kynnu hvorki að
kasta né grlpa
bolta. Sló þögn á
þátttakendur á
námskeiðinu
sem voru allir
helsti handknatt-
leiksþjálfarar landsins, þar á meðal
þjálfarar karla- og kvennalandslið-
anna í handknattleik.
Viggó Sigurös-
son
Of seint aö
kenna landsliös-
konunum.
Viggó er kóngurinn
„Stelpurnar eru að sjálfsögðu
ekki ánægðar meö þetta og ég er alls
ekki sammála Viggó. Það breytir
því hins vegar ekki að Viggó er
kóngurinn í handboltanum í dag
þar sem hann trónir á toppnum sem
þjálfari Hauka,“ sagði Ágúst Jó-
hannesson, þjálfari kvennalands-
liðsins í handbolta, sem sat ráð-
stefnuna og þurfti að kyngja kenn-
ingum Viggós.
Viggó sjálfur
stendur við stóru
orðin og staðhæf-
ir að bæta megi
íslenskan
kvennahand-
knattleik um 50
prósent með því
einu að kenna
stúlkunum að
kasta og grípa:
„Það þarf að
kenna konunum
rétt kastlag. Allir
sem hafa séð
stelpur reyna að
kasta snjóbolta vita að þær vantar
sveifluna sem til þarf. En þetta er
hægt að kenna og ætti að gera strax
í íþróttakennslu í bamaskólum. í
norskum, dönskum, sænskum og
þýskum handknattleik er þetta ekk-
ert vandamál. Þar kunna konumar
að kasta og grípa. Þetta er skýring-
in á því að Islenska kvennalandslið-
ið er ámóta gott og fjórðu deildar
kvennalið í Þýskalandi."
Agúst Jóhannes-
son
Viggó er kóngur-
inn - samt ekki
sammála.
Peningar út um gluggann
„Ég gagnrýni það að Handknatt-
leikssambandið sé að eyða 5-7 millj-
ónum í undirbúning kvennalands-
liðsins fyrir keppni þegar svona er
ástatt. Sambandið gæti eins kastað
peningunum út um gluggann," segir
Viggó sem telur að bæta megi
kvennaboltann með markvissri
þjálfun yngri flokkanna. Ekki sé til
neins að reyna að kenna landsliðs-
konunum sjálfum að kasta og grípa
svo seint á ferlinum.
„Margir voru sammála mér á
námskeiðinu en aðrir urðu sárir.
Hitt stendur þó óhaggað að lands-
liðskonumar kunna hvorki að kasta
né grípa. Þetta á ekki við þær allar,
en þó flestar,“ segir Viggó. -EIR
Kvennaboltl
Allir sem hafa séö stelpur reyna aö
kasta snjóbolta vita aö þaö þarfaö
kenna þeim rétt kastlag.
Jón Steinar Gunnlaugsson um hugsanlegan málarekstur öryrkja:
Upphlaup gegn forsætisráðherra
„Mér finnast viðbrögðin á þessum
fundi og einstaka ummæli við dómi
Hæstaréttar og aðgerðum ríkisstjóm-
arinnar ekki byggja á neinum lög-
fræðilegum forsendum, þau em póli-
tískt upphlaup sem beinist gegn rík-
isstjórninni og þá aðallega persónu
forsætisráðherrans.“ Þetta segir Jón
Steinar Gunnlaugsson, lögmaður og
formaður starfshóps ríkisstjómar-
innar, í Kjölfar dóms Hæstaréttar
m.a. um ýmis ummæli sem féllu eftir
fund forsvarsmanna Öryrkjabanda-
lagsins og fjölda launþegasamtaka I
gær.
„Ef menn telja sig hafa lögfræðileg-
ar forsendur til að fara í ný dómsmál,
eftir að Alþingi hefur sett
þau lög sem ríkisstjómin hef-
ur kynnt í kjölfar tillagna
starfshópsins, þá auðvitað
gera menn það og meta
það þá þannig að ein-
hverjar lögfræðilegar for-
sendur dugi þeim í sliku.
Pólitísk upphlaup duga ekki
til málshöfðunar en sé uppi
réttarágreiningur þá er auð-
vitað sjálfsagt að hann sé
borinn undir dómstólana.
Tillögur okkar eru auðvitað
við það miðaðar að með
þeim sé orðið við þeim kröfum sem
fóldust
Jón Stelnar
Gunnlaugsson
Viöbrögöin hafa
ekkert meö lög-
fræöi aö gera.
í dómi Hæstaréttar, í því
felst það einróma álit sem
starfshópurinn komst að,
að það þýði ekki fyrir þá
sem ekki vilja una þessu
að bera það undir dóm.
Séu einhverjir á annarri
skoðun þá auðvitað stefna
þeir málinu fyrir dóm-
stóla. Það er helgur réttur
allra manna.
Þau viðbrögð sem við
eram að sjá opinberlega við
dómnum hafa hins vegar
ekkert með lögfræði að gera.
Það er bara verið að fella dóma úti í
bæ,“ segir Jón Steinar. -gk
Samgönguráðherra:
Vinnum eftir
vegaáætlun
Samgönguráðherra, Sturla Böðv-
arsson, hélt ásamt fleiri þingmönn-
um fund með áhugafólki um breikk-
un Reykjanesbrautarinnar í Stapan-
um í gærkvöldi. Mikið fjölmenni
var á fundinum, sem fór afskaplega
vel fram að sögn fundargesta.
Á fundinum var samþykkt álykt-
un þar sem skorað er á stjórvöld aö
flýta framkvæmdum við Reykjanes-
brautina og hafa lokið við tvöfóldun
hennar árið 2004.
„Það kom þarna fram afskaplega
skýr vilji Suðurnesjamanna að veg-
urinn verði tvöfaldaður og sömu-
leiðis vilji þingmanna til þess að
leita leiða til þess,“ sagði Sturla.
„En ég benti á staðreyndir málsins
sem eru þær að við vinnum núna
eftir vegaáætlun og samkvæmt
henni er undirbúningur við tvöfóld-
un brautarinnar á fullri ferð."
Síðar í þessum mánuði verða til-
boð opnuð í mislæg gatnamót á
Reykjanesbrautinni á mörkum
Breiðholtsbrautar. Sturla sagði að
gert sé ráð fyrir að klára þau á
þessu ári og eftir það verða tilboð
opnuð i fyrsta áfanga breikkunar-
innar á næsta ári. Fjármunir til
þess að ljúka tvöföldun úr Kúagerði
að mörkum Hafnarfjarðar eru til og
sagði Sturla hugsanlega flýtingu
brautarinnar fara eftir því hvort
hagstæð útboð berast í fyrsta hluta
verkefnisins.
-SMK
DV+JYND ÞORSTEINN G. KRISTJANSSON
Menn anda léttar
/ storminum sem gekk yfir landiö í
nótt bjuggust Grindvíkingar viö hinu
versta og voru í viöbragösstööu þar
sem líkur voru á miklu flóöi. Þaö
varö hins vegar ekkert af því.
DeCODE komið
upp í 9 dollara
Neikvæð þróunin á gengi hluta-
bréfa í deCODE frá mánudegi til
miövikudags sneri við á Nasdaq
hlutabréfamarkaðnum í gær og
hækkaði úr lágmarki þess, 7,75 doll-
umm, upp í 9,06 dollara á hlut í lok
fimmtudags. Þetta þýöir 16,9 pró-
senta hækkun frá því á miðvikudag.
Sjá nánar um málefni deCODE
á bls. 8.
-Ótt
Heilsudýnur i sérflokki!
Reykjavík 581 2233 Akureyri 461 1150
brother P-touch 1250
Lítil en STÓRmerkileg merkivól
5 leturstærðir
9 leturstillingar
Erentar I 2 llnur
oröi 6, 9 og 12 mm
4 geröir af römmum
Rafoort
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport