Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2001, Blaðsíða 22
34
ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 2001
I>V
Ættfræði
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
► 90 ára
lóhann Sæmundsson,
Kleppsvegi Hrafnistu, Reykjavík.
35 ára_________________________
Anna Kristín Jónsdóttir,
Fögrubrekku 5, Kópavogi.
Suórún Sigurðardóttir,
Furugerði 1, Reykjavík.
Valgeir G. Sveinsson,
Dalbraut 27, Reykjavík.
75 3T9 ________________
Guölaug Guölaugsdóttir,
Hátúni 8, Vík.
Gunnar Ágústsson,
Stærribæ 1, Selfossi.
Jónas Guðmundsson,
Fálkagötu 19, Reykjavík.
70 ára_________________________
Eggert Lárusson,
Hólmgarði 51, Reykjavík.
60 ára_________________________
Arnar Laxdal Snorrason,
Bugöutanga 17, Mosfellsbæ.
Kristín Hallgrímsson,
Hagamel 47, Reykjavík.
Þórunn Gísladóttir,
Klapparholti 10, Hafnarfirði.
50 ára_________________________
Hólmfríður Ingólfsdóttir,
Brennigerði, Selfossi.
Ingibjörg Gunnlaugsdóttir,
Leynisbraut 5, Grindavík.
t ívar Bjarnason,
Eyrarholti 7, Hafnarfiröi.
Jónas Snæbjörnsson,
Sæbólsbraut 29, Kópavogi.
Sævar Garöarsson,
Árstlg 17, Seyðisfirði.
Þórunn Steingrímsdóttir,
Sæbólsbraut 1, Kópavogi.
40 ára_________________________
Alberta Lai,
Ránargötu 46, Reykjavík.
Arnór Vikar Arnórsson,
Frostafold 165, Reykjavík.
Emil Kristinn Briem,
Hringbraut 44, Reykjavík.
Guöbjörg R. Guömundsdóttir,
Selbraut 11, Seltjarnarnesi.
Haraldur Kristmundsson,
Veghúsum 1, Reykjavík.
Magnús Bjarni Baldursson,
Arnargötu 4, Reykjavík.
JVIary Jennifer Dorothy Robson,
Skipholti 7, Reykjavik.
Ólöf Hildur Egilsdóttir,
Langholti 18, Keflavík.
Siguröur Hólmar Karlsson,
Skeljagranda 3, Reykjavík.
Skúli Skúlason,
Trönuhjalla 15, Kópavogi.
Góður bílótjóri
f | er álltat)
t agóðum gír
ð iK. /'"•••'
Eins og þú vilt
að hinir aki
skalt þú og sjálfur aka
UMFERÐAR
RAÐ »«^,1
Þórunn E. Kristjánsdóttir (Tóta),
Hverahlíð 20, Hveragerði, lést sunnud.
7.1. Útförin hefur fariö fram í kyrrþey að
ósk hinnar látnu.
t Alexander H. Jóhannsson, fyrrv.
lóðaskrárritari, Steinagerði 17, lést á
hjartadeild Landspítalans í Fossvogi
fimmtud. 1.2.
Theodóra Rósmundsdóttir, Hrafnistu,
Hafnarfiröi, lést fimmtud. 25.1. Bálför
hefur fariö fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Sigrún Siguröardóttir, umönnunar- og
^hjúkrunarheimilinu Skjóli, áður til
heimilis að Skarphéðinsgötu 18, lést
föstud.. 2.2, • ■ - .' /
Fimmtugcir
Ásmundur Gíslason
framkvæmdastjóri í Hornafirði
Ásmundur Gíslason fram-
kvæmdastjóri, Árnesi í Homafirði,
er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Ásmundur fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hann lauk stúdents-
prófum frá MH 1972, búfræðiprófi
frá Bændaskólanum á Hvanneyri
1975, og kennaraprófi frá KHÍ 1982.
Ásmundur var kennari við Nesja-
skóla Hornafirði 1975-82, fram-
kvæmdastjóri Skjólgarðs, elli-,
hjúkrunar- og fæðingarheimilis á
Höfn 1983-96 en hefur starfrækt
ferðaþjónustu í Árnanesi frá 1996.
Ásmundur flutti með fjölskyldu
sinni í Nesjaskóla á Hornafirði 1975
en settist að í Árnanesi 1994.
Ásmundur gegndi trúnaðarstörf-
um í ungmennafélagshreyfingunni,
var formaður Félags forstöðumanna
elli- og hjúkrunarheimila á íslandi
1991-96, formaður Ferðamálafélags
Austur-Skaftafellssýslu frá 1995 og
er formaður Ferðamálasamtaka
Austurlands frá 1997.
Fjölskylda
Kona Ásmundar frá 1992 er Helga
Erlendsdóttir, f. 14.1.1948, myndlist-
armaður. Hún er dóttir Erlends Sig-
urðssonar, búsettur í Kópavogi, og
Sigrúnar Kristinsdóttur, búsett í
Reykjavík.
Ásmundur kvæntist 18.6. 1972,
Guðrúnu Sveinsdóttur, f. 8.10. 1950,
d. 2.3.1987. Hún var dóttir Sveins K.
Sveinssonar, fyrrv. forstjóra Völ-
undar í Reykjavík, og Ingu Valborg-
ar Einarsdóttur húsmóður.
Börn Ásmundar og Guðrúnar eru
Guðrún Dadda, f. 12.10. 1972, iðju-
þjálfari í Danmörku; Arna, f. 22.9.
1977, nemi í röntgenfræðum í
Reykjavík en maður hennar er
Borgþór Egilsson; Matthildur, f.
22.11. 1977, nemi í sjúkraþjálfun i
Reykjavík, en maður hennar er
Hjálmar Sigurðsson; Kjartan, f. 26.1.
1979, sjómaður í Ámesi.
Ásmundur var í sambúð á árun-
um 1988-89 meö Rannveigu Hall-
varðsdóttur, f. 14.3. 1958.
Sonur þeirra er Ásmundur, f. 6.2.
1989, býr í Reykjavík.
Börn Helgu Erlendsdóttur eru Er-
lendur Eiríksson, f. 22.2. 1970, mat-
reiðslumaður og leikari; Ragna Ei-
ríksdóttir, f. 4.9. 1974, viðskipta-
fræðinemi. _
Bræður Ásmundar era Jón Hall-
dór, f. 3.11. 1943, vélfræöingur í
Grindavík; Brandur, f. 15.12. 1944,
garðyrkjumaður í Reykjavík; Guð-
mundur Tómas, f. 11.1. 1946, garð-
yrkjumaður í Reykjavik; Atli f. 12.8.
1947, lögfræðingur í Reykjavík.
Systir Ásmundar er Guðrún, f.
11.12. 1954, húsmóðir í Kaupmanna-
höfn.
Foreldrar Ásmundar voru Gísli
Guðmundsson, f. 1907, d. 1990, kenn-
ari og leiðsögumaður, og Ingibjörg
Jónsdóttir, f. 1915, d. 1997, húsmóð-
ir.
Ætt
Gísli var sonur Guðmundar, b. í
Haukatungu, bróður Kristjáns, föð-
ur Eggerts stórkaupmanns. Systir
Guðmundar var Guðný, amma
Sveins, forseta ÍSÍ. Guömundur var
sonur Eggerts, b. í Miðgörðum, Egg-
ertssonar, b. þar, Guðmundssonar.
Móðir Gisla var Pálína Matthild-
ur ljósmóðir Sigurðardóttir, hrepp-
stjóra í Tröð, Brandssonar. Móðir
Pálínu var Valgerður ljósmóðir,
systir Guðnýjar, langömmu ísleifs,
föður Ólafs hagfræðings. Önnur
systir Valgerðar var Ragnheiður,
langamma Lúðvíks Kristjánssonar
rithöfundar. Valgerður var dóttir
Páls, pr. á Prestbakka og Hörgsdal,
Pálssonar, umboðsmanns á Hörgs-
landi og í Gufunesi, Jónssonar.
Móðir Valgerðar var Matthildur
Teitsdóttir, b. í Hittu, Þórðarsonar.
Bróðir Ingibjargar er Högni lög-
maður. Ingibjörg er dóttir Jóns
Halldórs, fisverkanda á ísafirði, Jó-
hannessonar, Arasonar. Móðir Jóns
var Ingibjörg Jónsdóttir, b. í
Fremri-Arnardal, Halldórssonar, b.
þar, Ásgrímssonar, hreppstjóra þar,
Bárðarsonar, ættföður Arnardals-
ættarinnar, Illugasonar.
Móðir Ingibjargar var Guðrún H.
Sæmundsdóttir búfræðings Björns-
sonar, b. á Klúku, Björnssonar, pr. í
Tröllatungu, Hjálmarssonar, ættfóð-
ur Tröllatunguættar, Þorsteinsson-
ar. Móðir Guðrúnar var Sigríður
Bjarnadóttir, hreppstjóra í Tröð i
Álftafirði, Jónssonar. Móðir Sigrið-
ar var Guðrún Jónsdóttir, b. í Eyr-
ardal, Ólafssonar, bróður Halldórs í
Fremri-Arnardal.
Ásmundur tekur á móti gestum í
Félagsheimilinu Mánagarði i Nesj-
um Hornafirði laugardaginn 10.2.
kl. 18.00-22.00.
Níutíu og fimm ára
Dagbjört H. Níelsdóttir Stefán Sigurðsson
húsmóöir í Stykkishólmi
Dagbjört Hannessína
Níelsdóttir húsmóðir,
Skólastíg 14a, Stykkis-
hólmi, er níutíu og fimm
ára í dag.
Starfsferill
Dagbjört fæddist á
Þingvöllum í Helgafells-
sveit en ólst upp að Sel-
látrum viö Breiðafjörð.
Dagbjört og maður hennar hófu
búskap í Elliðaey, ásamt Jóni Breið-
fjörð, bróður Dagbjartar, og Krist-
inu Pálsdóttur, systur manns henn-
ar. Þau bjuggu í Elliðaey til 1948 er
þau fluttu í Stykkishólm þar sem
hún hefur átt heima síðan.
í Stykkishómi starfaði Dagbjört í
mörg ár í Frystihúsi Sigurðar
Ágústssonar. Er eiginmaður hennar
lést flutti hún í íbúð á Dvalarheim-
ilinu í Stykkishólmi en hefur búið á
heimilinu sjálfu síðustu árin.
Dagbjört tók virkan þátt í starfi
kvenfélagsins í Stykkishólmi og er
heiðursfélagi þess.
Fjölskylda
Dagbjört giftist 19.4. 1930 Jónasi
Pálssyni, f. 24.9. 1904, d. 13.9. 1988,
sjómanni, bónda og vitaverði. Hann
var sonur Páls Guð-
mundssonar og Ástríðar
Helgu Jónasdóttur er
bjuggu i Ögri við Stykkis-
hólm og síðar í Höskulds-
ey.
Börn Dagbjartar og
Jónasar eru Ástríður
Helga, f. 14.11.1930, búsett
í Borgarnesi, gift Jóni
Einarssyni og eiga þau
fjögur börn;Unnur Lára, f. 30.3.
1935, búsett i Stykkishólmi, gift Egg-
ert Björnssyni og eiga þau fjögur
böm;Jóhanna, f. 6.6. 1937, búsett í
Stykkishólmi, gift Hrafnkatli Alex-
anderssyni og eiga þau fimm böm;
Ásdís, f. 4.6. 1941, búsett í Reykja-
vík, gift Friðþjófi M. Karlssyni og
eiga þau tvö börn.
Dagbjört á fimmtán barnabörn,
þrjátíu langömmubörn og þrjú
langalangömmubörn.
Systkini Dagbjartar eru öll látin.
Þau voru Magðalena; Bæring; Jón;
Kristín.
Foreldar Dagbjartar voru Níels
Breiðfjörð Jónsson, bóndi og sjó-
maður að Sellátri við Breiðafjörö,
og Dagbjört H. Jónsdóttir húsfreyja.
fyrrv. verkstjóri
Stefán E. Sigurðsson, fyrrv. verk-
stjóri, Skipasundi 88, Reykjavík, er
áttræður i dag.
Starfsferill
Stefán fæddist í Dæli í Skagafirði
og ólst upp í Haganesvík og Siglu-
firði. Hann lauk einkaflugmanns-
prófi 1947 og skipstjóraprófi 1955.
Stefán var útvarpsvirki á Við-
gerðastofu Ríkisútvarpsins i tutt-
ugu og fimm ár og fór viðgerðar-
ferðir um Norður- og Norðaustur-
land, starfaði í nokkur ár viö blaðið
íslending á Akureyri og var þá
fréttaritari Morgunblaðsins á Akur-
eyri og víðar, var hann sýningar-
maður við Nýja bíó á Akureyri í
átján ár, gæslumaður við rafstöð SR
á Raufarhöfn, við vélgæslu í rafstöð
í Búrfelli á byggingartímanum og
vann loks hjá fslenska álfélaginu
frá 1970 og verkstjóri þar í tólf ár.
Fjölskylda
Stefán kvæntist 8.11. 1947 Hönnu
S. Gestsdóttur, f. 29.9. 1928, húsmóð-
ur. Hún er dóttir Gests Bjarnason-
ar, hafnarvarðar á Akureyri, og
Svövu Guðmundsdóttur húsmóður.
Börn Stefáns og Hönnu eru Sig-
urður, f. 24.2. 1947, var fyrst kvænt-
Dr. Björn Þórðarson forsætisráðherra
fæddist i Móum á Kjalamesi 6. febrúar
1879, sonur Þórðar Runólfssonar hrepp-
stjóra og Ástríðar Jochumsdóttur. Sonur
Björns og k.h., Ingibjargar Ó. Briem
Þórðarson, var Þórður ríkissaksóknari.
Ástríður var systir Matthiasar
Jochumssonar skálds en Guðrún, kona
Matthíasar, var systir Þórðar. Önnur
systir Þórðar var Karitas í Mýrarhús-
um, langamma Sigrúnar, móður Árna
Mathiesen sjávarútvegsráðherra.
Björn lauk stúdentsprófi í Reykjavík
1902, embættisprófi i lögfræði frá Hafnar-
háskóla 1908, og varði doktorsritgerð 1926.
Bjöm gegndi ýmsum störfum við Stjómar
ráðið í Reykjavík, var sýslumaður í Vest-
Björn Þórðarson
mannaeyjum, Húnavatnssýslu og Mýra- og
Borgarfjarðarsýslu en skamma hrið á
hverjum stað. Þá var hann hæstaréttarrit-
ari 1919-28 og forsætisráðherra 1942-44 í
einu utanþingsstjórninni sem hér hefur
verið skipuð en það gerði Sveinn
Bjömsson, þá ríkisstjóri. Stjórnin lagði
upp laupana fyrir striðsverðbólgu og
fremur andsnúnu Alþingi.
Björn var stilltur maður og gætinn
og fylgdi fast eftir viðskilnaðinum við
Dani í anda þeirra sem skeleggastir
voru um stofnun lýðveldis 1944. Hann
var alvörugefinn á yfirborðinu en leyndi
á sér og var í raun afburða sögumaður og
geislandi húmóristi eins og Matthías,,
móðurbróðir hans. Björn lést 25. október 1963.
ur Þórunni
Pálsdóttur
en þau
skildu og
síðar kvænt-
ur Guðrúnu
Þórðardótt-
ur og eru þau einnig skilin en dótt-
ir Sigurðar af fyrra hjónabandi er
Hanna Sigríður hárgreiðslunemi, f.
8.12. 1967, í sambýli með Ingólfi Sig-
urðssyni, en dætur Sigurðar af
seinna hjónabandi eru Sara Mar-
grét, f. 6.10. 1979, og Sólveig íris, f.
17.1. 1981; Svava Jóhanna, f. 24.2.
1952, sjúkraliði í Danmörku, en
sambýlismaður hennar er Jón
Garðarsson.
Systkini Stefáns; Jónína Kristín,
f. 1.5. 1906, húsmóðir á Ólafsfirði;
Grímur, f. 5.4. 1912, d. 23.7. 1984, út-
varpsvirki hjá Ríkisútvarpinu; Mar-
ía, f. 7.8. 1913, lengst af húsmóðir í
Hlíð í Ólafsfirði; Gísli, f. 5.10. 1916;
Sigurður Ásgrímur, f. 11.9. 1919, d.
7.8. 1938; Jóhann Sævaldur, f. 22.10.
1922, vélvirki á Siglufirði.
Foreldrar Stefáns: Sigurður Ás-
grímsson, f. 26.6. 1883, d. 1932, b. og
stýrimaður, og Jóhanna Lovísa
Gísladóttir, f. 21.8. 1881, d. 2.1. 1973,
húsfreyja. Stefán er að heiman.
Útför Bryndísar Óskarsdóttur Meyer fer
fram frá Akureyrarkirkju þriðjud. 6.2. kl.
13.30.
Edward Kristinn Olsen, fyrrv. flugstjóri,
Haukanesi 14, Garðabæ, verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriöjud.
6.2. kl. 13.30.
Höröur Jón Bjarnason, Skagabraut 37,
Akranesi, verður jarðsunginn frá
Akraneskirkju þriðjud. 6.2. kl. 14.00.
Smáauglýsingar
visir.as