Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2001, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2001, Side 10
10 Útlönd MÁNUDAGUR 19. FEBRÚAR 2001 I>V Fráfarandi forsætisráðherra ísraels Flokksfélagar Baraks eru andvígir þátttöku hans í stjórn Sharons. Flokkurinn gagn- rýnir Barak Leiðtogar Verkamannaflokks- ins, flokks Ehuds Baraks, fráfar- andi forsætisráðherra ísraels, gagnrýndu hann i gær fyrir þá ákvörðun hans að taka þátt í sam- steypustjóm Ariels Sharons. Þeir leiðtogar Verkamannaflokksins, sem eru mótfaflnir ákvörðun Baraks, héldu á laugardaginn fund fyrir lokuðu dyrum til að ræöa til hvaða ráða skuli gripið, að því er blaðið Yediot Aharonot greindi frá í gær. Miðstjóm Verkamannaflokksins kemur saman á fimmtudaginn. Þá verður haldin leynileg atkvæða- greiðsla um það hvort flokkurinn á að taka þátt i samsteypustjóm með Likudflokknum, flokki Shar- ons. Nýnasistar fá 4 milljónir fýrir að byrja nýtt líf Þýsk yfirvöld eru reiðubúin að bjóða öllum leiðtogum nýnasista, sem vilja byrja nýtt lif, um 4 millj- ónir íslenskra króna hverjum, að því er þýska timaritið Der Spiegel greinir frá. „Vilji einhver hætta má ekkert spara,“ segir Otto Schily, innanríkisráðherra Þýskalands, í viðtali við tímaritið. Liðhlaupunum verður auk þess boðið húsnæði, starf og nýtt nafn reynist það nauðsynlegt. Haft hefur verið samband við 324 þekkta nýnasista. Af þeim voru 252 fúsir til að ræða málið og 84 kváðust vilja komast úr nýnasistasamtökunum sem þeir eru í. Repúblikanar þrýstu á Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkja- forseti, ver í grein umdeilda náöun á auökýfmgi. Bill Clinton ver sakaruppgjöfina Bill Clinton, fyrrverandi Banda- ríkjaforseti, varði í gær í grein í New York Times umdeflda náðun sína á gyðingnum og auðkýflngnum Marc Rich. Sagði Clinton sakarupp- gjöfina réttlætanlega og ekkert tengjast fjárframiögum fyrrverandi eiginkonu Rich, Denise Rich, í sjóði demókrata. Rich flýði til Sviss fyrir 17 árum eftir að hann hafði verið ákærður fyrir stórfelld skattsvik og ólögleg olíuviðskipti. Clinton benti á aö háttsettir lögmenn meðal repúblikana hefðu hvatt til að Rich yrði náðaður, þar á meðal starfs- mannastjóri Dicks Cheneys varafor- seta. íraskir fjölmiðlar krefjast hefndar íraskir rikisfjölmiðlar kröfðust þess i gær að allar þær rikisstjóm- ir, sem gagnrýnt hafa loftárásir Bandaríkjanna og Bretlands á Bagdad á fostudagskvöld, grípi til einhverra aðgerða. Blaðið Babel, sem eru í eigu Udays, sonar Sadd- ams Husseins íraksforseta, skrif- aði að „nýja dvergnum í Svarta húsinu“ yrði ekki betur ágengt en fðður hans að koma Saddam frá völdum. Þúsundir íraka gengu í gær um götur Bagdad til að mótmæla loft- árásunum. Mótmælendur héldu á lofti myndum af Saddam Hussein íraksforseta og brenndu banda- ríska og ísraelska fána. írösk yfirvöld sendu Kofi Ann- an, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, bréf og hvöttu til þess að samtökin fordæmdu árásirnir. íraska fréttastofan INA greindi frá því í gær að Saddam hefði hitt háttsetta ráðgjafa sína til að ræða endurbætur á loftvamakerfinu. Mótmæli í Bagdad Þúsundir íraka gengu um götur Bagdad í gær og mótmæltu loftárás- um Bandaríkjamanna og Breta. Bandarískar og ísraelskar her- sveitir hefja í dag sex daga heræf- ingu þar sem skotið verður Patriot- flaugum. ísraelski herinn lagði á það áherslu í yflrlýsingu í gær að æfingin hefði verið ákveðin fyrir ári og tengdist á engan hátt loft- árásunum á Bagdad á föstudaginn. ísraelsk yfirvöld hafa sagt að þau taki alvarlega hótun Saddams íraksforseta um hefndarárás. ísra- elar búast þó ekki viö henni á næstunni. Ehud Barak, fráfarandi forsætisráðherra ísraels, hélt í gær fund með embættismönnum örygg- ismála vegna fullyrðinga blaðsins Babel um að loftárásimar hefðu verið vegna stuðnings íraks við uppreisn Palestínumanna. Bandaríkin sendu Patriotflaugar til ísraels i Persaflóastríðinu 1991 við írak. Ekki tókst að stöðva Scudflaugar íraka með Patriot- flaugunum. Þær komu flestar nið- ur við Tel Aviv og inni i sjálfri borginni. Tróðust undir á áhorfendapöllum Þrjátíu og sjö manns slösuöust, þar af tveir aivarlega, þegar járngrind gaf sig á áhorfendasvæöi á knattspyrnuvelli í borginni Bursa í norövesturhiuta Tyrklands í gær. Mikið vodka og koníak Brytinn í Kreml, Gennadí Koloment- sev, hefur nú greint frá því hvað hver drekkur og hversu mikið. Boris Jeltsín, fyrrverandi forseti, bað um nokkra flöskur af vodka og koniaki á hverjum degi. Vladimir Pútín lætur sér nægja eitt rauðvínsglas á heilu kvöldi. Stalín var ekki hrifinn af sterkum drykkj- um en átti það til að fá sér koníaks- dreitil fyrir háttatíma. Lenin kaus heldur bjór. Fékk enga rós Kona í Marokkó heimtar bætur af eiginmanni sínum og skilnað þar sem hann gaf henni ekki rósir á Valentínusdaginn. Augljóst sé að hann elski hana ekki lengur. Mað- urinn segir siðinn uppátæki útlend- inga. Öflugur eftirskjálfti öflugur eftirskjálfti skók E1 Salvador á laugardaginn. Talsverð- ar skemmdir urðu af völdum skjálft- ans. Mikill skortur er á matvælum og hjálpargögnum á svæðinu. Dönum og Breta rænt Lögregla og hermenn leituðu í gær tveggja Dana og Breta sem var rænt á fóstudaginn í Bangladess. Mannræningjarnir krefjast um 140 milljóna íslenskra króna í lausnar- gjald fyrir gíslana sem starfa hjá verkfræðistofu. Aukin fátækt Fátækustu böm Bretlands hafa orð- ið fátækari í stjóm- artíð Tonys Blairs forsætisráðherra. Að sögn blaðsins The Observer hafa nær 250 þúsund börn á fátækustu heimilunum það verra en 1997. Tvær milljónir breskra barna lifa nú undir fátæktarmörkum. Hins vegar hefur 1,2 milljónum barna verið bjargað frá fátækt frá því að Blair tók við. Þykir greinilegt að það hafi verið á kostnað þeirra fá- tækustu. Eldgos í Kongó-Kinshasa Þúsundir tonna af hrauni hafa streymt úr þremur gígum eldfjalls- ins Nyamuragira í Kongó-Kinshasa. íbúar í grennd við fjallið búa sig undir að flýja svæðið. Skipi kúrdísku flóttamannanna viljandi siglt í strand: Skipstjórinn flýði með um 100 milliónir króna Glæpagengi frá Tyrklandi og írak stóðu á bak við smyglið á yfir 900 kúrdískum flóttamönnum sem birt- ust óvænt á laugardagsmorgun á frönsku Rivíerunni í strönduðu skipi. Embættismenn telja að áhöfn- in skipsins hafi siglt því í strand af ásettu ráði og síðan flúið með um 100 milljónir íslenskra króna sem flóttamennirnir höföu greitt í far- gjald. Skipið sökk í gærmorgun. Frönsk yflrvöld vöruðu í gær flóttamennina við og sögöu þeim aö þeir skyldu ekki búast við sérstakri afgreiðslu en örlög flóttamannanna, einkum barnanna 480, hafa snert strengi í hjörtum almennings í Frakklandi. Samtímis hefur koma flóttamannanna kynt undir reiði vegna aukins smygls á flóttamönn- um. Stjómmálamenn í Frakklandi Bjargað frá borði Ryödallurinn, sem sigldi í strand viö frönsku Rlvíeruna, sökk í gær. hafa sagt að þeir vilji ekki skapa fordæmi með því að sleppa Kúrdun- um skilyrðislaust inn í landið. Flóttamennimir dvelja nú i herstöð í Fréjus þar sem þeir fengu mat og drykk í fyrsta sinn í marga daga. Þrjú börn fæddust um borð á meðan siglt var eftir Miðjarðarhafmu. Nokkrir þeirra sem voru um borð hafa greint frá því að þeir hafl farið frá írak til Tyrklands þar sem þeir hafi falið sig á bóndabæjum. Síðan hafl þeir verið fluttir til hafnar á suðurströnd Tyrklands. Síðan var stefnan tekin á Ítalíu, að því er taliö er. Talsmaður frönsku landamæra- lögreglunnar segir að Kúrdarnir hafl ekki haft hug á að koma til Frakklands. Flestir þeirra vilji kom- ast til Bretlands og þaðan til Banda- ríkjanna. Hvattur til aö segja af sér Joschka Fischer, utanríkisráðherra Þýskalands, sem heldur í dag til Bandaríkjanna á fund Colins Powells utanríkisráðherra, er undir miklu álagi vegna yfirvof- andi rannsóknar saksóknara á meintu meinsæri hans við réttar- höld yfir hryðjuverkamanninum Klein. Andstæðingar Fischers hafa hvatt hann til að segja af sér. Rokkarar hjá Castro Castro Kúbuforseti sótti um helg- ina tónleika bresku rokksveitarinn- ar Manic Street Preachers. Castro stóð upp og klappaði þegar lagið Baby Elian var leikið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.