Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2001, Blaðsíða 14
14
MÁNUDAGUR 19. FEBRÚAR 2001
Menning
Nýmœlum
haldiö á lofti
Gallerí Hlemmur
Þar hefur ungt hugsjónafólk unniö markvisst aö því aO kynna verk
yngri kynslóöar myndiistarmanna.
manna, en gerði myndlistamefndinni oft
erfitt fyrir þegar kom að mati á framlögum
einstakra listamanna, því fyrir vikið voru
áhugaverðar einkasýningar færri en ella. Eða
það fannst nefndinni að minnsta kosti. End-
anlegar tilnefningar nefndarinnar ættu hins
vegar að vera nokkuð sannferðug endurspegl-
un þessa óvenju gróskumikla myndlistarárs,
þvi meðal tilnefndra eru myndlistarmenn,
listmiðlarar og liststofnanir sem fitjuðu upp á
nýmælum.
í nefndinni sátu með Aðalsteini Birgir
Snæbjöm Birgisson myndlistarmaður og
Þóra Sigurðardóttir, myndlistarmaður og
skólastjóri Myndlistarskóla Reykjavíkur. Sið-
ar kom Guðbjörg Lind Jónsdóttir myndlistar-
maður inn í nefndina fyrir Þóru.
í stafrófsröð eru tilnefningarnar þessar:
Menningarverðlaun DV 2001
- tilnefningar í myndlist
Gallerí Hlemmur við Hlemm
Þar hefur ungt hugsjónafólk unnið mark-
visst að þvl að kynna verk yngri kynslóðar
myndlistarmanna vegfarendum um þetta
fjölfamasta torg borgarinnar og notað til
þess aðferðir og útsjónarsemi sem ýmis
stærri listhús mættu taka sér til fyrir-
myndar.
Guðjón Ketilsson: Brot
/ verkum sínum sameinar GuOjón
helstu eigindir nútímalegrar málara-
og þrívíddarlistar.
„Menningarárið 2000 setti mark sitt á ís-
lenska myndlist eins og aðrar listgreinar,"
segir formaður verðlaunanefndar DV í mynd-
list, Aðalsteinn Ingólfsson. „Til dæmis voru
ýmsir markverðustu myndlistarviðburðirnir
á árinu í formi allslags samvinnuverkefna
myndlistarmanna, menningarstjóra og hins
opinbera: útimyndasýningar, þemasýningar á
Þingvöllum, sýningar á Hlemmi, sýningar í
orkustöðvum og svo framvegis."
Öll þessi starfsemi gerði bæði þátttakend-
um og myndlistinni gott, að mati nefndar-
llmur María Stefánsdóttlr: Hugvlt
Listakonan notar Ijósleiöara
af mikilli hugkvæmni.
Hannes Sigurösson,
forstööumaóur Ustasafnsins á Akureyri
Sýndi af sér feiknarlega atorku viö skipulagn-
ingu myndlistarviöburöa.
Katrín Slguröardóttir: Veg(g)lr
Hlynur Hallsson: Veg(g)lr
Tveir ólíkir listamenn nýttu sér þetta veggpláss á markvissari og frumtegri hátt en aörir.
Guðjón Ketilsson myndlistarmaður
Guðjón er tilnefndur fyrir óvenjulega vand-
aða, útlitsfagra og vel hugmyndalega undir-
byggða einkasýningu sína í Listasafni ASÍ við
Freyjugötu. I verkum sínum, sem eru útskor-
in og lituð tilbrigði við gamlar trúarlegar út-
skurðarmyndir, sameinar Guðjón helstu eig-
indir nútímalegrar málara- og þrívíddarlist-
ar, auk þess sem hann veltir upp spumingum
um þýðingu trúarlegra tákn- og tilbeiðslu-
mynda í nútímanum.
Hannes Sigurðsson,
forstöðumaður Listasafnsins á Akureyri
Hannes sýndi af sér feiknarlega atorku við
skipulagningu myndlistarviðburða og farand-
sýninga á árinu. Myndlistarsýning hans fyrir
sjúkrahús fór vítt og breitt um landið, hann á
mesta heiðurinn af „Stafrænum sýnum“,
margmiðlunarsýningu í Listasafni íslands,
tematísk sýning hans „Dyggðirnar sjö“ á
Þingvöllum var einhver best heppnaða úti-
sýning ársins, sýning á fatatísku sem hann
stóð fyrir í Listasafninu á Akureyri heppnað-
ist prýðilega, og aðrar sýningar á hans vegum
sem ekki gengu alveg upp, t.d. sýning um
barnæskuna, náðu engu að síður að vekja upp
nokkra umræðu.
Hlynur Hallsson/Katrín Sigurðardóttir
myndlistarmenn
Hlynur og Katrín voru bæði - en sitt í hvoru
lagi - þátttakendur í spennandi tilraun á vegmn
Listasafns Reykjavíkur að Kjarvalsstöðum. Til-
raunin, sem bar nafnið „Vegir/Veggir“, fólst í
því að fá völdum myndlistarmönnum til afnota
stóran vegg í miðrými Kjarvalsstaða í ákveðinn
tíma. Máttu þeir nota vegginn hvernig sem þeim
sýndist og fengu gestir og gangandi að fylgjast
með þeim að störfum. Vinnuferlið og verkið
voru hvort tveggja „dókúmenteruð", en að
vinnutima loknum var málað yfir vegginn og
næsti listamaður hófst handa. Myndlistarnefnd
DV þótti tveir mjög ólíkir listamenn, Hlynur
Hallsson og Katrín Sigurðardóttir, nýta sér þetta
veggpláss og vinnuferli á markvissari og frum-
legri hátt en aðrir þátttakendur og brá því á það
ráð að tilnefna þau bæði að þessu sinni.
Ilmur María Stefánsdóttir
myndlistarmaður
Ilmur María hélt einkasýningu í Galleríi Sæv-
ars Karls á árinu, auk þess sem hún sýndi
áhrifamikið verk í „svartholi" á samsýningu að
Ljósafossi. Listakonan notar ljósleiðara af mik-
illi hugkvæmni, ýmist til að skapa sérstakt and-
rúmsloft á sýningarstað, til „teikningar" eða til
uppbyggingar flóknari umhverfisverka. Mynd-
listarnefnd DV þótti Ilmur vera verðugur full-
trúi yngri kynslóðar listamanna á þessum lista
Útnefndra.
_______________PV
Umsjón: Silja Aöalsteinsdóttir
Tónleikar
Gunnars og Selmu
Annað kvöld, þriðjudagskvöld, kl. 20 halda
hinir þjóðþekktu tónlistarmenn Gunnar Kvar-
an sellóleikari og Selma Guðmundsdóttir pí-
anóleikari tónleika í Salnum í Tíbrárröðinni.
Á efnisskrá þeirra er Sónata í g-moll eftir
Henry Eccles, Rondó eftir Antonín Dvorák,
Fantasiestúcke op. 73 eftir Robert Schumann
og að lokum Sónata í g-moll op. 65 eftir Fréd-
éric Chopin.
Örvandi myndlist
Gæflaug Björnsdóttir hefur gefið út bókina
Örvandi myndlist - leið til þroska. Þar er
kynnt vinnuaðferð sem Gæflaug hefur þróað
til að kenna börnum myndlist og ætlar hún
leiðbeinendum bókina. Gæflaug er sjálf leik-
skólakennari og hefur reynt aðferðina á fjölda
barna með góðum árangri.
„Örvandi mynd-
list er hægt að nota
til að örva börn á
jákvæðan hátt til
að gera betur en
þau og aðrir telja
þau geta,“ segir
höfundur í for-
mála: Myndlistar-
aðferðirnar hefur
hún mótað með þarfír barna í huga og notar
þar margvísleg efni, oft á nýstárlegan hátt.
Örvandi myndlist getur nýst mjög vel sem
stuðningur viö börn sem eiga af einhverjum
ástæðum erfitt með að læra.
Á heimasíðu Gæflaugar www.orvandi.is
eru myndir úr verkefnum sem hún hefur unn-
ið með börnum.
Hvað er svona
merkilegt við það?
í dag kl 12.30 heldur Jón Proppé, myndlist-
argagnrýnandi og sýningarstjóri, fyrirlestur
í Listaháskóla íslands
Laugarnesvegi 91, stofu
024 og spyr: „Hvað er
merkilegt við það að vera
íslenskur myndlistarmað-
ur?“ Þar fjallar hann um
sérstöðu íslenskrar mynd-
listar og hvernig islenskir
myndlistarmenn vinna úr
erlendum stiláhrifum.
A miðvikudaginn kl. 12.30 heldur Hrafn-
kell Birgisson fyrirlestur í LHÍ Skipholti 1,
stofu 113. Hrafnkell lauk nýverið námi í
hönnun frá Listaháskólanum í Saarbrucken
í Þýskalandi og vinnur nú að eigin hönnun.
í fyrirlestrinum fjallar hann um námstím-
ann í Þýskalandi og hugmyndir sinar um
hönnun.
Nýr dans
í nýju formi
í kvöld kl. 20.30 verða sýnd 10 videodans-
verk íslenskra listdansara í Listaklúbbi
Leikhúskjallarans. Hér er í fyrsta skipti tek-
iö saman það helsta sem skapað hefur verið
á þessum ört vaxandi vettvangi hér á landi
auk sýnishorna af því nýjasta sem nú er í
vinnslu. Fjallað verður um verkin en kvöld-
ið er einkum hugsað sem grunnur að um-
ræðukvöldi 12. mars þar sem fjallað verður
um möguleika þessa listforms fyrir íslenska
dansara, kvikmyndagerðarmenn og tón-
skáld.
Danshöfundar og leikstjórar sem þarna
eiga verk eru Aðalheiður Halldórsdóttir,
Helena Jónsdóttir, Katrín Ólafsdóttir, Mar-
grét Sara Guðjónsdóttir, Peter Anderson,
Ragna Sara Jónsdóttir, Reynir Lyngdal,
Sveinbjörg Þórhallsdóttir og Valgerður Rún-
arsdóttir. Stjórnendur kvöldsins eru Helena
Jónsdóttir og Reynir Lyngdal.
Fornleifar
og samtíminn
Orri Vésteinsson fornleifafræðingur flytur
fyrirlestur á hádegisfundi Sagnfræðingafélags
íslands á morgun kl. 12.05 í Norræna húsinu
sem hann nefnir „Fomleifar, heimildir og
samtíminn". Allir velkomnir.