Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2001, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2001, Blaðsíða 32
(.1 FRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ MÁNUDAGUR 19. FEBRÚAR 2001 Kanadískir flugum- feröarstjórar: Útilokað að sinna svæðinu Forseti félags flugumferðarstjóra í Kanada, Faisal Bhimji, sagði und- iæ- ir miðnætti í gær að það væri ný frétt í sínum eyrum að kanadískir flugumferðarstjórar væru að spá í íslenska úthafsflugstjórnarsvæðið. Það hefði aldrei komið til greina og kæmi aldrei til greina að kanadísk- ir flugumferðarstjórar gerðu slíkt þegar kjaradeilur væru á ferðinni. Þar að auki hefðu Kanadamenn eng- an mannafla til aö bæta íslenska svæðinu við sig, jafnvel ekki í nokkra daga. Um er að ræða flug- stjórn meö 150 til 160 vélar á þessum árstíma þegar minnst er flugum- ferðin. Bhimji hringdi í starfsbróð- ur sinn hér á landi, Loft Jóhanns- son, og tók af öll tvímæli um þetta. „Þaö er greinilegt að þetta hefur ekki komið upp í Kanada, og 11 kanadískir samherjar okkar munu ekki fara inn á verksvið annars stéttarfélags, við erum báðir í al- þjóðasamtökunum, þar gilda ákveðnar reglur um þetta,“ sagði Loftur Jóhannsson rétt um það leyti sem blaðið fór í prentun. -JBP Borgarnes: Bílvelta við Baulu Bifreið valt og hafnaði utan vegar skammt sunnan við söluskálann Baulu, á tíunda tímanum í gærkvöld. Ökumaðurinn, sem var einn í bílnum, var á suðurleið og gerði hann sjálfur lögreglu viðvart um slysið. Að sögn lögreglunnar í Borgamesi var hálku um að kenna auk þess sem blindbylur var á þeirri stundu sem slysið varð. Maðurinn mun hafa sloppið við meiri háttar meiðsl og var honum ekið til móts við ættingja sína sem komu frá Reykjavík. Bíllinn er gjörónýtur eftir veltuna og var flakið fjarlægt með kranabíl. -aþ Gæði og glæsileiki smort UJJ±aA* t°f» ) Grensásvegi 7, sími 533 3350. DV MYND HILMAR ÞÓR Konudagsblóm Þaö er árlegur siöur aö menn færi konum sínum gjafir á konudaginn. Blóm eru sérstaklega vinsæl enda lífga þau upp á tilveruna meö litadýrö oggóöum ilml.. Ari Már Fritzson lét sitt ekki eftir liggja er hann keypti handa frú sinni fallegan blómvönd í Blómaverkstæöi Binna í gærdag, Signý Þóra Haröardóttir starfsstúika hjá Blómaverkstæöi Binna afhendir herranum blómvöndinn. Samgönguráðherra telur flugstjórnarsvæðið í hættu: Kanadamenn bíða eftir bitanum - hótanir gera illt verra, segir formaður flugumferðarstjóra Tveggja sólarhringa verkfall flug- umferðarstjóra hefst í fyrramálið hafi samningar ekki tekist áður. Formað- ur flugumferðarstjóra er ómyrkur í máli um bréf það sem barst frá Al- þjóða flugmálastofnuninni ICAO. „Það tíðkast ekki að starfsstéttum sé hótað að sú starfsemi sem þær vinna við verði lögð niður fari þær í verkfall," sagði Loftur Jóhannsson. „Bréf eins og það sem barst frá Montr- eal er alls ekki til þess að liðka fyrir samningum, öðru nær. Það er sér- kennilegt að embættismaður í útlönd- um hóti íslenskum stjómvöldum á þennan hátt.“ Loftur segist hafa séð samgönguráðherra í sjónvarpi á sunnudagskvöld og það hafi aukið sér bjartsýni. „Við erum meö verkfallsréttinn þannig en 32 eru þó undanskildir þessum rétti og þeir sinna þeim störf- um sem menn eiga annars að sinna, og þá bara með þessum skertu afköst- um,“ sagði Loftur Jóhannsson. Hann segir að ekkert hafl komið upp á borð- ið varðandi frekari tilslakanir. „Þetta verður tveggja daga verkfall núna, og þriggja daga í lok febrúar, verkfall,“ sagði Loftur. „Það er ekkert óeðlilegt í þessu máh. Við eigum að gera viðvart ef eitthvað horfir öðruvísi og útlit fyrir að við getum ekki uppfyllt samning- inn. Það er út í hött að eitthvað hafi veriö athugavert við það að þetta bréf bærist mér frá Alþjóða flugmálastofn- uninni," sagði Sturla Böðvarsson samgönguráðherra í gær- kvöld. Hann segir að menn verði að meta bréflð og skilja það þá hver á sinn hátt, en hann telji ekki um hótun að ræða, aðeins raunveruleikann. Verkfall flugumferðar- stjóra hefst i fyrramálið ef ekki semst áður. „Ég mun funda á mánudagsmorgun með flugmálastjóra og fara yfir stöðuna og meta hana síðan á grundvelli þess sem hann hefur fram að færa,“ sagði Sturla. „Ég reikna með að Kanadamenn muni taka að sér þjónustuna ef til verkfalls kemur. Það er þegar byrjað af hálfu Alþjóða flug- málastofnunarinnar að leggja á ráðin að taka við þessu. Þá opnast allar gáttir, margir vilja sinna þessari þjónustu við flugið á svo stóru svæði,“ sagði ráöherrann. Loftur Jóhannsson flugum- ferðarstjóri og aðalmaður samninganefndar félagsins var í gærkvöld að búa sig undir fyrsta fundinn hjá sáttasemjara sem hefst kl. 13.30 í dag. Tilraunir til sátta fram til þessa hafa fariö í vaskinn. -JBP Sturia Böðvarsson samgönguráðherra. Einhugur ríkir meðal framsóknarmanna í flugvallarmálinu: Flugvöllur áfram í Reykjavík -hefur ekki áhrif á samstöðu R-listanns, segir borgarstjóri „Ég vona að afstaða borgarstjóra hafi ekki áhrif á samstarfið innan Reykjavíkurlistans og ég vænti þess að skynsemin sigri í þessu máli. Ég tel að höfuðborgin verði að axla skyldur sínar gagnvart landinu í heild þótt hér sé að vísu verið að tala um hluti sem eiga að gerast árið 2016 og ég á vart von á því að ég né Ingibjörg Sólrún komum til með að taka þær ákvarðanir þegar þar að kernur," segir Hall- dór Ásgrímsson num yfirlýsingu Ingibjargar Sólrúnar Gisladóttur borgarstjóra í flugvallarmálinu en í lok borgarafundar, sem haldinn var í gær, sagðist borgarstjóri á þeirri skoðun að völlurinn skyldi látinn víkja fyrir byggð árið 2016. Borgarfulltrúar Framsókn- arflokksins eru á öndverðum meiði við borgarstjóra og að sögn Halldórs ríkir einhugur í flugvallarmálinu innan flokksins. „Ég sé ekki að framsóknarmenn geti stutt neitt annaö en að flugvöllur verði áfrarn í Reykjavík og báðir borgarfulltrúar okkar hafa tjáð mér að þeir telji nauðsynlegt að halda í völlinn," seg- ir Halldór. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir kveð- ur ekki ástæðu til að hafa áhyggjur af samstarfinu innan Reykjavíkur- listans vegna flugvallarmálsins enda gangi það þvert á pólitískar línur. „Það eru skiptar skoðanir um þetta mál í öllum flokkum en það kann vel að vera að það sé einhugur innan forystu- sveitar framsóknarmanna en ég lít svo á það breyti engu um samstarfið innan R-list- ans. Þetta er þverpólitískt mál og þess vegna að hluta til er það nú i höndum borgar- búa,“ segir Ingibjörg Sólrún. Á borgarafundinum I gær sagði Sturla Böðvarsson samgönguráð- herra að aðeins væru tveir kostir mögulegir, flugvöllur í Vatnsmýri eða Keflavík. „Mér finnst samgöngu- ráðherra vera með þessu að freista þess að hafa áhrif á borgarbúa í þess- ari atkvæðagreiðslu. Að mínu mati eru rök ráðherra fyrir því að stilla málinu upp með þessum hætti ekki haldbær. Ef niðurstaðan verður á þá lund að völlur- inn eigi að fara að þá hljóta bæði ráðherra og aðrir að vega það og meta hvernig þessum málum verður best fyrir komið og hvernig þjóna megi þeim sem nýta flugið,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. -aþ Halldór Ásgrímsson. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. i i i i i i Í i i i i i i i i i i i i i i i i i i i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.