Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2001, Side 4
4
FIMMTUDAGUR 8. MARS 2001
Fréttir
DV
Flugvélin N272BB úr radar- og talstöðvarsambandi:
Ekki óalgengt að flugvél-
ar verði sambandslausar
- því hófst formleg leit ekki strax -
slíkt geröist aftur í innanlandsflugi í gær
Athygli hefur vakiö að formleg leit
að bandarísku flugvélinni sem fórst
með tvær konur innanborðs við suður-
strönd íslands á þriðjudag hófst ekki
fyir en um fjórum klukkustundum eft-
ir að hún hvarf af ratsjá flugumferðar-
stjómar í Keflavík. Þótt viðbragðsferli
hefði verið sett strax í gang þá var
hættuástandi vegna vélarinnar ekki
lýst fyrr en klukkan 12.32, nærri fjór-
um tímum eftir að vélin hvarf. Flug-
málayfirvöld segja ekki óalgengt að
flugvélar verði sambandslausar á flugi
til og frá landinu og jafnvel í innan-
landsflugi. Að sögn Ásgeirs Pálssonar,
framkvæmdastjóra flugumferðarsviðs
Flugmálastjórnar, varð t.d. lítil vél
sambandslaus í sjónflugi innanlands í
gær en kom fram heil á húfl eftir
tveggja tíma eftirgrennslan.
Samkvæmt upplýsingum frá Flug-
málastjóm er ekkert talið athugavert
við viðbragðsferlið á þriðjudaginn og
allt hafi þar verið samkvæmt bókinni.
Flugvélin N272BB, af gerðinni AC56,
fór í loftið frá Keflavíkurflugvelli, með
stefnu á Stornoway í Skotlandi, klukk-
an 08.19 á þriðjudagsmorgun. Heimir
Már Pétursson, blaðafulltrúi Flug-
málastjómar, segir að talað hafi verið
við flugmann vélarinnar klukkan 08.55
um morguninn. Þá var allt í lagi um
borð og flugvélin komin í sina eðlilegu
farflughæð í 15 þúsund fetum (um 5
kílómetra hæð). Klukkan 08.59 hvarf
vélin af ratsjá og áhöfn svaraði ekki
kalli flugumferðarstjómar. Engar
néyðarsendingar bárust frá vélinni.
Heimir Már segir flugvélar í ferju-
flugi ekki lúta jafn ströngum öryggis-
skilyrðum og gerðar em til almenns
farþegaflugs. Flugvélin, sem var
tveggja hreyfla, af gerðinni Aero
Commander 56, var þó búin svokölluð-
um radarsvara sem er nauðsynlegur
til að hún komi glögglega fram á lang-
drægri ratsjá. Flugumferðarstjóm hef-
ur yfir að ráða tvenns konar ratsjám á
Keflavíkurflugvelli, annars vegar rad-
ar sem skannar svæði sem er um 60
mílur í radíus og hins vegar radar sem
hefur um 200 mílna skönnunarsvið.
Ýmsar ástæður em taldar geta vald-
ið því að flugvél hverfur af ratsjá og
samkvæmt upplýsingum frá Flugmála-
stjórn gerist slíkt jafnvel oft i hverjum
mánuði. Ástæður þessa em m.a. nefnd-
ar daufur radarsvari, rafmagnstruflan-
ir eða sprungin öryggi. Þá er líka nefnt
að það geti gerst að flugmenn slökkvi á
talstöð eftir að vera búnir að sinna lág-
marks-tilkynningarskyldu, eða skipti
yfir á aðrar bylgjulengdir. Þar með
geti flugvélar verið algjörlega sam-
bandslausar við flugumsjón án þess að
neitt þurfi að vera að.
Ásgeir Pálsson segir að sambands-
leysi komi helst upp í eldri vélum, en
það eigi þó aldrei að skapa hættu fyr-
ir aðra flugumferð. Hann segir að
reglur um aðskilnað flugvéla á lofti
byggist m.a. á að radarsamband sé
ekki öruggt. Farþegaþotur eru þó
með fjölþætt og venjulega tvöfalt ör-
yggiskerfi hvað radar- og radíósam-
band varðar.
VESTMANNAEYJAR ffft
» y
Hér fannst
brakiö úr
vélinní
Rugumsjón
Reglur um aöskilnaö flugvéla á lofti byggjast m.a. á aö radarsamband
sé ekki öruggt.
Rugvélin N272BB
Vélin varö sambandslaus viö um-
heiminn kl. 08.59 á þriöjudag.
Viðbrögð vegna týndu
vélarinnar
Flugstjóm sendi út beiðni til ann-
arra flugvéla á flugi yfir hafið um
klukkan 09.00 að reyna að ná sam-
bandi við vélina en án árangurs. Flug-
stjómarsvæðinu í Skotlandi var til-
kynnt um eðli málsins klukkan 09.10,
en þar vom menn með flugáætlun vél-
arinnar sem hugðist millilenda í
Skotlandi. Vél Flugmálastjómar var
sett í viðbragðsstöðu kl. 09.20. Þá er
Landhelgisgæslan látin vita klukkan
10.12 og Tilkynningaskyldan um svip-
að leyti. Þá vom fiskibátar staddir á
svæðinu austan Vestmannaeyja. Að
sögn upplýsingafulltrúa Flugmála-
stjómar var einnig haft samband við
vamarliðið og það beðið að athuga
hvort vélin kæmi fram í þeirra tækja-
búnaði. Sömuleiðis var Flugslysanefhd
látin vita.
Ákveðið var klukkan 12.08 að hefja
undirbúning leitar á vegum Landhelg-
isgæslunnar. Þá var varðskip statt
ekki langt frá þebn stað sem síðast var
vitað um flugvélina á lofti. Það var svo
klukkan 12.32 sem neyðarástandi er
lýst yfir en þá var liðinn sá timi sem
vélin hefði átt að vera í lendingu í
Skotlandi, en hún var með tíu tima
flugþol. Þá fóra vél Flugmálastjómar
og þyrla Landhelgisgæslunnar til leit-
ar. Björgunarbátur leggur af stað frá
Vestmannaeyjum klukkan 13.14 og
skip og fiskibátar fóm til leitar.
Herjólfur ftnnur síðan brak klukkan
13.50 á stað 63’35’ N og 25’45’ V. Fimm
mínútum seinna er staðfest að brakið
sé úr flugvél, en brak var þá dreift um
stórt svæði. Landhelgisgæslan til-
kynnti síðan um fund líkamsleifa flug-
manna klukkan 16.15.
Samkvæmt upplýsingum frá flug-
málayfirvöldum liggur ekkert fyrir um
orsök slyssins. Ekki er heldur upplýst
hvort vélin hafi sundrast í lofti eða
hrapað í heilu lagi í sjóinn. Hugsanlegt
er t.d. að í stjómlausu hrapi hafi flug-
vélin hreinlega brotnað í sundur og
það geti skýrt hversu dreift brakið var.
Einkaflugvélar af þessari stærð em að
öllu jöfhu ekki búnar svokölluðum
svörtum kassa sem upplýst getur um
orsök slyssins. -HKr.
Rugmennirnir
Barbara Gard flugmaöur og Gwen
Bloomingdale aöstoöarflugmaöur.
Ferill bandarísku
flugvélarinnar
- frá flugtaki í Keflavík
Klukkan 08.19
Flugvélin N272BB af gerðinni AC56 fer í
loftið frá Keflavíkurflugvelli með stefnu
á Stomoway í Skotlandi.
Klukkan 08.55
Talstöðvarsamband haft við flugvélina
og allt í lagi um borð. Vélin var þá kom-
in í sína eðlilegu farflughæð í 15 þúsund
fetum (um 5 kílómetra hæð).
Klukkan 08.59
Vélin hverfur af ratsjá í Keflavík.
Klukkan 09.00
Boð send til annarra flugvéla um að
reyna að ná sambandi við týndu flugvél-
ina.
Klukkan 09.10
Flugumsjón í Skotlandi er tilkynnt um
eðli málsins.
Klukkan 09.20
Flugvél Flugmálastjórnar sett í við-
bragðsstöðu.
Klukkan 10.12
Landhelgisgæslu gert viðvart og Til-
kynningaskyldunni um svipað leyti,
sem og flugslysanefnd.
Klukkan 12.08
Landhelgisgæslan hefur undirbúning
leitar.
Klukkan 12.32
Neyðarástandi er lýst yfir og leit sett í
gang.
Klukkan 13.14
Björgunarbátur leggur af stað frá Vest-
mannaeyjum og aðrir bátar og skip
sigla á svæðið.
Klukkan 13.50
Feijan Herjólfur finnur brak á stað
63‘35’ norður og 25’45’ vestur sem stað-
fest er fimm mínútum síðar.
Klukkan 16.15
Landhelgisgæslan tilkynnir fúnd á lik-
amsleifum flugmanna. Þær vom síðan
fluttar með björgunarbát til Vestmanna-
eyja. -HKr.
Vcöriö i kvold
8BB
S' w
*í j
■
‘W -
v®*
-4^ Á*
JP
, «Vi
Vægt frost norövestanlands
Austan- og noröaustanátt, 10 til 15 m/s
norövestanlands, en annars viöa 5 til 10.
Rigning eöa súld meö köflum sunnan- og
austanlands en dálítil snjókoma eöa él
norövestan til. Vægt frost norövestanlands en
hiti annars 0 til 7 stig, mildast syöst.
Vcöríö a morgun
Sólariag i kvöld 19.08 18.49
Sólarupprás á morgun 08.07 07.07
Siödegisflóö 17.52 22.25
Árdegisflóö á morgun 06.08 10.41
Skýringar á veðurtátaium
^ VINDÁTT 10 °<— HITI w -10° NVINDSTYRKUR \„,„t í metrum á sekúntíu x rKU& 1 -ft- HEIÐSKIRT
3D o
LETTSKÝJAÐ HÁLF* SKÝJAO SKÝJAÐ AISKÝJAO
W? s?
RIGNING SKÚRIR SLYODA SNJÓK0MA
.Q U
ÉUAGANGUR ÞRUMB- VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA
Grelöfært um Austfiröi og Suöurland
Samkvæmt upplýsingum frá Vegageröinn
var Holtavöröuheiöi ófær í morgun og
uröu þar tafir vegna þess aö bílar sátu
fastir. Brattabrekka var líka ófær. Á
Snæfellsnesi var snjór mokaöur af vegum
í morgun og einnig var mokaö noröur
Strandir, á Steingrímsfjaröarheiöi og um
Djúp. Víöa er hálka á Noröurlandi.
Greiöfært er um Austfiröi og Suöurland.
Austan- og noröaustan
Austan- og noröaustanátt, 10 til 15 m/s norövestanlands, en annars víöa
5 til 10. Rigning og súld meö köflum sunnan- og austanlands en dálítil
slydduél norövestan til. Hiti 0 til 7 stig, mildast syöst.
lUiHjýíirtlíjgnj
Vindur:
8—13 m/»
Hiii O" til 6°
Norðaustlæg átt, 8 tll 13
m/s norövestan tll, en
annars hægarl. Rlgnlng
eöa slydda meö köflum en
þurrt aö kalla suövestan
tll. Hltl 0 tll 6 stlg.
Vindur: /^
8—13 m.'.
Hiti o° til 6°
Noröaustlæg átt, 8 tll 13
m/s norövestan til, en
annars hægarl. Rlgnlng
eöa slydda meö köflum en
þurrt aö kalla suövestan
tll. Hltl 0 tll 6 stlg.
fV!rt»!!(«*!g«r
Vindur: /•
8-13 (iv'*
Hiti 0° ti
Noröaustlæg átt, 8 til 13
m/s norðvestan til, en
annars hægari. Rlgning
eöa slydda meö köflum en
þurrt aö kalla suövestan
tll. Hlti 0 tll 6 stlg.
AKUREYRI alskýjaö 1
BERGSSTAÐIR alskýjað 1
BOLUNGARVÍK
EGILSSTAÐIR
KIRKJUBÆJARKL. skúrir 3
KEFLAVÍK rigning 4
RAUFARHÖFN súld 1
REYKJAVÍK skýjaö 4
STÓRHÖFDI skúrir 6
BERGEN alskýjaö 2
HELSINKI skýjaö -14
KAUPMANNAHÖFN þokumóöa 2
ÓSLÓ alskýjað 0
STOKKHÓLMUR
ÞÓRSHÖFN þokumóöa 6
ÞRÁNDHEIMUR skýjaö 3
ALGARVE skýjað 14
AMSTERDAM þoka 6
BARCELONA þokumóða 13
BERLÍN alskýjaö 4
CHICAG0 alskýjaö -1
DUBUN skýjaö 7
HAUFAX skýjaö -3
FRANKFURT súld 5
HAMBORG þokumóöa 4
JAN MAYEN alskýjaö 1
LONDON skýjaö 8
LÚXEMBORG rigning 7
MALLORCA skýjaö 14
MONTREAL heiöskírt -6
NARSSARSSUAQ alskýjaö -11
NEW YORK hálfskýjaö 0
ORLANDO heiöskírt 8
PARÍS rigning 9
VÍN skýjaö 3
WASHINGTON skýjað 0
WINNIPEG alskýjaö -4