Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2001, Síða 5
FIMMTUDAGUR 8. MARS 2001
5
DV
Fréttir
Alfreð Þorsteinsson borgarfulltrúi:
Vinstri grænir eru í samstarfi R-lista
- engar viðræður né umleitanir um framhaldið
„Vinstri grænir eru í R-lista
samstarfinu i dag,“ sagði Alfreð
Þorsteinsson, borgarfulltrúi
Framsóknarflokksins, vegna um-
ræðna sem spunnist hafa um lík-
ur á samstarfi þeirra flokka sem
nú standa að borgarstjórnarsam-
starfi svo og vinstri grænna. Um-
mæli Alfreðs um hugsanlega
skiptingu sæta milli flokkanna
eftir næstu borgarstjórnarkosn-
ingar hafa vakið athygli. Stjórn
Reykjavíkurfélags VG sendi í
kjölfarið frá sér tilkynningu þess
efnis að engar umræður, hvorki
formlegar né óformlegar hefðu
farið fram við R-listann. Hins veg-
ar væri málefnaskrá flokksins í
vinnslu og möguleikum haldið
opnum.
„Árni Þór Sigurðsson sem er
innan raða vinstri grænna er
hvorki meira né minna en for-
maður tveggja af stærri nefndum
borgarinnar,
þ.e. skipulags-
og bygginga-
nefndar og
hafnarstjóm-
ar,“ sagði Al-
freð. „Vinstri
grænir eru því
í þessu sam-
starfi í dag,
alla vega með
þessum hætti.“ Viöraöi möguleika.
Alfreð sagði að ummæli sín um
hugsanlega skiptingu borgarfull-
trúa milli flokka hefðu einungis
verið dæmi um hvernig hægt
væri að framkvæma hlutina með
ákveðnum hætti. Engar viðræður
hefðu átt sér stað um samstarf
milli umræddra flokka. Fram-
sóknarmenn væru ekki einu sinni
búnir að ákveða hvort þeir yrðu
áfram í samstarfi við R-lista eða
ekki. Alfreð sagði það sitt álit, að
mjög óskynsamlegt væri ef hver
flokkur ætlaði að fara fram til
kosninga í sínu horni í stað þess
að halda áfram árangursríku
samstarfi. Það gæti leitt til þess
að atkvæði félagshyggjuflokkanna
nýttust ekki til fulls, þannig að
Sjálfstæðisflokkurinn næði völd-
um í borginni aftur, hugsanlega
með minnihluta atkvæða á bak
við sig. -JSS
Fjárkláði staðfestur:
Bændur kæru-
lausir með flutn-
inga milli svæða
DV, SAUDÁRKRÓKI:
Nýlega var fjárkláði staðfestur á
tveimur bæjum í Skagafirði, í
Tungu í Gönguskörðum og á Ríp í
Hegranesi. Einungis eru tvö ár síð-
an fjárkláði kom síðast upp í
Skagafirði, en samstaða náðist
ekki í héraðinu í sameiginlegu
átaki gegn fjárkláðanum sem Bún-
aðarsambönd Húnvetninga hvöttu
til fyrir nokkrum misserum.
Einar Otti Guðmundsson, hér-
aðsdýralæknir í Skagafirði, segir
að Skagfirðingar geti ekki sætt sig
við núverandi ástand og það væri
mjög skynsamlegt fyrir Skagfirð-
inga og Húnvetninga að efna til
átaks gegn riðunni, samstaðan sé
eini möguleikinn til að opinber
stuðningur fáist við verkefnið.
Fjárkláöi var viðvarandi í hér-
aðinu á síðasta áratug, að sögn
Einars Otta. Hann kom upp á Hús-
ey í Vallhólma á árinu 1999 aftur
eftir að vera staðfestur þar um
miöjan áratuginn, sem og á ná-
grannabænum Völlum. Talið er að
kláðinn hafi borist í Vallhólmann
úr austanverðum Skagafirði en
hans hafði orði vart í Viðvikur-
sveit og Hólahreppi.
Einar Otti segir að bændur séu
of kærulausir með flutning á fóðri
og dýrum milli svæða. Þeir hafl
það ekki nægjanlega hugfast að
Héraðsvötnin séu i raun varnar-
girðing, sauðfjárbændur viti af þvi
en þetta vilji gjarnan gleymast.
Tjón vegna fjárkláðans felst
fyrst og fremst í ullartapi, þyngd-
artapi þar sem féð étur ekki vegna
óþæginda og ef ekki er að gert, í
dauða, einstakra dýra af völdum
kláðans. -ÞÁ
Skiltiö fékk
að vera í friði
í tvo tíma
DV. HVALFIRÐI:________________
Viðvörunarskilti sem flutninga-
bílstjóri sleit niður við suður-
munna Hvalfjarðarganga fyrir
helgi fékk að vera í friði í heilar
tvær klukkustundir eftir að gert
hafði verið við skemmdirnar. Þá
rakst farmur eða tæki upp I skiltið
og stórskemmdi það á nýjan leik.
Viðgerðarmenn eru væntanlegir
á vettvang síðar í dag. Það var
gámur á flutningabíl á leiö til
Ólafsvíkur sem sleit þetta sama
skilti niður í fyrri viku. Bílstjórinn
heyrði dynk en hirti ekki frekar
um það og hélt áfram vestur. Þar
tók lögregla á móti honum. Gert
var við skiltið og því síðan komið
fyrir á sinum stað við Hvalfjarðar-
göng um kl. 14.30 í gær.
Aðeins tveimur tímum síðar, kl.
16.30, bárust fregnir af þvi til vakt-
manns í gjaldskýli að eitthvað
hefði rekist á skiltið, það væri
brotið og beygt en héngi samt uppi.
Ekki er vitað hver var þar aö verki
en böndin berast að flutningabíl-
um á norðurleið um þetta leyti.
-DVÓ
Hvaða dekk er betra í snjó
en nagladekk?
Svarið er: Bridgestone Blizzak
Þegar þú velur þér vetrardekk, snýst sú ákvörðun fyrst og fremst um öryggi.
Dekkið sé það fjölhæft að eiginleikar þess dekki allar aðstæður, en ekki bara
undantekningatilvik. Bridgestone Blizzak er sérstaklega hannað fyrir norðlægar slóðir
og hin einstaka tækni, sem var notuð við hönnun þess, gefur ótvíræða kosti:
Betri aksturseiginleika, meiri stöðugleika, minni eldneytiseyðslu, betri endingu,
auk þess sem þau eru hljóðlátari og afburðargóð í snjó og hálku.
Þar fyrir utan veldur notkun þess ekki hávaða- og loftmengun og griðarlegum kostnaði
og óþægindum við lagfæringu gatnakerfisins á hverju ári.
Sparaðu naglana og sparaðu aurinn
- veldu dekkið sem var hannað fyrir þær aðstæður sem við búum við.
• Frábær I snjó og hálku
• Meiri stöóugleiki
• Miklu hljóðlátari
• Betri aksturseiginleikar
• Minni eldsneytiseyðsla
• Aukin þægindl og betri ending
•Góðalltárið
JmUUESTUHE
I grafinu eru bomar saman tvær gerðir dekkja frá
Brídgestone. Nagladekkin hafa vinnlnginn / mikilli
hálku en frammistaða þeirra er að öðru leyti úberandi
slök I samanburði við BUZZAK dekkin.
UMBOÐSAÐILI:
BRÆÐURNIR
ORMSSON
Lágmúla 8 • Sími 530 2800
www.ormsson.is
Söluaðilar
l&BISSi
[jPccQj Geirsgata 19.
L * sími 551-1968
BiFR&OAWöNOSTA Oliufélaglð llf
MMMJl
SMUR & DEKKJAÞJÓNUSTA
BREIÐHOLTS
Jafrvaseli 6 • sfmi 587 4700
SMIÐJUVEGI34-36. S(Mi 557 9110