Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2001, Page 6
6
FIMMTUDAGUR 8. MARS 2001
Fréttir
Sex piltar ákærðir fyrir árás á lögreglu sem hafði afskipti af partíi í Garðabæ:
Skemmdu 3 lögreglubíla
réðust á 6 lögreglumenn
- lögreglan í Hafnarfirði leggur einnig fram skaðabótakröfu vegna skemmdra bíla
Sex ungir karlmenn hafa veriö
ákærðir fyrir aö hafa ráðist á sex
lögreglumenn í starfi með spörkum,
hnefahöggum og líflátshótunum og
með því að bíta einn þeirra auk þess
sem göt voru stungin á sex hjól-
baröa á þremur lögreglubílum. At-
burðimir áttu sér staö þegar lög-
reglan var að hafa afskipti af ungu
fólki sem hafði komið saman í og
við hús í Löngumýri í Garðabæ í
maí síðastliönum. Lögreglan i Hafn-
arflrði leggur fram 65 þúsund króna
skaðabótakröfu vegna skemmda á
bílum embættisins.
Einn piltanna er ákærður fyrir að
hafa stungið göt á einn fram- og
einn afturhjólbarða tveggja lög-
reglubíla og báða afturhjólbarða
eins bíls á meðan lögreglumenn
voru að hafa afskipti af unga fólk-
inu. Með þessu er piltinum gefið að
sök að hafa gert lögreglumönnunum
tálmanir í að gegna skyldustörfum
sínum. Öðrum pilti er gefið að sök
brot á valdstjórninni með því að
hafa bitið lögreglumann í læri og
ráðist að tveimur öðrum með högg-
um og spörkum í öxl og síðu og hót-
að þeim báðum lífláti. Sá þriðji er
ákærður fyrir að hafa komið aftan
að einum lögreglumanni og veitt
honum höfuðhögg. Fjóröa mannin-
um er gefið að sök að hafa kýlt og
Lögreglan leysir upp partíiö
Afrakstur partísins í Garðabæ varö sex skemmdir hjólbarðar á þremur lögreglubilum, fjölmargir meiddir lögreglu-
menn og piltar sem lentu í átökum og mikil óánægja hóps fólks. Réttarhöld eru fram undan.
sparkað í einn lögreglumann en
hindrað þrjá aðra í að gegna skyldu-
störfum sínum. Fimmti pilturinn er
ákærður fyrir að hafa ráðist með
höggum og spörkum að þeim lög-
reglumanni sem fjórði maðurinn
kýldi á meðan hann var í tökum.
Sjötta ungmennið er ákært fyrir að
hafa ráðist að þremur lögreglu-
mönnum með barsmíðum og hótun-
um um líkamsmeiðingar svo að
nauðsynlegt var að handtaka hann.
Réttarhöld hefjast brátt í máli sex-
menninganna í Héraðsdómi Reykja-
ness. -Ótt
íslenskir aðalverktakar:
Ráðherra vísaði sóg-
um um tap á bug
Bruninn á Hótel Búöum:
Rannsókn leiddi
ekkert í Ijós um
eldsupptök
Rannsókn á upptökum eldsins að
Hótel Búðum á Snæfellsnesi er lokið,
en ekkert hefur komið fram um upp-
tök eldsins.
Hótel Búðir, sem hefur í áraraðir
verið einn helsti samkomustaðurinn á
Snæfellsnes'i, gjöreyðilagðist í eldi að
kvöldi 21. febrúar síðastliðinn. Húsið,
sem var úr timbri, var mannlaust er
eldurinn kom upp og brann það til
kaldra kola á mjög skömmum tíma.
Ólafur Kristófer Ólafsson, sýslumað-
ur í Stykkishólmi, sem fer með rann-
sóknina, sagði formlega niðurstöðu
ekki vera komna enn en ekkert heföi "
komið fram við rannsóknina um upp- |
tök eldsins. Hann sagði ástæðuna vera I
þá að bruninn var svo algjör.
Nýbúið var að setja rafmagn á hús- 1
ið er eldurinn kom upp en hótelrekst-
ur hefúr legið niðri síðan í september
1999. Viktor Heiðdal Sveinsson, eig-
andi Hótel Búða, er síðasti maður sem
vitað er til að hafi verið í húsinu, dag-
inn fyrir brunann. Viktor sagði í viðtali
við DV skömmu eftir brunann að hann
ætlaði sér að byggja hótelið upp aftur ef
hann gæti. Brunabótamatið á hótelinu j
nam 74 milljónum króna. -SMK
Halldór Ásgrimsson utanríkisráð-
herra sagði Gísla Einarsson, alþingis-
mann Samfylkingarinnar, vera „á
mjög hálum ís“ í fyrirspum sinni til
Halldórs varðandi stöðu íslenskra aö-
alverktaka og verksins sem þeir nú
vinna við Vatnsfellsvirkjun. Málið var
tekið fyrir á fyrirspumarfundi i Al-
þingi í gær. Halldór sagði stöðu fyrir-
tækisins sterka og engar visbendingar
hefðu komið fram um vandamál tengd
verkinu við Vatnsfellsvirkjun.
Gísli fór í málið á þeirri forsendu að
vara almenning við fjárfestingu í
hlutabréfum almennt, nema eftir vand-
lega íhugun, og vísaði í áramótaræðu
Davíðs Oddsonar forsætisráðherra,
þar sem Davíð ljallaði um varfæmi í
kaupum verðbréfa og hlutabréfa. Gísli
sagðist hafa haft spumir af miklu tapi
á byggingu Vatnsfellsvirkjunar og
sagði Jóhann Bergþórsson hjá íslensk-
um aðalverktökum hafa fullyrt á
starfsmannafúndi í Vatnsfelli hinn 8.
febrúar síðastliðinn að búið væri að
framkvæma fyrir 2,8 milljarða af 3,2
milljarða verksamningi, þannig að að-
eins vom eftir 400 milljónir í verkið.
Eftir væri hins vegar að framkvæma
fyrir um það bil 1 milljarð.
íslenska ríkið á tæp 40 prósent í ís-
lenskum aðalverktökum, sem er verk-
taki byggingar virkjunarinnar. Utan-
ríkisráðherra er handhafi hlutabréfs-
ins í íslenskum aðalverktökum og
staðfesti Halldór fyrirhugaða sölu
eignarhluta ríkisins. Halldór vísaði í
síður Viðskiptablaðsins, þar sem ís-
lenskir aðalverktakar lentu í 6. sæti
yfir þau fyrirtæki sem vom með mesta
hækkun á Verðbréfaþingi íslands á
síðasta ári og sagði Utanríkisráðuneyt-
ið ekki hafa neinar upplýsingar um af-
komu íslenskra aðalverktaka síðustu
10 mánuðina sem ekki hafa verið gerð-
ar opinberar.
„Gengisþróun hlutabréfafélagsins
bendir ekki til þess að markaðurinn
telji rekstur félagsins verulega erfið-
an,“ sagði Halldór. Hann bætti því við
að fyrirtækið hefði ekki gefið út neina
afkomuviðvörun vegna afkomu þess
eða einstakra verka.
„Almenningur á alltaf að sýna var-
kámi í kaupum á hlutabréfum og öðr-
um eignum. Mér finnst það á engan
hátt vera hlutverk Alþingis að veita
einhveija ráðgjöf í því sambandi,"
sagði Halldór Ásgrímsson.
-SMK
Ferðaskrifstofa breytir nafni á auglýstri ferö:
Bændaferð
Bóndasonur bíður eftir hlutverki
Jóhannes Snorrason, bóndasonur frá Augastöðum í Borgarfirði, sést hér
meöal kanadískra jafnaldra sinna bíða eftir að komast í viðtal hjá kvikmynda-
gerðarfólkinu sem stendur að stórmyndinni K19 - The Widow Maker. Eins og
fram kom í DV í gær var Jóhannes valinn úr hópi 200 umsækjenda til aö
leika aukahlutverk í myndinni en tökur standa nú yfir á ísilögöu Winnipeg-
vatni í Kanada en þar hefur Jóhannes verið búsettur og starfað sem smiður
síöastliöin 2 ár.
verður Söguferð
Ferðaskrifstofan Úrval-Út-
sýn hefur brugðist við blaða-
skrifum og gagnrýni land-
búnaðarráðherra á auglýsta
bændaferð um sveitir Bret-
lands með því að breyta
nafni ferðarinnar úr Bænda-
ferð yfir í Söguferð. Á Bret-
landseyjum geisar sem
kunnugt er gin- og klaufa-
veikifaraldur og smithætta
talin mikil.
„Okkur þykir leitt að nafn
ferðarinnar skuli hafa valdið
öllum þessum miskilningi. Bænda-
ferðin var aðeins heiti á ódýrum
rútuferðum um Evrópu sem upphaf-
lega voru skipulagðar fyrir bændur.
Nú fer alls kyns fólk í þessar ferðir en
nafnið hefur haldið sér, enda
gott,“ sagði Þórir Jónsson,
deildarstjóri hjá Úrvali-Út-
sýn, eftir að stjórnendur fyr-
irtækisins höfðu tekið
ákvörðun um nafnbreyting-
una.
„Ég held að það sé enginn
bóndi skráður í þessa ferð og
það var aldrei ætlunin að
heimsækja breska bóndabæi.
Ekið verður í rútu á milli
ýmissa borga þannig að
áhyggjur landbúnaðarráð-
herra eru með öllu óþarfar. Hitt er
svo annað mál að öðru hvorum meg-
in við helgina munum við taka
ákvörðun um hvort ferðin verði farin
eða ekki,“ sagði Þórir Jónsson. -EIR
Þórir Jónsson
Áhyggjur ráð-
herra óþarfar.
Sandkorn
Hörður Kristjánsson
netfang: sandkorn@ff.ls
Takmarkanir á aðsókn
Á dögunum
greindi frá er-
lendum kven-
mönnum sem
mótmæltu því
harðlega að
vera hleypt út
úr fangelsi í
Kópavogi.
Þóttu það
merki um gjörbreytt viöhorf svokall-
aðra frjálsra einstaklinga sem nú
sæktust eftir því að komast á bak
við lás og slá. Frétt í DV í gær um
fangann á Litla-Hrauni vakti ekki
minni athygli. Hann afrekaði það
innan fangelsinsveggjanna að skipu-
leggja milljónasvik og bankamilli-
færslur af reikningum sem hann
átti ekkert í. Þetta gerði hann eins
og finasti skrifstofumaður og í fríu
fæði og húsnæði á kostnað ríkisins.
Menn velta því fyrir sér hvenær rik-
ið taki upp á að setja takmarkanir á
aðsókn að fangelsum landsmanna...
Öll sæti frátekin
Steingrímur J.
Sigfússon er ekki
par hrifinn þessa
dagana. Umræður
um framboð
Vinstri grænna
eða samvinnu við
R-listann í
Reykjavík hafa
leitt til þess að
Alfreð Þorsteinsson, Framsóknar-
flokki, hefur lagt fram dæmi um
hugsanlega skiptingu borgarfull-
trúa. Varpar hann fram hugmynd
um tvo framsóknarmenn, tvo sam-
fylkingarmenn og tvo frá VG. Síð-
an geti menn rifist um sjöunda
manninn allt eftir atkvæðastyrk
hvers flokks. Þarna þótti Stein-
grími J. of langt gengið og sagt er
að eftir gott gengi flokksins í skoð-
anakönnunum hafi hann fyrir
löngu síðan verið búinn að úthluta
eigin mannskap öllum sætum
meirihlutans í borginni...
Botninn í Borgarfirði
Skipa-
smíðar fyr-
ir íslend-
inga í Kína
fara senn
að flokkast
með undr-
um veraldar. Þar eru nú um tutt-
ugu stálskip af öllum stærðum í
smíðum fyrir hérlenda útgerðar-
menn. Nýlega bárust fregnir af því
að eitt af þessum skipum sem Kín-
verjar voru að smíða þætti of þungt
til að standast þá eðlisfræðilegu
raun að fljóta í vatni. Sem lausn á
málinu þótti mönnum ekki tiltöku-
mál þó lengja þyrfti dallinn um fá-
eina metra. Ekki munu það þó eins-
dæmi að íslensk skip hafi dregið
kviðinn eftir hafsbotninum vegna
eigin þunga jafnvel þó Kinverjar
hafi þar hvergi nærri komið. Nýj-
ustu fregnir af Ófeigi VE sem verið
er að smíða fyrir Vestmannaeyinga
herma hinsvegar að skipið fljóti alls
ekki. Velta spekingar fyrir sér
hvort Kfnverjar hafi gleymt ein-
hverju, minnugir orða Bakka-
bræðra þegar þeir komust að raun
um að ekki væri furða þó keraldið
læki fyrst botninn væri suður í
Borgarfirði...
Frostrigning
Óhætt er að full-
yrða að snjóleysið
í vetur hafi reynt
á þolinmæði
starfsmanna
skíðasvæðanna í
nágrenni höfuð-
borgarinnar, en ef
marka má eftir-
farandi stöku þá
er húmorinn í
góðu lagi hjá starfsmönnum i Blá-
fjöllum. Stakan er eignuð ónefndu
„fjallaskáldi," en tilefnið er
frostregnið sl. fimmtudag.
Veórið nú súrlega gremur mitt geö.
Ég gapi og stend hér i lostL
Oft rigndi í vetur og rok stundum með -
nú rignir i sjö stiga frosti.