Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2001, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 8. MARS 2001
7
DV
Þetta helst
HEILDARViÐSKIPTI 1700 mkr.
Hlutabréf 550 mkr.
Húsbréf 450 mkr.
MEST VIÐSKIPTI
í i Íslandsbanki-FBA 145 mkr.
I Landsbankinn 70 mkr.
I Baugur 48 mkr.
MESTA HÆKKUN
O Talenta-Hátækni 16,7%
O íslenski hugbúnaðarsjóöurinn 8%
© MP-Bio 2,1%
MESTA LÆKKUN
O Bakkavör Group
O Nýherji
©Össur
ÚRVALSVÍSITALAN
- Breyting
3,6%
3,3%
2,7%
1235 stig
O -0,22%
Fýrir-
tækjum
fækkar
á VÞÍ
Svo gæti farið að skráðum fyrir-
tækjum á Verðbréfaþingi íslands
fækkaði á þessu ári. Sem stendur
eru 65 fyrirtæki skráð á aðai- og
vaxtarlista VÞÍ en stjómir fjögurra
þeirra hafa þegar boðað að fyrirtæk-
in verði afskráð.
Fyrirtækin sem um ræðir eru
Hraðfrystistöð Þórshafnar hf„
Frumherji hf., Héðinn hf. og Frjálsi
fjárfestingarbankinn hf. Þrjú fyrr-
nefndu hyggja á afskráningu, m.a.
vegna lítilla viðskipta með bréf fé-
laganna og ómarkvissrar verðmynd-
unar, en Frjálsi fjárfestingarbank-
inn verður að líkindum afskráður
vegna yfirtöku Kaupþings hf. á fyr-
irtækinu. Á síöasta ári drógu sex
fyrirtæki sig jafnframt út af VÞÍ,
Fóðurblandan hf., Básafell hf., ís-
lenskar sjávarafurðir hf., Krossanes
hf„ FBA hf. og Hans Petersen hf.
Lækkanir í
Evrópu
Hlutabréfamark-
aðir í Evrópu
lækkuðu í morgun
þar sem hlutabréf í
tækni- og símafyr-
irtækjum leiddu
lækkanir. Kemur
þetta þvert ofan í frammistöðu
bandaríska markaðarins sem hækk-
að þó nokkuð í gær.
FTSE 100 lækkaði um 0,4% í
5.998,2 stig eftir að netkerfaframleið-
andinn Marconi og lyfjafyrirtækið
Imperial Chemical Industries lækk-
uðu um meira en 4%.
í París lækkaði CAC 40 vísitalan
um tæpt prósentustig þar sem ör-
gjörvaframleiðandinn STMicroelct-
ronics og samkeppnisaðili Marconi,
Aicatel lækkuðu þó nokkuð.
_________________________________________________Viðskipti
Umsjón: Viðskiptablaðið
Kjarasamningum ekki sagt upp af
hálfu verkalýðshreyfingarinnar
- tryggingaákvæði kjarasamninganna sönnuðu gildi sitt
I mati nefndarinnar er einnig varað við þeim teiknum sem nú eru á lofti
um að veröbólga geti farið vaxandi á ný.
Kjarasamningunum frá þvi sl.
vor verður ekki sagt upp af hálfu
verkalýðshreyfingarinnar sam-
kvæmt fyrstu endurskoðun nefndar
samningsaðila á almennum vinnu-
markaði. Það er sameiginlegt mat
nefndarinnar að tryggingarákvæði
kjarasamninganna hafi sannað gildi
sitt, bæði fyrir almennt launafólk og
efnahagslífið í heild. I því ástandi
sem nú ríkir í efnahagsmálum má
hins vegar lítið út af bera og ljóst að
grípa verður til virkra aðgerða til
að koma í veg fyrir að verðbólga
fari af stað.
Nefndin hefur iokið fyrstu endur-
skoðun sinni. Af hálfu Flóabanda-
lagsins, Starfsgreinasambandsins
og Samiðnar - sambands iðnfélaga,
var farið yfir mat nefndarinnar og
þær forsendur sem lágu til grund-
vallar. Að þeirri vinnu komu m.a.
framkvæmdastjórn SGS og samn-
inganefnd Samiðnar.
Niðurstaða nefndarinnar við end-
urskoðunina í ár er sú að markmið-
ið um lækkun verðbólgu hafi náðst
og að launafólki beri sérstakar
hækkanir á kaupliðum samning-
anna vegna ýmissa vafaatriða um
launakostnaðaráhrif annarra kjara-
samninga.
Fram kemur i frétt frá ASÍ að
með því samkomulagi sem náðist
tókst að afstýra því að til uppsagnar
samninga eða deilna um réttmæti
uppsagnar kæmi, með tilheyrandi
óvissu fyrir launafólk og efnahags-
lífið í heild.
Markmiðið um minni
verðbólgu náðist
Önnur af tveimur meginforsend-
um kjarasamninga á almennum
vinnumarkaði sl. vor var að verð-
bólga færi minnkandi og þannig
treystur grundvöllur kaupmáttar
launafólks. Launafólk á mikið undir
því að stöðugleikinn haldist og næg-
ir að benda á áhrif aukinnar verð-
bólgu á greiðslubyrði heimOanna
því til staðfestingar.
í mati nefndarinnar kemur fram
að markmiðið um minni verðbólgu
hefur náðst, enda minnkaði hún úr
5,6% niður í 4,1%. En í mati nefnd-
arinnar er einnig varað við þeim
teiknum sem nú eru á lofti um að
verðbólga geti farið vaxandi á ný.
Úrskurðað um hækkun launa-
llða
Önnur meginforsenda kjara-
samninganna á almennum vinnu-
markaði var að sú launastefna sem
þar var mótuð um sérstaka hækkun
lægstu launa og launakostnað yrði
ríkjandi. Reyndist svigrúm til
launahækkana meira skv. síðari
samningum en gert var ráð fyrir við
gerð kjarasaminganna á almennum
vinnumarkaði var hægt að ákveða
hækkun kaupliða eða segja samn-
ingum lausum.
Samkvæmt mati nefndarinnar
voru samningar á samningssviði
Samtaka atvinnulífsins innan
ramma en tvísýnna með samninga
við opinbera aðila. Þá er einnig
álitamál hvemig farið er með af-
leiddan kostnað á borð við hækkun
á lífeyrisskuldbindingum. í stað
þess að stefna í átök vegna mats á
þessum atriðum varð það að sam-
komulagi að hækka launaliði í gild-
andi kjarasamningi. Það er gert
með hækkun desemberuppbótar og
orlofsuppbótar launafólks.
GSM-kerfi Tals aftur
meö toppeinkunn
Eimskip kaupir nýtt
skip til Evrópusiglinga
- lokaáfangi í umfangsmikilli endurnýjun
Eimskip hefur keypt gámaskipið
m/v „Grete Sif‘ af skipaútgerðinni
KIL Shipping A/S í Danmörku.
Kaupverð skipsins er um 890 millj-
ónir króna og mun skipið sigla á
suðurleið (Reykjavík, Straumsvík,
Vestmannaeyjar, Immingham og Rott-
erdam) á móti systurskipi sínu, Sel-
fossi, sem félagið tók í rekstur 1999.
Grete Sif kemur i stað Lagarfoss
sem fer í siglingar á Ameríkuleið. Á
skipinu verður íslensk áhöfn og er
áætlað að skipið verði afhent Eim-
skip seinni hluta apríl í Rotterdam.
Grete Sif er smiðuð í Örskov-
sværft í Fredrikshavn í Danmörku
áriö 1992. Það er sama skipasmíða-
stöð og smíðaði systurskipin Goða-
foss og Dettifoss sem sigla á norður-
leið og félagið tók í rekstur í októ-
ber á síðast ári. Greta Sif hefur 8.675
tonna burðargetu, er 126 metra
langt og tekur 724 gámaeiningar
(TEU¥s). Á skipinu eru tveir 40
tonna kranar og skipið hefur raf-
magnsframleiðslu fyrir 140 frysti-
gáma í lest og á dekki.
Við kaup á þessu skipi hefur Eim-
skip endumýjað fjögur skip i áætl-
unarsiglingum til Evrópu á
nokkrum mánuðum og tekið í notk-
un fullkomin og hraöskreið skip
sem uppfylla vel flutningaþarfir fyr-
ir viðskiptavini félagsins. Þessi fjög-
ur skip eru af tveimur stærðum.
Tvö þeirra, sem sigla á norðurleið,
hafa liðlega 1.400 gáma burðargetu
og hin tvö hafa 700 gáma burðar-
getu. Að öðru leyti eru þessi skip af
svipaðri gerð og hin fullkomnustu
að allri gerð. Meðalaldur skipastóls
félagsins í áætlunarsiglingum er nú
10 ár en var fyrir rúmu ári 15 ár.
Nortel Networks, framleiðandi sím-
kerfis Tals, hefur skilað nýrri skýrslu
um gæði, rekstraröryggi og afköst sím-
kerflsins. Þetta er annað árið sem Nor-
tel gerir slíka gæðaúttekt. Líkt og í
fyrra skiptið fær Tal toppeinkunn.
Samkvæmt mælingum Nortel fær sam-
anlagður árangur (Quality of Service)
einkunnina 98,75%.
„Hjá farsímafyrirtækjum telst allt
yflr 98% vera mjög góður árangur og
við getum því vel við unað,“ sfegir
Jóakim Reynisson, framkvæmdastjóri
tæknisviðs Tals. Hann bendir jafn-
framt á að þegar úttekt var gerð á sím-
kerfl Tals fyrir tæpu ári hafi niður-
staðan verið mjög svipuð.
Heildareinkunnin er reiknuð út frá
mælingum sérfræðinga Nortel
Networks á fjölmörgum þáttum, þar á
meðal stöðugleika í sambandi, mögu-
leika notanda til að geta hringt tafar-
laust, samtalsrofum og afköstum á
álagstíma. í öllum einstökum mæling-
um reyndist árangur Tals vel yfir við-
miðunarmörkum. Úttekt sérfræðinga
Nortel Networks á símkerfi Tals fór
fram frá 15. janúar til 5. febrúar, að því
er fram kemur í frétt frá Tali.
„Þessi úttekt gefur okkur góða
mynd af því hvemig við stöndum okk-
ur gagnvart viðskiptavinum," segir
Jóakim Reynisson. „Þegar viðskipta-
vinum fjölgar jafn mikið og raun ber
vitni hjá Tali þá er mikilvægt að
tæknileg uppbygging sé samstiga. Við
mættum þessari aukningu á síðasta
ári með 35% fjölgun á sendum og 25%
aukningu talrása. Ekki veitti af því nú
höfum við um 57 þúsund viðskiptavini
með Tal GSM-síma. Álag á símstöð
Tals hefur enn fremur aukist í fram-
haldi af því að við gerðum reikisamn-
inga viö Símann GSM þannig að við-
skiptavinir Tals geta nú notað GSM-
síma sína á þeim þjónustusvæðum
Símans þar sem Tal hefur ekki eigin
senda.“
Aðalfundun Flugleiða
Aðalfundur Flugleiða hf. verður haldinn fimmtudaginn 15. mars árið
2001 í efri þingsölum Hótels Loftleiða og hefst fundurinn kl. 14:00.
Aögöngumiðar, atkvæda-
seðlar og flindargögn
verða atkent í falutabré£t-
deild Rugleiða, 1 ,h:eð á
aðalskriistotii felagsins á
Reykjavíkurfiugvelli
dagana 12.-14. xnars frá
R. 09.00 til 17.00 og á
fundardag til kl. 12.00
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 10. gr. samþykkta félagsins.
2. Tillaga um breytingu á samþykktum þess efhis að heimilt verði
að gefa út hlutabréf félagsins með rafrænum hætti.
3. Tillaga um heinrild félagsstjórnar til kaupa á eigin hlutum skv.
55. gr. laga nr. 2/1995.
4. Onnur mál löglega borin upp.
Tillögur frá hluthöfúm sem bera á upp á aðalfundi skulu vera
komnar í hendur stjórnarinnar eigi síðar en sjö dögum fyrir
aðalfund.
Dagskrá, endanlegar tillögur, svo og reikningar félagsins munu
liggja frammi á skrifstofú félagsins hluthöfúm til sýnis sjö dögum
fyrir aðalfund.
Stjórn Flugleiða hf.
ICELANDAIR