Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2001, Qupperneq 20
24
FIMMTUDAGUR 8. MARS 2001
^Tilvera
DV
i
i
!
j
Almost Famous:
Alice (Meg Ryan) og Terry (Russell Crowe) lenda í átökum viö skæruliöa í
Suöur-Ameríku.
Crouching Tiger, Hidden Dragon
ickirk Frábær kvikmynd. Það er eins
og listin hafi loksins ratað aftur heim i
fjölleikahúsið. Maður situr í sætinu sínu
og er borinn gegnum ævintýrið, undr-
^mdi og þakklátur eins og barn. En
niyndin er líka svolítið skrýtin. Leikar-
arnir eru allir með sama íbyggna svip-
inn og bera fram textann eins og þeir
séu að lesa hann af blaði - og örugglega
á einhverri mállýsku sem þeim er ekki
eiginleg. En við hérna uppi á íslandi
segjum bravó og tökum það sem hluta af
ævintýrinu. -GSE
Billy Elliot
■kirkk Billy Elliot er hefðbundin hetju-
saga um dreng sem yfírvinnur bælingu
samfélagsins og beitir ræktun hæfileika
sinna til sjálfsköpunar. Þessi saga hefur
verið sögð þúsund sinnum áður og er
» ekki annaö hægt en dást aö hversu vel
■*þessi hetjusaga er sögð í Billy Elliot.
Myndin er frumraun leikhúsmannsins
Stephen Daldry í bíó. Hann skilar frá
sér fágaðri persónusköpun, ágengu
raunsæi, áreynslulausum skiptingum
milli frásagnaraðferða og einhvers kon-
ar líkamlegri nálgun í dansatriöum.
Jamie Bell fer glæsilega meö hlutverk
Billys. -GSE
O Brother Where Art Thou
★★★ Sérlega fjörug kvikmynd frá
Coen-bræðrum sem krydduð er með sér-
lega skemmtilegri kántrítónlist. Úr mik-
illi samsuðu ólíkra atriða hafa þeir
bræður náð að gera heilsteypta kvik-
mynd sem verður þó ekki talin með
þeirra bestu verkum, aðallega vegna
þess hversu stundum hægir á atburða-
rásinni. Myndin stendur þó vel undir
"•■þeim gæðastimpli sem er á öllum þeirra
kvikmyndum og satt best að segja væri
bandarísk kvikmyndagerð illa stödd í
dag ef ekki væri fyrir fijóa kvikmynda-
gerðarmenn á borð við Joel og Ethan
Coen. -HK
Hannibal
krkk Myndin sem allir biðu eftir er
'ekki sama meistaraverkið og Lömbin
þagna en er i hópi betri sakamála-
mynda. Ridley Scott skilar af sér mynd
sem er stórfengleg í myndrænum skiln-
ingi og með óhugnanlegum og sjokker-
andi atriðum sem virka verr á áhorf-
^andann heldur en sams konar atriði í
fyrri myndinni. Gæði myndarinnar eru
ekki síst vegna frammistöðu Anthony
Hopkins sem fer í gegnum hvert atriðið
af fmleika og krafti sem aðeins er á færi
stórleikara. -HK
Proof of Live, sem frumsýnd verður
á morgun í Sam-bíóunum, Háskóla-
bíói, Nýja bíói í Keflavík og Nýja bíói,
Akureyri, hefur mikið verið í umræð-
unni undanfarna mánuði og það löngu
áður en hún var frumsýnd. Það var
ekki vegna þess að framleiðendur
væru að auglýsa myndina heldur var
það vegna þess að stjörnur myndar-
innar, Meg Ryan og Russell Crowe,
áttu í ástarsambandi sem orsakaði
skilnað á milli Meg Ryan og Dennis
Quaid. Myndin auglýsti sig því næst-
um sjálf, svo er það bara spurningin
hvort þessi auglýsing hjálpaði mynd-
inni. Leikstjórinn Taylor Hackford
segir að samband leikaranna hafi
bitnaö á myndinni. Hvað um það,
þessi umtalaöa kvikmynd er komin
til landsins og nú geta bíógestir séð
hvort það gneistar á milli Ryan og
Crowe.
í Proof of Life segir frá bandarísk-
um verkfræðingi, Peter Bowman
(David Morse), sem starfar í Suður-
Ameríku. Honum er rænt af skæru-
liðum sem krefjast þriggja milljóna
dollara í lausnarfé. Þegar vinnuveit-
endur hans neita að greiða þessa
upphæð neyðist eiginkona hans Eva
(Meg Ryan) til að taka málið í sinar
hendur. Hún nær sambandi við þekkt-
an „samningamann" og málaliða,
Terry Thorpe (Russell Crowe), og fær
hann til að taka að sér björgun eigin-
mannsins. Fær Thorpe til liðs við sig
harðsvíraða sveit sem vinur hans
Dino (David Caruso) fer fyrir og er nú
haldið í hættulegan leiðangur tU að
frelsa Peter.
Taylor Hackford er reyndur leik-
stjóri sem gerði sina fyrstu kvikmynd
1978. Það var með An OfFicer and a
Gentleman árið 1982 sem hann náði at-
hygli kvikmyndaheimsins. Hackford
er ekki afkastamikill, hefur gert ellefu
kvikmyndir á 22 árum. -HK
Meg Ryan og Russell Crowe
Samband þeirra meöan á tökum stóö
geröi þaö aö verkum aö Meg Ryan sótti
um skilnaö frá eiginmanni sínum Dennis
Quaid.
Reynslusaga ungs blaðamanns
Penny Lane
Kate Hudson er tilnefnd til óskarsverðlauna fyrir leik sinn í Almost Famous.
Proof of Live:
Mannrán í Suð-
ur-Ameríku
9~Cið vinsœCa fermingar6Cað
fyCgir <D(V miðviífydaginn 21. mars
Þetta blað hefur þótt
nauðsynlegt upplýsinga- og
innkaupablað fyrir alla þá
sem eru að undirbúa
fermingu og eru í leit að
fermingargjöfum.
a 4 o
■
Auglýsendum er bent á að hafa samband við
Selmu Rut Magnúsdóttur,
auglýsingadeild DV,
í síma 550-5720,
netfang: srm@ff.is,
fyrir 15. mars svo unnt reynist
að veita öllum sem besta þjónustu.
Patrick Fugit leikur hinn fimmtán ára gamla blaöamann sem sendur er út af
örkinni til aö skrifa um vinsæla hljómsveit.
Stjömubíó frumsýnir á morgun Almost
Famous en hún á eftir að koma eitthvað við
sögu þegar óskarsverðlaunin verða afhent
þar sem hún er tilnefnd til femra ósk-
arsverðlauna. Meðal annars eru tvær
leikkonur, Kate Hudson og Frances
McDormant, tilnefndar sem bestu
leikkonur í aukahlutverki. Þá má
geta þess að hún fékk Golden Globe-
verðlaunin fyrir stuttu sem besta
gaman- og tónlistarmyndin.
Almost Famous kemur úr
smiðju Cameron Crowes sem síð-
ast leikstýrði Jerry Maguire.
Sagan sem sögð er í mynd-
inni gerist árið 1973 þegar
rokkið var enn tónlistin
sem ungt fólk hlust-
aði á og fann hetjur
sínar í. Diskóbylgj-
an er þó rétt
handan við hom-
ið. William Mill-
er (Patrick Fugit)
v er 15 ára og afar
hæfileikaríkur
penni. Tónlist er hans líf og yndi. Greinar hans í óháðu
tónlistartímariti vekja athygli ritstjóra Rolling Stone.
Hans fyrsta yerkefni er að skrifa um rokkhljómsveit-
ina Stillwater. f fyrstu er ekkert of auðvelt að komast í
innsta hring hljómsveitarinnar. Aðalsöngvarinn, Russell
Hammond, bjargar honum og tekur hann upp á sína
arma. Miller kemst baksviðs og kynnist einum aðdáanda
hljómsveitarinnar, Penny Lane (Kate Hudson). Hann
hrifst af henni en lika af tónlist hljómsveitarinnar. Mill-
er fær síðan að ferðast með hljómsveitinni vítt og breitt
um Bandaríkin. Við fylgjumst með hljómleikahaldi sveit-
arinnar, sem og lífmu baksviðs. Miller þroskast mikið og
kynnist litriku fólki sem hefur mikil áhrif á hann. Hann
verður æ hrifnari af Penny og því verða sárindin mikil
þegar hann kemst að því að hún er í ástarsambandi við
Russell.
Cameron Crowe byggir mynd sína á eigin reynslu en
hann hóf störf sem blaðamaður fimmtán ára gamall. Þeg-
ar hann var tuttugu og tveggja ára skrifaði hann bókina
Fast Times at Ridgemont High sem kvikmynd var gerð
eftir. Ekki fékk hann að leikstýra þeirri mynd en mynd
eftir næsta handriti sem hann skrifaði, Say Anything,
fékk hann að leikstýra. Þetta var 1989. Næst gerði hann
Singles og þriðja kvikmynd hans var svo Jerry Maguire.
Inn á milli hefur Crowe stundað skriftir, gefið út bækur
og skrifað i blöð. -HK