Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2001, Page 25
FIMMTUDAGUR 8. MARS 2001
29
DV
Tilvera r
í síðasta mánuði hélt hópur
áhugafólks um skólamál í ferð til
Indlands í heimsókn til City
Montessori School í borginni
Lucknow. Einn ferðalanganna var
Áslaug Brynjólfsdóttir, fyrrverandi
fræðslustjóri í Reykjavlk og núver-
andi umboðsmaður foreldra og
skóla á Fræðslumiðstöð Reykjavík-
ur.
Dvölin stóð rúma viku og var dag-
skráin stíf allan tímann. Fyrsta dag-
inn dvaldi hópurinn í Delhi en hélt
um kvöldið til Lucknow þar sem
hann dvaldi tæpa viku. Á heimleið-
inni var komið við í Agra þar sem
Taj Mahal hofið var skoðað og svo
haldið aftur til Delhi þar sem dvalið
var einn dag fyrir heimferðina.
Hópurinn fór á eigin vegum og fékk
höfðinglegar móttökur á Indlandi
en forsvarsmenn City Montessori
School skipulögðu fyrir hann alla
dvölina.
Siövit, bókvit og verkvit
Áslaug var í upphafi beðin að
segja örlítið frá City Montessori
skólunum í Lucknow. „Þetta eru í
raun 16 skólar undir sömu stjóm -
þó er vissulega skólastjóri við hvern
skóla,“ segir Áslaug, „og nemend-
umir eru úm 24.000 alls.“ Skólarnir
eru ekki allir eins en reknir sam-
kvæmt sömu skólastefnunni,
Montessori-stefnunni sem ættuð er
frá Ítalíu. „Lögð er sérstök áhersla á
ákveðna þætti, siðfræðileg gildi, al-
þjóðlega sýn, að hver nemandi vinni
frábærlega vel og einnig er lögð
áhersla á framsögn."
Áslaug segist hafa farið víða og
skoðað skóla, um Bandaríkin, Mið-
Ameríku, Kína og Evrópu. „Þarna á
Indlandi var eitthvað sérstakt sem
heillaði mig algerlega. Maður skynj-
aði mjög sterkt hvað bömin eru
ánægð að fá að vera í skóla.“
í City Montessori skólanum er
lögð áhersla á aðhver einstaklingur
þarf að fá þjálfun í siðviti, bókviti
og verkviti. „Þeir byija á siðvitinu
og leggja áherslu á að börnin verði
góð og fróð. En ræktunin á mann-
eskjunni er númer eitt.“
Vellíðan grundvöllur að
þroska
Skólinn er sex daga vikunnar og
á hverjum degi er klukkutímalangt
próf í einni grein og ef einhverju er
ábótavant hjá nemanda er strax far-
ið að skoða málið. Eftir skólatíma er
boðið upp á hjálp fyrir þá sem þess
þurfa en hinir geta fengið aukaverk-
efni.
Við Taj Mahal
Áslaug Brynjólfsdóttir fór ásamt hópi áhugamanna um skólamál til Indlands. Hópurinn kom viö í Agra á heimleiöinni
og skoöaöi ástarhofiö heimsþekkta.
Heimsókn til City Montessori skólanna á Indlandi:
Góð og fróð börn
Samstarf við foreldra er einstak-
lega markvisst. Kennarar fara bæði
heim og ræða við nemendur og for-
eldra og foreldrar koma einnig í
skólann, bæði þegar sérstakir við-
burðir og hátíðahöld eru og eins til
almenns samstarfs.
Hver skóladagur í City Montess-
ori skólanum hefst á því að nemend-
ur koma saman á sal. Nemendurnir
stýra sjálfir þessum athöfnum en
þar er meðal annars farið með
skólaeið og sungið.
City Montessori skólarnir eru fyr-
ir böm frá þriggja ára aldri allt til
loka framhaldsskólans. Áslaug segir
gleði hafa einkennt bæði börnin og
unglingana. „Þau voru eitthvað svo
sæl og ég held að við verðum að
gera okkur grein fyrir því að til
þess að bömin læri og þroskist þá
þurfa þessir þættir að vera í lagi.
Vellíðan er grundvöllur að öllu
öðru.
City Montessori School er einka-
skóli og Áslaug bendir á að nemend-
ur hans sýni ekki þverskurð af ind-
verskum börnum og unglingum. Þó
Morgunstund í skólanum
Hér sést hópur nemenda fara meö
skóiaeiö í morgunstund í City
Montessori skótanum.
er ekki nema hluti nemendanna
sem greiðir full skólagjöld, aðrir
greiða minna og allt niður í ekki
neitt. Ef hins vegar komið er í lítil
og fátæk þorp sjást skólar með allt
öðruvísi yfirbragði. „Þar sátu böm-
in í grasinu með bækurnar í fang-
inu en þau voru samt alsæl að fá að
læra."
Samfélagið á Indlandi og íslandi
er afar ólíkt og skólar þessara landa
einnig en alls staðar má læra eitt-
hvað og eins og Áslaug segir: „Það
víkkar sjóndeildarhringinn afar
mikið að koma til svona framandi
landa.“ -ss
A leiö í skólann
Hér er ungur nemandi aö koma í skólann á rikksjó
sem er dæmigert indverskt farartæki.
Dag einn mun ég breyta heiminum
Þessi mynd af skólalóö sýnir vel hina aiþjóölegu
sýn sem er í fýrirrúmi í City Montessori skóiunum.
Kennslustund í garöinum
Hér er hópur yngstu nemendanna í kennslustund.
Allir nemendur skólans klæöast skólaþúningi.
Bætur vegna
nektarmyndar
Fyrirsætan og söngkonan Sabrina
Setlur, ný kærasta Boris Beckers,
krefst um 40 milljóna íslenskra króna
í bætur frá þýska vikublaðinu Max.
Sabrina sat nakin fyrir hjá ljósmynd-
ara blaðsins árið 1999 en hún iðraðist
og bannaði birtingu myndanna. Nú
hefur blaðið samt birt myndirnar á
mörgum síðum og boðið Sabrinu 750
þúsund krónur fyrir. Hún afþakkaði
öskureið og krefst í staðinn skaða-
bóta. Sabrina er ekki sátt við að
leyndarmál fortíðarinnar skjóti upp
kollinum.
Britney langar
að hanna föt
Poppprinsessan Britney Spears,
sem klæðir sig úr flestum fotunum á
nýja myndbandinu sínu, vill nú sýna
öðrum hvemig þeir eiga að klæða sig.
Poppprinsessuna dreymir nefnilega
um að komast inn í tískubransann.
Hún er ekki búin að ákveða hvenær
hún ætlar að setjast við teikniborðið.
Reyndar em skiptar skoðanir um^
fatasmekk söngkonunnar ungu. Árið
2000 var hún bæði kjörin best klædda
stjarnan og sú verst klædda. Eitt þyk-
ir víst og það er að fötin sem hún á ef
til vill eftir að hanna verða svolítið
öðruvísi eins og sagt er.
Ongþveiti 1
vöruhúsi
öngþveiti skapaðist á vömhúsinu
Áhlens í Stokkhólmi þegar söngvar-
inn Ricky Martins kom þangað til að
árita plötur í vikunni. Um 1200 aðdá-
endur, flestir ungar stúlkur, höfðu
safnast saman í vöruhúsinu til að sjá
átrúnaðargoð sitt. Heitt var og þröngt V
og þurftu verðir að lyfta stúlkum upp
sem höfðu næstum troðist undir.
Sjúkrabílar vora kallaðir á vettvang
og þyrla meö lækni en ekki þurfti að
flytja neinn á sjúkrahús. Ró komst á
um stund þegar söngvarinn hótaði að
yfirgefa svæðið.