Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2001, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2001, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2001 Fréttir X>V Könnun DV um hlut borgarinnar í ákvörðunum ríkisins: 58% segja borgina ekki vera út undan mmrnwsK. Má ekki skjóta álftir Ráðgjafanefnd um villt dýr hefur svarað erindi umhverfis- ráðuneytisins vegna beiðni Halldórs Run- ólfssonar yflrdýra- læknis um að láta veiða tíu álftir til að kanna hvort þær beri hugsanlega með sér gin- og klaufa- veikismit. Nefndin mælir gegn því að leyfið verði veitt. - RÚV greindi frá. - meirihluti kjósenda allra flokka á svipaðri skoðun Samkvæmt nýrri könnun DV, þá líta Reykvikingar ekki svo á að höf- uðborgin sé afskipt i ákvörðunum ríkisins. Kemur það nokkuð á óvart í ljósi umræðu undanfarinna miss- era um að hagsmunum Reykvíkinga sé ekki nægilega gætt á Alþingi Is- lendinga, ekki síst með tilliti til framkvæmda í vegagerð. Um þau mál hefur t.d. verið tekist á í þing- inu og á tíðum komið til snarpra orðaskipta einnig utan þings, meðal annars á milli borgarstjóra og sam- gönguráðherra. Úrtakið í könnuninni var 600 manns í Reykjavík og var því skipt jafnt á milli kynja. Spurt var: Er Reykjavík höfð út undan í ákvörð- unum ríkisins? Mjög góð svörun var við þessari spurningu og tóku 522 af- stöðu til hennar, eða 87%. Þeir sem voru óákveðnir eða vildu ekki svara reyndust vera 78, eða 13%. 58% teija borgina ekki afskipta Þegar aðeins er litið til þeirra sem afstöðu tóku þá svöruðu 42% því ját- andi að Reykjavík væri höfð út und- an í ákvörðunum ríkisins. Hins veg- ar töldu 58% að Reykjavík væri ekki afskipt í ákvörðunum ríkisins. Af heildarúrtakinu svörðuðu 36,5% því játandi að Reykjavík væri Þeir sem tóku afstöðu Er Reykjavík höfð út undan í ákvörðunum ríkisins? Já 42% 5 Allt úrtakið Nei 58% 13% iá óákveðnir/ " svara ekki 36,5% ■ Nei xf 50,5% Ipr fí SKOBANAK0NNUN höfð út undan en 50,5% svöruðu því neitandi. Óákveðnir I heildarúrtak- inu reyndust vera 8% en 5% vildu ekki svara spumingunni. Kjósendur allra flokka samstiga Ef skoðaður er hugur þeirra kjós- enda stjórnmálaflokkanna sem af- stöðu tóku til spurningarinnar er meirihluti ósammála þeirri fullyrð- ingu að Reykjavík sé höfð út undan í ákvörðunum ríkisins. í greiningu á milli einstakra flokka kemur í ljós að 45,9% kjósenda B-lista Framsókn- arflokks svara því játandi að Reykja- vik sé höfð út undan en 52,1% er því ósammála. Af kjósendum D-lista Sjálfstæðisflokks svara 36,2% því játandi að Reykjavík sé afskipt en 63,8% neita því að svo sé. Hjá kjós- endum F-lista Frjálslynda flokksins svara 42,9% því játandi að Reykja- vík sé höfð út undan í ákvörðunum ríkisins en 57,1% svarar því neit- andi. Af kjósendum S-lista Samfylk- ingarinnar svara 49% því játandi að Reykjavík sé afskipt en 51% er því ósammála. Hjá kjósendum U-lista Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs svara 43,8% því játandi að Reykjavík sé höfð út undan en 56,2% svara því hins vegar neitandi. -HKr. Frjókorn eða fíkniefni? Tveir menn hafa í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið dæmd- ir til greiðslu sektar fyrir um- ferðar- og fíkniefnabrot, auk þess sem annar var sviptur ökuleyfi. Þá gerir ríkissjóður upptæk 84,75 grömm af hassi sem tengdust málinu. Annar maðurinn var dæmdur til að greiða 110.000 króna sekt en hinn fékk sekt upp á 160.000. Ákærur voru margvíslegar og fólust m.a. í vímuefnaakstri, gá- leysislegu akreinasvigi, ein- stefnuakstursbrotum, brotum við framúrakstur, ofsaakstri og vörslu fyrrnefnds fíkniefnis. Efnið höfðu mennirnir keypt í Reykjavík en voru handteknir á hringveginum á leið til Akureyr- ar, við gatnamót Ólafsfjarðarveg- ar, og höfðu þá kastað megin- hluta af hassinu út úr bifreiöinni þegar þeir urðu varir við lögregl- una. Þegar annar mannanna var stöðvaður í öðru tilviki og grun- aður um akstur undir áhrifum fíkniefna gaf hann þá skýringu á útliti sínu að hann hefði þjáðst af frjókornaofnæmi og verið slæm- ur af þeim kvilla í umrætt sinn. Framangreindir lögreglumenn, sem komu að því máli, sögðu hins vegar að ákærði hefði verið með sterk vímuefnaeinkenni, augasteinar hans hefðu verið út- víðir og augun vot. Þá hefði ákærði skolfið eins og hrísla, þrátt fyrir að hann sæti inni í bifreiðinni. Læknir var kallaður til fyrir dómi og staðfesti að ákærði væri með frjókornaofnæmi en þegar lýsing lögreglu á útliti ákæröa við handtökuna var borin undir lækninn taldi hann að hún ætti ekki við afleiðingar af frjókorna- ofnæmi. Mennirnir hafa áður komið við sögu lögreglu. -bþ Lögreglumaðurinn sem ráðist var á við skyldustörf í Grafarvogi um helgina: Riðar enn eftir höf- uðspark 15 ára pilts Jón Gunnar Þórhallsson lögreglumaöur. Árásarmaöurinn tók tilhlaup og sparkaði í höfuð hans. „Ég er slappur og með riðu í höfðinu eftir sparkið. Þegar ég geng riða ég til, enda fékk ég öfl- ugan heilahristing. Skór árás- armannsins voru með mjög haröri tá, eins og stáltá á stórum klossum,“ sagði Jón Gunnar Þór- hallsson lögreglumaður sem 15 ára piltur sparkaði harkalega f er hann var við störf í Grafarvogi aðfaranótt sunnudagsins. Vart var mínúta liðin frá sparkinu þegar árásarmaðurinn hafði sjálf- ur hlotið Ijótt og opið fótbrot er hann var á flótta. Jón Gunnar segir aö árásir á lögreglumenn séu greinilega að aukast - ekki síst hjá ungu fólki. Stuttu eftir að 4 rúður voru brotnar í Foldaskóla eftir mið- nætti á laugardagskvöldið var lögreglu tilkynnt um 5-6 ung- menni sem væru að reyna að komast inn i bíl við Reykjafold. Þegar ungmennin voru að tína muni út úr bílnum hafði tilkynn- Lögreglan lítur máliö alvarlegum augum. andi afskipti af þeim sem end- uðu með því að hann tók einn pilt taki. Veitt- ist þá hópurinn að tilkynnand- anum, m.a. með spörkum í læri og hnefahögg í andlit sem end- aði með glóðar- auga. Leituðu Jón Gunnar lög- reglumaður og félagi hans þá að hópnum í hverfinu og fundu ungmenn- in við Fjall- konuveg. „Við stigum út úr bílnum og fórum að ræöa við krakkana. Tveir piltanna brúkuðu sér- staklega munn og ég hugðist leiða annan þeirra frá hópnum til að ræða við hann. Pilturinn brást hinn versti við og þetta endaði með átökum við hann og annan pilt. Hinir hlupu í burtu og félagi minn á eft- ir. Ég náði að snúa annan pilt- anna niöur. Þegar ég sat klofvega yfir honum og var að reyna að koma á hann járnum kom félagi hans að mér á ferö. Er ég leit upp sá ég hann nálgast og fékk fót hans mjög harkalega i höfuðið, rétt fyrir ofan auga. Gleraugun mín böggluðust öll saman og ég vankaöist mjög. Það sem bjargaði þessu var að mér barst aðstoð þriggja stráka sem komu og ýttu piltinum frá er þeir sáu hvaö hann hafði gert. Pilturinn hljóp á brott en aðstoðarmennirnir fóru á eftir honum. Það leiddi til þess að hann hljóp fram af eins og hálfs metra háum bakka við Fjölnisvöllinn og fótbrotnaði - hlaut opið brot. Á meðan náði ég að handjárna félaga hans,“ sagði Jón Gunnar. Hann var á sjöundu klukku- stund á sjúkrahúsi þar sem hlúð var að honum eftir sparkið. Sjá nánar um árásir á lögreglumenn á bls. 5. -Ótt Próf í HÍ í hættu? Hugsast getur að próf í Háskóla ís- lands fari úr skorðum ef ekki nást samningar í kjaradeilu kennara við Háskólann. Félag háskólakennara hef- ur ákveðið að láta fara fram atkvæða- greiðslu um hvort boða skuli til tveggja vikna verkfalls í maí eða á þeim tíma sem próf standa yfir. - RÚV greindi frá. Hjólreiðar bannaðar Bannað verður að hjóla með fram Reykjanesbraut eftir að hún verður tvöfólduð enda verður gert ráð fyrir 110 kílómetra hámarkshraða á klukku- stund. Félagar í Fjallahjólaklúbbnum krefjast viðeigandi ráðstafana og vilja hjólastíg með fram brautinni. Sjómenn kærðir Vélstjórafélag íslands ætlar að kæra þá sem fóru á sjó fyrir miðnætti á mánudagskvöldið. Félagið telur að lög- in um frestun sjómannaverkfalls hafi ekki tekið gildi fyrr en eftir þann tíma. Þeir sem fóru á sjó fyrir miðnætti hafi framið verkfallsbrot. Rýmkaðar heimildir ...Mto----- Námsfólk sem býr á heimavistum eða í y| herbergjum án eld- » ' húss á stúdentagörð- -4í um öölast rétt til húsaleigubóta sam- R kvæmt frumvarpi tii H breytinga á lögum um húsaleigubætur sem Páll Pétursson félagsmálaráð- herra kynnti á ríkisstjómarfundi í morgun. Ný bæjarstjórn Nýr bæjarstjórnarmeirihluti var myndaður í gær í Grindavík en í síð- ustu viku slitnaði upp úr meirihluta- samstarfi Framsóknarflokks og Sam- fylkingarinnar. Framsókn myndar nú meirihluta með Sjálfstæðismönnum. Eftirlitsmyndavélar Jóhann R. Benedikstsson, sýslumað- ur á Keflavíkurflugvelli, segir vera til skoðunar að setja upp eftirlitsmynda- kerfi í Leifsstöð sem gefur merki ef eft- irlýst fólk ber fyrir augu myndavél- anna. Ekki verði slakað á öryggiseftir- liti með afnámi vegabréfaeftirlits við þátttöku íslands í Schengen-samstarfi. - Mbl. greindi frá. Gífurlegur viðskiptahalli 0Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá sem kynnt var klukkan fjögur í gær er áfram gert ráð fyrir gífur- legiun viðskiptahalla á árinu 2001, halla sem nemur um 70 milljörðum króna eða um 10% af landsframleiðslunni. Þjóðhagsstofnun reiknar ekki með hjöðnun verðbólgu á þessu ári. Haldið til haga Félag hrossabænda var í grein 19. mars sagt hafa rekstrartekjur úr úflutnings- og markaðssjóð. Hið rétta er að félagið fékk styrki úr sjóðnum. Vegna slakrar fjárhagsstöðu sjóðsins eru uppi hugmyndir um að styrkja sjóðinn með hækkun gjalda af hverju útfluttu hrossi úr 6.800 krónum í 10.000 krónur. Félag hrossabænda telur nú 1.800 félagsmenn. -HKr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.