Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2001, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2001, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2001 Útlönd I>V Á leiö í Hvíta húsiö Ariel Sharon, forsætisréöherra ísraels. Varaði Bush við að bjóða Arafat Ariel Sharon, forsætisráðherra ísraels, sagði ísraelskum frétta- mönnum í gær aö hann hefði varað George W. Bush Bandaríkjaforseta við því aö bjóða Yasser Arafat Palestínuleiðtoga til Washington. Það væri það sama og að verðlauna hryðjuverk. Sharon gat þess jafn- framt að Bush hefði ekki svarað við- vörun hans beint. Talsmaður Hvita hússins, Mary Ellen Countryman, neitaði að tjá sig um málið. Annar háttsettur embætt- ismaður, sem ekki vildi láta nafns síns getið, sagði að Sharon hefði ekki farið fram á það að forsetinn tæki ekki á móti Arafat. Talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins kvaðst hafa gagnrýnt stækkun gyð- ingabyggða. Stal milljónum dollara frá þeim allra ríkustu New York-búinn Abraham Abdallah hefur verið handtekinn vegna gruns um að hafa með aðstoö Netsins stolið milljónum dollara af nokkrum rikustu mönnum heims. Abdallah var gripinn í glænýrri Volvo-bifreið sinni eftir nokkurra mánaða lögreglurannsókn. í Volvo-bílnum fann lögreglan lista tímaritsins Forbes yflr ríkustu menn Bandaríkjanna. Við nöfn Stevens Spielbergs, Georges Lucas, Oprah Winfrey og Georges Soros voru skráð símanúmer þeirra, heimilisföng, kritarkortanúmer og önnur atriði. Abdallah notaði Net- tengda farsíma og talhólf við iðju sína. Þegar hann þurfti að sækja eitthvað áþreifanlegt leigði hann vændiskonur og aðra til verksins. Sérfræðingur í Net-glæpum hjá New York-lögreglunni segir Abdallah þann besta í faginu. UPPBOÐ Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálf- ________um sem hérsegir:__________ Ekrugata 1, Kópaskeri, þingl. eig. Elías Sigurðsson og Emilía Bergljót Olafsdóttir, gerðarbeiðandi Ibúðalána- sjóður, mánudaginn 26. mars 2001 kl. 10.30. Héðinsbraut 3, Húsavík, þingl. eig. Hlöðufell ehf, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóðurinn Líftðn, þriðjudaginn 27. mars 2001 kl. 14.00. Hlöðufell, Húsavík, ásamt öllum vélum og tækjum tengdum rekstrinum, þingl. eig. Hlöðufell ehf., gerðarbeiðandi Osk ehf., þriðjudaginn 27. mars 2001 kl. 13.30. __________________________ Klifagata 8, Kópaskeri, þingl. eig. Hall- grímur O. Pétursson og Jóhanna S. Ingimundardóttir, gerðarbeiðendur Bún- aðarbanki Islands, Ibúðalánasjóður og Tryggingamiðstöðin hf., mánudaginn 26. mars 2001 kl. 11.00. SÝSLUMAÐURINN Á HÚSAVÍK NATO íhugar aukna hernaöaraðstoð við Makedóníu: Skæruliðar virða ekki úrslitakosti Albanskir skæruliðar hafa hafn- að úrslitakostum stjórnvalda í Makedóníu um að leggja niður vopn fyrir miðnætti í kvöld, ella eiga yfir höfði sér allsherjarárás makedónska hersins, með skrið- drekum og stórskotaliði. Skærulið- amir hafast við í hæðum við borg- ina Tetovo. Skæruliðar hafa sætt fordæmingu vestrænna þjóða sem segja að frek- ari þjóðernisátök á Balkanskaga verði ekki liðin. „Liðsandinn er góður, við eigum fullt af skotfærum og fáir eru særð- ir,“ sagði foringi skæruliðanna í samtali við fréttamann Reuters. Hann hótaði því jafnframt að barist yrði á götum Tetovo ef stjórnvöld yrðu ekki við kröfu þeirra um jafn- rétti til handa 600 þúsund albönsk- um íbúum Makedóníu. Makedónskar hersveitir hafa lát- ið skothríðina dynja á hæð við Tetovo, næststærstu borg Makedón- Á vaktinni Norskur friöargæsluhermaður stend- ur vaktina nærri landamærum Kosovo og Makedóníu í gær. íu, undanfama viku eftir að skæru- liðar hófu skothríð á lögreglu á mið- vikudag í síðustu viku. Undanfarna tvo sólarhringa hefur einnig heyrst skothríð úr dölum fjær borginni. Friðargæslusveitir NATO i Kosovo styrktu stöðu sína í fjall- lendinu við landamærin sem skæru- liðar gætu hugsanlega farið um á undanhaldi sínu. Svæðið þar sem þeir athafna sig er þó víðáttumikið og afskekkt. Stjórnvöld í Washington og bandamenn þeirra í NATO íhuga nú hvort veita eigi stjórn Makedón- iu aukna hernaðaraðstoð, þó ekki hermenn, til að hún geti bundið enda á aðgerðir skæruliðanna. Richard Boucher, talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins, sagði á fundi með fréttamönnum í gær að þaö þýddi meðal annars vopn og sérfræðiþekkingu, án þess þó að hermenn yrðu sendir. Skæruliöaforinginn veifar Marcos, leiötogi zapatista, uppreisnarmanna í Chiapas-fylki í Mexíkó, veifar nærstöddum þegar hann tekur sér stööu, ásamt félögum sínum viö athöfn í Mexíkóborg. Vincente Fox, forseti Mexíkós, bauð Marcosi formlega til fundar viö sig í gær og sagöist jafnframt myndu ganga aö öllum þremur skilyröum uppreisnarmanna fyrir friöarviöræöum. Breskir dýralæknar færðu slæmar fréttir í gær: Aldrei fleiri tilfelli gin- og klaufaveiki á einum degi Ekkert lát virðist á útbreiöslu gin- og klaufaveikifaraldursins í Bretlandi, þótt Tony Blair forsætis- ráðherra segi að náð hafi verið tök- um á faraldrinum. Dýralæknar til- kynntu í gær um 46 ný tilfelli og hafa þau aldrei verið jafnmörg á einum degi. Alls hafa 395 tilfelli sjúkdómsins veriö staðfest í Bret- landi. Aðeins eitt staðfest tilfelli sjúk- dómsins hefur komið upp á megin- landi Evrópu, i nautgripahjörð í Frakklandi norðvestanverðu. Ótt- ast er þó að hann hafi breiðst út til Hollands. Norsk stjómvöld eru staðráðin í að koma í veg fyrir að sjúkdómur- inn berist í norskan búfénað. Þau hafa því ákveðiö að verða ekki við kröfum Evrópusambandsins um að Skórnlr skrúbbaðir Starfsmaöur bandaríska landbúnaö- arráðuneytisins sótthreinsar skó fjöl- skyldu sem kom til Chicage meö flugi frá London í gær. aflétta innflutningsbanni á kjöt og mjólkurvörur frá öllum aðOdar- löndum ESB. Fulltrúar Noregs lofuðu hins vegar á fundi með framkvæmda- stjórn ESB í gær að endurskoða innflutningsbannið þegar núver- andi bann gengur úr gildi 27. mars. Embættismenn í bandaríska landbúnaðarráðuneytinu neituðu i gær að gin- og klaufaveiki hefði fundist vestra, eins og orðrómur var um á mörkuðum í Chicago. Dýralæknanefnd ESB ákvað í gær að framlengja bann viö út- flutningi á bresku kjöti til 4. apríl. Jafnframt var ákveöið að slaka á banni við útflutningi á búpeningi og kjöti frá Frakklandi í næstu viku. Fær mesta umfjöllun Deilan milli stjórnmálaflokk- anna á Ítalíu um meðferðina á þeim í sjónvarpi tók nýja stefnu í gær þegar könnun sýndi að stj órnarandstöðu- leiðtoginn Silvio Berlusconi fær mesta umfjöllun í ríkissjónarpinu auk allrar umfjöllunarinnar á einkastöðvunum sinum þremur. Hagvöxtur á Grænlandi Spáð er góðæri á Grænlandi í ár. Útlit er fyrir að hagvöxturinn verði um 5 prósent þar sem rækjukvótinn hefur verið aukinn um 11 þúsund tonn. Vaxtalækkun í BNA Seðlabankinn í Bandaríkjunum lækkaði í gær vexti um hálft pró- sentustig. Er það þriðja slíka lækkun- in á þessu ári. Seðlabankinn er reiðu- búinn að lækka vexti enn frekar. Hanan á batavegi Palestínski stjórnmálamaðurinn Hanan Ashrawi, sem fékk skot úr stuðbyssu ísraelskra hermanna í fótinn á mánudaginn er hún tók þátt í mótmælagöngu á Vesturbakk- anum, er nú á batavegi. Þrir aðrir mótmælendur særðust einnig. Her- inn viðurkennir að gangan hafi ver- ið friðsamleg. Mori á heimleið Yoshiro Mori, forsætisráðherra Japans, hélt f morg- un heim á leið frá Hawaii þar sem hann kom við eftir fund sinn í Was- hington með Geor- ge Bush Banda- ríkjaforseta. Mikil óvissa ríkir í Japan vegna tregðu Mori við að greina frá hvenær hann hyggst víkja. Borpallurinn sokkinn Stærsti olíuborpallur heims, sem í urðu þrjár sprengingar í síðustu viku, sökk í gær undan strönd Bras- ilíu. Búist er við að 1,5 milljónir lítra af olíu streymi í sjóinn. Hætti við veisluþátttöku Keith Vaz, Evr- ópumálaráðherra bresku stjórnarinn- ar, hætti f gær við þátttöku í veislu sem Karl prins og rík- ustu kaupsýslumenn Asíu sátu. Vaz sætir nú sjálfur rannsókn vegna viðskipta sinna er hann var í stjórnarandstöðu. Vaz kvaðst ekki komast í veisluna vegna anna. Talið er líklegt að hann verði að segja af sér þó að Tony Blair forsætisráð- herra hafi lýst yfir stuðningi við hann síöastliðinn mánudag. Reiðubúinn til afsagnar Abdurrahman Wahid, forseti Indónesíu, er reiðubúinn að segja af sér komist þingiö að þeirri niður- stöðu að hann hafi brotið stjórnar- skrána. Wahid, sem er sakaður um aðild að fjármálahneyksli, vísar öll- um sakargiftum á bug. Mikill þrýstingur er á hann að segja af sér.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.