Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2001, Page 4
4
MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2001
Fréttir
I>V
Útsendarar rússnesku mafíunnar í gæsluvarðhald:
Stunduðu innbrot
víða í Evrópu
- vinnubrögðin minna á innbrot í Reykjavík fyrir 2 árum
Þremenningarnir sem brutust
inn á tveimur stöðum í austurborg
Reykjavíkur um síðustu helgi,
vopnaðir kúbeinum og með nælon-
sokka á höfði, hafa verið úrskurðað-
ir í gæsluvarðhald. Þeir voru góm-
aðir á pósthúsi í höfuðborginni í
þann mund sem þeir voru að senda
ránsfenginn úr landi. Ekki er ljóst
hvert þeir ætluðu að senda góssið
sem metið er á um 10 milljónir
króna því þeir voru ekki búnir að
skrifa adressuna þegar lögreglan lét
til skarar skríða. Lögreglan telur
einsýnt að hér séu á ferðinni út-
sendarar rússnesku mafíunnar,
þetta séu bersýnilega atvinnumenn
og starfsaðferðirnar minni um
margt á skipulagða glæpastarfsemi
erlendis.
Þýskaland, Svíþjóð og Sviss
„í kjölfar rannsóknar á fingraför-
um mannanna höfum við fengið
staðfest að þeir eru allir frá Litháen
og eiga að baki skrautlegan inn-
brotaferil víða í Evrópu á síðustu
árum,“ sagði Gunnleifur Kjartans-
son rannsóknarlögreglumaður
sem stýrir rannsókn
málsins.
„Einn
mann-
anna hef-
ur hlotið
tveggja ára
dóm fyrir
innbrot í
Þýskalandi, í
febrúar voru
þeir gripnir
við innbrot í
Svíþjóð og í
Sviss eru þeir á
skrá vegna fjölda
innbrota á árun-
um 1997-99,“ sagði
Gunnleifur sem
þykir starfsaðferðir
mannanna grunsam-
lega líkar þeim sem
beitt var í tveimur
innbrotum í Reykjavík fyrir tveim-
ur árum. Þá var brotist inn í tísku-
Sigurþór Þórólfsson
Allt hreinsaö úr verslun hans fyrir tveimur árum.
Frétt DV
um útsend-
ara rúss-
nesku mafí-
unnar.
vöruverslunina Spaks
manns spjarir í Þingholts-
stræti og herrafataversl-
unina íslenska karlmenn
við Laugaveg. Ránsfeng-
urinn úr þeim innbrot-
um hefur aldrei fund-
ist.
Kúbein og allar
græjur
„Hér var brotist
inn með kúbein-
um og öllum
græjum og fag-
mannlega stað-
ið að verki,“
sagði Sigurþór
Þórólfsson,
eigandi Is-
lenskra karl-
manna við Laugaveg.
„Þeir hreinsuðu allar
skyrtur, jakkafót og
yfirhafnir en fóru ekki
fram í búðina sjálfa
þar sem til þeirra hefði sést. Svo
skildu þeir kúbeinin eftir í snyrti-
legum stellingum eins og til minja,"
sagði Sigurþór.
Aðeins það dýrasta
Björg Ingadóttir, eigandi Spaks
manns spjara í Þingholtsstræti, tek-
ur í svipaðan streng og Sigurþór:
„Innbrotsþjófarnir hjá okkur virt-
ust vera fagmenn því þeir tóku ekki
hvað sem var heldur völdu dýrasta
fatnaðinn og pökkuðu öllu saman
inn í persneskt teppi sem var hér á
gólfinu. Þeir vissu hvað þeir vildu,“
sagði Björg sem í langan tíma á eft-
ir var að svipast um eftir fatnaði
sinum á vegfarendum í Reykjavík
en án árangurs. „Fötin hef ég aldrei
séð síðan en þetta var allt mjög sér-
kennilegur klæðnaður."
Með pöntunarlista til lands-
ins
Allt bendir því til að fatnaðurinn
hafi vérið sendur úr landi og ekki
ólíklegt að hópar innbrotsþjófa séu
gerðir út af rússnesku mafíunni
með ákveðinn pöntunarlista með-
ferðis. Fyrir tveimur árum átti að
ræna tískufatnaði. Núna voru það
ljósmyndavörur og fartölvur. Eftir-
spurn ytra ræður því hvar innbrots-
þjófarnir láta til skarar skríða á
hverjum tíma - með kúbein sín og
nælonsokka á höfði. -EIR
Spaks manns spjarir í Þingholtsstræti
Innbrotsþjófarnir vissu hvaö þeir vildu.
Formlegar
viðræður um
flóttafólk
Bæjarstjóm
Skagafjarðar hef-
ur samþykkt að
ganga til við-
ræðna við félags-
málaráðuneytið
um hugsanlega
móttöku flótta-
fólks í sumar.
Snorri Björn Sig-
urðsson, bæjar-
stjóri Skagafjarö-
ar, segir að ekkert liggi fyrir í þess-
um efnum en málið sé nú komið á
formlegt stig.
Misskilningur formanns flótta-
mannaráðs og bæjarstjórans varð
samkvæmt heimildum Dags m.a.
til þess að fréttir bárust af þvi að
búið væri að ákveða móttöku
flóttafólksins til Skagafjarðar. Það
var mjög ofmælt, enda ekki búið að
kynna málið i sveitarstjórn.
Áhugi sveitarfélaga hefur dvín-
að undanfarið á að hýsa flóttafólk.
Áður var hægt að velja um svæði
en nú hefur Skagafjörður eitt
sveitarfélaga lýst sig áhugasamt
um vistun næsta hóps sem kemur
til landsins. -bþ
Suðurland:
Rannsóknar-
dufl fannst
Þýskt rannsóknardufl rak á land
skammt frá Vík í Mýrdal í fyrradag.
Bóndinn á Herjólfsstöðum var á
ferð í fjöru sem liggur að landi hans
á mánudaginn þegar hann gekk
fram á duflið. Hann hafði samband
við lögregluna sem tók duflið í sína
vörslu í samráði við Landhelgis-
gæsluna en ekki er talið að um
sprengju sé að ræða. Að sögn lög-
reglunnar í Vík er duflið merkt há-
skóla Hamborgar i Þýskalandi.
Landhelgisgæslan mun rannsaka
duflið og sjá um að láta þýska há-
skólann vita um það. -SMK
Missti sljórn á
bíl í lausamöl
Einn maður slasaðist lítils háttar er
jeppi hans valt í lausamöl á Árbæjar-
braut skammt vestan við Hellu i gær-
morgun. Maðurinn var einn á ferð í bíl
sínum er hann missti stjóm á honum
með fyrrgreindum afleiðingum. Veg-
farandi aðstoðaði manninn við að
komast til læknis á heilsugæslustöð-
inni á Hellu. Að sögn lögreglunnar í
Rangárvallasýslu er bíllinn mikið
skemmdur eftir atvikið. -SMK
Ve&slÖ í kvölí!
St>!a!ga!jg»» <i»g siávajfö!!
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag i kvöld 19.47 17.59
Sólarupprás á morgun 07.21 08.55
Sibdegsflóö 17.07 21.40
Árdegisflóó á morgun 05.23 08.56
Dálítil él við sjávarsíöuna
Austan 5 til 8 m/s allra syðst en annars
fremur hæg austan- og suðaustanátt. Skýjaö
um mestallt land og dálítil él, einkum við
sjávarsíðuna í dag. Hiti 0 til 4 stig suövestan
til að deginum en annars frost 0 til 8 stig.
; c^> ' : Ws * * t ;í NSS
RIGNING SKÚRIR SLYDDA
"h
ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEOUR SKAF- RENNINGUR
ÞOKA
Helstu þjóðvegir greiðfærir
Greiöfært er um alla helstu þjóðvegi
landsins, hálka eöa hálkublettir eru þó
á heiöum á Vestfjörðum, Noröaustur-
landi og Austurlandi.
Skýringar á VðÖurtáknum
/J^VINDÁTT 10V™
zX -io° >»VINDStyRKUR V rnncT í metnmi á wkúndu x ' HEIÐSKÍRT
Ö '€> ö
LÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAO SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ
aSNJÓR
hþungfært
— ÓFÆRT
Veúsiú á iitwem
Skýjað á Norðurlandi
Sunnan og suöaustan 8 til 13 m/s og slydda eöa snjókoma allra vestast.
Austan 5 til 8 og dálítil él á Suðurlandi og á Austfjöröum en suðaustan 5
til 8 og skýjaö á Noröurlandi.
Festudagu!
Vindur: C
8-13 nv"*\
Kiti 0° tii .7°
N 8 tll 13 m/s og
snjókoma vestan til á
landlnu en S 5 tll 8 og
skýjaö austan tll. Frost 0
til 7 stlg, kaldast á
Vestfjöröum.
Lauga*
»■
Vindur:
10-15 t*v'»
Hiti ,r til 4°
N átt, 10 tll 15 m/s og
snjókoma á Austurlandl.
Annars hægarl og él
noröan tll en skýjaö meö
köflum suövestan tll. Frost
1 tll 6 stlg.
St!!!!l!!dagá
Vindur: C <-'''"0
5-8 m/% \ 3*
Hitio'til^
Breytileg átt og él, einkum
vlð sjólnn, og kalt í veðri.
AKUREYRI hálfskýjaö -3
BERGSSTAÐIR skýjaö -3
BOLUNGARVÍK skýjaö -4
EGILSSTAÐIR -3
KIRKJUBÆJARKL. skýjaö -1
KEFLAVÍK léttskýjað -1
RAUFARHÖFN snjóél -2
REYKJAVÍK léttskýjaö -2
STÓRHÖFÐI alskýjaö 1
BERGEN léttskýjaö -4
HELSINKI léttskýjað -12
KAUPMANNAHOFN skýjaö -3
USLU lettskyjao -8
STOKKHÓLMUR -8
ÞÓRSHÖFN alskýjaö 0
ÞRÁNDHEIMUR snjóél -2
ALGARVE hálfskýjaö 15
AMSTERDAM skýjaö 1
BARCELONA skýjaö 15
BERLÍN léttskýjað -4
CHICAGO léttskýjaö -1
DUBUN slydda 2
HAUFAX heiöskírt -1
FRANKFURT súld 2
HAMBORG léttskýjaö -6
JAN MAYEN skafrenningur -17
LONDON rigning 3
LÚXEMBORG rigning 0
MALLORCA þokumóða 9
MONTREAL heiðskirt 0
NARSSARSSUAQ heiöskírt -2
NEW YORK alskýjaö 5
ORLANDO léttskýjaö 11
PARÍS rigning 13
VÍN snjókoma 0
WASHINGTON rigning 6
WINNIPEG heiöskírt -3