Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2001, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2001, Side 8
8 MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2001 Viðskipti_____________________________________________ Umsjón: Viðskiptablaðiö 96 milljóna króna tap hjá Granda - viðsnúningur upp á meira en 800 milljónir króna Tap Granda og dótturfyrirtækis þess, Faxamjöls, nam 96 milljón- um króna árið 2000 en árið 1999 var hagnaðurinn 708 milljónir króna. Rekstrartekjur samstæð- unnar námu 3.895 milljónum króna samanborið við 3.665 m.kr., árið áður. Hagnaður fyrir afskriftir og íjár- magnskostnað var 891 milljón króna, eða 23% af rekstrartekjum, en nam 860 m.kr. árið áður. Veltu- fé frá rekstri nam 652 milljónum króna, sem er 17% af rekstrartekj- um, en var 615 m.kr. í fyrra. Rekstrarhagnaður Granda og Faxamjöls af eigin starfsemi var í samræmi við áform á árinu, eða um 429 m.kr., samanborið viö 354 m.kr. árið áður. Þrátt fyrir veru- legar olíuverðshækkanir og að af- urðaverð á mjöli og lýsi var lágt á sl. ári jókst hagnaður af eigin starfsemi. Þar á móti kemur að gengisbreytingar leiddu m.a. til þess aö íjármagnsliðir urðu nei- kvæðir og nam gengistapið um 573 m.kr., samanborið við 55 m.kr. árið áður. Afkoma flestra hlutdeildarfélaga var ekki viðunandi og nam tap þeirra um 13 m.kr. en þau skiluðu fé- laginu 182 m.kr. hagnaði árið 1999. í mars 2001 gerði Grandi samning um sölu á öllu hlutafé sínu í Bakkavör Group og nam söluverðið um 910 m.kr. Salan fer fram í áföngum og verður að fullu um garð gengin á fyrri hluta ársins 2002. Hagnaður Samlífs 39 milljónir - iögjöld jukust um 43% árið 2000 Iðgjöld Samlífs árið 2000 námu 682 milljónum króna sem er 43% hækkun frá árinu á undan. Félagið var rekið með 61,1 miiljónar króna hagnaði fyrir skatta og 39,1 milljónar hagnaði eftir skatta á síðasta ári. Árið á undan var hins vegar 82,5 milljóna hagnaður af rekstri Samlífs. Fram kemur i frétt frá félaginu að fjárfestingartekjur félagsins voru 162,2 m. króna. Mest munar þar um sölu fé- lagsins á hlutabréfum i Tryggingamið- stöðinni hf., sem gaf 83,2 m. kr. sölu- hagnað, en einnig varð góð ávöxtun á erlendu hlutabréfasafni félagsins. Tjónagreiðslur hækkuðu um 3% og námu alls 107 m.kr. Fram kemur að með miklu innra uppbyggingarstaríi hjá félaginu og örum vexti viðskipta jókst skrifstofu- og stjómunarkostnað- ur töluvert á milli ára, eða um 60%, og nam alls 117 m.kr. fyrir árið 2000. Heildareignir Samlífs voru 1.682 m.kr. i lok árs 2000, á móti 1.394 m.kr. í lok árs 1999. Eigið fé var í árslok 410,5 m. kr. og hækkaði um 12% milli ára. í tilkynningu Samlífs segir að stjóm félagsins hafl ákveðið að veita starfs- fólki sérstaka launauppbót í viður- kenningarskyni fyrir góðan árangur en starfsemi félagsins gekk í samræmi við áætlanir og markmið ársins. Bók- AÐALFUNDUR Aðalfundur Verzlunarmannafélags Reykjavíkur verður haldinn mánudaginn 26. mars kl. 19:30 á Grand Hótel Reykjavík. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Lögó verður fyrir fundinn tillaga um breytingu á reglugerð fyrir Sjúkrasjóð VR. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur oku SKOLINN IMJODD Þarabakka 3-109 Reykjavík Kennsla til allra ökuréttinda. Bifhjólapróf og almennt ökupróf (B-réttindi). Einnig kennsia fyrir ensku og taílenskumælandi fóik! Aukln ökuréttindi Kennsla á leigu-, vöru- og hópbifreið og vörubifreið með eftirvagn. Hægt er að hefja nám alla miðvikudaga. Endurbætt kennsluaðstaða. Reyndir kennarar og góðir kennslubílar. Aukið atvinnumöguleikana. Hringið eða komið og leitið upplýsinga. E-mail okusk.mjodd@simnet.is færð iðgjöld ársins voru 1% umfram áætlun og heildarrekstrarkostnaður 1% undir þeirri áætlun sem gerð var fyrir árið. Jafnframt gekk innra upp- byggingarstarf mjög vel. Fastir starfs- menn eru nú 18 að tölu en auk þess starfa fjölmargir tryggingaráðgjafar hjá félaginu. „Enn eitt árið gerðu þúsundir nýrra viðskiptavina samninga um regluleg- an langtímaspamað hjá félaginu. Ávöxtun sjóða hefur verið mjög góð frá upphafi og á síðasta ári, sem varð mörgum fjárfestum erfitt, skiluðu t.d. þeir fjórir sjóðir sem félagið hefur í vörslu hjá Henderson Global Investors allir yfir 12% nafnávöxtun," segir í til- kynningu Samlifs. Samlíf býður viðskiptavinum sínum í lifeyrisspamaði val um þrjár leiðir í spamaði sínum. Fram kemur að allir sjóðimir skiluðu jákvæðri nafnávöxt- un á síðasta ári og styrkir það félagið i samkeppni um þennan mikilvæga sparnað. Frá gildistöku laga um við- bótarlífeyrisspamað þann 1. janúar 1999 hefur meðal-nafnávöxtun sjóða fé- lagins verið 24,6%, 18,3% og 9,4%. Félagið flutti starfsemi sína sl. vor í glæsilegt framtíðarhúsnæði að Sigtúni 42 í Reykjavík. Á árinu var undirritað- ur samningur við Nýherja um gerð nýs upplýsingakerfis í viðskiptahug- búnaðinum SAP. Um er að ræða mjög umfangsmikið kerfi sem að hluta er þegar tekið í notkun en mun leysa eldri upplýsingakerfi félagsins að fullu að hólmi á þessu ári. Samlíf segir þetta öfluga kerfi munu styrkja mjög alla innri vinnslu en ekki síður gefa svig- rúm til enn meiri og markvissari þjón- ustu fyrir viðskiptavini félagsins. Flugleiðir semja við Air Scandic Flugleiöir hafa gert samning að verðmæti rúmlega 170 milljónir króna við breska flugfélagið Air Scandic. í tilkynningu frá Flugleið- um kemur fram að samningurinn felur i sér að Flugleiðir munu ann- ast flug á vegum breska félagsins þrjá daga vikunnar frá miðjum apr- II til októberloka. Ein af Boeing 757 þotum Flugleiða, sem er sérútbúin til leiguflugs, mun annast flugið. Vélinni verður flogið af flugmönnum Flugleiða og munu flug- freyjur og flugþjónar félagsins jafn- framt starfa um borð í hluta flugsins. Air Scandic er leiguflugfélag sem rekur tvær Airbus-breiðþotur og flýgur fyrir breskar ferðaskrifstof- ur. Flugið sem Flugleiðir mun ann- ast er til áfangastaða við Miðjarðar- hafið. Auk vélar Flugleiða mun Boeing 757 vél frá Finnair fljúga á vegum Air Scandic í sumar. Flug- leiðir hófu að fljúga leiguflug á veg- um erlendra aðila í fyrra eftir nokk- urra ára hlé þegar félagið gerði samning við þýska leiguflugfélagið Condor. Félagið hyggst bæta við verkefnum af þessu tagi eftir því sem tækifæri bjóðast. 1,5% atvinnu- leysi í febrúar 1,5% atvinnuleysi mældist í febr- úar, 1,2% hjá körlum og 2,1% hjá konum. Atvinnulausum hefur fækk- að í heild að meðaltali um 2,3% frá janúarmánuði en fækkað um 13,1%, miðað við febrúar í fyrra. Undanfarin 10 ár hefur atvinnu- leysi minnkað um 14,5% að meðal- tali frá janúar til febrúar. Þessi sveifla er mjög áþekk sveiflunni undanfarin 3 ár. Atvinnuástandið batnar eitt- hvað alls staðar á landinu nema lítils háttar aukning er á höfuð- borgarsvæðinu og á Norðurlandi eystra. Atvinnuleysið minnkar hlutfallslega mest á Vestfjörðum og á Austurlandi en annars staðar eru litlar breytingar. Atvinnuleysi er nú hlutfallslega mest á Norður- landi eystra en minnst á Vestur- landi. Atvinnuleysið er nú meira en í febrúar í fyrra á öllum at- vinnusvæðum nema á höfuðborg- arsvæðinu, þar sem það er veru- lega minna en í febrúar 2000, og á Vestfjörðum þar sem það er nokkru minna. Það er þó fyrst og fremst á Suðurlandi og á Áustur- landi sem atvinnuástandið hefur versnað nokkuð miðað við febrúar í fyrra. Þetta kemur fram í frétt frá Vinnumálastofnun. Atvinnuleysi kvenna minnkar um 1,9% og atvinnuleysi karla minnkar um 2,4% milli mánaða. Litlar breytingar eru yfirleitt á atvinnuástandinu frá febrúar til mars. Yfirstandandi verkfall sjó- manna getur þó haft áhrif að þessu sinni ef til kemur lokun fiskvinnslu- húsa. DV ! HEILDARVIÐSKIPTI 2300 m.kr. - Hlutabréf 708 m.kr. - Húsbréf 443 m.kr. MEST VIÐSKIPTI I Íslandsbanki-FBA 550 m.kr. !© SH 41 m.kr. ö Össur 21 m.kr. MESTA HÆKKUN O Flugleiöir 1,8% © Opin kerfi 1,7% O Íslandsbanki-FBA 0,7% MESTA LÆKKUN O íslenski hugbúnaöarsj. 3,8% OSÍF 3,3% O SKeljungur 2,2% ÚRVALSVÍSITALAN 1202 stig - Breyting Q -0,02% Lítil aukning verðbólgu í Bretlandi Verðbólgan í Bretlandi jókst lítil- lega milli mánaðanna febrúar og mars og gefur því vaxtahækkun seðlabankans byr undir báða vængi. Verðlag jókst um 1,9%, miðað við siðustu 12 mánuði, sem er nálægt 1,8% verðbólgu sem mældist í janú- ar sem var um leið minnsta verð- bólgan í Bretlandi siðan mælingar hófust 1976. Samkeppni hefur haldið verðbólg- unni fyrir neðan markmið seðlabank- ans -2,5% 23 mánuði í röð sem hefúr um leið gert Seðlabankanum kleift að lækka vexti um 25 punkta, niður í 5,75%, til að mæta minnkandi eftir- spum frá Bandaríkjunum. Þrátt fyrir að breska efnahagslífið sýni engin merki um samdrátt má vel vera að seðlabankinn kjósi að lækka vexti í apríl ef bandaríski seðlabank- inn ákveður að lækka vexti um 75 punkta í dag. Minni febrúarafli Fiskaflinn síðastliðinn febrúarmán- uð var 297.586 tonn. Fiskaflinn í febrú- armánuði árið 2000 var til samanburð- ar 382.341 tonn. Munar þar mestu um samdrátt i loðnuafla en hann fór úr 341.592 tonnum í febrúarmánuði árið 2000 í 253.872 tonn síðastliðinn febrúar- mánuð. Fram kemur í frétt frá Hagstofúnni að botnfiskaflinn síöastliðinn febrúar- mánuð var 41.384 tonn sem er aukning um 3.680 tonn miðað við febrúarmán- uð 2000 er hann var 37.704 tonn. Af þessari aukningu munar einna mest um aukningu í veiðum á þorski, um 1.208 tonn. Skel- og krabbadýraaflinn síðastlið- inn febrúarmánuð nam 2.133 tonnum sem er nokkru minni afli en í febrúar- mánuði árið 2000. Heildaraflinn það sem af er árinu er 458.567 tonn sem er mun minna en veiðst hafði á sama tíma í fyrra (589.567). Samdrátturinn á sér aðallega stað í loðnuveiðum en þær drógust saman um 125.000 tonn í janúar og febrúar 2001, samanborið við sama tímabil árið 2000. Botnfiskafli, sem og skel- og krabbadýraafli, dregst einnig lítillega saman milli ára.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.