Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2001, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2001, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2001 9 DV Fréttir Filmaöir í bak og fyrir Gestirnir frá Lapplandi vöktu mikia athygli eystra og hér er sjónvarpið komið með annan þeirra í mynd ásamt austfirsku hreindýri. Fljótsdalshérað: Tveir Samar komnir vegna tamningar hreindýra - Jökuldalur hentar vel til hjarðmennsku með hreindýr DV-MYNDIR SKÚLI MAGNÚSSON. Hreindýrabændur. Hér eru sænsku Samarnir tveir, gestir áhugasamra hreindýramanna eystra, ásamt hreindýrabændum framtíðarinnar. DV. EGILSSTODUM:___________________ Komnir eru á Fljótsdalshérað tveir sænskir Samar til skrafs og ráðagerða um tamningu íslenskra hreindýra og hugsanlega hjarð- mennsku með hreindýr. Þetta eru þeir Tord Labba og Tomas Páve. Tord er frá Övre Soppero þar sem hann er með um hundrað hreindýr nú en hann stefnir að því að fjölga þeim í um íjögur hundruð. Með þann fjölda dýra má komast vel af ásamt með ýmissi ferðaþjónustu og veiðum. Tomas býr á Lanavara og vinnur við allt sem að hreindýrum kemur. Ekki gátu þeir félagar við- haft sýnikennslu í tamningu á kún- um að þessu sinni því ekki var hægt að koma með til landsins viðeigandi búnað til tamninga vegna gin- og klaufaveikifaraldursins. Báðir hafa þessir viðkunnanlegu Samar snúist í kringum hreindýr frá blautu bamsbeini og eru öllum hnútum kunnugir hvað dýrin varö- ar. Á heimaslóðum þeirra fer ferða- þjónusta vaxandi ár frá ári og eru alls konar uppákomur með hrein- dýr stór liður í afþreyingu ferða- manna þar. Á laugardag var fariö í Klaustursel á Jökuldal til þeirra Að- alsteins Jónssonar og konu hans, Ólaflu Sigmarsdóttur, verðandi hreindýrabænda. Eins og kunnugt er eru í Klausturseli tvær bandvan- Mjög góð veiði hefur verið hjá smábátaeigendum það sem af er marsmánuði. Að sögn Arnar Páls- sonar hjá Landssambandi smábáta- eigenda hefur fiskast mjög vel und- anfarið hjá smábátaeigendum. „Menn hafa getað róiö og það hefur líka verið hvetjandi að menn eru einir á miðunum," segir örn. Hann segir að eftir erfiða tíð í janúar og febrúar sé ástandið loksins farið að batna og veiðarnir hafi gengið mjög vel þann tíma sem liðinn er af mán- uðinum, eigi það við á flestum stöð- um á landinu. „Það er einna helst við suðurströndina og suðvestur- hornið sem lélegt hefur verið á lín- ar hreinkýr. Þeir Tord og Tomas töldu allar aðstæður hinar bestu fyrir allt að fjögur til fimm hundruð dýra hjörö í Klausturseli en jörðin er á milli 11 og 12 þúsund hektarar að stærð. Athyglivert þótti að ís- iensku hreindýrin virðast vera ögn stærri en dýrin á heimaslóðum Tords og Tomasar. Þar eru 6 til 7 vetra tarfar mjög góðir ef þeir ná 90 kílóa fallþunga en kýr um 30 og mest 35 kíló. í Klausturseli voru þeir félagar með bráðskemmtilega una,“ segir Örn. „Þar gekk loðnan yfir og fiskurinn er því saddur og línan þar af leiðandi ekki eins spennandi og annars staðar." Örn segir að þar sem sjómenn séu í verkfalli muni mikið um þann afla sem kemur frá smábátaeigendun- um. Guðbjartur Jónsson á Fiskmark- aði Flateyrar segir að góð veiði hafi verið hjá smábátaeigendum á Vest- fjörðum það sem af er mánuðinum og mest sé að veiðast af steinbít. Hann segir að flestir bátar hafi ver- ið að veiða um 4 til 5 tonn en sumir hafi þó fengið allt upp í 8,3 tonn. -MA ljósmynda- og myndbandssýningu um leik og störf í Samabyggðum og að sjálfsögðu voru hreindýr í aðal- hlutverki á flestum sviðum. Aðalsteinn sagðist vera hrifinn af þeirri ferðaþjónustu og afþreyingu sem Samamir hafa komið sér upp með hreindýrum og sá enga mein- bugi á því að á Austurlandi yrði gert slíkt hið sama. Aðspurður sagð- ist hann þurfa að hugsa málið betur vegna „hjarðbúskapar" til kjötfram- leiðslu. Benedikt Vilhjálmsson, sem var milligöngumaður um að fá Sam- ana hingað til landsins, stefnir á að láta temja nokkur hreindýr og hafa þau til sýnis og afþreyingar í tengsl- um við ferjuna Lagarfljótsorminn. Benedikt sagðist vona að öll leyfi yrðu tilbúin fyrir burð hreinkúnna nú í vor því þeir Tord og Tomas segja að best sé að hefja tamningu á kálfum. Höfðinglegar móttökur voru í Klausturseli. í hádeginu var borið á borð reykt ærkjöt og höfðu Samarnir orð á þvi að þetta væri fyrsti alvörumaturinn sem þeir heföu fengið frá því að þeir fóru að heiman. Með kaffinu eftir matinn var dreypt á koniakstári og málin rædd á léttum riótum. Þar kom fram að Samar eru mjög svo sjálfbjarga þjóð. Heimatilbúið öl og gambri er til dæmis haft um hönd á hátíðis- og gleðistundum í Samabyggðum. Fréttaritari DV á Héraði er ekki í nokkrum vafa um það að Jökuldal- ur henti sérlega vel til hreindýrabú- skapar. -SM Góð veiði hjá smábátaeigendu m BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR BORGARTÚN 3-105 REYKJAViK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219 Auglýsing um deiliskipulag og aðalskipulag í Reykjavík Grafarholt, Kirkjustétt 1-3, breyting á deiliskipulagi. í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, m.s.br., er hér með auglýst til kynningar tillaga að breytingu á deiliskipulagi svæðis 1 í Grafarholti. Svæðið sem breytingin varðar afmarkast af Kristnibraut til norðurs, almennum göngustíg til austurs, lóð nr. 5 við Kirkjustétt til suðurs og Kirkjustétt til vesturs. Tillagan gerir ráð fyrir að horfið verði frá byggingu grunnskóla á lóðinni en í stað hans verðí byggð sjö 2- 5 hæða fjölbýlishús með um 88 íbúðum auk sameiginlegs þjónustuhúss á einni hæð. Bryggjuhverfi, breyting á aðalskipulagi. í samræmi við 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, m.s.br., er hér með auglýst til kynningar tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016 m.s.br. varðandi Bryggjuhverfi við Grafarvog. Tillagan gerir ráó fyrir að landnotkun hluta athafnarsvæðis í Bryggjuhverfi, nánar tiltekið austasta hluta þess, breytist úr athafnarsvæöi í íbúðarsvæði. Bryggjuhverfi, breyting á deiliskipulagi. í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst til kynningar tillaga að breytingu á deiliskipulagi Bryggjuhverfis við Grafarvog. Tillagan gerir ráð fyrir, í samræmi við auglýsta tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016 m.s.br., að notkun nokkurra húsa norðan Sævar- höfða, vestan við Naustabryggju, milli Naustabryggju og Tangabryggju, breytist úr hreinu atvinnuhúsnæði ýmist í blöndu af atvinnuhúsnæði og íbúðarhúsnæði eða í hreint íbúðarhúsnæði (hús nr. 1-19 við Naustabryggju, nr. 14, 15 og 15' á gildandi skipulagsuppdrætti). Hús við Tangarbryggju (nr. 2-12 og 31-33, nr. 15', 16 og 12 á gildandi skipulagsuppdrætti) verða þó áfram atvinnuhúsnæði. íbúðum á svæðinu fjölgar um 70. Tillagan gerir einnig ráð fyrir breyttri afmörkun lóða, breyttu bílastæða- fyrirkomulagi og ýmsum minniháttar breytingum. Tillögurnar liggja frammi í sal Borgarskipulags og byggingarfulltrúa í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 10.00 - 16.00 frá 21. mars til 18. apríl 2001. Ábendingum og athugasemdum skal skila skriflega til Borgarskipulags Reykjavíkur eigi síðar en 2. maí 2001. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar. Reykjavík, 21. mars 2001. Borgarskipulag Reykjavíkur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.