Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2001, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2001, Síða 25
61 IVIIIMII IIUUICIWUI Vígslugestir hlýddu meö athygli á leiðbeiningár Ingimars um tamhingaaöferöina „affrjáisum vilja" enda miklum fróöieik miölaö þar á skömmum tíma. Góður gestur Ingimar Sveinsson ásamt Þór Sigþórssyni, formanni hús- stjórnar Hlíöarþúfna, t.v., og Viöhjálmi Ólafssyni, formanni Hestamannafélagsins Sörla, t.h. Gött innlegg í blómlegt félagsstarf: Töfratamning sýnd - við vígslu nýs tamningagerðis hjá Sörla Það var eftirvæntingarfullur hópur hestamanna sem fylgdist með þegar nýtt tamningagerði var vígt hjá hesta- mannafélaginu Sörla í Hafnarfirði um helgina. Um er að ræða svokallað hringgerði sem m.a. er notað til að frumtemja trippi, ekki síst þau sem eru villt og vilja lítið hafa með mann- inn að gera. Það var hússtjórnin í Hlíðarþúfum í Hafnarfirði sem stóð fyrir byggingu gerðisins sem reist var í sjálfboða- vinnu. Til að sýna áhugasömum hvernig nota á slíkt gerði var meistar- inn Ingimar Sveinssori á Hvanneyri fenginn til að vígja það. Hann ér víð- kunnur fyrir tamningaaðferð sem hann kallar „af frjálsum vilja“. Ingi- mar hefur leiðbeint með tamningu á rúmlega 900 hrossum á þennan hátt og aldrei hent óhöpp né slys á þeim langa ferli. Hann fer víða til að halda námskeið með þessari aðferð, bæði innanlands sem utan. Til að sýna vígslugestum hvemig fara á að fékk hann í hendur flmm vetra ósnerta hryssu sem var bálstygg og hafði reynt að verja sig með öllum brögðum þótt bundin væri á bás. Ung stúlka, Helga Hafþórsdóttir, var nem- andi Ingimars að þessu sinni, enda yf- irráöamaður hryssunnar. Til að gera langa sögu stutta var ungi knapinn kominn á bak eftir hálftima með- höndlun undir leiðsögn Ingimars. Þeir sem höfðu þekkt til hryssunnar Eftir tíu mínútna vinnu meö hryssuna styggu var hún farin aö sættast veru- lega viö nálægö mannsins. Hér er nemandinn Helga meö hana úti í geröi. Hryssunni haföi ekki veriö gefiö nafn, enda komin fyrir skömmu á hús. Hún var að sjálfsögöu nefnd Geröur strax eftir námskeiöiö. Borgarleikhúsið Sýning til styrktar Krýsuvíkursamtökunum Undanfarin ár hefur Borgarleikhús- ið gefið hagnað af einni leiksýningu á ári til styrktar Krýsuvíkursamtökun- um. Hefur þetta starf verið unnið í nánu samstarfi við Lionsklúbbinn Þór og að þeirra frumkvæði sem hafa stuðning við heimilið sem langtíma- verkefni sín. Sýningin sem Borgar- leikhúsið gefur Krýsuvikursamtökun- um í ár er hinn grafalvarlegi gaman- leikur Blúndur og blásýra eftir Joseph Kesselring sem frumsýndur var síð- astliðinn laugardag og er styrktarsýn- ingin annað kvöld. Krýsuvíkursamtökin hafa tekið við skjólstæðingum tO langtímameðferð- ar í Krýsuvík frá árinu 1989. Markmið samtakanna er að veita vímuefna- neytendum sem hafa gert endurtekn- ar tilraunir til að ná bata í meðferð- um án árangurs tækifæri til að losna úr viðjum vímunnar. Flestir sem inn- ritast í Krýsuvík eru atvinnulausir og húsnæðislausir. Þegar meðferð lýkur er stutt við bakið á fólki með ýmsu móti til að gera þvi kleift að takast á við nýtt líf með reisn. Árangur með- ferðarinnar í Krýsuvik er með því besta sem gerist. áður ætluðu varla að trúa eigin aug- um. En þama fengu hestamenn dýr- mæta kennslustund sem kennir þeim ekki einungis að nota gerðið heldur einnig að umgangast tamningatrippi sín á skilvirkan og skemmtilegan hátt og móta þannig framtíðarreiðhestinn. -JSS Kópavogur hefur vaxið afar hratt á stuttum tíma - þróast frá því að vera nokkur hús án nokkurrar þjónustu í að verða næststaersta sveitarfélag landsins með alla þjónustu. Þjónustan í Kópavogi nær ekki bara til Kópavogsbúa heldur er í bæjarfélaginu rekin öflug þjónusta fyrir allt höfuðborgarsvæðið enda er bærinn afar miðsvæðis. Ekki má heldur gleyma menningunni sem blómstrar í Kópavogi. í Kópavogi eru mörg öflugustu fyrirtæki landsins á sviði verslunar og þjónustu og mikil uppbygging stendur nú yfir á því sviði. í Kópavogi er einnig myndarleg höfn. í sérblaði DV sem kemur út 28. mars næstkomandi verður fjallað um Kópavog á fjölbreyttan hátt, þróun byggðar, verslun, iðnað, þjónustu og menningu. Ath. síðasti Umsjón auglýsinga: Ösp Kristjánsdóttir, sími 550 5728 netfang: osp@ff.is Umsjón efnis: Steinunn Stefánsdóttir netfang: steina@ff.is Inrral I gerðinu Ingimar ásamt nemanda sínum, Helgu Hafþórsdóttur, meö hryssuna í hringgeröinu. MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2001 I>V Tilvera Útsöluhornið, 30-70% afsláttur 0» Bretti, húdd, stuðarar, ökuljós, afturljós, stefnuljós, hliðarlistar, hjólkoppar, loftbarkar, mottur, vatnsdælur, fjaðragormar, bremsuklossar og fleira. varahlutir Stórhöfða 15 • S. 567 6744

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.