Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2001, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2001, Page 28
FRÉTTASKOTI0 SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2001 Skaut málmflís í 6 ára barn Lögreglan í Hafnarfirði hafði í gær afskipti af 16 ára pilt í fjölbýlishúsi á Hvaleyrarholti sem var að skjóta úr loftbyssu að barnahópi. POturinn hafði verið inni á salemi íbúðar og skotið út um gluggann. Málmplötur hlupu úr byssunni og lenti Qís í fæti á 6 ára barni. -Ótt Loðnan á síð- ustu metrunum Loðnuveiðin hófst að nýju í gær en afli var yfirleitt mjög lítill. Er það samdóma álit manna að loðnan sé „á síðustu metrunum" og veiði muni ekki standa yfir nema í 3-4 daga. örn KE fékk 200 tonn í einu kasti rétt út af Gróttu í gær en ekki var kastað aftur þar. „Við þvældumst síð- an fyrir Reykjanesið og erum núna skammt frá Eyjum og höfum bara fengið smákropp. Það var einhver veiði austan við Eyjar í gær en þar var bæði um að ræða hrygnda og óhrygnda loðnu. Ég held að þessu sé alveg að ljúka ef ekki gerist neitt óvænt," sagði Sævar Þórarinsson, skipstjóri á Erni KE, i morgun. -gk Ekki til neins Börn skitja ekki íslenskt tölvumál. Microsoft-samningur: Börnin vilja ekki íslensku „Fólk viil ekki kaupa þetta og það eru börnin sem ráða því. Þau eru ekki læs á íslensk stýrikerfi í tölvum,“ seg- ir Ólafur WiIIiam Hand hjá tölvudeild Aco um samning sem íslenska ríkið gerði við tölvurisann Microsoft um ís- lenska þýðingu á stýrikerfl Windows ‘98. Samningurinn, sem Björn Bjarna- son menntamálaráðherra undirritaði fyrir hönd ríkisins, virðist því ekki hafa skilað tilætluðum árangri. í samningnum fólst að íslenska ríkið tæki til i sínum ranni og ynni gegn meintum þjófnaði á hugbúnaði tölvurisans. „í sjálfu sér var þetta góð- ur samningur en ekki fylgt nógu vel eftir. Þýðingunni er lokið og margir skólar eru enn að reyna að nota hana en ég veit um enn fleiri skóla sem hafa gefist upp. Allir krakkar vita hvað „file“ þýðir en hafa ekki hug- mynd um íslenska orðið „skrá“. Reynsla okkar og niðurstaða er sú að neytandinn vill ekki þessa vöru,“ seg- ir Ólafur Wiiliam Hand- Ekki náðist í menntamálaráðherra í morgun þar sem hann er staddur er- lendis. -EIR UV-MYNU nlLIVlAK PUK Fyrsta hjálp Nýjar reglur um fyrstu hjálp í óbyggöum voru kynntar af Landlæknisembættinu í samvinnu viö Slysavarnafélagiö Landsbjörg í gær þegar þessi mynd var tekin. Á námskeiöum sem þjörgunarskóli Landsbjargar gengst fyrir veröur þetta efni kennt. Aö því ioknu geta menn öölast tiltekin réttindi sem þeir fá viöurkennd hjá Landlæknisemþættinu. Tæp 84 prósent framsóknarmanna vilja R-listasamstarf áfram: Boltinn hjá Vinstri grænum - segir formaður Framsóknarfélags Reykjavíkur Tæplega 84 prósent framsóknar- manna í Reykjavík vilja áframhald- andi samstarf um R-lista í komandi borgarstjórnarkosningum sam- kvæmt nýrri skoðanakönnun sem stjórn Framsóknarfélags Reykjavík- ur hefur gert meðal félagsmanna um með hvaða hætti skuli staðið að framboði í næstu kosningum. Tæp- lega 15 prósent vildu aö Framsókn- arflokkurinn byði fram undir eigin merkjum og 1,5 prósent svarseðla voru auðir eða ógildir. Þess má geta að í nýrri könnun DV um fylgi við lista í Reykjavik kom í ljós, að af kjósendum B-lista Framsóknar- flokks sögðust 90 prósent kjósa R- lista ef kosið væri nú. Um síðustu mánaðamót sendi stjórn Framsóknarfélags Reykjavík- ur bréf til allra félagsmanna þar sem þeir voru spurðir um afstöðu sína til framboðsmála í komandi borgarstjórnarkosningum. Þátttaka var fremur dræm, því aðeins skil- uðu 16,5% félagsmanna inn svar- seölum. Niðurstaðan er sú, að 83,9 prósent vildu óbreytt samstarf um R-lista og 14,6 vildu að flokkurinn byði fram undir eigin merkjum. Skilafrestur var til 16. mars sl. At- kvæði voru talin á stjórnarfundi í gærkvöld. „Við vorum sammála um það á stjórnarfundinum í gær, að þetta er ótrúlega mikill meirihluti sem vill R-listasamstarf áfrarn," sagði Anna Kristinsdóttir, formaður Framsókn- arfélags Reykjavíkur, viö DV í morgun. „Við hljótum að líta svo á að það sé vilji fólksins að halda áfram í þessu samstarfl sé vilji fyr- ir því hjá öllum hlutaðeigandi aðil- um. En það er atriði sem við eigum eftir að fara yfir. Enn eru engar við- ræður komnar af stað milli aðila en ég reikna með þvi að það fari að ger- ast fljótlega. Við lítum til Vinstri grænna. Það eru eiginlega þeir sem segja af eða á um hvort af þessu veröur." Anna sagði að ýmislegt þyrfti því að skýrast áður en tekin yrði endan- leg ákvörðun um áframhaldandi samstarfs R-lista. Niðurstaða könn- unarinnar væri ráðgefandi en ekki bindandi. Tilgangurinn heföi verið að fá skýrar línur um hver væri vilji félagsmanna í Reykjavík. -JSS Norðurland eystra: Miklar vegafram- kvæmdir í sumar í sumar verður lokið við að klæða þjóðveg 1 frá Mý- vatni að Jökulsá á Fjöllum bundnu slitlagi, í sumar verður gengið frá 19 km kafla og verður þá allur hringvegurinn á Norðurlandi eystra lagður bundnu slitlagi nema örstuttur kafli á Mývatnsheiði. Að sögn Sigurðar Oddssonar, hjá Vegagerðinni á Akureyri, verður framkvæmdum haldið áfram á Tjör- nesi en þar á að ljúka viö veginn milli Hringvers og Breiðuvík, sem er um 10 km vegalengd, í sumar. Einnig á'að bjóða út þær framkvæmdir sem eftir verða á veginum á Tjömesi frá Húsa- vik að Kelduhverfi í sumar en þeim framkvæmdum á að ljúka á þremur árum. Þá á í sumar að byggja nýja brú yfir Svalbarðsá í Þistilfirði. Brúin verður neðar en sú gamla og leggja þarrf nýj- an veg að henni þar. Þá verður farið í framkvæmdir á tveggja kílómetra kafla á Kísilvegi sem ljúka á i sumar og einnig um 3,8 km vegarkafla á Þelamörk, norðan Akureyrar, en þar á að byggja upp nýjan kafla nærri vegamótunum tO Ólafsfjarðar. -gk Konu og 3ja ára barni hótað - segist hafa veriö neydd til að smygla kókaíni innvortis 24 ára kona, sem kom með talsvert magn af kókaíni í líkama sínum til landsins, sagði fyrir dómi í gær að ástæða innflutningsins hefði verið sú að henni og þriggja ára bami hennar hefði veriö hótað. Konan, sem hafði verið í 150 þúsund króna fíkniefnaskuld, fór tfl Hollands til að fá skuldina fellda niður. Skuldunaut- ar hennar höfðu lagt til að hún færi i ferðina sér að kostnaðarlausu. Sér- staklega aðspurð um það hvort hún teldi sig hafa haft ástæðu til að taka hótanirnar alvarlega sagði konan svo hafa verið. í máli lögfræðings hjá Lögreglu- stjóranum í Reykjavík í dóminum kom fram að ekki sé óvarlegt að ætla að konan fái á annað ár í fang- elsi fyrir að hafa flutt þau 164 grömm af kókaíni í líkama sínum sem hún var tekin með í Leifsstöð við komu hennar frá Hollandi í júni á síðasta ári. Þannig hafi mað- ur sem flutti 94 grömm af kókaíni fengið 10 ára fangelsi en annar sem flutti inn 270 grömm af sama efni hefði fengið tveggja og hálfs árs fangelsi. Útsöluverð á grammi af kókaíni hér á landi er á bilinu 8-15 þúsund krónur. Því er ljóst að á milli 1 og 2 milljónir króna hefðu fengist fyrir efnin. Konan gat ekki gefið það upp fyr- ir dómi í gær nákvæmlega hvar eða hvemig hún hefði fengið fíkni- efnin ytra. Hún vildi heldur ekki gefa það upp hver eða hverjir það væru sem hún hefði skuldað. Þó konan teldi sig hafa verið beitta þrýstingi og hún nánast neydd til að fara kvaðst hún engu að síður hafa fengið aflan kostnað greiddan fyrir ferðina. -Ótt tllboösverö kr. 2.750,- Merkilega heimilistækióS Nú er unnt aö Í3 merkja allt á o heimilinu, kökubauka, spólur, skóla- dót, geisla- diska o.tl. Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443 Veffang: www.if.is/rafport__ Rafport

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.