Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2001, Side 11
ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2001
11
I>V
Neytendur
Skýrslur sem ríkisstjórnin lét gera:
Áhættumat
vegna kúariðu
- í nefnd fram í næstu viku.
Skýrslur um áhættumat vegna inn-
flutnings á nautgripaafurðum, sem
vera áttu tilbúnar um miðjan febrúar,
eru nú til umsagnar hjá stjómskipaðri
samstarfsnefnd um sóttvamir. Þaðan
fara þær til ríkisstjórnarinnar og
munu því að öllum líkindum ekki
koma fyrir sjónir almennings fyrr en í
lok næstu viku. Mikil umræða hefur
verið um kúariðu undanfarið þótt hún
hafi upp á síðkastið fallið í skuggann
af gin- og klaufaveikinni. Margir hafa
hringt til neytendasíðunnar með
vangaveltur um hvort ýmsar vömteg-
undir, sem innihalda nautgripaafurð-
ir, getir borið smit hingað til lands eða
hvort óhætt sé að neyta þeirra. Engin
skýr svör hafa fengist en bent hefúr
verið á að gripið hefur verið til að-
gerða erlendis og það látið nægja í
flestum tilfellum.
í byrjun árs fór Matvælaráð, sem er
samstarfsverkefni Hollustuvemdar
ríkisins, Fiskistofu og yfirdýralæknis,
fram á það við ríkisstjómina að gerð
yrði skýrsla um áhættumat vegna inn-
flutnings á vörum sem innihalda naut-
gripaafurðir. Ríkisstjómin lét í fram-
haldi af því gera tvær skýrslur. Önnur
þeirra var álitsgerð um heimildir ís-
lenska ríkisins til að takmarka inn-
flutning á kjöti og kjötvöru til vemdar
lífi og heilsu manna og dýra. Sú
skýrsla var unnin af Eiríki Tómassyni
prófessor og Skúla Magnússyni, lektor
við lagadeild HÍ. Hin skýrslan var fag-
skýrsla sem fjallar um áhættu sem
skapast getur við innflutning á naut-
gripaafurðum. Um gerð hennar sáu dr.
Vilhjálmur Rafnsson læknir og Ólafur
Oddgeirsson dýralæknir. -ÓSB
Léttir tíkallar
Irinflutt mold á pottablómin:
Ekki hætta á gin-
og klaufaveiki
- segir Sigurður Örn Hansson
aðstoðaryfirdýralæknir
Lesandi DV
hafði samband við
neytendasíðuna og
benti á að verið væri
að selja hér á landi
mold sem upprunnin er i
Danmörku. Hann sagðist
undrast að leyfilegt væri að flytja
inn slíka vöru frá Evrópu þar
sem gin- og klaufaveiki geisar.
Sigurður Öm Hansson aðstoð-
aryfirdýralæknir segir að af þess-
um innflutningi
eigi ekki
aö
stafa
nein
hætta.
„Sú
mold
sem
flutt er
inn
núna, og
er fyrst og
fremst fyrir
pottablóm, má
ekki innihalda búfjáráburð."
Hann segir
að yfirdýra-
læknisemb-
ættið vera
með svona
mál í sí-
felldri skoðun i
ljósi þess hver
þróunin sé er-
lendis. En þar
sem moldin sé
eingöngu ætluð
fyrir pottablóm sé
ekki hætta á smiti
þar sem hættan af
því komi helst með búfjáráburðin-
um. Þvi geta pottablómaræktendur
óhræddir valið úr þeirri mold sem á
boðstólum er en sala hennar er tölu-
verð um þessar mundir þar sem nú
fer í hönd árlegur umpottunartimi
pottaplantna heimilanna.
Það eru kannski ekki margir sem
vita að tvær mismunandi gerðir af
tíköllum eru í umferð hér á landi. Að
þessu komst maður nokkur sem eign-
aðist tíu króna pening og hugðist
nota hann í kaffisjálfsala. En sjálfsal-
inn vildi ekki taka við peningnum,
hann datt bara beint í gegn. Þegar
haft var samband viö Seðlabankann
vegna þessa fengust þær upplýsingar
að árið 1996 var slegin tíu króna mynt
sem var úr nikkelhúðuðu stáli en tí-
kallar slegnir fyrir þann tíma eru úr
koparnikkel. Þetta gerir að verkum
að umræddir tíkaflar eru um 14%
léttari en þeir gömlu og virka því
ekki í alla vigttengda sjálfsala. þ.e.
sem greina milli peninga eftir þyngd
þeirra. Að öðru leyti eru þessir tíkall-
ar alveg eins og þeir sem fyrir voru á
markaðnum. Um sparnaðarráðstöfun
var að ræða en nikkelhúðaða stál-
myntin er 35% ódýrari í sláttu en
mynt úr koparnikkeli.
Seðlabankinn lætur slá fyrir sig
mynt með nokkurra ára millibili og
setur hana á markað þegar eldri
birgðir klárast. Því fóru tíkallamir,
sem slegnir voru árið 1996, ekki í um-
ferð fyrr en á árinu 1998 og er enn
verið að setja þá í umferð. -ÓSB
Alveg eins?
Þessir tíkallar viröast eins viö fyrstu
sýn en sá til hægri er 14% léttari en
hinn og dugar því ekki í vigttengda
sjálfsala.
Reykingarlyfið Zyban mikið notað hér á landi:
Alls kyns auka-
verkanir fylgja
- tveir sjómenn á sama skipinu fengu bráðaofnæmi við notkun lyfsins
Lyfið Zyban, sem ætlað er til aðstoð-
ar þeim sem háðir eru nikótíni að
hætta reykingum, hefúr verið í notkun
hér á landi síðan sl. haust og er tals-
vert mikið notað að sögn lækna sem
DV hefur rætt við. Lyfið inniheldur
ekki nikótín líkt og t.d. tyggigúmmí
sem mikið hefur verið selt hér á landi
í sama tilgangi, en Zyban var upphaf-
lega notað í Bandaríkjunum sem geð-
lyf, en í ljós kom að margir þeirra sem
notuðu tóbak reglulega, misstu löngun
í tóbakið við notkun lyfsins.
Rannveig Gunnarsdóttir, forstjóri
Lyfjastofnunar, segir aö notkun Zyban
hafi í för með sér aukaverkanir eins og
við notkun flestra lyfja. „Það má segja
að þetta lyf sé eins konar tískulyf og
þess vegna er það meira í brennidepli
núna en önnur. En hér er um nýtt lyf
á markaði að ræða og það er alltaf
fylgst sérstaklega vel með nýjum lyfj-
um fyrstu fimm árin,“ segir Rannveig.
Hún segir Lyfjastofnun hafa fengið
tilkynningar um ofhæmi sem auka-
verkun af notkun lyfsins, en DV er
m.a. kunnugt um slíkt tilfelli, og þar
veiktust tveir sjómenn á sama skipi
ifla af bráðaofnæmi og þurftu að kom-
ast undir læknishendur, en þeir höfðu
báðir notað Zyban í nokkum tima.
Rannveig segir þá sem hafa fengið of-
næmi ekki eiga að nota þetta lyf og það
eigi auðvitað við um fleiri eins og t.d.
þá sem fengið hafa flog.
Þar sem lyfið er nýtt á markaði hér
liggur ekki mikið fyrir um aukaverk-
anir en í almennum ráðleggingum
með lyfinu eru algengar aukaverkanir
taldar upp og þar er talað um hita,
munnþurrk, meltingartruflanir,
ógleði, uppköst, kviöverki, hægðar-
tregðu, svefiileysi, skjálfta, skerta ein-
beitingu, höfuðverk, svima, geðdeyfð,
eirðarleysi, kvíða, útbrot, kláða, aukna
svitamyndun, ofnæmisviðbrögð, s.s.
ofsakláða og truflað bragðskyn. -gk
íslenska kýrin
Hún hefur ekki greinst meö kúariöu. Ríkisstjórnin hefur látiö gera áhættumat
á innflutningi vara sem innihalda nautgripaafuröir
Opið virka daga SUÐURNESJUM Opið lau. 12-16.
SÍMI 421 4888-421 5488
SP’F/ÁRMÖCNUN HF
Sko&tðu wfmn okkar
www.sp.is
Toyota Avensis 2,0 st., nýskráður
1/99, ekinn 32 þús., grænn, sjálfskip-
tur. Toppbíll. Verð 1.530 þús.
VW Transporter pallbíll, nýskráður
03/94, ekinn 100 þús., 5 manna, vsk-bíll,
bensín. Verð 490 þus. Með vsk.
Galloper 2,8 turbo dfsil, nýskráður
07/98, ekinn 60 þús., sjálfskiptur, hví-
tur, 32" dekk, spoiler, krókur.
Verð 1.690 þús.
Toyota Land Cruiser VX V-6, 3,4 ben-
sfn, nýskráður 05/00, ekinn 8 þús., sjálf-
skiptur, einlitur, silfurgrár, 35" breyting,
kastaragrind, kastarar, spoiler o.fl. o.fl.
glæsilegur bill. Ath. skipti.
Verð 4.350 (kostar nýr 4.950 þús.).
Toyota Land Cruiser LX 3,0 turbo dfsil,
nýskráður 02 /99, sjálfskiptur, hvítur,
ekinn 48 þús, 38" breyting, intercooler, 2
aukatankar, loftdæla, kastaragrind, kas-
tarar, spoiler, krókur: toppbíll.
Verð 3.750 þús.
Toyota Land Cruiser 80 std. 4,2 turbo
dísil, nýskráður 12/98, 5 gíra, ekinn 40
þús., læsingar framan og aftan,
38-44" breyting.
Verð 3.950 þús.
Toyota Land Cruiser LX 3,0 turbo dfsil,
sjálfskiptur, nýskráður 02/99, ekinn 38
þús, 31" dekk, álfelgur, brettakantar,
varahjólshlíf, ath. skipti. Verð 2.590 þús.
Toyota Land Cruiser VX 4,2 turbo
dísil, nýskráður 03/95, ekinn 200
þús., sjálfskiptur, leður, sóllúga,
aukasæti, gírspil, 33" dekk, toppbíll,
dökkgrænn. Verð 2.720 þús.
Musso 602EL 2,9 turbo dfsil,
nýskráður 04/97, sjálfskiptur, 33"
breyting, hvítur. Verð 1.650 þús.
Nissan Patrol SE+ 2,8 turbo dísil,
nýskráður 10/99, ekinn 41 þús., 5
gíra, 35" breyting, 3" púst, tölvukub-
bur o.fl. Verð 3.750 þús.
Nissan
intercooler, nýskráöur 09/00, ekinn 15
þús., sjálfskiptur, 38" breyting, lækkuð
drif, tölvukubbur, kastaragrind, spoiler,
krókur, filmur o.fl., ath. skipti.
Verð 5.200 þús.
Subaru Legacy 2,0 GL, nýskráður
7/96, ekinn 77 þús., 5 gíra, cd, grænn,
álfelgur, sumar- og vetrardekk, mjög
vel með farinn bíll. Verð 1190 þús.