Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2001, Qupperneq 14
14
ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2001
Skoðun
I>V
Spurning dagsins
Fylgdistu með óskarsverð-
launaafhendingunni?
Stefán Örn Gunnlaugsson tónlistar-
maöur:
Já, framan af. Hrikatega ánægöur
meö Benicio Del Toro.
Axel Einarsson tónlistarmaöur:
Nei, en lagiö meö Dylan er gott, en
var samt svekktur yfir aö Björk skyldi
ekki sigra.
Jón Kjartan Ingólfsson tónlistarmaður:
Aöeins, var ánægöur meö aö Gladi-
ator skyldi vinna búningaverölaunin.
Ingvar Valgeirsson tónlistarmaöur:
Já, auövitaö fylgdist ég spenntur
meö. Grét af gleöi þegar Benicio Del
Toro vann fyrir aukahlutverkiö fyrir
Traffic.
Sigurður Þór Rögnvaldsson tónlistar-
maður:
Nei, haföi ekki tíma. Ég var ánægöur
með Russel Crowe vin minn. Sannur
hjartaknúsari meö meiru.
Stefán Eiríksson veiöimaður:
Nei, en var hálfsvekktur yfir aö Björk
skyldi ekki vinna.
Ferjusiglingar til Skotlands
Skarphéóinn
Eínarsson
skrifar:
Fyrir u.þ.b. 20
árum stefndi
hreppsnefnd Ölf-
ushrepps ásamt
Alfreð Þorsteins-
syni borgarfull-
trúa og fleirum á
vegum Reykja-
víkurborgar að
því að fá erlenda
aðila til að
stunda reglu-
bundnar ferju-
siglingar frá Þorlákshöfn til Aber-
deen í Skotlandi. En hvar skyldi
málið vera statt nú?
Margir myndu án efa notfæra sér
þann möguleika að ferðast með bíl-
inn til Bretlands en þaðan eru svo
ferjuferðir til Noregs, Hollands,
Þýskalands og Frakklands.
Frá Reykjavík er ekki nema 40
mínútna akstur á malbiki til Þor-
lákshafnar. Möguleikar myndu opn-
ast til að taka hópferðabíla og flutn-
ingabíla með vörur til og frá land-
inu.
Frá Skotlandi eru ferjuferðir til
írlands og frá Norður-Englandi
(Newcastle og Hull) til meginlands-
ins. Margt er að skoða í Skotlandi
svo ekki þarf að óttast tilbreytingar-
leysi þar, þótt ekki sé lengra farið.
Svona sigling frá Þorlákshöfn tekur
um 20 tíma. Á milli nyrsta hluta
Skotlands til íslands liggur sæ-
strengurinn SCOTTCAN til
Skotlands.
Sú var tiðin að íslendingum gafst
kostur á að sigla með Gullfossi til
Edinborgar (þ.e. hafnarborgar henn-
ar, Leith) og síðan áfram tU Kaup-
mannahafnar. Að þurfa að aka alla
leið tU Seyðisfjarðar og á malarvegi
að hluta tU er ekki það sem fólk með
nýja, dýra bUa vUl gera.
Þaö kostar líka fé að aka þessa 8
tíma leið. Þegar hinn nýi Suður-
strandarvegur hefur verið byggður
Frá Edinborg í Skotlandi
„Endurnýjun á farþegasiglingum frá íslandi yröi kærkomin. “
„Sú var tídin að íslendingum
gafst kostur á að sigla með Gull-
fossi til Edinborgar (þ.e. hafnar-
borgar hennar, Leith) og síðan
áfram til Kaupmannahafnar. Að
þurfa að aka alla leið til Seyðis-
fjarðar og á malarvegi að hluta
til er ekki það sem fólk með nýja, ar"myndu“heldur ekki 'bíða
dýra bíla vill gera. “ Skaða af þótt ferjuferðir
° væru fra Þorlakshofn til
er þetta líka góður kostur fyrir Suð- Skotlands. íslendinga skortir
urnesjamenn. einmitt þess konar ferðir nú.
Það væri æskUegt að drífa
þetta mál af stað. Þingmenn
Suðurlands og reyndar
Reykjavíkur lika og Reykja-
neskjördæmis eiga hags-
muna að gæta.
Ég er þeirrar skoðunar að
ferðamannastraumur tU
landsins myndi aukast og
ferjusiglingar til Seyðisíjarð-
Uppfinningamenn lýðræðis
Karl Einarsson
skrifar:
Ofboðslega var nú fyndið að lesa
grein eftir Hrannar B. Amarsson
borgarfuUtrúa í Morgunblaðinu sl.
flmmtudag. Hann er svo ánægður
með atkvæðagreiðsluna um flug-
vöUinn að fyrirsögn greinarinnar er
hvorki meira né minna en: „Reyk-
víkingar hafa talað“. En hvaða
Reykvíkingar hafa talað og hvað
sögðu þeir, blessaðir?
Eftir einhverjar vandræðalegustu
kosningar sem sögur fara, með úr-
slitum sem eru nánast jafntefli og í
raun ekkert hægt að gera í pattstöð-
unni, kemur þessi hlægUega grein
Hrannars. Hann segir m.a. í grein
sinni: „Atkvæðagreiðslan markar
því djúp spor í stjómmálasögu
landsins og með henni er rudd
„Þá vitum við það; lýðrœði
framtíðarinnar var fundið
upp af R-listanum sem er
samsuða ýmissa flokka og
hagsmunahópa í einni
valdaklíku. “
braut fyrir lýðræði framtíðarinn-
ar.“ Þá vitum við það; lýöræði fram-
tíðarinnar var fundið upp af R-list-
anum sem er samsuða ýmissa
flokka og hagsmunahópa í einni
valdaklíku.
Reyndar eru flokkarnir sem að R-
listanum standa ekki tU lengur, en
það skiptir engu. Uppfmningamenn
lýðræðis framtíðarinnar settu í að-
draganda kosningarinnar ákveönar
leikreglur. Þær miðuðust við að ef
ákveðnum mörkum væri náð skyldi
kosningin verða bindandi.
Nú eru ljósár frá því að markið
næðist og ergelsið mikið hjá R-list-
anum. Þá er bara búin til einhver
ný mælistika. Fimmtíu milljónir
famar, skoðanakönnunin meðal
landsbyggðarinnar, sem átti að gera
á sama tíma, „gleymdist" og lifið
heldur bara áfram.
Eftir stendur að þeir sem fundu
upp lýðræði framtíðarinnar ætla að
skrúfa hjól undir flugvöllinn og
draga hann eitthvað í burtu eftir 20
ár. Stjómmálamenn eru stundum
fyndnir og stundum hlægUegir.
Hrannar B. Arnarsson hefur greini-
lega áhuga á að marka sér fast sæti
í síðargreindum hópi.
Garri
Trúin flytur hús
Garri hefur aldrei verið neitt sérlega trúaður.
Hann hefur þó eftir aðstæðum einbeitt sér að því
að trúa, tU dæmis þegar hann sá fram á fagurt
armbandsúr á fermingardaginn sinn. Þá var eng-
in borgaraleg ferming. Þá þurfti fólk, já takk, að
ganga Guði á hönd ef það vUdi fá útborgað. Og þá
var útborgunin ekki jafn mikU og núna, á tímum
þegar auglýsingar fyrir fermingargjafir eru stUað-
ar beint á fermingarbamið: „Þú fermist ekki
nema einu sinni“ og þar fram eftir götunum.
Já, einmitt: fram eftir götunum. Garri fékk
Guð í hjartað um helgina; því sem næst alvöru
köUun eða hvað sem þeir kaUa það. Trúin varð lif-
andi, reyndar svo lifandi að hún skreið af Hóla-
vöUunum og niður í Slipp. Garri á frænku í vest-
urbænum, ágætis frænku, þótt hann segi sjálfur
frá.
Ekkl á róttri hlllu
Trúin flytur fjöU, segir einhvers staðar. Það
var einhvers staðar suður frá í heitari löndum.
Á íslandi er trúin ekki jafn stórtæk enda hefur
það sýnt sig að trúarhiti eykst eftir því sem nær
dregur miðbaug. Á íslandi flytur trúin hús. Og
það ekki bara einhverja sumarbústaði heldur
heUu íþróttahúsin.
Garri hefur verið í ríkis-
kirkjunni svo lengi sem
mamma hans man eftir sér
og því var kannski ekki við
því að búast að hann væri
mjög trúaður. Á sunnudag
uppgötvaði Garri að hann
var kannski á rangri trúar-
hUlu. Þjóðkirkjutrúin hefur
að vísu fært ýmislegt.
Kannski ekki mikið en þó
eitthvað. Þjóðkirkjutrúin
hefur fært presta á miUi
brauða og landa ef þvi er að
skipta. Fram að síðasta
sunnudegi hafði Garri haldið að það væri það
besta sem Guð gæti boðið í Uutningum. Hann
vissi ekki að Guð væri í raunverulegri sam-
keppni við Eimskip og Flytjanda.
Kannski, kannski ekki
Guð kaþólskra er alvöru. „Við greiðum þér
leið,“ sagði Eimskip og Guð bætti um betur:
„Ég greiði þér leið á Guðs vegurn". Og Guðs
vegir eru einmitt í vesturbæ Reykjavíkur og
heita Túngata og Ægisgata.
Garri hefur frétt af því að Steinunn Jóhannes-
dóttir ætli að láta skira sig tU kaþólskrar trúar og
leggjast svo á bæn. „Maður veit aldrei fyrr en
maður hefur reynt,“ segir Steinunn. „Kannski
flytur trúin flugveUi, hver veit?“
Garri
Góðmetið freistar manns
En veröiö ekki aö sama skapi.
Okrað á harðfiski
Sigfús Sigurðsson hringdi:
Ég er mikUl harðfiskunnandi og
steinbíts- raunar líka. Þessi matarteg-
und úr íslensku hráefni hefur verið að
hækka viðstöðulaust undanfarið. Nú
er steinbíturinn t.d. kominn í rúmar
4000 kr. kg og harðfiskurinn rétt und-
ir þvi. Þetta er náttúrlega hreint okur.
Að greiða 581 krónu fyrir 140 grömm-
in er ekki bjóöandi neytendum. Fer
enda sala á harðfiski og riklingi hrið-
minnkandi. Þeir geta gefið fyrirtækj-
unum hin ýmsu nöfn, sem minna á
silfur og guU, en vörur þeirra kaupi ég
ekki lengur á þessu verði. Það fer ým-
islegt að láta undan þessa dagana og
hætt við að okrið fái ekki ekki jafngóð-
an byr og tU þessa.
Hringbrautin varin?
Helgi Sigurðsson skrifar:
MikUl titringur er nú hjá skipulags-
embættum gatnamála í Reykjavík,
Vegagerð ríkisins og embætti Borgar-
verkfræöings vegna fyrirhugaðrar
færslu Hringbrautarinnar og tengingu
hennar frá Bjarkargötu að Bústaða-
vegi. Sl. fóstudag mátti lesa fréttatU-
kynningu frá samtökunum Betri
byggð þar sem þau krefjast þess að
Hringbrautin verði sett að meira eða
minna leyti í stokk neðanjarðar til
m.a. að „verja brýna hagsmuni þróun-
ar miðborgarinnar" eins og segir í tU-
kynningunni. Mér er tU efs að þetta sé
hinn raunverulegi tilgangur Betri
byggðar heldur búi annað að baki.
NefnUega það að hjálpa borgarstjórn í
vanda hennar að leggja tU atlögu við
framkvæmdir við Hringbrautina sem
er orðin stærsta vandræðabamið í
samgöngumálum höfuðborgarinnar
vegna tengslanna við flugvöllinn.
Barist um Færeyjaolíu
Egill skrifar:
Senn kem-
ur að því að
Færeyingar
lendi í bam-
ingi við Dani
enn á ný og
nú út af olí-
unni sem
finnanleg er
á hafsvæðinu umhverfis eyjarnar.
Danir gera tUkaU tU olíunnar en Fær-
eyingar segja aUan rétt sín megin.
Ekki líður langur tími þar tU þetta
mál verður hið mesta hitamál mUli
þessara þjóða og megum við íslending-
ar grannt fylgjast með því vegna
þeirra auðæfa sem liggja undir okkar
eigin hafsvæði við norðaustanvert
landið eins og fram hefur komið í
skýrslum viðkomandi stofnana hér. -
Ólíklegt er að íslendingar láti kyrrt
liggja öUu lengur og krefjist þess að tU-
raunaboranir hefiist hér sem fyrst.
Er Hvíta ísland glæpur?
Kristinn Sigurðsson skrifar:
Ungur Islendingur talar um Hvita
ísland í viðtali í DV. Mér skUst að
þessi landi minn vUji takmarka inn-
flutning á erlendu fóiki tU landsins, sér
i lagi lituðu, skUji ég málið rétt. En er
svo komið í lýðræðisríkinu íslandi, að
þessi ungi maður megi ekki hafa þessa
skoðun, og ailra síst að flíka henni, án
þess að vera kallaður tU yfirheyrslu
vaidhafa tU að siða hann til? Málið er
ekki svona einfalt því talsverður hluti
þjóðarinnar er sömu skoðunar og ungi
maðurinn. Við sjáum og heyrum um
slæm dæmi frá Norðurlöndunum og
kannski þurfum við eitthvað að varast
þegar vel er að gáð.
IDV Lesendur
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eöa sent tölvupóst á netfangið:
gra@ff.is
Eða sent bréf til: Lesendasíða DV,
Þverholti 11, 105 Reykjavík.
Lesendur eru hvattir til að senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.