Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2001, Qupperneq 28
36
ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2001
Tilvera
DV
í f iö
Verk eftir
Hilmar
Þórðarson í
Salnum
Kennarar úr Tónlistarskóla
Kópavogs eru um þessar mundir
að halda tónleikaröð í Salnum.
Þau Marta Guðrún Halldórsdótt-
ir sópran, Öm Magnússon píanó-
leikari, Camilla Söderberg
blokkílautuleikari, Martial Nar-
deau flautuleikari, Laufey Sig-
urðardóttir flðluleikari, Páll
Eyjólfsson og Kristinn H. Árnas-
son gítarleikarar ætla að troða
upp í kvöld og flytja verk eftir
Hilmar Þórðarson.
Krár
■ STEFNÚMbf Á GÁUKNUM
Stefnumót Undirtóna verður haldið á
Gauknum í kvöld. Rokkiö verður
tilraunakennt og hljómsveitirnar
Fidel og Luna koma fram. Hér eru á
ferðinni tvær nýjar og spennandi
hljómsveitir. Húsið opnað kl. 21.
Klassík
■ VILBERGSPAGAR I GARÐABÆ
Nú stendur yfir glæsileg tónlistar-
veisla í Garðabæ til heiðurs minn-
ingu Vilbergs Júlfussonar skóla-
stjóra. í kvöld verða tónleikar í sal
Tónlistarskólans og hefjast þeir kl.
20. Efnisskráin samanstendur að
mestu af nútímatónlist, bæöi í djass
og sígildum stfl. Meðal flytjenda eru
Hljómeyki, Hildigunnur Rúnars-
dóttlr og Ingunn Hildur Hauksdóttir,
Pétur Jónasson, Haukur Gröndal og
Matthías Hemstock, Vlllingar, Mar-
grét Sigurðardóttir, Helgi Svavar
Helgason og Valdimar Kolbeinn Sig-
urjónsson. Forsala aðgöngumiða er í
bokabúðinni Grímu.
■ SÍÐUSTU HÁSKÓLATÓNLEIKAR
VETRARINS
Ingibjörg Guðjónsdóttir sópran flytur
verk eftir John Dowland, Henry
Purcell, Fernando Obradors og
Enrlque Granados, við gítarundirleik
Péturs Jónassonar, á siöustu
háskólatónleikum vetrarins. Þeir eru
í Norræna húsinu í hádeginu á
morgun og hefjast kl. 12.30.
Fundir
■ OPIÐ HÚS
SKOGRÆKTARFELAGANNA
I kvöld kl. 20 veröur opiö hús á
vegum skógræktarfélaganna f
Morklnni 6. Jðn H. Björnsson lands-
lagsarkitekt sýnir Alaskamynd sína.
Þá veröur kynnt Alaskaferð Skóg-
ræktarfélags íslands sem farin
verður í haust. Áhugamenn um
skógrækt og Alaska eru hvattir til að
mæta.
■ VÍNLAND OG VÍNARTERTAN
Vináttufélag Islands og Kanada
heldur fund í kvöld. Jón Daníelsson
blaðamaður fjallar um bók sína
Leifur heppni og Vínland hið góöa
og Jón Karl Helgason bókraennta-
fræöingur segir frá sjálfsmynd
Kanadamanna af íslensku bergi
brotnum í erindi sínu sem hann
kaliar Leyndarmál vínartertunnar.
Fundurinn verður í stofu 102 í
Lögbergi og hefst kl. 20.
■ ITC HARPA Fundur verður kl. 20 í
kvöld í Borgartúni 22, þriöju hæð.
Fundurinn er öllum opinn.
■ DREYMIR NETH)
I dag kl. 16 mun Njörður Sigurjóns-
son, M.Sc. í viðskiptafræöi, halda
fyrirlestur í málstofu í viðskipta-
fræði. Fyrirlesturinn nefnist Dreymir
Netiö og byggist á ritgerö hans um
þekkingarstjórnun og upþlýsinga-
tækni. Málstofan fer fram á
kennarastofu á þriöju hæö í Odda
og eru allir velkomnir.
Sjá nánar: Lífiö eftlr vinnu á Vfsi.is
Bíógajgnrýní
Pólitík og kynlíf
Háskólabíó - The Contender ★ ★
Hilmar
Karlsson
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
Óskarsverðlaunin 2001:
Stríðsvöllur
tilfinninganna
Eins og við var búast féllu tilflnn-
ingaþrungin orð og glittaði í tár við
afhendingu óskarsverðlaunanna að-
faranótt mánudags (að íslenskum
tíma). Mikið var búið að spá i spilin
og má segja að sumt hafi gengið eftir
og annað ekki. „öruggasti" sigurveg-
arinn fyrir fram var Julia Roberts og
ekkert stöðvaði sigurgöngu hennar og
var hún valin besta leikkonan í aðal-
hlutverki fyrir leik sinn í Erin
Leikstjórinn sem vann
Öllum á óvart var Steven Soder-
berg valinn besti leikstjórinn en
fyrir fram þótti þaö ekki líklegt þar
sem hann var meö tvær tilnefning-
ar á bakinu í sama flokki.
Brockovich. Ekki var eins auðvelt að
spá um sigurvegara i karlaflokki. Þar
höfðu fyrir fram flestir hallast að Tom
Hanks en það kom samt fáum á óvart
að Russell Crowe skyldi hampa stytt-
unni. Gladiator var búin að vera
heitasta myndin á hátíðinni þegar
kom að aöalleikaranum.
Benecio Del Toro fékk óskarinn fyr-
ir aukahlutverk. Voru flestir á því að
hann hefði átt þau skilið þótt marg-
ir hölluðust að því að Albert Finn-
ey fengi nokkurs konar
„þakkaróskar" en þetta var í
fimmta skipti sem hann er til-
nefndur. Það kom aftur á móti
öllum á óvart þegar í Ijós
koma að Marcia Gay Harden
fékk verðlaun kvenna í
aukahlutverki fyrir leik
sinn í Pollack sem fáir hafa
séð. Þar höfðu flestir spáð
að Kate Hudson færi heim
með verðlaunin fyrir leik
sinn í Almost Famous.
Besta kvikmyndin var
valin Gladiator og kom það
fáum á óvart. Ekki gekk það þó
eftir að leikstjóri bestu kvikmynd-
arinnar fengi einnig óskarinn eins og
oftast gerist. Þegar kom að besta
leikstjóranum brá engum meira en
Steven Soderbergh þegar hans nafn
Julia og Óskar
Allir geröu ráö
fyrir aö Julia Ro-
berts myndi
' vinna og þaö
gekk eftir. Hér
stillir hún sér
upp fyrir framan
líkamsstærö af
styttunni.
Ánægðir óskarsverðlaunahafar
Þau höföu ástæöu til aö brosa. Taliö frá vinstri: Benecio Del Toro, Marcia
Gay Harden, Julia Roberts og Russell Crowe. Takiö eftir heiöursmerkinu
sem Crowe skartar. Hann tileinkaöi verölaunin afa sínum sem hafði fengiö
heiöursmerkiö frá breska heimsveldinu fyrir störf í síöari heimsstyrjöldinni.
var lesið upp: „Ég held að allir hafi
séð hversu undrandi ég var. í sann-
leika sagt bjóst ég ekki við þessu“.
Ástæðan fyrir því að Soderberg tók
svona til orða er að hann var tilnefnd-
ur í þessum flokki fyrir tvær myndir
og töldu flestir að atkvæði hans
myndu jafnast út á milli Traffic og
Erin Brockovich. Ekki fékk Björk ósk-
arsverðlaun í þetta sinn enda við
ramman reip að draga þar sem lag
Bobs Dylans var i flokki laga.
Þegar upp er staðið kemur í ljós að
enginn einn sigurvegari var á 73. ósk-
arsverðlaunahátíðinni. Þrjár kvik-
myndir, Gladiator (5 styttur),
Crouching Tiger, Hidden Dragon (4
styttur og Traffic (4 styttur) geta allar
vel við unað. í heild tókst hátíðin vel
að flestra mati. Allar áætlanir stóðust
og verðlaunahafar héldu sig flestir við
45 sekúndna takmörkin í þakkarræð-
um. -HK
Oskarinn kysstur.
Benecio Del Toro smellir kossi á
styttuna. Hann var
einn af þeim sem
flestir spáöu sigri.
Varaforsetaefnið í yfirheyrslu
Joan Allen leikur öidungadeildarþingmanninn Laine Hanson sem þarf aö
svara óþægilegum spurningum þingmannanefndar.
Hvað sem segja má um átta ára
feril Bills Clintons í Hvíta húsinu
þá hefur sjálfsagt enginn forseti haft
jafn mikil áhrif á kvikmyndaiðnað-
inn í Hollywood meðan hann sat í
embætti. Allar pólitískar kvikmynd-
ir (svo ekki sé talað um vinsælustu
sjónvarpsseríuna vestanhafs, West
Wing) sem gerðar hafa verið á und-
anförnum árum, þar sem forsetinn
gegnir stóru hlutverki, hafa sýnt
okkur forseta á miðjum aldri, sem
er demókrati, vinsæll og frjálslynd-
ur í skoðunum. Allt eru þetta áhrif
frá Clinton-tímabilinu og það að
hann hafi haldið fram hjá og verið
bendlaður við fjársvikamál hefur
aðeins gert hann vinsælli í kvik-
myndaiðnaðinum.
Að vísu eru hneykslin oft færð
yfir á aðrar persónur og svo er í
The Contender. Þar er forsetinn
hinn dæmigerði frjálslyndi
demókrati sem er búinn að vera í
embætti í sex og hálft ár þegar vara-
forseti hans fellur frá. Forsetinn,
Jackson Evans (Jeff Bridges),
hyggst slá sig til riddara og velur
konu, öldungardeildarþingmanninn
Laine Hansen (Joan Allen), sem
varaforsetaefni og gengur þar fram
hjá vinsælum stjómmálamanni sem
„þjóðin" vildi í embættið. Formaður
nefndar, sem á að yfirheyra varafor-
setaefnið Shelly Runyon (Gary Old-
man), sem aö sjálfsögðu er
repúblikani, er ákveðinn í að kné-
setja Hansen og sparar hvorki
krafta né meðul í þeim tilgangi og
kemst hann fljótt í feitt þegar á borð
hans lenda myndir af varaforsetan-
um á háskólaárum sínum þar sem
hún tekur þátt i kynlífsorgíu.
Myndin er síðan að mestu leyti
um stríðandi fylkingar í kringum
Hansen sem neitar að gefa nokkra
skýringu á hegðun sinni, segir það
neðan hennar virðingu. Segir sem
sjálfsagt er rétt að hefði karlmður
tekið þátt í slikri orgíu, og það oftar
en einu sinni, þá hefði þetta ekki
skipt jafn miklu máli. Hún sé kona
og nú á að refsa henni fyrir það.
The Contender er vel skrifuð og
leikstjórinn og handritshöfundur-
inn, Rod Lurie, skrifar af miklu inn-
sæi um lífið í Washington og hvern-
ig kaupin á eyrinni gerast í pólitík-
inni þar á bæ. Einnig eru persón-
urnar sannfærandi og einstaka at-
riði eru raunsæ og gera myndina
trúverðuga. Þá er leikur allur til
fyrirmyndar og eiga þau Joan Allen
og Jeff Bridges skilið sínar óskar-
stilnefningar.
Samt er það nú svo að enn einu
sinni fellur Hollywood á þjóðemis-
kenndinni og einfóldum lausnum.
Eins og Lurie skrifar góð samtöl þar
sem plottað er í allar áttir þá eru
ræðumar og samtölin í lokin
íklædd sykurhjúpi sem nánast fer
alveg með raunsæið sem áður hefur
verið borið á borð.
Leikstjórn og handrit: Rod Lurie. Kvik-
myndataka: Dennis Maloney. Tónlist:
Larry Groupé. Aöalleikarar: Joan Allen,
Jeff Bridges, Gary Oldman, Christian Sla-
ter og Sam Elliot.