Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2001, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2001, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 29. MARS 2001 5 DV Fréttir Nemendur MA á Evrópufundi Nemendur Menntaskólans á Ak- ureyri voru nýlega á tölvufundi með Tom Glaser, talsmanni Giinter Verheugen, ráðherra í málum er varða stækkun Evrópusambands- ins. Menntaskólinn á Akureyri er eini íslenski skólinn sem tekur þátt í þessum samræðum þar sem reynt verður að svara ýmsum spurning- um varðandi stækkun sambandsins, möguleika, réttindi og skyldur þeirra sem hugsanlega bætast í hóp sambandsríkjanna og þeirra sem utan þeirra standa. Þátttökuskól- arnir eru 11. Þessi fundur var á veg- um samevrópska upplýsingatækni- verkefnisins MyEurope, sem MA er þátttakandi í, en verkefnisstjóri er Lára Stefánsdóttir. Fjölnir Guðmannsson, einn fund- armanna, sagði það hafa verið áhugavert að skólafólkið hefði getað spurt háttsetta aðila innan sam- bandsins margvíslegra spurninga og hefði komið á óvart hversu þeir hefðu lagt sig fram við að svara. „Til dæmis var spurt hvort Evrópu- sambandið myndi gleypa þessi smærri lönd og var því svarað að það yrðu líklegar málalyktir, ekki vegna smæðar landsins heldur vegna þess hve fá lönd hefðu í raun vald til að ráða einhverju innan sambandsins," sagði Fjölnir. -GG Tröllaskaga- tíöindi Nýtt héraðsfréttablað, Tröllaskaga- tíðindi, hóf göngu sína í síðustu viku og er markaðssvæðið Ólafsfjarðarbær og Dalvíkurbyggð en á því svæði búa liðlega 3 þúsund manns. Blaðið kemur út einu sinni i viku og verður fyrstu tveimur tölublöðunum dreift í öll hús, um 1.100 eintökum, en síðan verður því dreift til áskrifenda. Ritstjóri Tröllaskagatíðinda, Helgi Jónsson á Ólafsfirði, segir grundvöll fyrir nýju blaði á svæðinu þrátt fyrir að í Dalvíkurbyggð sé gefið út héraðs- fréttablaðið Bæjarpósturinn og einnig Norðurslóð, sem flytur þó ekki hefð- bundnar fréttir. Áður hafa verið gefiri út á Ólafsfirði héraðsfréttablöðin Múli og Tindur, sem bæði eru hætt að koma út, en Helgi segist ekki óttast þá sögu; nú sé verið að stækka svæðið. „Við munum binda okkur við það sem er að gerast í þessum sveitarfé- lögum og hjá fólki þeim tengdu. Þetta er vikublað og því getum við ekki að öllu jöfnu verið fyrstir með fréttirnar en reynum þess þá heldur að horfa á mannlegu hliðarnar og leggja áherslu á íþróttir, menningu og atvinnulíf. Það kann stundum að vera erfiðara í svona litlu samfélagi að vera í nálægð við fóik þegar taka þarf á óþægilegum málum en vonandi tekst okkur það þannig að allir geti verið sáttir,“ segir Helgi Jónsson. -GG Eldri borgarar: Opið hús Opið hús verður fyrir eldri borg- ara i Safnaðarheimili Akureyrar- kirkju í dag, fimmtudag 29. mars, kl. 15-17. Flutt verður blönduð dag- skrá um ástina, lífið og tilveruna með þátttöku gesta. Jón Árni Sigfús- son leikur á harmoníku. Séra Svav- ar A. Jónsson flytur bænarorð. Kaffiveitingar. Bíll fer frá Kjarnalundi kl. 14.15, Víðilundi kl. 14.30 og Hlíð kl. 14.45. Allir eru hjartanlega velkomnir! Akureyri: Viðbyggingin boðin út Framkvæmdaráð Akureyrar- bæjar ákvað á fundi sínum í gær að bjóða út byggingu viðbygging- ar við Amtsbókasafnið og verður auglýsing send til fjölmiðla um heigina. Þetta þykja nokkur tíma- mót og tími til kominn að þau litu dagsins ljós því nú nálgast að 20 ár séu síðan Akureyrarbær gaf sjáifum sér það i afmælisgjöf að byggt skyldi við safnið. Áætlað er að framkvæmdir hefj- ist i sumar og aðalverktíminn 10 kílómetrar af hillum eru meöal þess búnaðar sem setja á upp sam- kvæmt útboðinu. verði árin 2002 og 2003. Til fram- kvæmdarinnar er áætlað að verja tæplega 400 milljónum króna. Þar af er kostnaður við viðbygginguna áætlaður um 220 milljónir króna en kostnaður við endurbyggingu eldri byggingarinnar og til kaupa á tækjum og búnaði fyrir um 70 milljónir. Má í því sambandi nefna að kaupa þarf um 10 kíló- metra af hillum. -gk Gatnamálastjórinn í Reykjavík LOKUN SÓLEYJARGÖTU i, fimmtudaginn 29. mars, hefjast mkvæmdir við endurnýjun Sóleyjargötu milli Njarðargötu og Skothúsvegar. Óhjákvæmilegt er að loka þessum hluta götunnar fyrir akandi umferð meðan á framkvæmdum stendur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.