Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2001, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 29. MARS 2001
7
DV
'ijEHBBSIErai
HEILDARVIÐSKIPTI 3200 m.kr.
Hlutabréf 283 mkr.
Húsbréf 1470 mkr.
MEST VIÐSKIPTI
0 Íslandsbanki-FBA 160 mkr.
Marel 18 mkr.
3 Össur 15 mkr.
MESTA HÆKKUN
: QOpin kerfi 14,3 %
O Marel 7,8%
i ©Eimskip 2,4%
MESTA LÆKKUN
©íslenskir aðalverktakar 1,8%
©Tæknival 1,1%
©Kaupþing 0,7%
ÚRVALSVÍSITALAN 1166 stig
- Breyting i Q 1,48%
Útlán aukast um
82 milljarða
Otlán bankakerfisins, þ.e. banka
og sparisjóða, til fyrirtækja jukust á
árinu 2000 um 82 milljarða króna,
sem er 23% aukning. Ætla má að
um 6% af útlánaukningu til fyrir-
tækja stafi af gengisuppfærslu lána
vegna lækkunar á gengi krónunnar.
Útlán bankakerfisins til einstak-
linga jukust um 43 milljarða króna,
sem er 34% aukning. Athygli vekur
44% aukning útlána til bygginga-
verktaka, um 5 milljarðar króna. Ný
útlán íbúðalánasjóðs til nýbygginga
minnkuðu á sama tíma. Útlán til
verslunar jukust um 19 milljarða
króna, til iðnaðar um 13 milljarða
króna og til þjónstustarfsemi um 15
milljarða króna.
Innlán í innlánastofnunum juk-
ust um 29 milljarða króna, eða um
11%, en að öðru leyti er útlánaukn-
ingin fjármögnuö með innlendum
og erlendum lántökum bankakerfis-
ins. Þetta kemur fram í Hagvisum
Þjóðhagsstofnunar.
Krónan sveiflast í
kjölfar upptöku
verðbólgumarkmiðs
Krónan styrktist lítillega fyrsta
daginn eftir að stjómvöld tilkynntu
að skipt hefði verið á gengismark-
miði og verðbólgumarkmiði. Krón-
an endaði í 124,84. Mjög mikil við-
skipti voru á bak við viðskipti dags-
ins, eða 19,8 milljarðar króna. Tölu-
verðar sveiflur voru á krónunni
eins og búist hafði verið við. Krón-
an fór hæst í 127,43 og lægst í 123,52.
Gengi krónunnar lækkaði mjög
mikið í litlum viðskiptum strax við
upphaf millibankamarkaðar. Upp-
hafsgildi dagsins var 125,10 og geng-
islækkunin nam 1,85% á fyrstu 45
mínútum viðskipta dagsins.
29.03.2001 kl. 9.15
KAUP SAL'.
h Dollar 90,460 90,920
ŒlPund 130,320 130,990
1*1 Kan. dollar 57,690 58,040-
gSlDönskkr. 10,7410 10,8000
— Norsk kr 9,9180 9,9730
SSsænsk kr. 8,6880 8,7360
HRfI. mark 13,4799 13,5609
1 lÍFra. frankl 12,2185 12,2919
1 5 Belg. franki 1,9868 1,9988
% Sviss. frankl 52,4200 52,7100
teHHk Holl. gyllini 36,3696 36,5882
Þýskt mark 40,9791 41,2253
1 1 ít. líra 0,041390 0,041640
i lj^ Aust. sch. 5,8246 5,8596
} !*w iPort. escudo 0,3998 0,4022
1 * ISná. pesetl 0,4817 0,4846
j • llap. yen 0,732600 0,737000
| íírskt pund 101,767 102,378
SDR 114,440000 115,130000
MECU 80,1481 80,6297
Bílskúrshurðir
HL JÓMTÆKI
Viðskipti
Mjólkurbú Flóa-
manna hagnaðist
um 115 milljónir
Mjólkurbú Flóamanna var rekið
með 115 milljóna króna hagnaði á
síðasta ári, samanborið við 153
milljóna króna hagnað árið áður.
Rekstrartekjur félagsins námu 2.811
milljónum króna og drógust saman
um 0,5% en gjöld jukust um 1,7%
mUli ára og námu 2.693 milljónum
króna.
Hagnaður MBF fyrir afskriftir og
fjármagnsliöi var 118 milljónir
króna. Hagnaður af reglulegri starf-
semi MBF var 157 milljónir króna í
fyrra í stað 204 milljóna árið á und-
an.
Heildareignir MBF í árslok 2000
voru bókfærðar á 2.358 milljónir
króna og þar af var eigið fé 1.962
milljónir og jókst um 107 milljónir á
árinu. Eiginfjárhlutfall MBF í árs-
lok var því 83,1%. Veltufé frá
rekstri var 253 milljónir króna og
veltufjárhlutfall 3,5.
Fram kemur í frétt frá MBF að
innlögð mjólk var 39,4 milljónir
lítra í fyrra og minnkaði um 543
þúsund lítra frá árinu áður. Inn-
leggjendum fækkaði um 27 og voru
þeir 382 í fyrra. MBF framleiðir dag-
vörur af ýmsu tagi, sýrðar jógúrtaf-
urðir, skyr, osta, kókómjólk og aðr-
ar G-vörur, smjör og mjólkur-
duftsvörur.
/
Utfararskreytingar
Býflugan og blómið
EHF
kistuskreytingar,
krossar, kransar,
blómaskreytingar,
blómvendir,
Sími 461 5444
Glerárgata 28. Akureyri
•.
Glæsilega hönnuð og kraftmikil hljómtækjstæða með 2x100W
útgangsmagnara, Power Bass hátalara og funkyblárri baklýsingu.
Einingar sem auðvelt er að taka sundur, gegnsætt lok fyrir CD spilara
og allt það sem þú vilt hafa í alvöru hljómtækjastæðu og meira til.
Lágmúla 8 • Sími 530 2800
Iðnaðar oi
bilskúrshui
Smíðum
eftir máli
'qérum
tilboð
'AFLRAS
Bæjarflöt 7*112 Reykjavík
sími 587 8088 *fax 587 8087
Umsjón: Viðskiptablaðiö
Plastprent með 115
milljóna króna tap
prenti segir að rekst-
ur félagsins á árinu 2000 hafi gengið
samkvæmt áætlun. Hagnaður fyrir
afskriftir og fjármagnsliði jókst um
88,5 milljónir króna frá fyrra ári, fór
úr tæpum 54 milljónum króna i
rúmlega 142 milljónir.króna eða úr
4,9% af veltu í 12,8%. Þá jókst hreint
veltufé frá rekstri um rúmlega 86
milljónir króna frá fyrra ári, var nú
jákvætt um 82 milljónir en var nei-
kvætt um 4 milljónir króna á fyrra
ári. Hins vegar nam gjaldfært reikn-
að gengistap erlendra skulda 64
milljónum króna og jafnframt var
eignarhluti í Akóplasti að upphæð
64 milljónir króna gjaldfærður að
fullu á árinu. Tap ársins 2000 var
því 115,2 milljónir króna en til sam-
anþurðar var tapið 89,3 milljónir
króna árið áður en þá var tekju-
færður gengishagnaður erlendra
skulda 15 milljónir króna og ekki
um neina óreglulega liði að ræða.
Rekstrartekjur Plastprents hf. á
árinu 2000 námu 1.107,7 milljónum
króna sem er tæplega 1% aukning
frá fyrra ári en þá voru rekstrar-
tekjur 1.098,8 milljónir króna.
Rekstrargjöld félagsins lækkuðu
um 7,9% milli ára og námu þau
1.051,6 milljónum króna á árinu
2000, samanborið við 1.141,3 milljón-
ir króna á fyrra ári.
Fram kemur í frétt Plastprents að
lækkun rekstrargjalda skýrist af
61,2 milljóna króna minni launa-
kostnaði en á fyrra ári vegna fækk-
unar starfsmanna um 25 stöðugildi
á milli ára, lækkun rekstrarkostn-
aðar um tæplega 3% og lækkun af-
skrifta um 10 milljónir króna. Hrá-
efniskostnaður var áfram hár vegna
þess hve verð á hráefni var hátt og
vegna óhagstæðrar þróunar er-
lendra gjaldmiðla gagnvart íslensku
krónunni.
Rekstrarhagnaður án fjármuna-
tekna og fjármagnsgjalda var 56,1
milljón króna, samanborið við 42,5
milljóna króna rekstrartap áriö
áður. Tap tímabilsins af reglulegri
starfsemi á árinu 2000 nam 50,9
milljónum króna, samanborið við
89,3 milljóna króna tap árið áður.
Gjaldfærsla vegna niðurfærslu
85,4% eignarhluta í Akó-Plastosi hf.
nam 64,3 milljónum og er hún færð
meðal óregluiegra liða og er tap árs-
ins 2000 eftir skatta því 115,2 millj-
ónir króna. Ástæða niðurfærslunn-
ar er mikil óvissa um framtíð Akó-
Plastos hf. vegna bágrar fjárhags-
stöðu en félagið hefur nú leitað eftir
nauðasamningum við lánardrottna
sína.
Plastprent hf. var
rekið með 115,2 millj-
óna króna tapi á ár-
inu 2001, samanborið
við 89 milljóna króna
tap érið áður. Versn-
andi afkoma skýrist
einkum af gengistapi
og niðurfærslu eign-
arhluta í Akó-Plast-
osi. Tap af reglulegri
starfsemi á árinu
2000 nam 50,9 mUlj-
ónum króna, saman-
borið við 89,3 miUj-
óna króna tap árið
áður.
í frétt frá Plast-
Tap tímabilsins af reglulegri starfseml
Á árínu 2000 nam tapiö 50,9 milljónum króna, sam-
anboriö við 89,3 milljóna króna tap áríð áöur.