Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2001, Síða 12
12
FIMMTUDAGUR 29. MARS 2001
Skoðun
X>V
Spurning dagsins
Hvar myndirðu vilja búa ef
ekki á íslandi?
Sif Hákonardóttir nemi:
/ Danmörku, ódýr bjór og frjálst land.
Sunna Elín Sigurðardóttir nemi:
/ London, gaman að vera þar. Mikil
menning.
Birna Rún Svavarsdóttir nemi:
/ Danmörku, afslappaö land. Þar get
ég líka keypt mér áfengi sjálf.
Hörður Stefánsson nemi:
Á Bahamaeyjum, góöur hiti og fá-
klæddar stúlkur á hverju strái.
Kristján Benediktsson nemi:
I Danmörku, Danir eru einstaklega
skemmtilegt fólk.
Hraðbrautin sem ekki mátti leggja
- til Keflavíkur
Skarphéðinn Einarsson
skrifar:____________________________
Þeir sem eru komnir á sjötta ára-
tuginn tala margir um hana þegar
Reykjanesbrautina ber á góma. Stað-
reyndin er sú að hönnun hraðbrautar
frá vegamótunum Njarðvík/Fitjar og
alla leið upp í Hvalfjörð lá á teikni-
borðinu hjá verkfræðideild banda-
ríska flotans í Bandarikjunum.
Bandaríski flotinn var með áform um
að stórauka umsvif sín á Atlantshafi
vegna fjölda ferða rússneskra kafbáta
þar.
Númer eitt var að auka eftirlit milli
íslands og Skotlands og íslands og
Grænlands. Það vantaði aðstöðu fyrir
Polaris-kafbáta vegna áhafnaskipta og
viðgerða. Hvalfjörður var kjörinn til
að vera flotastöð. Þessi hugmynd mun
hafa komið fram árið 1955 á NATO-
fundi í París. Þann fund sat dr. Krist-
inn Guðmundsson, þáverandi utan-
ríkisráðherra. Utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, John Foster Dulles
(1953-1959), hélt því seinna fram að ís-
lenski ráðherrann hefði ekki mótmælt
þessari hugmynd á fundi sem þeir
áttu þá. En Kristinn neitaði að hafa
lofað nokkru.
Stjórnmálaástandið á íslandi var
mjög óstöðugt á þessum tíma. Sjálf-
sagt hafa Bandríkjamenn líka borið
þetta upp við Guðmund í. Guðmunds-
son (utanríkisráðherra) seinna, en
svo fór að 1959 var þessu hafnað alveg.
Síðan tók svonefnd Viðreisnar-
stjórn tók við. Flotinn tók við rekstri
stöövarinnar í Keflavík og fór allur sá
búnaður sem þurfti til að þjónusta
Polaris-kafbátana siglandi inn
Clydefjörðinn í Skotlandi, enda hafði
fengist leyfl Breta til að koma þar upp
aðstöðu. Á meðal þess sem þar kom
var risaflotkví, herskip, birgðaskip og
fleiri tæki. Þessari stöð, sem veitti
Skotum atvinnu, beint og óbeint, var
lokað 1992.
En aftur að byrjuninni. - Vegurinn
úr Hvalfirði átti að liggja hjá Geit-
hálsi við Rauðhóla, ofan Ásfjalls við
Á Reykjanesbraut
„Hana þarf aö færa ofar, sunnan Straums."
„Vegurinn úr Hvalfirði átti
að liggja hjá Geithálsi við
Rauðhóla, ofan Ásfjalls við
Hafnarfjörð til Keflavíkur,
með aðeins einni beygju,
hábyggður og snjóléttur. “
Hafnarfjörð til Keflavíkur, með aðeins
einni beygju, hábyggður og snjóléttur.
- Nú, áriö 2001, þarf að færa Reykja-
nesbraut ofar, sunnan Straums, og í
Mjódd.
En átti að leyfa þessa stöð í Hval-
firði? Afstaða íslands var skýr. Engin
kjarnorkuvopn hér. 1961 til 1965 lögðu
íslendingar veg til Keflavíkur fyrir er-
lent lánsfé. 1968 hafði sú skuld fjór-
faldast sökum tíðra gengisfellinga á
íslandi. íslendingar leyfðu þó bygg-
ingu Lóranstöðvar að Gufuskálum
(1959-1961). Hún var hluti af þessari
áætlun og þjónaði Polaris-kafbátum
frá Skotlandi er áttu leið um hafið við
ísland og Bretland. En íslendingar
nutu góðs af, því búnaðurinn var í öll-
um skipum og veitti mikið öryggi við
staðsetningu.
Baráttan við flugmálayfirvöld
Sigurður
skrifar:____________________________
Nú stendur yfir málaþref vegna
flugslyssins hörmulega um síðustu
verslunarmannahelgi. Ailt frá því að
slysið átti sér stað hafa ættingjar fórn-
arlambanna háð baráttu við flugmála-
yfirvöld og samgönguráðherra. Ættin-
gjamir hafa með gilduni rökum bent á
ýmislegt sem hefur miður farið hjá
flugmálayfirvöldum og ekki síst á
ýmsa annmarka sem koma fram í
skýrslu rannsóknarnefndar á slysinu.
Ekki skal fullyrt hvernig þessum
tveimur einstaklingum muni ganga í
baráttu sinni við ríkisvaldið sem hef-
ur úr ógrynni peninga að spila auk
hers lögfræðinga og sérfræðinga sem
Ég hvet þá sem heyja bar-
áttuna vegna flugslyssins
til þess að taka Kolbrúnu
Sverrisdóttur sér til fyrir-
myndar. Eftir erfiða bar-
áttu hafði hún sigur. Það
sama mun ske nú. “
hugsanlega kynnu að tefja málið og
flækja.
Ekki er þó ástæða til að láta bugast.
Barátta ekkjunnar á ísafirði sem
missti mann sinn og föður í sjóslysi á
Arnarfirði er hliðstætt mál. Þar
þvældist þáverandi samgönguráð-
herra þversum fyrir öllum hennar til-
raunum við að koma réttlætinu á
framfæri. Sér til aðstoðar hafði hann
sjóslysanefnd. í þessu máli er flug-
slysanefnd beitt fyrir vagninn. Þess er
þó skemmst að minnast að eftir að
ekkjan hafði stefnt málsaðilum hafði
hún fullan sigur í málinu.
Dómarar tóku hagsmunapotið ekki
gilt. Búast má við að sama verði upp
á teningnum í þessu máli. Ég hvet þá
sem heyja baráttuna vegna flugslyss-
ins tO þess að taka Kolbrúnu Sverris-
dóttur sér til fyrirmyndar. Eftir erfiða
baráttu hafði hún sigur. Það sama
mun ske nú.
Pórður Twist
Aldrei fór það svo að Davíð léti ekki Þórð Friðjóns
fá það óþvegið. Garri þreytist ekki á því að lýsa að-
dáun sinni á Davíð enda fáir íslenskir stjórnmála-
menn sem komast með tærnar þar sem hann hefur
hælana. Það veður enginn yfir Davíð á skítugum
skónum, og því síður geta menn leyft sér að stíga á
stokk og lýsa því yfir að eitthvað sé athugavert við
það sem hann gerir. Slíkt kallar á tafarlausa ráðn-
ingu - það er sko agi í húsi Davíðs. Þess vegna
minnti það nánast á atriði í skáldsögu eftir Dickens
- Garri sér t.d. fyrir sér þegar Oliver Twist kom með
tóma grautarskálina upp að forstöðumanni munað-
arleysingjahælisins og bað um meira - þegar Þóröur
Friðjónsson sendi frá sér þjóðhagsspá þar sem gagn-
rýnd var efnahagsstjórnunin hjá ríkisstjórninni og
þar með hjá efnahagsmálaráðherranum sjálfum,
Davíð Oddssyni. Satt að segja þótti Garra þetta nokk-
ur fifldirfska - ekki síður en hjá Oliver Twist forð-
um. Hann mátti vita að þessu yrði ekki tekið með
þegjandi þögninni.
Makleg málagjöld
Enda kom það líka á daginn. Allir þekkja hver ör-
lög Oliver litli fékk - hann fékk það sem hann átti
skilið fyrir frekjuganginn! Garra sýnist að Þjóðhag-
stofnun muni líka fá makleg málagjöld. Viðbrögð
Davíðs hafa verið í nokkrum þáttum og hafa ýmsir
talað um þetta sem nýjustu framhaldsþáttaröðina í
íslenskum stjómmálum. í fyrsta þætti þrumaði Dav-
íð skammir yfir stofnuninni þar sem fram kom að
þar á bæ hefðu allir farið langt út fyrir sitt verksvið
með því að halda uppi og festa á blað almenna gild-
isdóma um efnahagsstjómunina í landinu. Skilaboð
forsætisráðherra voru því á þá leið að Þórður Frið-
jóns fengi ekki kaup fyrir að hafa pólitískar skoðan-
ir heldur fyrir að reikna út tölulegar upplýsingar.
Það eru aðrir sem fá kaup fyrir að hafa pólitískar
skoðanir. í öðrum þætti gerðist það að Davíð fór að
benda á hve vitlausar verðbólguspár Þjóðhagsstofn-
unar væru. Þá rifjaði hann einfaldlega upp fyrri
árekstra sína við Þórð og félaga og sagði svo einfald-
lega að þeir hefðu ekki reiknað rétt. Þannig var Þjóö-
hagsstoíhun ekki eingöngu komin út fyrir velsæmis-
mörk í gildisdómum, heldur kunni hún ekki heldur
að reikna rétt!
Lokaþátturinn
Staðan var því ekki glæsileg fyrir stofnunina eftir
tvo fyrstu þættina og ekki batnaði hún í þeim þriðja
og fjórða. í þriðja þætti útskýrði Davíð að gegnisóró-
leikinn og erfiðleikar krónunnar stöfuðu af
heimsendaspám Þjóðhagsstofnunar. Stofnunin var
þannig ekki eingöngu úr öllum velsæmistakti og
framkvæmdi gagnslausa útreikninga - hún var bein-
línis ógagnleg og skaðleg efnahagskerfinu! Fram-
haldiö sem kom í fjórða þætti var því fyrirsjáanlegt.
Davíð taldi eðlilegt að menn legðu Þjóðhagsstofnun
niður, enda væri ekkert á henni að græða sem ekki
væri hægt að fá annars staðar. Það er því ekki ótrú-
legt að fimmti þáttur þessa máls verði jafnframt
lokaþátturinn. Davíð er búinn að undirbyggja hann
vel. I þeim þætti mun Garri eins og þorri þjóðarinn-
ar sitja uppi í hinu mikla „Colosseum" íslenskra
stjórnmála og hvetja þennan upphálds stjómmála-
mann sinn, uppáhalds skilmingaþrælinn, til dáða.
Þumalfingur allra bendir niður! Pólitiskt náðarhögg-
iö ríður af - og Þjóðhagstofnun er sagnfræði. Það
veður enginn yfir Davið á skítugum skónum!
Garri
Hreindýr og
hjardmennska
Guftjón hringdi:
Hinn 21. þ.m.
er sagt frá því í
fréttum að tveir
sænskir Samar
séu komnir til
landsins til þess
að leiðbeina um
tamningu hrein-
dýra með hugs-
anlega hjarð-
mennsku í huga
ásamt afþrey-
ingu fyrir ferða-
menn. Ekki er
þetta í fyrsta skipti sem Samar koma
hér í þessum erindum. Árið 1948 kom
Sami frá Finnlandi á vegum stjórn-
valda til þess að leiðbeina íslenskum
bændum um hjarðmennsku. Þessi
maður var hér nokkuð lengi og var
gert vel við hann í mat og drykk. Ég
sá hann á Þingvöllum á því ári en þar
starfaði ég þá sem matreiðslunemi.
Stjórnvöld leiddu í alvöru hugann að
því að nytja hreindýrastofninn á öræf-
unum en ekkert varð úr þessu þá því
hálendið hafði ekki verið sigrað og
tæknin ekki á því stigi til ferðalaga
þar eins og í dag. Það er sennilega það
sem vantað hefir á til þess að þessi til-
raun skilaði árangri. Það verður því
fróðlegt að fylgjast meö framhaldi
þessarar tilraunar nú sem ekkert varð
úr 1948.
Styð
skólastjórann
Móðir hringdi:
Ég vil láta í ljós álit mitt á fréttinni
um skólastjórann sem var kærður fyr-
ir að víkja nemanda úr skóla sínum
vegna agabrota. Mér finnst það hreint
hneyksli ef það á að viðgangast að
skólastjórar eigi ekki að beita þeim
ráðum sem þeim eru í vald sett þegar
agavandamál kemur upp í skólanum.
Brottvikning er eitt þeirra ráða. Ég
held að flestir foreldrar muni styðja
þennan skólastjóra og óska eftir að
fleiri sýni áhuga á að koma í veg fyr-
ir agaleysi innan sinna stofnana.
Flugvallar-
kosningin
Sigurjón skrifar:
Það slær mann að lesa eftir einn
borgarflulltrúann okkar að lokinni
flugvallarkosningunni að atkvæði
þeirra Reykvíkinga verði ekki ómerkt
eftir á og eftir þeim beri að fara. Má
virkilega skilja borgarfulltrúann svo
að hann telji að 384 atkvæða meiri-
hluti eigi að duga til að koma flugvell-
inum burt? Hálft prósent kjósenda. Er
þetta hugmynd um hans um borgara-
lýðræði? Þetta er líka allt annað en
borgaryfirvöld, þ.m.t. viðkomandi
borgarfulltrúi, sögðu fyrir kosning-
una. Sagt var að minnst 75% kjósenda
þyrftu að mæta á kjörstað til að úrslit
yrðu bindandi. En aðeins 37% mættu
og atkvæði féllu nánast jafnt með og
móti flugvellinum.
Hreindýr á hálend-
inu
/ hjarömennsku- og
feröamannageirann?
Skýli fyrir
útigangsmenn
Birna Magnúsdóttir skrifar:
Ég las bréf í DV um „Vesalingana í
borginni". Þarna er tekið á þörfu máli
þvi það er brýn þörf að koma úti-
gangsmönnum í Reykjavík til aðstoð-
ar. Það gengur ekki lengur, og á þess-
um tímum á nýrri öld, að útigangs- og
drykkjusjúkir „skreyti" borgina með
þeim hætti sem enn er raunin og það
jafnt vetur sem sumar. Þessir menn
allir þurfa á aðhlynningu að halda,
jafnt og aðrir illa famir einstaklingar.
Þeir þurfa að eiga skýli þar sem þeim
er hlynnt og reynt að ná þeim upp úr
eymdinni.
B
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eöa sent tölvupóst á netfangiö:
gra@ff.is
Eða sent bréf til: Lesendasíða DV,
Þverhoiti 11, 105 ReyKjavík.
Lesendur eru hvattir til aö senda mynd
af sér til birtingar með bréfunum á
sama póstfang.