Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2001, Page 2
2
Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2001
I>V
Stjórnarfundur í VR í gærkvöld ræddi um deilur formanns og varaformanns:
Stuttar fréttir
Agreiningur í nefnd
- Pétur A. Maack fellur úr stjórn. Heldur áfram sem framkvæmdastjóri.
„Ég tel aö með stjómarfundinum
í gær hafi mál komist í þann far-
veg að hægt verði að leysa skoð-
anaágreining sem ríkt hefur milli
manna síðustu dagana. Ég vil ekki
tala um neinn trúnaðarbrest,"
sagði Pétur A. Maack, fram-
kvæmdastjóri og fyrrverandi vara-
formaður Verslunarmannafélags
Reykjavíkur, í samtali við DV í
morgun. Hann kvaðst vænta þess
að stjórnarfundur í félaginu í gær-
kvöld hefði komið málum í félag-
inu á hreint með þeim hætti að
mikilvægur trúnaður gæti áfram
ríkt milli VR-fólks.
Á stjómarfundinum í gærkvöld
var farið yfir þau mál sem deilt
hefur verið um innan VR síðustu
daga en þau lúta einkum að eigna-
umsýslu og ýmsum peningamál-
um. Pétur A. Maack var í framboði
til varaformanns og fékk eitt at-
kvæði, en Stefanía Magnúsdóttir,
sem var kandídat tillögu Magnúsar
L. Sveinssonar, fékk sjö atkvæði.
Sjö seðlar voru ýmist auðir eða
ógildir.
„Nei, þótt atkvæði hafi fallið á
þennan veg tel ég að félagið sé ekki
DV-MYNDIR HARI
Átakafundur
Á stjórnarfundi í VR í gær. Ákveðið
var þar aö vísa ágreiningsefnum for-
manns og varaformanns til nefndar
fimm stjórnarmanna sem mun at-
huga hvað er hæft í þeim.
klofið. Þegar ljóst var að Pétur yrði
ekki í endurkjöri kusu hinsvegar
sumir að halda sig til hlés og
þannig túlka ég þessi auðu at-
kvæði,“ sagði Magnús L. Sveins-
son. Hann sagðist ekki eiga von á
Pétur sjálfur
Pétur A. Maack var felldur úr stjórn
VR í gær en þar hefur hann gengt
embætti varaformanns um áralangt
skeið.
öðru en því að Pétur A. Maack
myndi áfram starfa hjá VR, en
mikilvægt væri þó í öllu falli að
trúnaður ríkti manna í millum.
„Menn verða einnig að gera sér
grein fyrir hvað er trúnaður og
hvað ekki,“ sagði Magnús.
Nefndin sú sem á stjórnarfund-
inum í gær var samþykkt að stofna
til og er ætlað að fara yfir ágrein-
ingsefni þeirra Péturs og Magnús-
ar verður skipuð flmm stjórnar-
mönnum í VR. Mun hún geta eftir
atkvikum geta kallað til liðveislu
ýmsa sérfróða menn, svo sem lög-
fræðinga, endurskoðendur og verk-
fræðinga svo eitthvað sé nefnt.
Verður nefndinni ætlað að skila af
sér hið allra fyrsta.
Pétur A. Maack var þegar DV
ræddi við hann í morgun á leið til
vinnu sinnar hjá VR. Þar hefur
hann starfað í nítján ár. „Ég tel
mikilvægt að við drögum réttan
lærdóm af þessum máli og ég
harma að það skyldi fara í fjölmiöl-
ana áður en menn höfðu gert út
um það sín í millum innan félags-
ins,“ sagði Pétur.
-sbs.
Gegn glæpastarfsemi
Halldór Ásgríms-
son utanríkisráð-
herra hvatti tii þess í
gær á utanríkisráð-
herrafundi Evrópu-
sambandsins og sam-
starfsríkja þess um
hina svokölluðu
Norðlægu vídd ESB
að aukin áhersla yrði lögð á að koma í
veg fyrir útbreiðslu smitsjúkdóma og
að baráttan gegn alþjóðlegri glæpa-
starfsemi yrði efld.
Hitaveita Hveragerðis til sölu
Bæjarstjórn Hvergerðis hefur
ákveðið að láta kanna með sölu á Hita-
veitu Hveragerðis. Þetta var samþykkt
á fundi bæjarstjómar í síðustu viku.
Fjöldarannsókn
Umfangsmesta fjöldarannsókn sem
gerð hefúr verið í heiminum á tengsl-
um efhisins melantóníns sem stjómar
syfju og skammdegsisþunglyndis hófst
á Vestfjörðum í gærmorgun. Sjötíu
manns taka þátt í rannsókninni sem er
gerð í samstarfi vestfirskra lækna og
Háskóla íslands.
Ólafur Már Jóhannesson, fyrrum framkvæmdastjóri og eigandi Þórscafés:
Fær bætur fyrir of
langt gæsluvarðhald
- byggt á sýknu hans í e-töflumáli - annar bótadómurinn í sama sakamáli
Sat í einangrun í 22 daga
Myndin er tekin þegar Óiafur Már losnaði úr gæsluvarðhaldi á Litla-Hrauni.
Hann hafði þá sætt einangrun, heimsókna- og símabanni, bréfaskoðun og
mátti ekki horfa eða hlusta á fjölmiðla.
Fallið frá kæru í fingurbrotsmálinu:
Dulbúin gæfa
- segir kennarinn í Húsaskóla sem er hættur
Ólafur Már Jóhannesson, fyrr-
um framkvæmdastjóri og eigandi
Þórscafés, hefur verið dæmd hálf
milljón króna í bætur fyrir að hafa
setið of lengi í gæsluvarðhaldi á
meðan lögreglurannsókn fór fram
á innflutningi á 969 e-töflum árið
1999. í upphæðinni felast 300 þús-
und krónur í miskabætur en 200
þúsund krónur fyrir vinnutap.
Upphæðirnar bera dráttarvexti frá
14. september síðastliðnum. Þar
sem um gjafsókn var að ræða er
ríkið jafnframt dæmt til aö greiða
lögmanni Ólafs Más 250 þúsund
krónur. Kostnaður ríkisins vegna
þessa nemur því hátt í einni millj-
ón króna.
Hér er um að ræða annan dóm-
inn í sama sakamáli þar sem bæt-
ur eru dæmdar fyrir of langt
gæsluvarðhald. Ingrid Juhala fékk
í vetur dæmdar 200 þúsund krón-
ur í bætur fyrir að hafa setið of
lengi inni á meðan lögreglan var
að rannsaka málið. Lögmanni
hennar voru dæmdar 300 þúsund
krónur.
Ólafur Már var úrskurðaður í
gæsluvarðhald frá 16. júlí til 28.
ágúst 1999. Lögreglan óskaði síðan
eftir framlengingu til 18. ágúst. Á
það féllst héraðsdómur en Hæsti-
réttur stytti tímann til 6. ágúst. Að
þeim tima liðnum var Ólafi Má
sleppt út af Litla-Hrauni, eftir 22
daga, þar sem hann sætti einangr-
un, heimsóknarbanni, bréfaskoðun,
símabanni og fiölmiðlabanni.
Hann stefndi ríkinu til greiðslu
samtals 7,9 milljóna króna vegna
miska og missi mannorðs, vinnu-
taps og taps á sölu helmings hluta
hans í hlutafélagi um Þórscafé sem
selt var undir markaðsverði eftir að
e-töflumálið komst í hámæli. Hol-
lensk stúlka, sem síðar var dæmd í
þriggja og hálfs árs fangelsi, bar
sakir á Ólaf Má en hann neitaði.
Fór svo í sakamálinu að hann var
sýknaður þó framburður hans hefði
Fallið hefur verið frá því að kæra
kennara níunda bekkjar í Húsa-
skóla í Grafarvogi sem nemandi
bar að hefði fmgurbrotið sig þegar
honum var vísað úr tíma. Valgerð-
ur Selma Guðnadóttir, skólastjóri í
Húsaskóla, segir að unnið verði að
því að leysa málið innan veggja
skólans:
„Við höfum náð ákveðnu sam-
komulagi við kennarann og hann
fer væntanlega í léyfi út árið,“ sagði
skólastjórinn í gær.
Sjálfur er kennarinn feginn að
Trinít . ..... ................................Á
'*» rjuLukoRtuni vUiiA (jnubundia it «»rfí (ItÍMKkrSa \
Lögreglurannsókn
vegna fingurbrots
u - ><* tMj||,|l|| t»MtMl«l«>>WWl>»é,«iWÍ» . ^
Frétt DV af fingurbrotsmálinu í Húsaskóla.
vera hættur að kenna níunda bekk í
Húsaskóla, énda hafi verið nær
ógerningur að hald þar uppi aga:
„Ég lít á það sem dulbúna gæfu
að losna og geta nú farið að sinna
öðrum hugðarefnum mínum í
verið talinn ótrúverðugur.
Samkvæmt lögum um meðferð
opinberra mála má taka til greina
kröfur um bætur ef sakborningur
hefur verið dæmdur sýkn með óá-
frýjuðum dómi vegna þess að sann-
anir hafi ekki fengist. Héraðsdómur
telur þannig vera háttað í þessu
skaðabótamáli enda var sakamálinu
ekki áfrýjað af hálfu ríkissaksókn-
ara. Dómurinn kemst að þeirri nið-
urstöðu að ekki hefðu verið efni til
að framlengja gæsluvarðhald Ólafs
Más þann 28. júlí. Hann hafi því í
raun ekki þurft að sitja frá þeim
tíma til 6. ágúst, í rúma viku enda
hafi lögreglan á þeim tíma i raun
ekkert aðhafst frekar i rannsókn
hvað varðar hans þátt. Fyrir þetta
eru bæturnar dæmdar.
Ólafur Már sagði í samtali við DV
að hann hygðist áfrýja niðurstöðu
héraðsdóms - hann teldi þá upphæð
sem honum hefði verið dæmd ekki
nægilega háa. -Ótt
friði,“ sagði kennarinn sem þver-
tekur fyrir að hafa fingurbrotið
nemandann heldur aðeins tekið í
hnakkadrambið á honum og visað
úr tíma.
Ástandið i Húsaskóla hefur, að
sögn nemenda, ekki verið til fyrir-
myndar í vetur og mikið um
óknytti og læti. Hafa kennslustofur
oftar en ekki líkst orrustuvöllum i
dagslok og framkoma nemenda við
kennara verið fyrir neðan allar hell-
ur. Vinnur skólastjórnin að því að
gera þar bragarbót á. -EIR
Thermoplus gjaldþrota
Um 50 manns missa vinnuna hjá
fyrirtækinu Thermoplus í Reykjanes-
bæ sem lýst var gjaldþrota í gær. Mikl-
ar væntingar voru gerðar til þessa fyr-
irtækis en fyrrum eigendur og stjóm-
endur fyrirtækisins bentu þó á það í
DV á síðasta ári að ekki væri þar allt
með felldu.
Fylgjandi þátttöku islands
Jacques Chirac, forseti Frakklands,
er fylgjandi þvi að Island taki þátt í
mótun vamarbandalags Evrópusam-
bandsins og fái sæti Öryggisráði Sam-
einuðu þjóðanna. Davíð Oddsson hitti
Frakklandsforseta í gær.
Sýni samningsvilja
Stúdentar við Háskóla Islands
hvetja ríkið og Félag háskólakennara
til þess að sýna samningsvilja í kjara-
deilunni. Af þeim sökum hafa stúdent-
ar hafið undirskriftasöfnun til þess að
mótmæla yfirvofandi verkfalli á mál-
efnalegan hátt. Vísir .is greindi frá.
Niöurfelling á verndartollum
Forystumenn Al-
þýðusambands ís-
lands funduðu með
Guðna Ágústssyni
landbúnaðarráð-
herra i dag og kröfð-
ust þeir þess að þeg-
ar verði tekin
ákvörðun um niður-
fellingu á verndartollum vegna inn-
flutnings á grænmeti.
Páll Bragi til Genealogla
Páll Bragi Kristjónsson útgefandi
hefúr verið ráðinn framkvæmdastjóri
útgáfufyrirtækisins Genealogia Island-
orum. Stefnt er að því að fyrirtækin
Nýja bókafélagið og Þjóðsaga, sem Páll
hefur stýrt um árabil, verði undir
sama hatti og Genealogia Islandorum.
Gæðaverðlaun í feröaþjónustu
Gæðaverðlaun Ferðaskrifstofu ís-
lands vom veitt í fyrsta skipti í dag og
er valið byggt á gæðakönnun sem unn-
in var í samstarfi við Gallup. Hótel
Framtíð á Djúpavogi og Hótel Flúðir
unnu gæðaverðlaun í flokki hótela- og
gististaða.
Forsætisráðherra hafi milljón
Pétur H. Blöndal,
þingmaður Sjálfstæð-
isflokks, hefur lagt
fram frumvarp á Al-
þingi um breytingu á
lögum um þingfarar-
kaup. Samkvæmt
frumvarpinu munu
laun þingmanna
hækka um 49% og verða 450 þúsund
krónur á mánuði. -HKr.