Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2001, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2001, Síða 7
ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2001 I>V 7 Fréttir Skíða- og snjóbrettaslys aleng á slysadeild fyrstu fjóra mánuði ársins: 730 skíða- og brettaslys - hlutfall innlagðra á sjúkrahús haerra en í öðrum íþróttum Alls leituöu 726 slasaðir eftir skíða- eða snjóbrettaslys á bráða- móttöku á síðustu þremur árum, helmingurinn á aldrinum 10-19 ára (nær 1% þeirra aldursárganga í landinu). Alls þurftu 55 að leggj- ast á sjúkrahús. Skíða- og snjó- brettaslys eru algeng ástæða fyrir komu á slysa- og bráðamóttöku Landspítala í Fossvogi fyrstu fióra mánuði hvers árs. Hlutfall þeirra sem lagðir eru inn á sjúkrahús af þeim sökum er hærra en vegna slysa í flestum öðrum íþrótta- greinum frá ársbyrjun 1998 til árs- loka 2000. Framangreint kom í ljós í rann- sókn lækna á slysa- og bráðamót- töku sem sagt er frá i Læknablað- inu (4/2001). Markmiðið rann- sóknarinnar sögðu þeir að athuga fjölda og tegund slysa og gerð áverka hjá þeim sem komu á slysadeild eftir skíða- eða brettaslys. Nær 30% slysanna urðu í apríl. Skíðamenn voru 2/3 slasaðra. Um 60% slasaðra voru karlar. Flestir slasast þegar þeir detta en aðeins lítiil hluti í árekstri við aðra. Um 60% hlutu brot, mar og tognanir á hendi, handlegg og öxl. Áverki á greindist 68 sinnum. höfði -hei Hættuleg íþrótt Margir slasast á skíðum og brettum og eins gott að fara varlega. IPHHH MHBH \ WARN / Vaskir sveinar Þessi öflugi hðpur, starfsmenn JÁ- verktaka, hefur drífið upp hús Húsa- smiðjunnar á Selfossi á skömmum tíma. Þeir byrjuðu fyrir þrem mánuð- um, búðirnar verða opnaðar í vor. Selfoss; Hraðar hendur við stórhýsi - Húsasmiðjan þaut upp DV, SELFOSSI:_____ Starfsmenn Húsasmiðjunnar og JÁ-verktaka á Selfossi fögnuðu því á dögunum að 4.400 fermetra bygging Húsasmiðjunnar á Sel- fossi er orðin fokheld. Hendur hafa verið látnar standa fram úr ermum við byggingu hússins, því aðeins þrir mánuðir eru síðan haf- ist var handa við bygginguna. Stefnt er að því að opna verslun Húsasiniðjunnar og Blómavals í nýbyggingunni 12. maí í vor. Ný- byggingin er sunnlensk í húð og hár, verktakinn er frá Selfossi og byggingarefnið kemur að mestu frá Límtré á Flúðum og eininga- verksmiðju Límtrés í Reykholti í Biskupstungum. Steinar Árnason, framkvæmda- stjóri Húsasmiðjunnar á Selfossi, sagði að með nýja húsinu yrði stórbreyting á allri aðstöðu, húsa- kynni yrðu rýmri og fjölbreyttara vöruval með tilkomu Blómavals- verslunarinnar. Steinar sagði að viðskiptahópur Húsasmiðjunnar á Selfossi væri fjölbreyttur, og nú á seinni árum væru sumarbústaða- byggjendur og eigendur sumarbú- staða á Suðurlandi farnir að verða stór viðskiptahópur Húsasmiðj- unnar. „Maður er hættur að mæta mönnum með kerrur fullar af timbri á Hellisheiðinni," sagði Steinar. Um 40 starfsmenn JÁ- verktaka hafa unnið við bygging- una það sem af er, en Jón Ámi Vignisson býst við að heldur fjölgi í hópnum við lokafráganginn. -NH JEPPAMENN! Dráttarspil og fylgihlutir Sérverslun jeppamannsins Kringlunni og Vagnhöföa 23 • Sími 590 2000 - www.benni.is - Háhraðaspil 9.500 Ibs. (4.310 kg) Hágæðakastarar og þokuljós í mörgum gerðum -------------- IJrval - gott í hægindastólinn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.