Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2001, Síða 12
12
Útlönd
ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2001
DV
Aftur yfir hafiö
Baráttan um Belindu og Kimberley
heldur áfram í Bandaríkjunum.
Nettvíburarnir
verða sendir til
Bandaríkjanna
Tvíburasysturnar Belinda og
Kimberley, sem ættleiddar voru
tvisvar á Netinu, mega ekki vera
um kyrrt í Englandi samkvæmt úr-
skurði áfrýjunardómstóls í gær.
Kilshawhjónin frá Wales, sem borg-
uðu um 1 milljón króna fyrir böm-
in, fá því ekki litlu stúlkurnar aftur
til sín. Félagsmálayfirvöld tóku
stúlkurnar í sina vörslu á meðan
málið var í réttarkerfinu. Bandarísk
hjón, Vickie og Richard Allen, sem
áður höfðu keypt bömin fyrir helm-
ingi lægri upphæð, útiloka ekki að
reyna að ættleiða þau. Richard bíð-
ur nú málaferla vegna ákæru um
kynferðislega áreitni gegn tveimur
barnapíum sínum. Hann kveðst sak-
laus. I febrúar síðastliðnum var föð-
ur tvíburanna veitt forræðið yfir
þeim. Móðir þeirra, sem seldi litlu
stúlkumar tvisvar, vill nú fá for-
ræði yfir þeim. Fyrst um sinn verða
tvíburarnir í gæslu félagsmálayfir-
valda í Missouri.
Börn með háar
einkunnir fá
hærri bætur
Börn vel menntaðra foreldra í
Svíþjóð fá hærri bætur vegna veik-
inda og slysa, einkum ef þau eru
hrifin af tölvum, eru með háar ein-
kunnir og eiga systkini sem gengið
hafa menntaveginn. Börn, sem eru
með skólaleiða og eiga foreldra sem
eru með stutta skólagöngu, eiga von
á lægri bótum þótt þau sé með sams
konar tryggingu. Tryggingafélögin
hafa til hliðsjónar mat umferðar-
slysanefndar. Talsmaður nefndar-
innar segir í viðtali að gengið sé út
frá því að barn með háar einkunnir
í öllum námsgreinum muni ekki
sætta sig við að standa á verkstæð-
isgólíi alla ævi.
Cllnton á Indlandi
Bill Clinton, fyrrum Bandaríkjafor-
seti, hefur veriö á Indlandi undan-
farna daga og komst á fílsbak.
Clinton brá sér á
fílsbak á Indlandi
Bill Clinton, fyrrum Bandaríkja-
forseti, brá sér á fllsbak i fornri höll
í norðanverðu Indlandi í gær og
efndi þar með loforð sem hann gaf
sjálfum sér í heimsókn sinni til
landsins í fyrra. Þá var ekki hægt
að koma fílaútreiðartúr við.
Clinton ljómaði af gleði þegar
hann klöngraðist upp tréstiga til að
komast upp á bak filsins. Ekki var
útreiðartúrinn þó langur, stóð að-
eins yfir í þrjár mínútur. En „frá-
bært“ engu að síður.
Síamstvíburar aðskildir
Læknar í Singapore luku í morg-
un við að aðskilja síamstvíbura frá
Nepal sem voru samvaxnir á höfði.
Aðgerðin hófst síðastliðinn fóstu-
dag. Við aðgerðina, sem um 20
læknar tóku þátt í, var notuð þrí-
viddartölvumynd af heilum Og
æðum tvíburanna.
Kínverskur orrustuflugmaður:
Vildi fá að granda
njósnaflugvélinni
Alan Garcia kom á óvart í forsetakosningunum í Perú:
Segist munu sigra Toh
edo í síðari umferðinni
Oheppileg ákvörðun
Kofi Annan,
framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóð-
anna, sagði í gær
ákvörðun Banda-
ríkjanna um að
staðfesta ekki
Kyoto-sáttmálann
um takmörkun á
losun gróðurhúsalofttegunda
óheppilega. Kvaðst Annan vona að
Bandaríkin skiptu um skoðun.
Afganir lifa á dýrafóðri
Gríðarlegur matvælaskortur er i
Afganistan og hafa hungraðir íbúar
lagt sér til munns dýrafóður og eitr-
aðar jurtir. Dæmi eru um að fólk
hafi lamast eftir að hafa borðað jurt-
irnar.
Létust í snjóflóði
Tveir finnskir Qallgöngumenn
létust og þrir slösuðust i snjóflóði í
norðurhluta Noregs í gær.
Flugskeytaárás
Palestínska lögreglan sagði í
morgun að Israelar hefðu gert flug-
skeytaárás á lögreglustöð á Gaza-
svæðinu í morgun. Fyrr í morgun
fullyrti ísraelski herinn að Palest-
ínumenn hefðu varpað sprengjum á
gyðingabyggð á Gazasvæðinu.
Sprengjuárás í Róm
Sprengja sprakk í miðborg Róm í
morgun við hús þar sem er skrif-
stofa sambands milli Ítalíu og
Bandaríkjanna.
Baráttan opinber
Baráttan um eftirmann forsætis-
ráðherra Japans,
Yoshiro Moris,
varð í morgun opin-
ber þegar Shizuka
Kamei lýsti yfir
framboði sínu til
embættis formanns
Frjálslynda lýðræð-
isflokksins. Víst
þykir að sá sem kjörinn verður for-
maður verði næsti forsætisráðherra
Japans. Keppinautar Kameis verða
að öllum líkindum Ryutaro Has-
himoti og Junichiro Koizumi.
Skotárás í skóla
Ástralskur piltur skipulagði
skotárás í skóla sínum, að því er yf-
irvöld greindu frá í morgun. Dag-
bók piltsins með nöfnum nemenda
og kennara á dauðalista fannst i sið-
ustu viku.
Bjórdrykkja með Pútín
Vladimir Pútín Rússlandsforseti
og Gerhard
Schröder Þýska-
landskanslari
drukku í gær bjór
saman og ræddust
við á þýsku í St.
Pétursborg í gær
áður en alvarlegri
umræður þeirra
um varnarmál og skuldir Rússlands
hófust.
Kínverskur orrustuflugmaður
bað um leyfi til að skjóta niður
bandaríska njósnaflugvél eftir að
hann hafði orðið vitni að því þegar
félagi hans lenti í árekstri við
bandarísku vélina fyrir tíu dögum.
Dagblaðið South China Morning
Post í Hong Kong hafði eftir heimild-
armönnum sínum í gær að flugmað-
urinn hefði ekki fengið umbeðið
leyfi. Þess í stað hefði hann fengið
skipun um að þvinga flugvélina, sem
var á leið burt frá Kína, til að lenda.
Kínverska orrustuþotan fórst við
áreksturinn við bandarísku flugvél-
ina og flugmaðurinn hefur ekki
fundist enn.
Tuttugu og ijögurra manna áhöfn
bandarísku njósnaflugvélarinnar
hefur nú verið tíu daga í haldi kín-
verskra yfirvalda á Hainan-eyju.
Hún er við góða heilsu og andinn
góður þrátt fyrir vísbendingar um
að deilan um lausn hennar ætli að
dragast á langinn.
Vistarverur áhafnarinnar
Kínverskur maöur hjólar fram hjá
gestahúsi kínverska hersins þar
sem tuttugu og fjögurra manna
áhöfn bandarísku njósnavélarinnar
heldur til á meöan leiðtogar land-
anna reyna aö finna lausn á deilunni
um örlög hennar.
„Diplómatían tekur sinn tíma,“
sagði George W. Bush Bandaríkja-
forseti við upphaf ríkisstjórnarfund-
ar vestra í gær.
Ekki var að sjá í morgun að mið-
að hefði í samkomulagsátt um lausn
áhafnarinnar. Stjórnvöld í Wash-
ington halda enn fast í þá afstöðu
sína að biðjast ekki afsökunar á
árekstrinum, eins og Kínverjar hafa
ítrekað krafist.
Bandaríski varnarmálafulltrúinn
Neal Sealock lét að því liggja í
morgun að áhöfn njósnavélarinnar
væri búin að sætta sig við að vera í
haldi Kinverja þar til lausn fyndist
á deilunni.
Fulltrúar bandarískra stjórn-
valda fengu að hitta áhöfnina í
fjórða sinn í gærkvöld. Allir úr
áhöfninni voru á fundinum, en ekki
bara átta manns eins og áður, að
kröfu Kínverja. Þá lögðu kínverskir
embættismenn ekki línurnar fyrir
fundinn í gærkvöld.
Vinstrisinninn Alan Garcia, fyrr-
um forseti Perús, sem kom öllum á
óvart með því að fá næstflest at-
kvæði í forsetakosningunum á
sunnudag, hélt því fram í gær að
hann myndi fara með sigur af hólmi
í síðari umferðinni. Þar mætir hann
miðjumanninum Alejandro Toledo,
sem fékk flest atkvæði á sunnudag
og þykir sigurstranglegastur.
Toledo fékk flest atkvæði, eins og
búist var við, en var þó langt frá því
að fá þau 50 prósent atkvæða sem
hann þurfti til að tryggja sér for-
setaembættið.
Yfirkjörstjóm í Perú sagði að þeg-
ar búið var að telja 73 prósent at-
kvæða hefði Toledo, sem er af
indíánaættum og er talsmaður frjáls
markaðshagkerfis, verið kominn
Alan Garcia
Fyrrum forseti Perús er nokkuö viss
um aö hann fái tækifæri til aö setj-
ast aftur á forsetastólinn í Lima.
með 36,48 prósent. Alan Garica
hafði þá fengið 26,11 prósent at-
kvæða og þriðji frambjóðandinn,
fyrrum þingkonan Lourdes Flores,
rak lestina með 23,69 prósent at-
kvæða.
Síðari umferð forsetakosning-
anna verður í maí eða júní. Alan
Garcia, sem var forseti Perús á ár-
unum 1985 til 1990, mun nýta tím-
ann til að reyna að sannfæra kjós-
endur um að hann hafi lært af mis-
tökunum sem hann gerði á forseta-
stóli á sínum tima. Forsetatíð hans
einkenndist af óðaverðbólgu, efna-
hagskreppu og ofbeldisverkum upp-
reisnarmanna.
„Ég held að ég muni smám saman
öðlast trúverðugleika á ný,“ sagði
Garcia við fréttamenn í gær.
Krans til heiöurs látnum
Hermenn úr víetnömskum heiöursverði bera blómakrans til heiöurs einum félaga þeirra úr víetnamska hernum sem
fórst í þyrluslysi um helgina. Níu Víetnamar og sjö Bandaríkjamenn týndu lífi í slysinu sem varö þegar þeir voru á leiö
í leit aö líkamsleifum bandarískra hermanna sem hafa veriö týndir frá því í Víetnamstríöinu.