Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2001, Side 23

Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2001, Side 23
ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2001 UæB'BMBBB# ■ Wil tölvu-i t*kni og visinda Styrkur veittur úr Ballantine’s sjóðnum: Efnafræðikennsluforrit fyrir framhaldsskóla Lotukerfið er torrætt, jafnve! þeim sem * lærðu um það í menntaskóla. Þá ekki síður efnajöfnur, for* múlur og rafeindaskip- an. í forritl Brynjólfs og Sigurðar eru þessí gömlu sannindl færð í nýjan búning, gerð - fékk styrkinn að þessu sinni Brynjólfur Bjarnason kerf- isfræðingur og Sigurður Frið- leifsson, líffræð- ingur og kenn- ari, hlutu fyrir stuttu 400.000 króna styrk úr Ball- antine’s-sjóðnum fyrir tölvuforrit sem ætlað er til kennslu í efnafræði í framhaldsskólum. Ballentine’s-sjóðurinn er alþjóð- legur sjóður með það að markmiði að styðja ungt fólk um heim allan í að þróa viðskiptahugmyndir sínar og gera þær að veruleika. í fréttatilkynningu segir að verk- efni Brynjólfs og Sigurðar hafi ver- ið valið úr 122 umsóknum sem sjóðnum hér á landi bárust. Þar er einnig haft eftir Brynjólfi að styrk- Forritið sem Brynjólfur og Sigurður hönnuðu tekur á fjór- um grunnþáttum efnafræðinnar, lotukerfinu, rafeinda- skipan atóma, formúlum og efnajöfnum. Efnafræðiforritið er einfalt i notkun og geta þeir nemendur sem fijótiri eru að ná námsefni fært sig í erfiðari dæmi í stað þess aö sitja auöum höndum á meðan eitthvað sem þeir skitja er útskýrt fyr- ir öðrum. urmn muni verða nýttur til áframhaldandi vinnu við þróun forritsins og til uppsetningar á vefsíðu. Vefsíðan er nú þegar kom- in upp og geta þeir sem hafa áhuga stimplað inn slóðina www.prim.is/binni/efna- fraedi/default.html þar sem upp- lýsingar um forritið er að finna. Forritið kynnt öllum framhaldsskólum Sigurður fékk hugmyndina að forritinu við kennslu í MH. Hann sá að sniðugt gæti verið að færa hluta kennsluefnisins í efnafræði i tölvu- forrit. Það er mat Brynjólfs að krakkar vilji nota tölvur við námið og góður tölvukostur sé nú þegar til í framhaldsskólum landsins. Því þótti þeim Sigurði og Brynjólfi til- valið að þróa forrit sem hjálpar krökkum við efnafræðinám. Forritið hefur verið prófað á nem- endum í Menntaskólanum við Sund og auk þess segir Brynjólfur að þeir hafi leitað víða álits og ráðgjafar hjá nemendum og kennurum. Markaðs- setningu og kynningu á forritinu verður þannig háttað að haft verður samband við alla framhaldsskóla í landinu og forritið kynnt. Auk þess munu upplýsingar um það verða settar inn á væntanlega vefsíðu Gömul sannindi í nýjum búningi Lotukerfið er torrætt, jafnvel þeim sem lærðu um það í mennta- skóla. Þá ekki síður efnajöfnur, for- múlur og rafeindaskipan. í forriti Brynjólfs og Sigurðar eru þessi gömlu sannindi færð í nýjan bún- ing, gerð auðskiljanleg og aðgengi- leg. Nemendur fá jafnframt að spreyta sig á æfingadæmum og próf- um. Prófin er hægt að prenta út og afhenda kennaranum. Hann getur á útprentinu séð hvar nemandi stend- ur í náminu þar sem hinir fjóru of- antöldu liðir eru sundurliðaðir og þar með sést hvar staðan er góð og hvar má bæta. Lítið vandamál mun vera að bæta við fleiri þáttum en þeim sem áður hafa verið upptaldir. Kostir kennsluforrita eru augljós- ir. Þar er öllum nemendum gert jafnhátt undir höfði, hver nemandi vinnur á sínum hraða og nemendur eru fljótir að fá svörun. Miklu skipt- ir að þau séu einföld i notkun en að sama skapi fjölbreytileg því nem- endur verða fljótt leiðir á einhæfu kennsluefni. Þá þarf það að henta við ólíkar aðstæður en skólar eru misvel tækjum búnir til tölvu- kennslu. Nýherji og Kennaraháskólinn gera samstarfssamning: Kynslóðaskipting í tölvuvæðingu skólans - með fartölvuvæðingu og uppsetningu þráðlauss netkerfis Ólafur Proppé, rektor Kennaraháskóia íslands, og Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja, handsala samninginn í seinustu viku. í seinustu viku skrifuðu Ólafur Proppé, rektor Kennaraháskóla íslands, og Þórð- ur Sverrisson, forstjóri Ný- herja hf., samstarfssamning sem kveður á um að Nýherji skuldbind- ur sig til að fartölvuvæða skólann. Þar er átt við að Nýherji mun leigja Kennaraháskólanum IBM- fartölvur sem aftur leigir þær til nemenda. í þessari leigu er innfalið netkort sem gefur nemendum kost á að tengjast bæði Netinu, sem og innra neti skólans. Nýherji mun einnig sjá um uppsetningu senda um skólann fyrir innra netið. Áætl- Upp á framtíðina að gera telur Óttar að far- tölvuvæðingln nú sé aðeins fyrsta skreflð í breyttum kennsluhátt- um þar sem hann sér fyrir sér að fjarkennsla og staðkennsla eigi eftír að renna saman með breyttum kennsluháttum og breyttrí nýtingu skóla- húsnmðis. að er að allir nemendur, sem og kennarar, verði orðnir tengdir inn- an fjögurra ára. Breyttir kennsluhættir Óttar er spenntur fyrir þessum samningi. Hann segir hér sé í raun um kynslóðaskipti i netvæðingu skólans að ræða. „Fartölvurnar eru í raun að taka við af hinum hefð- bundnu tölvuverum.” Óttar sér far- tölvuvæðinguna líka sem næsta skref í þróun kennslu við skólann sem stendur nú fremst meðal há- skóla hér á landi í íjarkennslu. Hann segir að nú þegar séu um 40% þeirra 1500 nemenda sem skól- ann stunda í fjarnámi og það hlut- fall eigi eftir að aukast upp í 50% næsta haust. Upp á framtíðina að gera telur Óttar að fartölvuvæðing- in nú sé aðeins fyrsta skrefið í breyttum kennsluháttum þar sem hann sér fyrir sér að fjarkennsla og staðkennsla eigi eftir að renna saman með breyttum kennsluhátt- um og breyttri nýtingu skólahús- næðis. Eins og komið hefur fram í um- ræðunni um nýtingu fartölva við kennslu er enn verið að læra inn á hvernig nýta megi sem best þessa tækni. Óttar bendir á að nú sé far- ið að bjóða upp á meistara- og dokt- orsgráðunám við skólann og að far- tölvuvæðingin muni sérstaklega nýtast þar. Hann sér t.d. fyrir sér að þar verði unnin rannsóknar- verkefni um hvernig nota megi far- tölvur á sem bestan hátt við kennslu. Ávinningur fyrir samfélagiö Nýherji hf. er nú þegar í sam- starfi við nokkra framhaldskóla á landinu með svipuð verkefni. „Við hjá Nýherja höfum mikinn áhuga á að vinna með skólunum á þessu sviði,“ segir Þórður. Hann segir helstu ástæðuna vera þá að flýta fyrir þróuninni í fartölvuvæðing- unni hér á landi. Þórður heldur C áfram og segir að ávinningurinn af verkefnum sem þessum sé mikill bæði fyrir skólana, Nýherja og ekki hvað síst samfélagið í heild. Þórður telur samninginn við Kennaraháskólann sérstaklega mikilvægan: „Það að Kennarahá- skólinn sé leiðandi á þessu sviði kemur til með skila sér í hraðari 'T' þróun niður I grunn- og framhalds- skóla.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.