Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2001, Page 32
CORSAj
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2001
Eiturlyf j asmygl:
3 milljónir áttu
að verða 40
Þrír menn sitja nú í gæsluvarð-
haldi eftir misheppnaða tilraun tii að
smygla 8 kilóum af hassi og 7 þúsund
e-töflum til landsins. Efnin keyptu
þeir 1 Amsterdam fyrir þrjár milljónir
króna og hefðu getað selt þau á götu í
Reykjavík fyrir 40 milljónir króna.
Þar af hefðu milliliðir og smásalar
tekið um helming ágóðans en höfuð-
pauramir setið eftir með um 20 millj-
ónir. Tveir mannanna eru á fertugs-
aldri en sá þriðji um fimmtugt.
Talið er líklegt
að gjaldeyriseftir-
lit bankanna hafi
fellt mennina en
öll kaup á erlend-
um gjaldeyri yflr
ákveðinni upp-
hæð eru tilkynnt
lögregluyfirvöldum. Eftirleikurinn
felst því i því að fylgjast með þeim
mönnum sem gjaldeyrisviðskiptin
áttu: „Það skiptir engin fleiri milljón-
um án þess að vera með her manns i
verkinu," sagði heimildarmaður DV í
undirheimum Reykjavíkur og bætti
því við að stórar úttektir á gullkort-
um væru auðraktar.
Amsterdam
- 3 milljónir.
Eitt kíló af
hassi kostar um
200 þúsund krón-
ur hjá heildsala i
Amsterdam. Það
selst hins vegar
á 2 milljónir i
smásölu í
Reykjavík þannig að ágóðavonin er
tífóld. Gróðinn er enn meiri í við-
skiptum með e-töflur því ytra kost-
ar stykkið um 200 krónur en er selt
hér heima á 3.500 krónur. Mennirn-
ir sem nú sitja í gæslu hafa því
keypt e-töflurnar sjö þúsund fyrir
1,4 milljónir króna en hefðu getað
selt þær fyrir rúmar 24 milljónir.
Gróðinn af hassviðskiptunum hefði
orðið 14,4 milljónir en e-töflusalan
gefið um 23 milljónir í aðra hönd.
Reykjavík
- 40 milljónir.
-EIR
brother P-touch 9200PC
Prentaðu merkimiða beint úr tölvunni
Samhæft Windows
95, 98 og NT 4.0
360 dpi prentun
1 til 27 mm letur
Strikamerki
Rafport
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport
Allt fast
Hvergi sér til lands í dellu útgeröarmanna og sjómanna. Hér má sjá Grétar Mar Jónsson, forseta Farmannasam-
bandsins, og aöra fulltrúa sjómanna þar sem þeir drápu tímann í Karphúsinu í gær.
Netarallið í
uppnámi
Sjómannasamband íslands mun að
óbreyttu ástandi ekki gefa leyfi sitt
fyrir því að „netaralli" Hafrannsókn-
arstofnunar verði framhaldið, en net-
arallið var komið mjög vel á veg þeg-
ar Sjómannasambandið og Landssam-
band íslenskra útvegsmanna stöðv-
uðu það fyrir helgi. Útlit er því fyrir
að vísndarannsóknin sé í uppnámi.
Eins og DV greindi frá í gær er
ástæðan sú að sjávarútvegsráðherra
hætti við að setja á hið árvissa hrygn-
ingarstopp en það þýðir að sá hluti
bátaflotans sem ekki er stopp vegna
verkfalls getur veitt þorsk á hrygning-
artíma hans. -gk
Baldur Árni
laus úr ísnum
Togarinn Baldur Árni RE 102 losn-
aði úr 6 daga prísund í hafísnum und-
an strönd Kanada og kom til hafnar í
St. Johns í nótt. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Kanada í morgun losnaði
Baldur Árni um miðnæturbil miðað
við íslenskan tíma og kom til hafnar
4-5 klukkustundum siðar. Um borð
voru þá aðeins skipstjóri, vélstjóri og
bryti. Tólf aðrir úr áhöfninni voru
þegar komnir i land og voru væntan-
legir til íslands í nótt. -Ótt
Ingibjörg Pálmadóttir hyggst draga sig í hlé og hætta í ríkisstjórninni:
Ráðherraskipti um helgi
- Jón Kristjánsson sagður fara í ríkisstjórn og ísólfur Gylfi taki við fjárlaganefnd
Stefnt er að því að ráðherraskipti
verði í ríkisstjórninni á ríkisráðs-
fundi á laugardag. Ingibjörg Pálma-
dóttir mun þá draga sig í hlé að eig-
in ósk en búist er við að Jón Krist-
jánsson, formaður fjárlaganefndar,
taki við heilbrigðisráðuneytinu. „Er
ekki sól fyrir norðan," sagði Guðni
Ágústsson, varaformaður Fram-
sóknarflokksins, þegar hann var
spurður um málið í morgun og
varðist allra frétta.
Um nokkurt skeið hefur verið
uppi orðrómur um að Ingibjörg vilji
draga sig út úr ríkisstjórninni, en
sem kunnugt er varð hún fyrir
heilsufarslegu áfalli fyrr í vetur. Að-
dragandi þeirra ráðherraskipta sem
fyrirhuguð eru á laugardag hefur
hins vegar farið mjög hljótt og hefur
einvörðungu verið á vitorði örfárra
manna í forustu Framsóknarflokks-
ins. Þó er tæplega hægt að segja að
þau komi á óvart.
Ekki er þó sjálfgefið að Jón Krist-
jánsson verði arftaki Ingibjargar i
ráðherrastóli enda eru margir í
þingflokki Framsóknar kallaöir. í
þeim efnum má nefna Kristin H.
Gunnarsson þingflokksformann
sem er þingmaður í ráðherralausu
kjördæmi, Hjálmar Ámason sem er
sá þingmaður óbreyttur sem hefur
flest atkvæði á bak við sig, Ólafur
Öm Haraldsson sem er fyrsti þing-
maður í Reykjavík sem er ráðherra-
laust kjördæmi og Jónína Bjartmarz
sem fékk mjög góðan stuðning í
varaformannsembætti á flokksþingi
fyrir nokkrum vikum. Af samtölum
DV við fjölmarga þingmenn Fram-
sóknarflokksins að dæma er ljóst að
sátt gæti myndast um Jón Kristjáns-
son sem hefur verið lengi i fremstu
röð og nýtur „gíf-
urlegrar virðing-
ar“ , eins og fleiri
en einn þingmaður
orðaði það. Ekki er
líklegt að sátt gæti
náðst um annan
frambjóðanda. Þá
er bent á langt og
farsælt samstarf
Jóns Kristjánsson-
ar og Halldórs Ás-
grimssonar sem myndi verða til
þess að Halldór fengi áframhaldandi
stuðning inni í ríkisstjórninni en
Ingibjörg Pálmadóttir hefur verið
dyggur stuðningsmaður Halldórs.
Þetta atriði er hins vegar talið
vinna gegn manni eins og Kristni H.
sem hefur nokkuð farið sínar eigin
leiðir, t.d. í sjávarútvegs- og byggða-
málum.
Ríkisráðsfundur hefur verið boð-
aður á laugardag, en þetta er mjög
óvenjuleg tímasetning ríkisráðs-
fundar, mitt í páskafríi þingmanna.
Búist er við að þingflokkur fram-
sóknarmanna muni koma saman nú
Jón ráöherra
Allar líkur eru á því aö Jón
Kristjánsson alþingismaöur taki viö
ráöherradómi á næstunni.
í vikunni til að ganga frá þessum
málum, en við það að Jón Kristjáns-
son yrði ráðherra losnaði stóll for-
manns fjárlaganefndar. Heimilda-
menn DV segja líklegt að ísólfur
Gylfi Pálmason, sem nú er í nefnd-
inni, verði gerður að formanni fjár-
laganefndar en Magnús Stefánsson,
sem kemur inn i stað Ingibjargar,
taki þar sæti líka.
Ekki náðist í Ingibjörgu Pálma-
dóttur eða Halldór Ásgrímsson
vegna vinnslu þessarar fréttar. -BG
Sjónvarpið stöðvar auglýsingu Íslandssíma:
Bönnuð á skjánum fýrir 9 á
- ofbeidistaktar, segir markaðsstjóri RÚV
Auglýsingadeild Sjónvarpsins
hefur tekið fyrir birtingar á tiltek-
inni auglýsingu frá Íslandssíma
vegna nýrrar farsímaþjónustu fyr-
irtækisins. „Auglýsingin einkenn-
ist af hröðum klippingum, hálf-
nöktu fólki, hrindingum og er einn
allsherjar hrærigrautur. Þarna eru
ýmsir ofbeldistaktar sem ekki er
gott að böm sjái,“ sagði Þorsteinn
Þorsteinsson, forstöðumaður
markaðsdeOdar Ríkisútvarpsins, í
samtali við DV. Samkvæmt vinnu-
reglum á RÚV, sem útvarpsráð
setti fyrir um tveimur árum, verð-
ur hins vegar leyft að sýna auglýs-
inguna eftir klukkan níu á kvöld-
in.
„Þessi afstaða RÚV kemur mér
að sumu leyti á óvart en í þessari
auglýsingu erum við þó fyrst og
fremst að endurspegla veruleika
heimsins eins og hann er,“ sagði
Magnús Árnason hjá Íslandssíma.
Umræddar farsímaauglýsingar,
sem einkum eiga að höföa tO ungs
fólks, eru unnar af auglýsingastof-
unni DBT og þar á bæ hafa menn
síðustu sólarhringa unnið við að
klippa út einstök atriði og hófstOla
auglýsinguna þannig að hún fái
náð RÚV-manna og geti birst á
þeim tíma þegar litlu bömin í
landinu eru enn á fótum. Hin aug-
lýsingin, sem fæst ekki birt fyrir
klukkan níu, verður nú tekin tO
endurskoðunar hjá fyrirtækinu en
þó væntanlega birt fyrr en síðar.
Þorsteinn Þorsteinsson hjá RÚV
segist um margt vera sammála
þeim birtingarreglum stofnunar-
innar, með tiOiti tO ofheldis og al-
kvöldin
menns siðgæðis, sem útvarpsráð
setti á sinni tíð. Hins vegar sé ætið
matsatriði hvað sé ofbeldi.
„Sumir mega tO dæmis ekki sjá
byssu, þá er það ofbeldi, enda þótt
ekki sé sýnt í myndinni að skotið
sé úr henni. Einnig kunna tíma-
mörkin i þessu sambandi að vera
afstæð. Við göngum út frá því að
hafa þær sem lengst frá barnaefn-
inu og höfum þá miðað við klukk-
an níu á kvöldin - þótt fjöldi bama
sé auðvitað að horfa á sjónvarp
langt fram eftir öOu kvöldi." -sbs.