Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2001, Qupperneq 24
36
MIÐVIKUDAGUR 2. MAÍ 2001
Tilvera I>V
Bíógagnrýni
Ljósmyndir í
Kringlunni
Sýning á verðlaunamyndum úr
samkeppninni World Press
Photo 2001 verður opnuð í dag í
Kringlunni. Þar eru 207 myndir
og um hverja mynd er fróðlegur
texti um myndefnið á íslensku.
Sýningin stendur til 14. maí á
opnunartímum Kringlunnar.
Klassík
■ PERÍ.UR TONBOkMENNTANNÁ i
YMI I kvöld munu Rannveig Fríöa
Bragadóttir (mezzosópran), Gerrit
Schuil (píanó) og Guðný Guömunds-
dóttir (víóla) hajda tónleika í Tónlist-
arhúsinu Ými. Á efnisskránni verða
margar af perlum tónbókmenntanna
í frábærum fiutningi. Tónleikarnir
hefjast kl. 20.30 og miðaverð er
krónur 1500. Tónleikarnir eru haldn-
ir í tengslum við opið hús sem ætl-
að er,að kynna þá fjölmörgu kosti
sem Ýmir hefur upp á að bjóöa sem
tónlistarhús.
Leikhús
■ LAUFIN I TOSCANA Verkiö Laufln
í Toscana eftir Lars Norén verður
sýnt á Stóra sviöi Þjóðleikhússins I
kvöld klukkan 20.
■ LEIKRIT ALDARINNAR Hrafn-
hildur Hagalín Guömundsdóttir fjall-
ar um leikritið Dagur vonar eftir
Birgi Sigurðsson klukkan 20 í kvöld
í anddyri Borgarleikhússins. Þar
lýsir hún þeim áhrifum sem Dagur
vonar hefur haft á hana og hennar
eigin skrif.
■ PLATANOF Nemendaieikhúsiö og
Hafnarfjaröarleíkhúsið frumsýna í
kvöld Platanof eftir Anton Tsjekhov.
Sýningin hefst klukkpn 20 og miðinn
kostar 700 krónur. Örfá sæti laus.
■ LÓMA í SKAGAFIRÐINUM Lóma
er á ferð um landið með Möguleik-
húsinu og í dag er hún gestur á
Sæluviku í Skagafiröinum. Leikritið
Lóma, mér er alveg sama þótt ein-
hver sé aö hlæja aö mér verður sýnt
í dag klukkan 10 í Bifröst.
Óhamingja vegna fegurðar
Hilmar
Karlsson
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
Filmundur:
Citizen Kane
á afmælinu
Kvikmyndaklúbburinn Filmundur
á eins árs afmæli um þessar mundir.
Filmundur hefur sýnt um það bil
hundrað myndir á þessu eina ári og
kennir þar ýmissa grasa. Má t.d.
nefna hryllingsmyndahátíð á haust-
dögum, franska kvikmyndahátíð, nor-
ræna kvikmyndahátíð og Coen-
bræðra-hátíð. Einnig stóð Filmundur
fyrir frumsýningu á heimildarmynd-
inni Lalla Johns sem hefur gengið
framar öllum vonum.
Afmælismynd Filmundar er ekki af
verri endanum. Það er Citizen Kane
eftir Orson Welles sem á einnig af-
mæli en hún verður sextíu ára um
þessar mundir. Orson Welles var að-
eins 25 ára þegar hann skrifaði, leik-
stýrði og lék í Citizen Kane sem er af
mörgum talin vera ein besta mynd
sem gerð hefur verið og birtist á nán-
ast öllum listum og er þá sama hvort
fræðimenn, gagnrýnendur eða áhorf-
endur eiga í hlut.
Eins og frægt er orðið er hlutverk
auðkýfingsins Charles Foster Kane
byggt á lífshlaupi dagblaðakóngsins
Williams Randolphs Hearst sem var á
áttræðisaldri þegar myndin var frum-
sýnd. Hearst reyndi allt hvað hann
gat til að koma í veg fyrir sýningu
myndarinnar en varð sem betur fer
ekki að ósk sinni. Engu að síður leið
myndin fyrir þá neikvæðu athygli og
umflöllun sem hún fékk, fáir komu að
sjá hana og hún var púuð niður í
hvert skipti sem á hana var minnst á
óskarsverðlaunahátíðinni en hún
hlaut aðeins ein verðlaun, fyrir besta
handrit, þrátt fyrir níu tilnefningar.
Sjö sýningar verða á Citizen Kane og
verður sú fyrsta annað kvöld.
Tíu ára valdaafmæli
Davíðs Oddssonar
I góöra vina hópi
Davíö hlaut aö vonum höföinglegar móttökur í Valhöll.
Citizen Kane
Orson Welles fyrir miöri mynd í hlutverki blaöaútgefand-
ans Charles Foster Kane.
Um þessar mundir er áratugur lið-
inn frá því að Davíð Oddsson mynd-
aði sína fyrstu ríkisstjórn en hann
hefur sem kunnugt er setið samfellt á
forsætisráðherrastóli lengur en nokk-
ur annar. Til að halda upp á tímamót-
in buðu Halldór Ásgrímsson utanrík-
isráðherra og Geir Haarde fjármála-
ráðherra Davíð til móttöku í Þjóð-
menningarhúsinu á mánudaginn. Þar
voru saman komnir ýmsir núverandi
og fyrrverandi ráðherrar úr ríkis-
stjórnum Davíðs auk annarra sam-
starfsmanna hans í gegnum árin. Um
kvöldið héldu síðan sjálfstæðismenn
formanni sinum hátíðarkvöldverð í
Valhöll í tilefni af tímamótunum.
DV-MYNDIR EINAR J.
Móttaka í Þjóömenningarhúsi
Halldór Ásgrímsson utanríkisráöherra og Geir Haarde
fjármálaráöherra taka á móti Davíö Oddssyni í Þjóö-
menningarhúsinu.
Kvennahjal
Geir Haarde fjármálaráöherra og Inga Jóna Þóröardótt-
ir borgarfulltrúi tóku á móti gestum í Valhöll. Hér ræöir
Inga Jóna viö Sigríði Dúnu Kristmundsdóttur mann-
fræðing.
Núverandi og fyrrverandi
Friörik Sophusson, fyrrverandi fjármálaráðherra, mætir
í Þjóðmenningarhúsið en þangaö komu jafnt núverandi
sem fyrrverandi ráðherrar úr ríkisstjórnum Davíös
Oddssonar.
Veislugestir mæta
Guöjón Guömundsson, Guðný Ólafsdóttir, María Óla-
dóttir, Guömundur Haiivarösson, Elsa Baldursdóttir og
Kristján Guömundsson mæta til veislunnar í Valhöll.
Fundit
■ JAPANSKUR ARKITEKTÚR
Arkitektinn Michael Anderson,
sérfræðingur í japönskum arkitektúr
og smíðaaöferöurm veröur með
fyrirlestur og sýnikennslu á vegum
umhverfis og
byggingarverfrækfræðistofu HÍ. í
dag kl. 16. í húsi verkfræöideildar
aö Hjaröarhaga 2-6 í stofu 158.
Fyrirlesturinn er á ensku.
■ FÆÐA HROGNKELSASEIÐA
María B. Steinarsdóttir heldur
tyrirlestur sem nefnist Líffræöi
ættkvíslarinnar Hapracticus í
flotþangi og mikllvægi hennar sem
fæöa hrognkelsaseiöa. Fyrirlesturinn
hefst kl 16.15 í dag að Grensásvegi
12 í stofu G-6.
■ RÁÐSTEFNA UM FJARVINNU
Ráðstefna um fjarvinnu verður
haldin á morgun fimmtudaginn 3.
maí og hefst í lönó kl. 8.30. Síminn
og Gallup standa aö ráðstefnunni
en ríflega 50 starfsmenn hafa í
tilraunaskyni unnið störf sín í
fjarvinnu hjá Símanum um nokkurt
skeiö. Kynnt verður niðurstaða
rannsóknar á því hver áhrif fjarvinnu
hafa verið fyrir þá og fyrirtækið.
Einnig verður fjallað um réttarstöðu
fjarvinnslufólks og vinnuveitenda og
kynntar aöferðir um hvernig best se
aö standa aö stefnumótun um
fjarvinnu.
SJá nánar: Lífiö eftlr vinnu á Vísi.is
Er góð vísa stundum of oft
kveðin? Þessi samliking kem-
ur upp í hugann eftir að hafa
séð nýjustu kvikmynd
Giuseppe Tornatore, Malena,
sem gerist eins og flestar
hans myndir á Sikiley.
Malena er mannlífssaga úr
smábæ þar sem sakleysinu er
att gegn spillingu og hroka.
Saklausi drengurinn sem er
að komast af gelgjuskeiði er
kunnugleg persóna hjá
Tornatore og konan sem nán-
ast er ósnertanleg í augum
drengsins er það einnig.
Dýrkun hugans sem ekki
stenst í raunveruleikanum er
undirtónn myndarinnar sem
og í flejri myndum hans.
Óhjákvæmilega eru síðari
myndir Tornatore bornar
saman við Cinema Paradiso
sem er hans besta kvikmynd
og hingað til hefur engin
þeirra staðist þann saman-
burð. Það er helst L’umoe,
stelle delle (The Star Maker)
frá árinu 1995 sem nálgast
meistaraverkið að gæðum.
Malena hefur marga góða
kosti og höfundareinkennin
eru sterk. Myndin er oft
áhugaverð þegar kemur að titilper-
sónunni Malenu (Monica Bellucci)
sem i fyrstu einangrar sig og lætur
ekki störur karlmanna hafa áhrif á
sig. Sögumaðurinn, hinn ungi Renato
(Giuseppe Sulfaro), er ekki eins sterk
persóna og má segja að í byrj-
un veiki Tornatore mynd
sína með sterkri tilvísun í
kvikmynd Fellinis,
Amarcord, þar sem eins og í
Malene ungir og graðir strák-
ar gefa ímyndunaraflinu
lausan tauminn. Fellini tókst
mun betur að koma húmorn-
um til skila. Renato vex í
andlegum skilningi eftir því
sem líður á myndina og aðdá-
un hans á Malenu á eftir að
þroska hann mikið. Hann fer
þó í sömu spor og aðrir þegar
neyð Malenu er mest og
stendur aðgerðalaus eins og
aðrir karlmenn sem sumir
hverjir hafa þó ýmislegt á
samviskunni gagnvárt henni.
Það er auðvelt að skilja þá
löngun sem grípur allan karl-
peninginn þegar Malena á í
hlut, Monica Bellucci er feg-
urst kvenna og í hlutverki
Malenu er útgeislunin mikil
þegar hún arkar eftir götum
Castelcuto og nánast stöðvar
allt bæjarlífið. Bellucci hefur
ekki nema örfáar setningar í
myndinni vegna þess að sam-
skipti hennar og Renatos eru
eingöngu til í huga hans. í
upphafi er Malena siðsöm stúlka sem
bíður eftir að eiginmaðurinn komi
heim úr stríði. Konurnar í Castelcuto
vita af áhrifunum sem hún hefur á
eiginmenn þeirra. Malena ógnar samt
ekki lífi þeirra fyrr en hún er orðin
ekkja. í stað þess að sýna henni sam-
úð snúast þær gegn henni, verða
hræddar um sína karla og þá eru
kjaftasögurnar ekki lengi að fá byr og
Renato til mikilla vonbrigða og sorgar
veit hann að sumt er satt í þessum
sögum.
Það er léttur húmor í myndinni í
upphafi en eftir því sem óhamingja
Malenu verður meiri þyngist atburða-
rásin og myndin verður átakanleg lýs-
ing á lífi konu sem er einangruð frá
samfélaginu og stígur sín feilspor sem
verða henni örlagarík.
Helsti kostur Malenu er hversu
mannleg hún er. Myndin tjallar um
blóðheitar manneskjur sem eru fljótar
að fordæma en einnig tilbúnar að fyr-
irgefa þegar það hentar þeim. Þarna
tekst Tornatore best upp, persónur
hans eru einstaklega lifandi og mann-
eskjulegar. Honum tekst síður að
tengja atburðina í sterka heild.
Malena er samt gefandi kvikmynd,
fallega kvikmynduð og tónlist Ennio
Morricone svíkur engan.
Leikstjóri og handritshöfundur: Giuseppe
Tornatore. Kvikmyndataka: Lajos Koltai.
Tónlist: Ennio Morricone. Aðalleikarar:
Monicca Bellucci, Giuseppe Sulfaro og
Luciano Federico.