Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2001, Qupperneq 2
FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2001
Fréttir
I>V
Spilavítiö á bak viö Hjálpræðisherinn:
Sigrúnu AK 71 hefðu fengið 1000
svartfugla í netin i tveimur túrum
sem seldir voru á fiskmarkaðnum á
Akranesi. í kjölfarið stöðvaði lög-
reglan alla frekari sölu. Sjómenn
segjast nú verða að henda fuglinum
sem ánetjast.
deCODE óbreytt
Lokagengi deCODE á Nasdaq-
markaðnum í gær var 5,79 dollarar.
Það var sama gengi hlutabréfa og
við opnun í gærmorgun. Tæplega
140 þúsund hlutir skiptu um hendur
í gær. Mikil niðursveifla var þó inn-
an dagsins og fór gengið lægst í 5,28
dollara, sem er sögulegt lágmark.
Fyrra metið náðist 5. apríl, 5,31 doll-
ari á hlut.
Virkjun trúnaðarmál
Landsvirkjun lít-
ur á áætlanir um
heildarstofnkostnað
vegna framkvæmda
við Kárahnjúka-
virkjun sem trúnað-
armál, enda er
samningum um
orkuverð ekki lok-
ið. Þetta kemur fram í skýrslu fyrir-
tækisins um mat á umhverfisáhrif-
um.
Genalogia Islandorum hættir
Öll starfsemi ætt-
fræðibókaútgáfunn-
ar Genealogia Is-
landorum hefur
verið lögö niður, í
bili að minnsta
kosti, samkvæmt
yfirlýsingu frá í
Tryggva Péturssyni f'
stjórnarformanni. Öllu starfsfólki
var sagt upp í lok nóvember,
Bruni í Mýrdal
Sumarbústaður við Reynisbrekku
í Mýrdal, út frá Höfðabrekku, brann
til kaldra kola í gær. Bústaðurinn
er í hvarfl frá öðrum bæjum og því
uppgötvaðist eldsvoðinn seint.
Ekki lengsta verkfallið
Fjölmiðlum hefur undanfarið ver-
ið tíðrætt um að yfirstandandi sjó- j
mannaverkfall sé hið lengsta í sögu
landsins. Það er rangt. Árið 1950
fóru togarasjómenn i verkfall sem
stóð í fjóra mánuði. - Inter-
Seafood.com greindi frá.
Tugir athugasemda
Sérstakur aukafundur var boðað-
ur í skipulags- og umferðamefnd í
gær til að fjalla um á fjórða tug at-
hugasemda við Hörðuvallaskipulag
í Hafnarfirði. Fulltrúar Samfylking-
ar i skipulags- og umferðarnefnd
segja ljóst að nær ekkert verði tekið
tillit til athugasemdanna. ’ -HKr.
Þagnarskylda presta
Biskup íslands,
herra Karl Sigur-
björnsson, hefur
áréttað að vígðir
þjónar kirkjunnar,
prestar og djáknar,
séu bundnir þagn-
arskyldu um allt
sem leynt skuli
fara. í viðauka samnings íslenskrar
erfðagreiningar og Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri er gert ráð fyrir
slíkri skráningu i gagnagrunn.
ÖBÍ mótmælir
Öryrkjabandalag íslands lýsir
yfir vonbrigðum með fyrirhugaðar
breytingar á lögum um almanna-
tryggingar og segir þær vera van-
efndir ríkisstjórnarinnar. Harðlega
eru átalin þau áform að láta hækk-
un bóta lúta 67% skerðingarreglu
fyrir skatt.
Sala á svartfugli stöðvuð
Fyrir skömmu greindi Inter-
seafood.com frá því að skipverjar á
Dagsektir dynja á
- skúrinn ekki rifinn þrátt fyrir þriggja ára gamlan úrskurö þar um
Bundnir í 12 ár:
Kostar hálfa
milljón á mánuði
„Hér á landi er ekkert gefið nema
víxileyðublöðin í bankanum," segir
Kristján Loftsson, útgerðarmaður í
Hval hf., sem hefur greitt rúmar 70
milljónir í hafnar-
gjöld og annað
fyrir hvalbátana
sína fjóra sem leg-
ið hafa bundnir
við Ægisgarð i
Reykjavíkurhöfn
frá því í ágúst
1989. „Það er alltaf
.Kristján Loftsson velaö ge^a
manm undir fót-
inn með að hvalveiðar hefjist að nýju
og þess vegna held ég skipunum
þarna. Við vorum í þessari atvinnu-
starfsemi og ætlum að halda henni
áfram þegar okkur verður leyft það,“
segir Kristján sem þó sér ekki eftir
peningunum.
Mánaðarlega við Ægisgarð kostar
um 80 þúsund krónur fyrir hvern
hvalbát. Að auki eru hvalbátarnir
beintengdir við hitaveitu sem greiða
þarf af svo og tryggingar sem eru um-
talsverðar enda hvalbátamir í sér-
stökum áhættuflokki eins og dæmin
sanna. Samanlagt kostar lega hvalbát-
anna því um 500 þúsund krónur á
mánuði og „... Kristján borgar alltaf á
gjalddaga", eins og starfsmenn
Reykjavíkurhafnar orða það. -EIR
Hvalbátarnir fjórir
Á sama stað frá því í ágúst 1989 - kostnaður 70 milljónir.
„Það liggur fyrir úrskurður um
að rífa skúrinn ella beita dagsekt-
um. Það stendur," sagði Árni Þór
Sigurðsson, formaður byggingar-
nefndar Reykjavíkur, um skúr sem
stendur bakatil við hús Hjálpræð-
ishersins og er inngangur að spila-
víti sem rekið hefur verið við Suð-
urgötu 3 undanfarin misseri. Frá
spilavítinu var greint í fréttum DV
fyrir skemmstu og Hörður Jóhann-
esson, yfirlögregluþjónn í Reykja-
vík, kom af fjöllum þegar hann var
spurður um tilvist þess. í spilavít-
inu er borið fram ókeypis áfengi og
þar spila menn rúllettu og black-
jack eins og í Las Vegas. Slíkt er
bannað i Reykjavík.
Ámi Þór Sigurðsson kunni ekki
skýringu á því hvers vegna ekki
væri búið að rífa skúrinn eins og
fyrrum eiganda var gert gera af
Úrskurðarnefnd skipulags- og
byggingamála snemma árs 1999.
Frá sama tíma áttu að taka gildi
dagsektir að upphæð 20 þúsund
krónur á dag og enn stendur skúr-
Skúrinn stendur enn
- og formaður byggingarnefndar skilur ekki hvers vegna.
inn. Dagsektirnar væru því komn-
ar upp í rúmar 17 milljónir króna
hefði þeim verið beitt.
„Ég er búinn að selja skúrinn
andinn var eigandi spilavítisins
sem nú er rekið í húseigninni án
athugasemda lögregluyfirvalda.
Magnús Sædal, byggingarfulltrúi
í Reykjavik, hefur ekki beitt eig-
anda spilaskúrsins dag-
i öll þau ár sem
hann hefur staðið án
heimildar í portinu á
bak við Hjálpræðisher-
inn:
„Það voru uppi
hugmyndir um að
breyta skúrnum og
á meðan hélt ég að
mér höndum varð-
andi dagsektirn-
ar. En nú er farin
að síga á mér
- brúnin því ekk-
ert hefur gerst.
máltaWpeSg
fyrir löngu,“ sagði Björgvin dagsektum beitt,“ sagði
Kjartansson viðskiptafræðingur Magnús Sædal sem er kominn í
sem kærði úrskurð um niðurrif stellingar í stríðinu um spilaskúr-
eignar sinnar á sínum tíma. Kaup- inn i miðbænum. -EIR
íslendingar sóa sex sinnum fleiri dögum í verkföll en aðrir:
Heimsmethafar í verkföllum
- kostnaðurinn um 630 milljónir króna á hverju ári
íslendingar eru óskoraðir heims-
methafar í verkföllum. Á 10. áratugn-
um eyddu þeir hlutfallslega fleiri
vinnudögum í verkfóll en nokkur
önnur af 23 ríkustu þjóðum heirns,
samkvæmt upplýsingum í The
Economist, þrátt fyrir að verkfalls-
dögum hefði þá fækkað hér um helm-
ing frá bæði 9. áratugnum og þeim 8.
Samkvæmt útreikningum Við-
skiptablaðsins má ætla að fram-
leiðslutap vegna verkfalla nemi um
630 milljónum króna á ári.
Ríkustu þjóðimar glötuðu um 59
vinnudögum að meðaltali á ári á hver
1000 manns á vinnumarkaði á síðasta
áratug. Hérlendis var sama hlutfall um
370 dagar á hveija 1000 starfsmenn. ís-
lendingar eyddu rúmum 467.000 vinnu-
dögum í verkföll á áratugnum, þ.a. um
helmingnum árið 1995. Þetta samsvar-
ar vinnu 2000 manna í heilt ár.
Að meðaltali töpuðu íslendingar
Tapaöir vinnudagar á hverja 1000 starfsmenn
ifiO .Ifififl HVV
öFTf 'k 300
- árlegt meðaltal
1990-1999 200
k wm |
m ' mzí m&p: íiT*P®fiL *■': 'Æj?.-- - 4-, ■ " jjv-c ■ • %' 4 f , * ;l" ■ 100
.. . . .... ?
. . . Eiíi 1 11 l
einu mannsverki á hveija 1000
starfsmenn á hverju ári, en ætla má að
hafi kostað um 630 milljónir króna að
meðaltali á ári, eins og áður segir.
Aörir minna en hálfdrættingar
í verkfallsgleðinni eru það Spánveij-
ar einir sem komast nokkuð í nánd við
íslendinga, samkvæmt upplýsingum
The Economist. Allar aðrar þjóðir eru
minna en hálfdrættingar, nema
Kanada. Norðurlöndin eru öll vel yfir
meðaltali á listanum ásamt t.d. Tyrk-
landi, Italíu og írlandi. Aftur á móti
sóuðu hverjir þúsund Bandarikja-
menn aðeins um 40 dögum í verkfófl á
ári, Bretar enn færri og Þjóðveijar og
Japanir létu verkfóll nánast eiga sig á
á síöasta áratug. Að sögn blaðsins
fækkaði verkfallsdögum í OECD-lönd-
unum um þriðjung síðari helming ára-
tugarins frá þeim fyrri. í Evrópusam-
bandinu var þróunin þveröfug. -HEI