Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2001, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2001, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2001 Akureyri - Norðurland_____________________________________________________________________________________DV Bygging verslunarhúss í miðbæ Akureyrar: Hymismenn í startholunum - Hagkaup flytur verslun sína í nýja húsið DV, AKUREYRI:_________________________ Flest bendir til þess að bygging veglegs verslunarhúss í miðbæ Ak- ureyrar hefjist á þessu ári. Fyrirtæk- ið Hymir ehf. er að skoða möguleika á að byggja húsið og leigja það síðan út. Talið er fullvíst, verði af þessari framkvæmd, að Hagkaup muni flytja verslun sína í nýja húsnæðið en Hag- kaupsmenn hafa í nokkurn tíma ver- ið að skoða möguleika á þvi að kom- ast með verslun sína á Akureyri nær miðbænum. Nýja verslunarhúsið á að rísa austan við Hótel KEA, á svæðinu þar sem nú er m.a. gamla hitaveituhúsið, en það verður brotið niður innan skamms. Hymir ehf. er í eigu fjögurra Ak- ureyringa: Péturs Bjarnasonar at- hafnamanns, Páls Alfreðssonar byggingameistara, Bjarna Reykja- lín, deildarstjóra umhverfisdeildar Akureyrarbæjar, og Sigurðar J. Sig- urðssonar, svæðisstjóra Skeljungs og bæjarfulltrúa. Hymir byggði á síðasta ári húsnæði í Glerárhverfl og leigði Baugi það undir verslun Bónuss. „Ég eiginlega hvorki játa þessu eða neita. Ef eitthvað er þá er þetta enn sem komið er ekki annað en vangaveltur og langur vegur frá því að málið sé að komast á eitthvert framkvæmdastig," sagði Sigurður J. Sigurösson þegar DV ræddi þetta mál við hann. Samkvæmt öðrum heimildum DV er málið komið á talsverðan rekspöl og talið nær ör- uggt að af þessu verði. Rætt er um 4000-5000 fermetra byggingu, þar sem verslun Hagkaups yrði stærst, en þar yrðu einnig nokkrar aðrar verslanir. Þá hefur DV áreiðanlegar heim- ildir fyrir því að Akureyrarbær hafi áhuga á að greiða fyrir því að af þessu geti orðið, að stórt verslunar- hús rísi við suðurenda göngugöt- unnar, og yrði litiö á það sem nokk- urt mótvægi við verslunarmiðstöð- ina Glerártorg sem var opnuð á síð- asta ári. Byggingunni myndi óhjá- kvæmilega fylgja að stórt átak yrði að gera í bílastæðamálum miðbæj- arins og er talið einna líklegast að byggt yrði sérstakt bílastæðahús eða sambærilegt mannvirki. „Þetta sýnir að margir hafa áhuga á miðbænum og fulla trú á að hann muni vaxa og dafna,“ sagði Ingþór Ásgeirsson, formaður Mið- bæjarsamtakanna á Akureyri, þeg- ar þetta mál var borið undir hann. „Við fógnum því að menn vilji koma í miðbæinn með starfsemi sína og stór matvöruverslun er t.d. einmitt það sem okkur hefur vant- að,“ sagði Ásgeir. -gk Akureyri: Endur- vinnsla hefst að nýju DV, AKUREYRI: Söfnun pappírs og plasts í þeim tilgangi að endurvinna það er að hefjast að nýju á Ak- ureyri, eftir hlé sem hefur varað frá árinu 1999. Reyndar hefur pappír og plasti verið safnað í einhverjum mæli á þessum tíma í bænum en síðan verið urðað með öðru sorpi á Glerárdal. Seinkun hefur orðið á upphaf- legum áætlunum en nú er gert ráð fyrir að Endurvinnslan ehf. á Akureyri hefji að nýju mót- töku á pappír og plasti til endur- vinnslu um næstu mánaðamót. Ný pressa sem „baggar" pappír- inn og plastið er þegar komin til bæjarins og undirbúningur að vinnslunni er í fullum gangi þessa dagana. -gk DV-MYND BRINK Ruslflokkun Á Akureyri veröur nú byrjaö aö endurvinna fiokkaö sorp að nýju um mánaöamótin Umsjón: Birgir Guömundsson Áfram R-iisti? í heitapottinum er nú fullyrt að mikil bjartsýni ríki hjá Reykjavík- urlistafólki um að samstaða náist um að bjóða fram endurnýjaðan R- lista í sveitar- stjórnarkosn- ingum að ári undir forustu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. Einkum hafa menn sett spumingar-1 merki við áhuga Vinstri grænna á slíku samstarfi en áhrifamikill hóp- ur innan Reykjavíkurdeildar flokksins mun vera áfram um að flokkurinn bjóði fram undir eigin nafni. Ámi Þór Sigurðsson er hins vegar í forsvari fyrir þá sem vilja áframhaldandi R-lista sam- starf og þó svo að staða Árna í flokknum sé ekki talin mög sterk um þessar mundir þá telja flestir að hann muni verða ofan á í þessu máli. Rökin eru einfaldlega þau að Vinstri grænir megi ekki við þvf ímyndarlega að vera á móti R-list- anum. Flokkurinn hefur þegar á sér orð fyrir að vera á móti öllu og ef það bættist við að hann væri á móti Reykjavíkurlistanum líka þá væri hann einfaldlega endanlega stimplaður sem „fúll á móti“... Viöræður að byrja Það hefur einnig ýtt undir bjart- sýni Reykjavíkurlistafólks að spurst hefur út að Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir muni á næstu dög- um hrinda af stað f formlegum samn- ingaviðræðum flokkanna um kosningabandalag og þykir mörgum að það sé vonum seinna. Þar eiga menn von á ein- hverjum hvellum til að byrja með meðan flokkarnir eru að stilla upp kröfum sínum og skapa sér stöðu. en síðan muni málið róast í sumar og verði síðan tekið upp af fullum krafti í haust... Undrandi á Valgerði Heyrst hefur að ýmsir í smásölu- geiranum - ekki síst þeir sem tengjast Kaupási og Baugi - hafi lyft brúnum þegar Valgerður Sverrisdóttir kynnti skýrslu Samkeppnisstofn- unar á dögunum. í viðtölum og í kynningunni þótt- ust menn sjá að hún væri hvassyrt gagnvart smásöl-1 unni, sérstaklega stóru fyrirtækjunum sem jafnvel voru nefnd með nafni. Hins vegar hafi ráðherrann ekki nefnt KEA- fyrirtækin Matbæ eða Nettó á nafn, sem hafi verið afar óheppilegt í ljósi þess að Valgerður er nátengd KEA, m.a. í gegnum systur sína, Guðnýju Sverrisdóttur ... LÍÚ stöðvar samninga á Norðurlandi: Skítalykt af málinu - segir Árni Bjarnason DV, AKUREYRI:_____________ Arni Bjarnason, formað- ur Skipstjóra- og stýri- mannafélags Norðlendinga, segir að hægt hafi verið að semja við útgerðarmenn á Norðurlandi en LÍÚ hafi stöðvað alla tilburði sem uppi voru hafðir í þá átt. Því liggi þaö fyrir að það verði ekki samið um neitt heima í héraði. „Það eru þama greini- lega mismunandi hagsmun- ir í gangi, annars vegar hjá LÍÚ og hins vegar hjá þeim sem eru héma fyrir norðan. Það kemur líka Frá Olafsflröi Skipstjóra- og stýrimannaféiags Norölendinga, segir aö hægt hafi veriö aö semja viö útgeröarmenn á Noröurtandi en LÍÚ hafí stöövaö aila tilburöi sem uppi voru haföir í þá átt. inn í þetta tenging viö vélstjórana en það er ljóst að þeir hafa gert ein- hvers konar samkomulag sin á milli, Helgi Laxdal, LÍÚ og jafnvel ríkisstjóm- in. Þetta hefur gerst þótt Helgi segi úti um ailt að hann hafi bara verið aö semja fyrir sína menn. það hefur greinilega verið samið um að það haldist bil á miUi vélstjóra og ann- arra og við þvi yrði ekki hróflað. Þótt hægt hafi ver- ið að semja um eitthvað betra fyrir norðan þá —“ stoppar LtÚ það. Það er skítalykt af málinu, eða alla vega ódaunn," segir Ámi. -gk Húsavík: Stal mynt Rúmlega tvítugur karlmaður hef- ur verið dæmdur í Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir að hafa stolið smámynt úr fótu á heimili ungrar konu á Húsavík. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa stolið smámynt sem nam 25 þúsund krónum úr fótunni. Hann viðurkenndi að hafa tekið þaðan 18 þúsund krónur og þar hafi verið um að ræöa sjálftöku vegna skuldar konunnar við hann. Hins vegar þótti sannað að mað- urinn hafi tekið 25 þúsund krónur í smámynt úr fötunni. Maðurinn sem oft hefur hlotið refsingar, m.a. fyrir umferðarlaga- og fíkniefnabrot, var á skilorði þegar hann framdi þjófn- aðinn á Húsavík en nú var honum gerð refsing upp á 5 mánaða fang- elsi skilorðsbundið til 3 ára og til greiðslu alls sakarkostnaðar. -gk Óháö í Árborg í pottinum er nú fullyrt að hópur manna í Árborg íhugi „óháð fram- boð“ í bæjarstjórnarkosningunum að ári! I þessum hópi eru m.a. framkvæmda- stjórarnir Guð- mundur Sigurðs- son og Sigurður Jónsson, vel þekktir sem „Vin- ir Hellisheiðar" og hafa staðið fyrir að safna undir- skriftum fyrir því að Hellisheiðin veröi lýst upp. Ýmsir fleiri eru þó líka nefndir til sögunnar og þykir það í raun nauðsynlegt til að skapa trúverðug- leika þessa framboðs sem óháðs framboðs en bæði Guðmundur og Sigurður eru fyrrum bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins á Selfossi. Góð stemning er sögð fyrir þessu fram- boði í Árborg enda þykir það ný- stárlegt...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.