Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2001, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2001, Blaðsíða 7
7 FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2001 DV S35EE3BE53 HEILDARVIÐSKIPTI - Hlutabréf - Ríkisvíxlar MEST VIÐSKIPTI 0 Pharmaco Íslandsbanki-FBA Tryggingamiöstööin MESTA HÆKKUN 12.200 m.kr. 241 m.kr. 7.100 m.kr. 77 m.kr. 41 m.kr. 32 m.kr. O Tryggingamiðstööin 4,5% © Nýheiji 3,8% © Húsasmiöjan 2,8% MESTA LÆKKUN O Eimskip 8,3% O Flugleiðir 7,4% ©Íslandsbanki-FBA 1,6% ÚRVALSVÍSITALAN 1100 stig - Breyting O -1-27% Atvinnuleyfi 63% fleiri Rúmlega 350 atvinnuleyfi voru gefin út í apríl þrátt fyrir verkfóll miðaö við 200 í apríl 2000. Veitt at- vinnuleyfi fyrstu fjóra mánuði árs- ins eru þar með 1.320 eða 63% fleiri en á sama tímabili í fyrra, sam- kvæmt yfirliti Vinnumálastofnun- ar. I apríl mældist atvinnuleysi 1,6% af mannaíla en miklu meira á Norðurlandi og ríflega tvöfalt meira á Austurlandi, þar sem atvinnu- lausum fjölgaði um 75% milli mán- aða og nær 100% frá apríl í fyrra. Um 2.760 manns voru á skrá í apríl- lok, um 500 fleiri en i iok mars. Ríf- lega fjórðungur var í sjávarútvegi og fiskvinnslu. - HEI Telenor og TeleDanmark í sameiningar- viðræðum Norska símafyrirtækið Telenor og danska símafyrirtækið TeleDan- mark hafa tekið upp viðræður með hugsanlega sameiningu félaganna í huga. Verði af sameiningu er líklegt að hún verði á jafnréttisgrundvelli og úr verði fyrirtæki með markaðs- verömæti upp á 1.600 milljarða ís- lenskra króna. Sameining yrði mikill sigur fyrir Telenor en tvívegis hafa tilraunir til að sameina Telenor og hið sænska Telia farið út um þúfur. Sameining- in myndi einnig skapa alvarlega ógnun fyrir Telia á norræna fjar- skiptamarkaðnum en Telia hefur sagst vilja fjárfesta á norræna markaðnum. Leyndó með nefndarformann Framsóknar- flokkurinn er búinn að skipa mannskap i sér- staka nefnd flokksins um sjávarútvegsmál. Nefndin fer af stað innan ör- Kristlnn H. fárra daga, að Gunnarsson. sögn Kristins H. Gunnarssonar, formanns þingflokks Framsóknar- flokksins. Með nefndarstarfmu er verið að uppfylla samþykkt síðasta flokksþings en nokkuð var tekist á um sjávarútvegsstefnuna á því þingi. Kristinn segir að búið sé að velja nefndarformann en hann var í gær ófáanlegur til að upplýsa hver mundi stýra vinnunni. -BÞ Viðskipti Umsjón: Viðskiptabladið Hagnaður SIF 107 milljónir - á fyrsta ársfjórðungi ársins SÍF hf. skilaði 107 milljóna -, gott jafnvægi er á eignum og króna hagnaði eftir skatta a fyrstu þremur mánuðum árs- ins en tap á sama tíma í fyrra var 125 milljónir króna sem er breyting upp á 232 milljónir króna. Hagnaður SÍF hf. fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBIDTA) nam 552 milljónum króna á fyrsta ársfjóröungi en var 223 milljónir króna á sama tímabili árið 2000. í tilkynningu frá SÍF kemur fram að rekstur samstæðunnar á fyrstu þremur mánuðum árs- ins hafi skilað jákvæðu veltufé frá rekstri að upphæð 390 milljónir króna en það var 12 milljónir fyrir sama tímabU árið á undan. SÍF segir rekstur samstæðunnar almennt vera í góðu samræmi við áætlanir félagsins en veltufé frá rekstri er þó um þriðjungi hærra en gert var ráð fyrir á fyrstu mán- uðum ársins. Sölutekjur samstæðunnar jukust um tæp 20% en það skýrist m.a. af áhrifum gengisbreytinga, en geng- isvísitala íslensku krónunnar hef- ur hækkað um tæp 12% á miUi um- ræddra tímabUa. Þá hefur fram- legð samstæðunnar aukist á miUi tímabila, auk þess sem annar rekstrarkostnaður lækkaði um rúm 4%, að teknu tilliti til gengis- breytinga. Eins og greint var frá í tengslum við ársuppgjör fyrir árið 2000 var gripiö tU fjölda rekstrar- og skipu- lagsaðgerða á síðasta ári sem nú eru aö skUa sér, segir SÍF. Þá kemur fram að ytri rekstr- arskUyrði, s.s. hrá- efnisverð á laxi og breytingar á kross- gengi evru og doU- ars, hafa verið sam- stæðunni hagstæð- ari en á síðasta ári Gunnar Orn Kristinsson og nokkuð í samræmi við þaö sem eðlUegt mætti telja. Unnið er áfram að útfærslu á nýrri stefnumótun og framtiðarsýn samstæðunnar þar sem m.a. eru gerðar kröfur um skýrari mark- miðssetningu og skarpari áherslur innan samstæðunnar ásamt aukn- um kröfum um arðsemi. „Starfsemi SÍF-samstæðunnar er að langstærstum hluta tengd er- lendum gjaldmiðlum, hvort heldur sem talaö er um tekjur eða gjöld, eignir eða skuldir. Þar sem nokkuð skiUdum félagsins í erlendri mynt hefur óróleiki íslensku krónunnar óveruleg áhrif á af- komu fyrstu þriggja mánaða ársins. Sveiflur á gengi krón- unnar hafa aö jafnaði lítil áhrif á rekstur SÍF hf. tU lengri tíma litið,“ segir í tU- kynningu frá SlF. Fram kemur að óhagstæð þróun hins brasUíska ríals gagnvart doUar hefur hins veg- ar haft talsverð áhrif á rekstur SIF Brasil á fyrstu þremur mánuðum ársins, en öU inn- kaup félagins eru í USD þegar sala afurða er í ríal. Lækkun brasilíska ríalsins gagnvart dollar á fyrstu þremur mánuðum ársins hefur leitt tU um 44 miUjóna króna geng- istaps á rekstri SIF BrasU sem að stærstum hluta er reiknað gengis- tap. Eins og áður hefur komið fram gera rekstraráætlanir SÍF hf. ráð fyrir að hagnaður verði af rekstri samstæðunnar á árinu 2001. Sam- kvæmt áætlunum mun ganga á hagnað félagsins á öðrum ársfjórð- ungi á meðan vænst er aukins hagnaðar á þriðja og fjórða árs- fjórðungi. „Ekki er á þessari stundu ljóst hvaða áhrif sjómannaverkfall mun hafa á rekstur samstæðunnar á öðrum ársfjórðungi en ljóst er að svo langt stopp hefur haft truflandi áhrif á reksturinn," segir í tUkynn- ingu frá SÍF. Landssíminn 41-47 milljarða virði - að mati viðskiptastofu Hafnarfjarðar SPH Viðskiptastofa „Aö okkar mati er verðmæti Landssímans í kringum 41-47 milljaröa króna en á því bill liggja niöurstöður úr samanburöi á nokkrum kennitölum fjar- skiptafyrirtækja og sjóöstreymisgreiningu á rekstri Landssímans. „Landssíminn er án vafa eitt arð- bærasta fyrirtæki landsins og nú stendur tU að selja eignarhlut ríkis- ins í honum í nokkrum hlutum. Þá spyrja menn sig hvert sé verðmæti fyrirtækisins en einnig hefur tíma- setning sölunnar vakið upp spum- ingar og þá hvort betra sé að bíða eftir hentugri markaösaðstæðum," segir SPH Viðskiptastofa. Að mati hennar hefur umræðan um sölu Landssímans ekki verið í samræmi við ástandið á íslenskum fjármagnsmarkaði sem veldur því að samanburður á verðum miUi landa er varhugaverður. „Hér er að sjálfsögðu átt við að vextir á íslandi eru mun hærri en t.d. á Norðurlönd- unum og í Bandaríkjunum. Af því leiðir að Landssíminn hlýtur að seljast á lægra verði en ef vextir hér á landi væru í samræmi við það -sem er í nágrannalöndunum því gera verður hærri ávöxtunarkröfu til Landssímans. Að okkar mati er því hátt vaxtastig meiri áhrifavald- ur á verð Landssimans en núver- andi aðstæður á hlutabréfamarkaði sem þó eru, sérstaklega í Evrópu, ekki aUs kostar slæmar. Ekki má heldur gleyma því að verið er að selja tiltölulega litinn hluta fyrir- tækisins til almennings." „Að okkar mati er verðmæti Landssímans í kringum 41—47 millj- arða króna en á því bUi liggja niður- stöður úr samanburði á nokkrum kennitölum fjarskiptafyrirtækja og sjóðstreymisgreiningu á rekstri Landssímans. I sjóðstreymisgrein- ingunni gerum við ráð fyrir 2-4% aukningu rekstrarhagnaðar næstu ár og 2% framtíðarvexti. Almenn- ingur mun þó fá töluverðan afslátt af „fuUu verði“ fyrirtækisins þegar að útboðinu kemur. Skuldir margra fjarskiptafyrirtækja hafa aukist mjög mikið undanfarið en þær eru m.a. tilkomnar vegna fjárfestinga í tengslum við hina nýju kynslóð far- síma (3G). Því hefur almennt fylgt lægra lánshæfismat í geiranum. I mati okkar er ekki gert ráð fyrir tekjum né kostnaði af þessum sök- um hjá Landssímanum. Það skal tekið fram aö þessa dagana er unn- ið að útboðslýsingu fyrir Landssím- ann. I matinu var því stuðst við fyr- irliggjandi ársreikninga fyrirtækis- ins og spár höfunda um þróun ein- stakra stærða, töluverð óvissa er því verðmatinu fylgjandi." „Við teljum liklegt að hærra verð fáist fyrir hluti ríkisins í Landssím- anum þegar seinni sölur fara fram og nær sé að horfa á verðið í þeim hlutum sölunnar. Með kjölfestuíjár- festi gætu nýjar áherslur orðið i rekstri Landssímans og samstarf viö erlend fyrirtæki aukist sem aft- ur gæti gert fyrirtækið enn sölu- legra en það er núna. Sú staðreynd að hlutabréfaverð er mun lægra nú en í fyrra er líklega bara enn ein staðfesting þess að það var almennt ofmetið á þeim tíma og óráðlegt að okkar mati að miða verð Landssím- ans í fyrstu sölu við mjög þaninn markað," segir SPH Viöskiptastofa. til «||r«iltlu ! CB ÍIOO Xl.k'vpn Black Widow Dcllllldlu clll Vatnagarðar 24 • Sími: 520 1100

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.