Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2001, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2001, Síða 20
* 24______ Tilvera FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2001 DV i ii'ófaiiiíMv) tti Traffic ÁhrifamikU og vel gerö kvik- mynd frá Steven Soderbergh þar sem í þremur sögum, sem tengjast óbeint, er fjallað um margar hliðar á eiturlytjavand- anum. Soderbergh kvikmyndaði Traffic aö V langmestu leyti sjálfur með myndavélina í höndunum og gefur það myndinni sterkara yfirbragð en ella, stundum minn- ir hún að þessu leyti á dogma-myndirnar dönsku, sérstaklega Mexíkó-hlutinn. Leik- arar eru upp til hópa mjög góðir þar sem fremstir meðal jafningja fara Benecio Del Toro og Michael Dougias. -HK Memento ★★★★ Sumar myndir eru svo góðar að þær fara með manni út úr kvikmyndahús- inu. Góð dansmynd gerir mann léttan í spori, góð gamanmynd getur spriklað í manni heilan dag og góðir þrillerar skilja mann eftir óöruggan og spenntan og Mem- ento gerir það svo um munar. Pálminn fer til leikstjórans og handritshöfundarins Christophers Nolans sem vefur sögu áreynslulaust úr nútíð í fortíð í nútíð þannig að allt gengur upp og enginn laus endi sem situr eftir eins og vont bragð í munni. -SG Crouching Tiger, Hidden Dragon ★★★★ Frábær kvikmynd. Það er eins og listin hafi loksins ratað aftur heim í fjöl- leikahúsið. Maður situr í sætinu sínu og er borinn gegnum ævintýrið, undrandi og þakklátur eins og bam. En myndin er líka svolítið skrýtin. Leikaramir eru allir með sama íbyggna svipinn og bera fram textann eins og þeir séu að lesa hann af blaði. Og ör- ugglega á einhverri mállýsku sem þeim er ekki eiginleg. En við héma uppi á Islandi segjum bravó og tökum því sem hluta af æv- intýrinu. -GSE Thirteen Days ★★★ Það þarf þéttan frásagnarmáta og * góðar skiptingar á milli atriða til að ná upp góðri spennu í pólitiska atburðarás sem all- ir þekkja. Þetta tekst í Thirteen Days sem er frá upphafi til enda spennandi pólitískur tryllir þar sem myndskeiðum er snilldarlega skeytt saman. Má nefna að sjónvarpsfréttum Walters Cronkite er skeytt inn i söguþráð- inn en á þessum árum var hann „Rödd Am- eríku“ og enginn efaðist um trúverðugleika hans. Spennunni er síðan viðhaldið með at- riðum sem em mismunandi áreiðanleg en öll trúverðug. -HK Way of the Gun ★★★ The Way of the Gun er áhrifamik- il en um leið köld kvikmynd. Það er nánast -v» engin persóna sem á samúð skilið nema bamið sem fæðist í lokin. Myndin er blóðug frá upphafi til enda og það sem gerir hana kalda er fyrst og fremst að persónumar líta sig jafn köldum augum og aðra. Leikstjórinn og handritshöfundurinn Christopher McQuarrie á örugglega eftir að láta mikið að sér kveða í framtíðinni. Leikarar era góðir þar sem gamla kempan James Caan skarar fram úr. -HK Les riviers porpres ★★★ Hörð sakamálamynd með hraðri atburðarás þar sem veriö er að eltast við raðmorðingja sem skilur við fómarlömb sín þannig að áhorfandinn fær gæsahúð. Mynd- inn hefur verið likt Seven og má að hluta réttlæta þá líkingu, meðal annars er útlitið líkt. Les riviers porpres hefur samt sín sér- kenni og þó sjokkerandi sé þá stendur hún hinni mögnuðu Seven að baki í þeim efnum. Kvikmyndataka og klipping er fyrsta ♦ flokks.og Jean Reno og Vincent Cassel eru trúverðugir í hlutverkum lögreglu. -HK State and Main ★★★ Það skín í gegn að allir hafa skemmt sér vel við gerð State and Main og þess vegna ómögulegt annað en að skemmta sér viðlíka vel sem áhorfandi þótt hún sé kannski ekki svo ýkja merkileg. Myndin skartar líka fyrirtaks leikarahópi sem hefur greinilega gaman af að leika sér með þenn- an afburðavel skrifaða texta. WilUam H. Macy er leikstjórinn Walt Price sem þarf að kljást við allt og alla og er frábær. David Paymer leikur hinn dónalega framleiðanda, Marty Rossen, og skemmtir sér vel og Alec Baldwin og .Sarah Jessica Parker fara létt með kvikmyndastjömurnar. -SG Múmían komin á kreik á ný: Rússíbanareið í fyrsta stórsmell sumarsins Hinn 3000 ára gamla múmía hefur vaknað aftur til lífsins og snýr til baka á morgun í Sambíóunum, Háskólabiói, Laugarásbíói, Nýjabíói Keflavík og Nýjabiói Akureyri. Eins og i fyrri mynd- inni eru þau Rick O’Connell (Brendan Fraser) og Evelyn (Rachel Weisz) í aðalhlutverk- um í The Mummy Returns og eru átta ár liðin frá því að þau urðu að berjast upj á líf og dauða í Eygpta- landi við múmíuna Im- hotep. Rick og Evelyn er nú gift og hafa kom- ið sér fyrir i London þar sem þau ala upp son sinn Alex. Röð atvika leiöir til þess að múmían Im- hotep er vakin til lífs- ins i The British Muse- um og að þessu sinni er Imhotep ákveðinn í að ná tak- marki sínu sem er að vera ódauð- um Þessar legur. Nú er mundir. Rachel Welsz Ein bjartasta von Breta hann hins vegar ekki einn því annað illt afl hefur einnig risið upp frá dauðum og er jafnvel enn valdameira en Im- Egyptalands þar sem Sporðdreka- kóngurinn kemur til sögunnar. Brendan Fraser og Rachel Weisz eru ekki einu leikaramir sem núna eru aftur í framhaldinu, einnig er Tvær slást Mikiö er lagt í hópatriöin í The Mummy Returns eins og sjá má á myndinni sem sýnir tvær gyöjur slást. hotep. O’Conn- ell veröur þvi enn og aftur að bjarga heiminum og syni sínum áður en það er orðið of seint. Leiðin liggur því aftur til að finna ný andlit í hópnum. Skoski leikarinn John Hannah kemur aftur sem Jonathan, bróðir Evelyn, og Arnold Vosloo frá Suður-Afríku er Imhotep eins og í The Mummy. Vos- loo hefur auk þess leikið í nokkrum öðrum kvikmyndun en hann hefur einna helst leikið á leiksviði. Tveir leikarar í myndinni hafa vakið nokkra athygli en það er hinn níu ára Freddie Boath sem leikur Alex og glímukappinn The Rock sem leikur Sporðdrekakónginn. Freddie var valinn úr hópi á annað hundrað stráka og hafði hann að- eins leikið í skólaleikriti áður en hann kom fram í myndinni. The Rock eða Dwayne Johnson, eins og hann heitir í raun og veru, er einnig að stíga sín fyrstu skref á hvíta tjaldinu. Fjöldi annarra leikarar kemur einnig fram í myndinni sem gefur hinni fyrri ekkert eftir þegar kemur að tæknibrellunum. Aðsóknin á The Mummy kom að- standendum hennar mjög á óvart á sínum tíma og nú má segja að bros- ið fari ekki af andlitum þeirra þar sem The Mummy Retums sló að- sóknarmet í Bandaríkjunum fyrir tveimur vikum og er langvinsælasta kvikmyndin þessa dagana. Sömu fréttir bárust frá Ástralíu um helg- ina þar sem hún var frumsýnd. ís- lendingar láta yfirleitt ekki sitt eftir liggja þegar vinsælar kvikmyndir eru annarsvegar og því má búast við mikilli biósókn um helgina. -MA .4 Pay H Forward ★★★ Pay It Forward er svona „láttu þér líða vel“ ( feel good) mynd af gamla skólan- •s. um - andi Frank Capra svífúr yfir vötnun- um hér. Og það er ekkert nema gott um þaö að segja. Það er ekkert sérstaklega sennilegt . að dópistinn, sem Trevor gefur að borða, • gangi síðan af staö, hætti að dópa og bjargi lífi óhamingjusamrar kvensu - En (og það er : stórt en) maður verður bara að halla sér aft- ur og gefa góðmennsku og náungakærleika - sjens - hversu erfitt sem það er nú. Það sem reddar Pay It Forward frá því að vera til- finningasöm della eru þrír frábærir aðalleik- arar. -SG Lalli Johns ★★★ í myndinn fer Þorfinnur Guðnason með okkur í leiðangur um undirheima borg- j arinnar og kynnir okkur á skemmtilegan máta, ekki aðeins fyrir goðsagnapersónunni Lalla Johns, heldur mörgum öðram sem 1 eiga sér verri skuggahliðar en Lalli. Þetta er t forvitnilegur heimur þar sem allt snýst um | dóp og brennivin. Þorfinnur fer samt sem I áður þá skynsömu leið að sýna okkur um I leið muninn á veröld Lalla og veröld sem við § þekkjum. Merkileg heimildarkvikmynd sem X bæði skemmtir og fræðir. Get Over It: Ástarsorg í menntaskóla Gamanmyndin Get over it segir á spaugilegan hátt frá rómantísku vandamáli sem mennirnir hafa átt við að stríða allt frá þvi að fyrsta parið hætti saman - því hvemig á að komast af í heimi þar sem fyrr- verandi kærastan er alltaf til staðar og enn að heilla manni upp úr skón- um. Myndin verður frumsýnd á morgun í Regnboganum. Aðalpersóna myndarinnar er menntaskólaneminn Berke Landers sem á hina fullkomnu kærustu, hana Allison, sem hann er búinn að elska síðan þau voru ungbörn. Þeg- ar Berke kemur i menntaskóla lýk- ur hins vegar sambandinu og Alli- son nær sér fljótlega í aðalgaurinn í skólanum. Eina vandamálið er að Berke virðist ekki ætla að komast yfir þetta allt og sú eina sem gæti hjálpað honum er Kelly, litla systir hans. Flestir sem leika í myndinni eru að byrja að fóta sig á hvíta tjaldinu en Kristen Dunst, sem leikur litlu systur Berke, hefur leikið í fjölda kvikmynda þrátt fyrir ungan aldur. Meðal þeirra eru myndir á borð við The Virgin Suicides, Bring It On, Little Women, Jumanji og Interview with a Vampire. Meö hlutverk Berke fer Ben Foster sem vakti fyrst athygli þegar hann lék í mynd- inni Liberty Heights. Meðal ann- arra leikara má nefna Martin Short, Swoosie Kurtz og Carmen Electra úr Strandvörð- um. Einnig bregður fyrir tónlistarmanni, áströlsku súper- módeli og söng- konu. Leikstjóri myndarinnar er Tommy O’Haver og er þetta önnur myndin sem hann leikstýrir í fullri lengd því áður hafði hann aðallega leikstýrt stuttmyndum. Litla systir gæti hjálpaö Eina manneskjan sem gæti hjálpaö Berke aö komast yfir Aliison er litla systir hans.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.