Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2001, Qupperneq 28
Bílheimar
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
I hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Föst skot á
eldhúsdegi
Ögmundur Jónasson skaut fóst-
um skotum að Halldóri Ásgríms-
syni, formanni Framsóknarflokks, í
eldhúsdagsumræðum í gær, m.a.
vegna laga á verkfall sjómanna.
Einnig sagði Ögmundur Halldór
sleginn blindu þar sem hann sæi
ekkert nema mengandi álbræðslu.
Hann hvatti utanríkisráðherrann til
að sjá að sér.
Halldór svaraði fullum hálsi. Hann
benti á að síðustu sex ár hefði verið
lengsta samfellda hagvaxtarskeið ís-
landssögunnar. Kjör allra hópra
hefðu batnað á sama tíma og fjárhag-
ur ríkisins hefði styrkst. Hann sagði
stóriðjuframkvæmdirnar hafa byrjað
uppgangstímann og lýsti eftir vaxtar-
sprotum hjá VG. -BÞ
Ríkisútvarpið:
Fréttaverkfall
Fréttamenn Ríkisútvarpsins hafa
ákveðið að hefla undirbúning að boðun
verkfalls til að knýja á um bætt kjör:
„Við stefnum að tvisvar sinnum
tveggja daga verkfalli í lok júni. Við
skulum sjá hvað það gerir,“ sagði Jón
Gunnar Grjetarsson, formaður Félags
fréttamanna, í morgun. -EIR
Sigur Rós og
Stuttmyndir
1 Fókus á morgun er talað við Jónsa
i Sigur Rós um frægðina, lofið og aðdá-
endabréfm. Tekið er hús á Hallgrími
Helgasyni í rúmi hans og spjallað við
hann um konur, tantra og ríkisstjóm
líkamshlutanna. Hin sísyngjandi Þór-
unn Antonía Magnúsdóttir segir frá tón-
listinni og samstarfmu við pabba sinn.
Farið er í stúdíó hjá hinum eina sanna
Herbert og tekið hús á flottasta gang-
brautarverði borgarinnar, Jóni Ómari.
Lífsgátan er krufin í viðtölum við stelp-
ur sem lifa eftir stjömumerkjunum.
í Lífið eftir vinnu er fjaHað ítarlega
um Stuttmyndahátíðina og rætt við
unga og upprennandi kvikmyndagerð-
armenn. Þar er lika að finna allt sem
gerist um helgina.
- DV-MYND E.ÓL.
Heitir sjúkraliöar
Sjúkraliðum er heitt í hamsi og funduðu stíft í gær um kjaramál sín. I framhaidinu gengu þeir fylktu liði til móts við
stjórnarherrana til að ieggja áherslu á kröfur sínar um að við þá sé samið. í fararbroddi var formaður Sjúkraliðafélags-
ins, Kristín Guðmundsdóttir.
Alþingi svipti sjómenn verkfallsréttinum meö lagasetningu:
Sjómenn fari sömu
leið og öryrkjar
- og höfði einstaklingsmál, segir varaforseti Alþýðusambands íslands
Forsetar styðja sjómenn
Forsetar Alþýðusambandsins, þeir Grétar Þorsteinsson
og Halldór Björnsson, funduðu í gær með þingmönn-
um og ráðherrum vegna yfirvofandi lagasetningar á
sjómannadeilu. Hér sitja þeir ásamt leiötogum stjórn-
arandstöðunnar, þeim Guðjóni A. Kristjánssyni, Stein-
grími J. Sigfússyni og Össuri Skarphéðinssyni.
„Þetta er eins og í einræðisríki þar
sem stjómarherrar leyfa sér allan and-
skotann. Öllum er smalað undir lögin
þó þeir hafi ekkert af sér brotið," segir
Halldór Björnsson, varaforseti Alþýðu-
sambands íslands, um lögin sem sett
vora á verkbann útgerðarmanna og
verkfall sjómanna og tóku gildi í gær-
kvöld. Með lögunum lauk rúmlega 6
vikna verkfalii á nskiskipaflotanum og
tugir skipa héldu úr höfn eftir langt
stopp. Hart var tekist á um lögin á AI-
þingi í gær en þau síðan samþykkt
með 33 atkvæðum gegn 20. Líklegt er
að með lögunum fari sjómenn undir
vélstjórasamninginn og verði þannig
án verkfallsréttar í rúm fjögur ár.
Halldór varaforseti fordæmir lögin
og þá sérstaklega þann þátt þeirra að
sjómenn sem ekki era í verkfalli skuli
vera settir undir sama hatt og aðilar
að vinnudeilunni. Hann segir að for-
setar Alþýðusambandsins muni í dag
fara yfir málið með lögmönnum í þvi
skyni að finna leiðir.
„Með lögunum er gengið miklu
lengra en nokkra sinni áður. Þama
eru dregin inn félög sjómanna án þess
að þau hafi staðið í verkfalli og þau
svipt verkfallsréttinum. Ég veit ekki
hverju má eiga von á frá slikum stjóm-
arherrum. Þeim er trúandi til að setja
lög á hvem sem er hér eftir af hvaða
tilefhi sem er. Þetta snertir alla laun-
þega í landinu," segir Halldór sem
ásamt Grétari Þorsteinssyni, forseta
ASÍ, varaði þrjá ráðherra við að fara
þessa leið. „Þeir blésu á rök okkar og
nú er komið að því að svara þessum
ólögum," segir hann.
Halldór segir að meðal þeirra leiða
sem til greina komi sé að einstakir sjó-
menn fari sömu leið og öryrkjar og
höfði einstaklingsmál á hendur stjóm-
völdum. Þar vísar hann til sjómanna á
Vestfjörðum og Snæfellsnesi sem ekki
hafi verið í verkfalli en rói eigi að sið-
ur undir lögum.
„Allt eins má hugsa sér að Snæfell-
ingur eða Vestfirð-
ingur höfði mál á
hendur stjómvöld-
um. Allar leiðir verða
skoðaðar," segir Hall-
dór.
Grétar Mar Jóns-
son, forseti Far-
manna- og fiski-
mannasambandsins,
tekur í sama streng
og Halldór Bjömsson.
„Einn þeirra kosta
sem era í stöðunni er
að fara sömu leið og
öryrkjar og höfða mál
til að fá úr því skorið
hvort lagasetningin
stangast á við mann-
réttindasamþykktir
sem íslendingar era
aðilar að,“ segir hann.
Sævar Gunnarson, forseti Sjó-
mannasambandsins, var í morgun
ómyrkur í máli.
„Þetta er svívirða. Allt verður gert
til að hnekkja lögunum,“ sagði hann.
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna, segir stöðuna
vera dapurlega.
„Þetta er ekki það sem við vildum.
Við erum sem fyrr tflbúnir að semja og
viljum ekki gerðardóm," segir Friðrik.
-rt/EIR
Ekkert miðar í kjaradeilu Hlífar:
Hver dagur skiptir máli
- segir Halla Þórðardóttir aðstoðarskólastjóri
Enginn árangur náðist í kjaradeflu
Hlífar og launanefndar sveitarfélaga í
gær. Verkfall Hlífar sem hófst á mánu-
dag stendur þvi enn.
Grunnskólum í Hafharfirði var lok-
að í gær og rúmlega þrjú þúsund skóla-
börn sitja heima. Halla Þórðardóttir,
aðstoðarskólastjóri Lækjarskóla, sagði
í samtali við DV í gær að kennarar
væra við störf. „Allur tími er slæmur
þegar verkfóll eiga í hlut. Hjá okkur
hefðu próf átt að byrja í gær hjá ung-
lingadeildinni. Við tökum einn dag í
einu en það er alveg ljóst að ef verkfall-
DV-MYND HARI
Börnin heima
Halla Þórðardóttir, aðstoðarskólastjóri
Lækjarskóla, í eyðilegum skóla.
ið dregst á langinn þá verður alvarleg
röskun á öllu skólastarfi," sagði Halla.
Hún sagði jafnframt að endurskipu-
leggja yrði próftímann vegna verkfalls-
ins. „Hver dagur sem fellur niður í
skólastarfmu skiptir máli,“ sagði Halla.'
Um 200 eldri borgarar verða af
heimaþjónustu auk þess sem tvö mötu-
neyti eru lokuð. „Ástandið er afar al-
varlegt og margir eldri borgarar eiga
erfitt um vik. Það er slæmt að geta
ekki sinnt þessu fólki,“ sagði Kolbrún
Oddgeirsdóttir, deildarstjóri heima-
þjónustu í Hafnarfirði.
Næsti samningafundur í deflunni
hefur verið boðaður í fyrramálið. -aþ
Guðni Ágústsson:
Smásalan
tekur ærið
„Ég hef enga ástæðu til að biðja
neinn í smásölunni afsökunar á mínum
ummælum og hef aldrei átt orð við Finn
Ámason,“ sagði Guðni Ágústsson land-
búnaðarráðherra í samtali við DV í
morgun. Finnur Árnason, fram-
kvæmdastjóri Hagkaups, hefur látið
hafa eftir sér að landbúnaðarráðherra
skuldi Hagkaupsmönnum afsökunar-
beiðni vegna rangra ummæla hans um
álagningu á papriku sem meðal annars
séu afsannaðar í nýrri skýrslu Sam-
keppnisstofnunar um verðmyndun á
grænmeti.
„Það sem ég sagði á sínum tima þeg-
ar toflamir voru settir á lögum sam-
kvæmt 15. mars og Baugsmenn ruku
upp og héldu því fram að tollamir ættu
þá hækkun, að verðið færi úr 400 í 800
kr. á kg eins og Guðmundur Marteins-
son, framkvæmdastjóri Bónus, hélt
fram. Þá sagði ég það rangt - auðvitað
hækkuðu tollarnir verðið og einnig inn-
kaupsverðið erlendis. Svo hefur einnig
komið í ljós að smásalan tekur ærið í
sinni hlut,“ sagði Guðni. -sbs.
Gunnar Þór Gíslason:
Markmið Stoke
náðust ekki
„Menn eru mjög niðurdregnir í dag.
Við settum okkur markmið að komast
upp í 1. deild innan 2ja ára. í gærkvöldi
varð ljóst að það náðist ekki. Nú kemur
áflt tfl greina en klúbburinn heldur
áfram og verður hér á næsta ári. Sjálfur
er ég ekki tilfinningalega tilbúinn að
gera það upp við mig hvað helst kemur
tfl greina með næsta ár. Ég er gjörsam-
lega tómur," sagði Gunnar Þór Gísla-
son, stjómarformaður íslendingaliðsins
Stoke City, við DV í morgun.
Gunnar Þór sagði að mikið tilfmning-
arót væri á Stoke-mönnum i dag enda
tapaði liðið í gær, 4-2, gegn Walsall og á
því ekki möguleika lengur á að komast
upp um deild. „Við íslendingamir í
stjóm félagsins og stjórn Holdingfélags-
ins komum tfl með að hittast fljótlega og
fara yfir málin. -Ótt
Bensínverð:
Orkan lækkaði
Orkan hefur lækkað bensinverð frá
því í gær og selur nú lítrann af 95 okt-
ana bensíni á kr. 97,70 í stað kr. 98,30 i
gær, samkvæmt upplýsingum frá Félagi
íslenskra bifreiðeigenda i morgun.
Næstlægst er verðið hjá sjálfsafgreiðslu-
stöð Olís hjá Gullinbrú, kr. 97,90 lítrinn.
ÓB og Essó Express selja lítrann á kr.
98,50. Hæst er verðið á þjónustustöðvum
Essó og Shell, 102,90 lítrinn, en hjá þjón-
ustustöðvum Olís er hann krónu lægri
eða 101,90 kr. Bifreiðaeigendur virðast
meðvitaðir um að afla sér upplýsinga
um hvar hagstæðast sé að fylla á bens-
intankinn. Þannig era heimsóknir á
heimasíðu FÍB, sem birtir daglega nýj-
ustu verðtölur á bensíni, að meðaltali
um 16000 á dag. -JSS
Rafkaup
Ármula 24 • simi 585 2800
Kemísk WC
frá 10.900
EVRÓ
Grensásvegi 3
s: 533 1414
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4