Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2001, Qupperneq 4
4
MÁNUDAGUR 21. MAÍ 2001
Fréttir DV
Svört skýrsla Hollustuverndar:
Arnarnesvogur
er eiturpyttur
- arseník, tin og blý í voginum í hærri styrk en áður hefur þekkst. Frekari mælingar nauðsynlegar
Eiturefni á borð við arseník, kop-
ar, blý og ákveðnar tegundir tins
flnnast í umtalsverðu magni í
botnseti Arnarnesvogs í Garðabæ.
Þetta eru meðal annars niðurstöður
sýna sem tekin voru vegna fyrir-
hugaðrar landfyllingar í voginum
þar sem hugmyndin er að reisa
íbúðabyggð. Hollustuvernd telur að
fara þurfi mjög varlega við vinnu á
svæðinu til að eiturefni þaðan
mengi ekki víðar út frá sér. í erindi
til Skipulagsstofnunar vegna mats á
umhverfisáhrifum þessara fram-
kvæmda segir Hollustuvernd ríkis-
ins, sem vitnar til þessara mælinga,
að í voginum finnist flestar áður-
nefndar eiturefnategundir í hærri
styrk en áður hefur þekkst hér á
landi. Þá hefur þar greinst baneitr-
að tin sem ekki hefur verið mælan-
legt hér á landi fyrr. Eiturefni á
þessum stað má rekja til starfsemi
slippstöðvar við voginn og eins þess
að skolprör lágu þar út í til skamms
tíma.
Fyrirætlanir bæjaryfirvalda í
Garðabæ hafa meðal annars gengið
út á að hylja sjávarbotn undir átta
metrum af fyllingarnefni við núver-
andi skipakví. Þetta telur Hollustu-
vernd ágæta lausn til að gera meng-
unarefni á þessum stað óvirk. Hins
vegar hefur Hollustuvernd áhyggjur
af dýpkun Arnarnesvogs með dæl-
ingu þar sem slíkar aðferðir róta
upp botnsetinu og skapa hættu á að
mengunarefni berist út í vatnið.
„Einnig er spurning hvaða áhrif
langvarandi og tíðar siglingar sand-
dæluskips inn á voginn hafi á upp-
rót botnsets," segir í umsögn Holl-
ustuverndar.
Enn fremur bendir Hollustuvernd
á í umsögn sinni að greining á tini í
setinu valdi sérstökum áhyggjum.
Það er einkum TBT, efni sem inni-
heldur lífræn sambönd tins, sem
ástæða þykir að varast í þessu sam-
bandi. TBT hefur verið notað í skipa-
málningu til þess að koma í veg fyr-
ir gróðurmyndun á skipsskrokkum.
Þetta sé eitt eitraðasta efni sem til er
og geti haft áhrif á sumar lífverur
áður en styrkur þess í vatni verði
greinanlegur. Hér við land er til að
mynda víðtæk vansköpun nákuð-
ungs vegna þessa efnis.
„Þessar mælingar sem við höfum
nú í höndunum eru aðeins fyrsta
greining á málinu og þar kemur
fram að þetta eru hæstu gildi á um-
ræddum eiturefnum sem við höfum
séð í sjávarseti hér við land,“ sagði
Kristján Geirsson hjá Hollustu-
vernd í samtali við DV um þetta
mál. „Áður en farið er í frekari að-
gerðir teljum við hins vegar nauð-
synlegt að gerðar verði ítarlegri
mælingar viðar um Arnarnesvog-
inn.“ -sbs
Arnarnesvogurinn:
Sláandi niðurstöður
- segir bæjarfulltrúi
„Þessar niðurstöður um stöðu
mála í Arnarnesvoginum eru slá-
andi, en þó verður að taka fram að
aðeins er byggt á einu sýni úr skipa-
kvínni. Okkur ber að grennslast fyr-
ir um það áður en gripið verður til
aðgerða hversu útbreidd þessi efna-
mengun er í voginum, sérstaklega
með tilliti til TBT, sem er eins og
bent hefur verið á eitt eitraðasta
efni sem þekkist," sagði
Einar Sveinbjörnsson, bæj-
arfulltrúi Framsóknar-
flokksins í Garðabæ.
„Þetta snýst ekki aðeins
um efnamengun frá iðnað-
inum, sem áður fyrr var
mjög blómlegur við voginn,
heldur líka sjávarsetiö
framan við gömlu skólpút-
rásirnar sem góðu heilli
voru aflagðar í fyrra. Mæl-
ingar í Reykjavík hafa sýnt
styrk PCB framan við
skólprásir þar,“ sagði Einar
sem reifaði helstu niðurstöð-
ur skýrslunnar á bæjar-
stjórnarfundi í Garðabæ fyr-
Einar ir helgina. Hann hefur óskað
Sveinbjörnsson eftir því að málið verði tekið
upp á fundi bæjarráðs á morgun,
þriðjudag.
„Þar ætla ég að fara fram á að
frekari mælingar á útbreiðslu og
styrk mengunarefna verði fram-
kvæmdar í voginum. Það er nauð-
synlegt áður en menn fara að leyfa
landfyllingu þarna með tilheyrandi
hættu á uppróti botnsins á fram-
kvæmdatíma," sagði Einar. -sbs
Eftirspurn eftir vinnuafli:
Náð hámarki
Eftirspurn eftir vinnuafli hefur nú
náð hámarki. Samkvæmt vinnu-
markaðskönnun Þjóðhagsstofnunar í
apríl höfðu vinnuveitendur ekki hug
á að bæta við sig starfsfólki og segir
ÞH þetta í fyrsta skipti síðan 1996
sem fyrirtæki hafa ekki lýst vilja á
að bæta við sig fólki í aprílmánuði. I
apríl í fyrra vildu fyrirtæki ráða 900
manns.
Reyndar virðist núna vanta um
230 manns í byggingarstarfsemi á
höfuðborgarsvæðinu en á móti vildi
landsbyggðin fækka um 150 slíka og
hátt í hundrað manns úr öðrum iðn-
aði. Athygli vekur að verslun og veit-
ingarekstur virðast m.a.s. orðin of-
mönnuð á höfuðborgarsvæðinu. -hei
Bolungarvík:
Fyrirtækis-
stofnun var
frestað
— fundað í dag
Ekki var gengið frá stofnun nýs
fyrirtækis um rekstur rækjuverk-
smiðju í Bolungarvík á fóstudag
eins og vonir manna höfðu staðið
til. Var stofnfundi frestað fram yfir
helgi og líklegt að hann verði á
þriðjudag.
Um sex mánuðir eru liðnir síðan
Nasco komst í þrot en það olli
miklu atvinnuleysi í Bolungarvík.
Agnar Ebenesersson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri hjá Nasco og ein
helsta driffjöður að stofnun hins
nýja fyrirtækis, sagði að menn
þyrftu að fara betur yfir stöðuna.
„Þarna er verið að tala um háar
upphæðir sem breytast fljótt með
breyttu gengi. Menn eru að endur-
vinna þetta og klára að ganga frá
málum.“ Hann segir níu fyrirtæki,
félög og stofnanir standa að hinu
nýja fyrirtæki. Þar á meðal er fyrir-
tæki hans og Guðmundar Kr.
Eydals og AG-fjárfestingar sem er
stærsti einstaki aðilinn með um
31% hlut.
Þá eru veðkröfuhafar, Sjóvá-Al-
mennar, Byggðastofnun og Spari-
sjóður Bolungarvíkur, með 11, 12
og 16% hluti. Síðan kemur Verka-
lýðs- og sjómannafélag Bolungar-
víkur og Bolungarvíkurkaupstað-
ur, hvor aðili með 7,5% hlut. Þá
koma þrír aðrir aðilar með hver
sinn 5% hlutinn.
Fundur verður vestra í dag en
Agnar sagði ljóst að hvað sem gerð-
ist þá yrði það allavega ekki stofn-
fundur þó hann vildi ekki ræða það
frekar. Þar ræður þó trúlega mestu
gömul hjátrú um mánudag sem
sagður er til mæðu. -HKr.
Veörið i kvóld
Slydda og rigning
Útlit er fyrir noröan 8-13 m/s með slyddu eöa
rigningu norðvestan til og á annesjum
noröaustanlands. Annars staöar veröur vestan
og norövestan 5-8 m/s og skúrir. Léttir til á
Suöurlandi síödegis. Hiti 1-10 stig, mildast á
Suöurlandi.
Solargangur og sjávarföll
REYKJAVIK ÁKUREYRI
Sólarlag i kvöld 22.57 23.00
Sólarupprás á morgun 03.51 03.48
Sí°isflóó 17.34 22.07
Árdeglsflóó á morgun 05.48 10.21
Skýringar á veðurtáknum
^"^VINDÁTT '^vVINDSTYRKUR í metrum á sekúndu 10% HITI 10° nfrost & HEÍÐSKÍRT
43 Ð O
LÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAO SKÝJAÐ AtSKÝJAÐ
; j
RIGNING SKÚRiR SLYDDA SNJÓK0MA
*w 9 i* =
ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR POKA
Þungatakmarkanir í
Borgarfirði
Ágæt færö er á helstu þjóðvegum
landsins en þungtakmarkanir eru í gildi
á nokkrum malarvegum í
Borgarfirðinum. Vegir á miöhálendinu
eru allir lokaðir enn þá svo enn er ekki
ráðlegt að stefna för sinni þangað. Þaö
skaöar þó ekki að byrja aö skipuleggja
fjallaferðir sumarsins í huganum.
Mildast á Suðurlandi
Fremur hæg norðaustlæg eöa breytileg átt og smáskúrir á Norður- og
Austurlandi en léttskýjað vestan til og hiti 2 til 9 stig, mildast á
Suðurlandi.
Vindur:
5-7 m/s*
Hití 7° til 12“
Fiinmtudagiii
Vindur:
4-6 m/* \ /
Hiti 2“ til 9“ W
Vindur: ^ '
4-6 <n/s
Hiti 2° tíl 9°
Hæg breytileg átt,
léttskýjað og hitl 7 tll 12
stlg.
Hæg A- og NA-átt, skúrir
og hltl 2 til 9 stlg, mlldast
sunnan tll.
Hæg A- og NA-átt, skúrir
og hlti 2 tll 9 stlg, mlldast
sunnan tll.
Veðrið kl.
AKUREYRI alskýjaö 8
BERGSSTAÐIR rigning og súld 7
BOLUNGARVÍK alskýjað 6
EGILSSTAÐIR 7
KIRKJUBÆJARKL. rigning 6
KEFLAVÍK rigning 5
RAUFARHÖFN alskýjað 5
REYKJAVÍK rigning 5
STÓRHÖFÐI rigning 6
BERGEN skúr 9
HELSINKI skýjaö 9
KAUPMANNAHÖFN skýjað 15
ÓSLÓ skýjaö 12
STOKKHÓLMUR 14
ÞÓRSHÖFN alskýjað 8
ÞRÁNDHEIMUR skúr 8
ALGARVE þokumóöa 19
AMSTERDAM skýjað 14
BARCELONA skýjaö 22
BERLÍN léttskýjaö 16
CHICAGO skýjaö 14
DUBUN skýjaö 13
HALIFAX léttskýjaö 11
FRANKFURT léttskýjaö 19
HAMBORG skýjaö 13
JAN MAYEN snjóél -2
LONDON skýjaö 18
LÚXEMB0RG léttskýjaö 18
MALLORCA skýjaö 22
MONTREAL heiöskírt 16
NARSSARSSUAQ heiöskírt 8
NEWYORK skýjaö 14
ORLANDO hálfskýjað 20
PARÍS skýjað 18
VÍN hálfskýjað 19
WASHINGTON rigning 19
WINNIPEG 14
■: WtTri * í nj í; rmm ií;v 2 >! 11 ^ 3ii n ito