Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2001, Blaðsíða 8
8
MÁNUDAGUR 21. MAÍ 2001
Fréttir Z>V
Unnið af krafti við skipulagsvinnu Skuggahverfis neðan Lindargötu:
Lúxusíbúðir í þrem stór-
hýsum við Skúlagötuna
- framkvæmdir við fyrsta áfanga hefjast væntanlega í lok næsta árs
Unnið er af fullum krafti við
skipulagshugmyndir vegna bygging-
ar 250 lúxusíbúða á reit í Skugga-
hverfinu í Reykjavík, neðan Lindar-
götu, á svokallaðri Eimskipslóð. Það
svæði er í umsjá fyrirtækisins 101
Skuggahverfi hf. sem aftur er í eigu
Burðaráss hf„ fjárfestingarfélags
Eimskipafélagsins, og Þyrpingar hf.
Vonast er til að framkvæmdir geti
hafist þar á næsta ári.
Þá er einnig i gangi vinna vegna
hugmynda sömu aðila sem uppi eru
varðandi skipulag í efri hluta
Skuggahverfisins, í reit milli Lind-
argötu og Hverfisgötu. Fréttir um
að fækka þyrfti um 40 hús á svæð-
inu til að rýma fyrir nýrri byggð
ollu á dögunum nokkru uppnámi
íbúa í hverfinu.
Þrjú háhýsi við Skúlagötu
Nýju húsin munu setja mikinn svip á götumyndina.
Hugmyndir að nýju Skuggahverfi
Ráöageröir um aö fjartægja 40
gömul hús ollu nokkru uppnámi.
Sól- og
öryggisfilma
Ör uppbygging í Vogum á Vatnsleysuströnd:
Stórfjölgun íbúa og
fasteignamat hækkar
í samráöi
við íbúa
Ragnar Atli
Guðmunds-
son, fram-
kvæmdastjóri
fyrirtækisins
101 Skugga-
hverfi hf„ seg-
ir að hönnun
svæðisins og
væntanlegar
framkvæmdir
ofan Lindar-
götu verði í
fullu samráði
við íbúana.
Ragnar segir
enga frestun
vera á þeirri
vinnu en þó sé alls ekki verið að
þröngva neinu upp á fólk.
„Það er búið aö setja fram hug-
myndir en ekkert skipulag er þó
enn komið á svæðið.“
Rætt um uppkaupasjóð
Meirihluti íbúða á þessum reit er
í eigu einstaklinga. Rætt er um að
101 Skuggahverfi og Reykjavíkur-
borg myndi uppkaupasjóð og siðan
verði farið i viðræöur við eigendur
Byggðln hækkar
Þessi mynd sýnir vel afstööu nýju
bygginganna til næsta nágrennis.
Þrír 53 metra háir turnar teygja sig
litillega upp úr heildarmyndinni en
efst á Skólavöröuholtinu trónir svo
Hallgrímskirkja. Til hliöar má sjá
afstööu stórhýsanna til næstu húsa.
áhersla verður lögð á gæði þess
íbúðar- og þjónustuhúsnæðis sem í
boði verður. Þar megi finna marg-
þætta flóru atvinnu- og þjónustu-
húsnæðis í bland við fjölbreytta
íbúðabyggð. Hönnun hugmyndanna
hefur verið í höndum Þyrpingar hf„
Schmidt Hammer & Lassen, VSÓ-
ráðgjafar og Hornsteina arkitekta
ehf.
Fremst við Skúlagötu er gert ráð
fyrir þrem stórum húsum með allt
að 16-18 hæða turnbyggingum. Hæð
þeirra yrði um 53 metrar sem er
heldur hærra en hús sem þarna
hafa verið byggð á undanförnum
árum. -HKr.
íbúða um hugsanleg uppkaup á
markaðsverði. Skipulagsvinnan
mun síðan miðast við hvernig þeir
samningar ganga. Inni í myndinni
er líka að kaupa upp og endur-
byggja hús í einhverjum tilvikum á
þessum reit og selja síðan aftur.
250 lúxusíbúðir
Ragnar segir að framkvæmdir á
neðra svæðinu verði unnar í þrem
áföngum. í sumar er reiknað með að
deiliskipulag verði samþykkt fyrir
svæðið neðan Lindargötu. „Við
erum að vinna að því að geta hafið
framkvæmdir við fyrsta áfanga af
þremur í lok næsta árs. Alls verða
þar byggðar um 250 söluíbúöir. Það
er mikill áhugi á þessum íbúðum
sem verða lúxusíbúðir í hærri
gæðaflokki og væntanlega í dýrari
kantinum. Við reiknum með að
hver áfangi taki um eitt ár og verk-
inu ljúki því á þrem árum.“ Ragnar
segir að ef eftirspumin verði mjög
mikil þá verði væntanlega hægt að
flýta framkvæmdum.
Vin í miðri borg
í upplýsingum með hugmyndum
að nýju Skuggahverfi segir að þær
byggist á því að búa til græna vin í
miðborginni, þar sem sérstök
• Stórminnkar sólarhita
• Gerir sólabirtuna
miidari og þægilegri
• Útilokar nánast
útfjólubláa geisla og
upplitun
• Eykur öryggi í
fárviðrum og jarðskjálftum
• Eykur öryggi gegn innbrotum
• Brunavarnarstuðull er F 15
• Einangrar gegn kulda,
hita og hávaða
• Glerið verður 300% sterkara
• Minnkar hættu á
glerfiísum í andlit
• Gerir bílinn/húsið glæsilegra
GLÓIHF
Dalbrekku 22 • Kópavogi
sfmi 544 5770
DVWYND ÞORSTEINN G. KRISTJÁNSSON
Mikiö byggt
Hér eru tvö af mörgum húsum sem eru aö rísa i Vogum á Vatnsleysuströnd.
DV, SUDURNESJUM:____________ "
I Vogum á Vatnsleysuströnd hef-
ur verið mikil uppbygging og fjölg-
un íbúa undanfarið. Fyrir tveimur
árum var tekin sú róttæka ákvörð-
un að markaðssetja bæinn og hafa
áætlanir um fjölgun íbúa staðist og
skilað sér í fjölgun íbúa um 15% á
síðustu 4 árum auk þess sem fast-
eignamat hefur hækkað einna mest
í Vogunum af bæjum utan höfuð-
borgarinnar.
Byrjað var á að semja við íslenska að-
alverktaka um allar framkvæmdir, 140
lóðir og gatnagerð og siöan við Spari-
sjóðinn í Keflavík um Qármögnun fram-
kvæmda. Áætlunin gerði ráð fyrir leik-
skóla fyrir 1-6 ára böm og einsetinn
grunnskóla. Ákveðið var að hefja undir-
búning framkvæmda á 140 lóðum og má
segja að þær séu dreifðar um bæinn en
ekki um að ræða nýtt hverfi.
Að sögn Jóhönnu Reynisdóttur
sveitarstjóra hafa áætlanir gengið
upp í meginatriðum. Unnið er eftir
5 ára áætlun og fór fyrsta árið aðal-
lega i undirbúningsvinnu. Núna má
víða sjá hús í byggingu og sagði Jó-
hanna að fjölgun bæjarbúa væri
þegar farin að segja til sín þvi bæði
hreppsskrifstofan og grunnskólinn
væru aö sprengja utan af sér. Stefnt
er að því að litlir sem engir biðlist-
ar veröi á leikskólanum.
Nú bíða 30 umsóknir um byggingar-
leyfi afgreiðslu og segja má að 15-30
hús séu í byggingu á ýmsum stigum.
Kvaðst Jóhanna bíða spennt eftir vor-
inu og sjá þegar fleiri hús rísa. Hún
sagði að einkum væru það bamafjöl-
skyldur af höfuðborgarsvæðinu sem
flyttu í Vogana, fólk sem væri að upp-
götva hversu gott er að ala upp böm i
minni bæjum.
Einu vandkvæðin sem komið hafa
upp vom þegar bjóða átti út leikskóla-
byggingu en þá kom bara eitt tilboð
sem var 40% yfir kostnaðaráætlun.
Var því framkvæmdum frestað þar til
hagstæðari samningar náðust. Jó-
hanna sagðist vera ánægð með árang-
urinn en óhætt er að segja að töluverð
áhætta sé fólgin í því að fara þessa
leið. En þaö má ljóst vera að rétt
ákvöröun var tekin á réttum tíma því
árangurinn i Vogunum er býsna góð-
ur. -ÞGK