Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2001, Blaðsíða 28
Skálholt:
Vígslubiskup
beygður
„Auövitað hélt ég að þetta yrði
einfaldara - en einfóld mál geta
orðið ílókin. Við tökum niðurstöð-
unni hver sem
hún verður,"
sagði Sigurður
Sigurðarson,
vígslubiskup í
Skálholti og for-
maður skóla-
nefndar Skál-
holtsskóla, sem
enn á ný hefur
áréttað þá skoð-
un sína að Guð-
mundur Einarsson verði ráðinn
rektor á staðnum.
Ráðningarmál rektorsins eru nú
í höndum Kirkjuráðs sem sendi
málið aftur til skólanefndarinnar
með ósk um aðra niðurstöðu en
Guðmund Einarsson. Skólanefndin
áréttaði þá skoðun sina að hún
vildi Guðmund sem rektor og þá
Áma Svan Daníelsson til vara.
Meðal annarra umsækjenda er
séra Bemharður Guðmundsson,
mágur herra Karls Sigurbjörnsson-
ar biskups. Vegna þess vék biskup
sæti i Kirkjuráði og séra Bolli
Gústafsson kom i hans stað.
-EIR
era
'igurð
Sigurðarson.
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá T síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
OV-MYND ÓMAR
Dýrasti bíll Is-
landssógunnar
Dýrasti bíll á íslandi fyrr og síðar
kemur tU landsins í dag. Um er að
ræða samvinnu Bílabúðar Benna og
DV Sportbílasýningarinnar.
Bíllinn sem um ræðir er Porsche
Carrera GT sem kostar um 200
milljónir króna án vörugjalda. Til-
efni komu þessa bíls er DV Sport-
bílasýningin sem verður í Laugar-
dalshöll 24.-27. maí þar sem bíllinn
verður til sýnis en bílnum fylgir
sýningarkerfi frá Porsche og kemur
bíllinn í sérstökum flutningagám
þar sem réttu hita- og rakastigi er
haldið stöðugu.
Þetta er einungis i þriðja sinn
sem bíllinn er sýndur í heiminum
en hann var frumsýndur í París í
haust og sýndur i Los Angeles í jan-
úar. Bíllinn er handsmíðaður til-
raunabill frá Porsche og hefur verið
ákveðið að hefja framleiðslu á hon-
um árið 2003.
Eftir því sem næst verður komist
var útsendingarbíll ÍÚ dýrastur
fram til þessa en hann kostaði um
70 milljónir.
MTm***. Grensásvegi 3
ElrffU s: 533 1414
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
Þroskaþjálfadeilan:
Haf og himinn
skilur á milli
Samninganefndir Reykjavíkurborg-
ar og Þroskaþjálfafélags Islands hafa
verið boðaðar til ríkissáttasemjara i
dag. Haf og himinn aðskilja samn-
inganefndir þroskaþjálfa og Reykja-
víkurborgar í yfirstandandi kjara-
deilu. Þroskaþjálfar fara fram á að
byrjunarlaun þeirra hækki úr 100
þúsund krónum í 155 þúsund. Reykja-
víkurborg býöur 131 þúsund við
samning. Þroskaþjálfar, sem eru með
um 109 þúsund eftir 18 ára starf, fara
fram á 174 þúsund rúm. Borgin býður
148 þúsund við samning. Yfirþroska-
þjálfar fá nú nær 118 þúsund. Þeir
fara fram á 190 þúsund. Borgin býður
159 þúsund við samning. Forstöðu-
þroskaþjálfar hafa um 127 þúsund
krónur. Þeir fara fram á tæplega 209
þúsund. Borgin býður tæplega 169
þúsund krónur. Síðan eru áfanga-
hækkanir um 3 prósent um hver ára-
mót á samningstímanum til og með
ársins 2004. Að auki bauð borgin að
árið 2002 færu þroskaþjálfar inn í
starfsmat. Það yrði notað til enn frek-
ari leiðréttingar ef kæmi t ljós að störf
þeirra væru verulega vanmetin. Hins
vegar myndi enginn lækka í launum
við starfsmat, að sögn Birgis Björns
Sigurjónssonar, formanns samninga-
nefndar Reykjavíkurbörgar. Þroska-
þjáifar hafa hafnað starfsmatinu.
Nánar á bls. 2 -JSS
KEIKÓ HEIM!
Smábátadeila í flokksnefnd Framsóknar:
Skerpir átakalínurnar
Búist er við að deilan um kvóta-
setningu smábáta muni skila sér af
talsverðum þunga inn í sjávarút-
vegsnefnd Framsóknarflokksins
sem nú er að hefja störf og torvelda
nokkuð störf hennar þar sem
ágreiningsmál hafi skerpst til nokk-
urra muna. Sjónarmið kvótakerfls-
ins hafa verið sterk innan Fram-
sóknar en nú hafa með Kristni H.
Gunnarssyni komið inn og eflst
sjónarmiö í flokknum sem eru gagn-
rýnin á kvótakerfið.
Framsóknarmenn eru með sjáv-
arútvegsmálin í endurskoðun eftir
flokksþingið og á
nefnd flokksins
að skila af sér í
nóvember. Fram
hefur komið að
málamiðlunartil-
laga, sem komin
var fram á laug-
ardaginn og sner-
ist um að smábát-
ar yrðu kvótasett-
ir en fengju á
móti aukinn kvóta, strandaði á því
að Kristinn H. Gunnarsson vildi
ekki samþykkja hana. í samtali við
'SS
Kristlnn H.
Gunnarsson.
DV í gærkvöldi og í morgun hafa
framsóknarmenn bent á að með
þessari afstöðu hafi Kristinn tekið
sér stöðu sem mjög harður talsmað-
ur smábátasjónarmiða í Framsókn-
arflokknum og þannig undirstrikað
sérstöðu sína gagnvart flokksforust-
unni þegar kemur að sjávarútvegs-
málum. Eftir þetta séu andstæður
mun skarpari en áður og telja menn
að það muni skila sér inn í störf
nefndar flokksins. Enn hefur ekki
verið gefið upp hver á að leiða þessa
mikilvægu nefnd Framsóknar-
flokksins. Sjá einnig bls. 4 -BG
ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2001
Þrír af fimm skipverjum á Gandí sem lögðu upp með Keikó í morgun.
Sigtryggur Þrastarson skipstjóri, Ásgeir Þorvaidsson og Heimir Guömundsson.
Farið var með háhyrninginn Keikó á hvalaslóðir í morgun:
Keikó hefur kostað
um milljarð í Eyjum
- til greina kemur að Keikó verði áfram hér við land
Fimm manna áhöfn línubátsins
Gandís VE sigldi úr höfn i Vest-
mannaeyjum í morgun til að fylgja
háhyrningnum Keikó út fyrir Eyj-
ar til að freista þess að sleppa hon-
um út í náttúruna. Starfsmenn
Ocean Future-samtakanna verða
einnig á bátnum sem hefur verið
leigður í sumar til að ljúka verk-
efninu. Talsmenn samtakanna
sögðu í morgun að takist það ekki
sé ekki útilokað að Keikó verði
fundinn annar staður viö Eyjar
eða annars staðar hér við land
enda hafa samtökin skuldbundið
sig til að annast háhyrninginn til
dauðadags hans ef því yrði að
skipta geti hann ekki aðlagast
náttúrunni á ný.
Keikó kom hingað til lands í
september 1998. Kostnaður hefur
verið um 30 milljónir á mánuði við
að líta eftir honum, fyrir utan
sjálfa kvfna sem kostaði 60-70
Um 30 manns hafa haft vinnu
við að líta eftir háhyrningnum á
mánuði en sú tala mun lækka ef
verkefnið tekst ekki. Ocean Fut-
ure-samtökin verða að öllum lík-
indum farin úr Klettsvík i Vest-
mannaeyjum fyrir haustiö en þar
er fyrirhugað að koma upp laxeldi.
„Það er Ijóst að laxeldið og
Keikó fer ekki saman. En Vest-
mannaeyjar eru einn af þeim stöð-
um sem til greina koma takist
ekki að sleppa Keikó i sumar. Auð-
vitað vildum við að þá yrði hann
hér á íslandi en sem stendur ein-
beita menn sér að því að koma
Keikó út í náttúruna," sagði HaU-
ur Hallsson, talsmaður Ocean Fut-
ure-samtakanna viö DV i morgun.
í sumar verður þyrla einnig not-
uð til að leita að háhyrningum i
því skyni að koma Keikó mark-
visst í samband við slikar vöður.
-Ótt/ÓG
Keikó
Frelsi í boði.
milljónir. Heildarkostnaður hér er
því kominn í um milljarð.
FRJÁLST, OHÁÐ DAGBLAÐ