Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2001, Page 4
4
FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2001
Fréttir DV
Annar þeirra sem lagði eld að stigagangi fjölbýlishúss við Flúðasel og víðar í vetur:
Bjóst við að fjöldi
manns myndi deyja
- hugðust einnig taka rafmagnið af öllu Breiðholtinu með skemmdarverkum
„Adrenalínkikk“ og fiðringur um líkamann í mínútu
Geölæknir sagöi þennan pilt hafa sagt sér aö þegar hann vann skemmdar-
verk á símaboxi, sem hann og félagi hans héldu vera rafmagnskassa, heföi
hann fengiö fiöring og „adrenalínkikk
18 ára piltur sem átti aðild að
þremur íkveikjum í stigagöngum
fjölbýlishúsa í Breiðholti í vetur
sagði fyrir dómi í gær að hann hefði
búist við að „fjöldi manns myndi
deyja“ áður en hann og félagi hans
helltu bensíni í teppi stigagangsins
við Flúðasel 40 aðfaranótt 2. nóvem-
ber í vetur. Þar voru 22 íbúar, flest-
ir sofandi. Eftir að piltamir kveiktu
í óku þeir á bíl upp á Vatnsenda-
hæð, þar sem gott útsýni er yfir að
Flúðaseli. Þar sátu þeir inni í bíl og
fylgdust með á meðan reykur steig
upp frá húsinu og slökkvilið var að
koma á vettvang. Eftir það óku þeir
yfir hæðina og áleiðis að Hafnar-
firði þannig að þeir sæjust ekki.
Óttar Sveinsson
blaöamaður
Þegar Guðjón Marteinsson hér-
aðsdómari spurði hinn 18 ára pilt að
því hvort hann hefði ekki hugsað
um að hann væri að leggja fjölda
fólks i lífshættu svaraði hann: „Ég
fékk nagandi samviskubit." Piltam-
ir tveir reyndu engu að síður að
villa um fyrir lögreglu.
100 stiga hiti í Flúðaseli
Sömu nótt og piltarnir tveir
kveiktu í við Flúðasel helltu þeir
tvígengisolíu í sorptunnu í rusla-
geymslu fjölbýlishússins við Völvu-
fell 48.1 því tilviki eru þeir ákærðir
fyrir að stofna lífi 24 íbúa, sem flest-
ir voru sofandi, í bersýnilegan
háska.
Þremur vikum eftir íkveikjurnar
tvær rannsakaði lögreglan málin af
fullum þunga. Þá ákváðu piltarnir
tveir að kveikja í þriðja stigagangin-
um, við Unufell 21, þar sem annar
þeirra býr, í því skyni að beina grun
lögreglunnar frá þeim sjálfum. Á end-
anum ákvað annar piitanna engu að
íkveikja i Flúöaseli vegna
hefndarhugar
Fyrir dóminum í gær kom fram aö
eldri sakborningurinn, sem er til
hægri á bak viö úlpu, hafi viljaö
kveikja í viö Fiúöasel þar sem fólkiö
þar heföi lagt fjölskyldu hans í ein-
elti. Maöurinn er í fylgd fangavaröar
sem er til vinstri á myndinni.
síður að byrja að leysa frá skjóðunni.
í ákæru er piltunum gefið að sök
að hafa með þessum þremur brenn-
um stofnað lífi samtals 67 íbúa í
Breiðholti í lífshættu með augljósri
hættu á meira eignatjóni. í Flúða-
seli kviknaði mikill eldur en mildi
þótti að hann slokknaði vegna súr-
efnisskorts. Hitinn í stigaganginum
þar var um 100 stig eftir að eldurinn
slokknaði - nægilegur til að geta
bakað marenstertubotn í, að sögn
Kolbrúnar Sævarsdóttur, sem sækir
málið af hálfu ríkissaksóknara. I
Völvufelli og Unufelli slökkti
slökkvilið eldana.
Ákváðu „að gera skandal"
En hvernig datt piltunum í hug
að kveikja í? Fyrir dóminum í gær
kom fram að i Flúðaseli hafi verið
um hefndarhug eldri piltsins að
ræða. Hann sagði í gær aö fólkið í
stigaganginum í Flúðaseli hafi lagt
fjölskyldu sína í einelti. Hann er
fæddur árið 1980 og kvaðst sá yngri
líta á hann sem stóra bróður. Geð-
læknir sagði hann m.a. haldinn and-
félagslegri hegðun.
Þegar yngri pilturinn var spurð-
ur að því hvernig íkveikjurnar
komu til í fyrstu sagði hann þá fé-
laga hafa verið að dreifa dagblaðinu
Degi í vesturbænum. Þeir hefðu
ákveðið að „gera skandai". „Það
endaði bara með því að þetta fór
svona,“ sagði hann. Þegar pilturinn
var spurður hvað hann ætti við með
að gera skandal svaraði hann: „Til
að fá athygli og svona.“
Ætluðu aö taka rafmagnið af
öllu Breiðholtinu
Nokkrum dögum áður en
íkveikjurnar í Flúðaseli og Völvu-
felli áttu sér stað opnuöu piltamir
símatengiskáp við Vesturberg. Þar
héldu þeir að um rafmagnsskáp
væri að ræða enda kom fram í
máli þeirra að þeir hafi ætlað sér
að taka rafmagnið af öllu Breið-
holtinu. Þeir settu kaðal utan um
kapla í skápnum, bundu hann í bíl
sem þeir voru á og óku honum af
stað með þeim afleiðingum að
kaplarnir rifnuðu úr sambandi og
skemmdust.
Fékk líkamsfiðring í eina
mínútu
Varðandi skemmdarverkin
sagði Tómas Zoéga geðlæknir, sem
kom fyrir dóminn, m.a. að yngri
pilturinn hefði sagt við sig, að
hann hefði fengið „fiðring um lík-
amann“ i eina mínútu. Hann hefði
einnig fengið „adrenalínkikk" - á
svipaðan hátt og þegar hann var
áður að brjótast inn í bíla.
Geðlæknirinn sagði að ekkert
benti til þess hjá piltunum að þeir
væru haldnir pýrómaníu, það er
íkveikjuáráttu.
Ákæruvaldið krefst þess að pilt-
arnir verði dæmdir til refsinga.
Eldri pilturinn hefur setið í gæslu-
varðhaldi frá í desember en sá
yngri, sem var 17 ára þegar verkn-
aðirnir voru framdir, hefur gengið
laus. Verjendur piltanna fara fram
á að dómurinn dæmi vægustu refs-
ingar sem lög leyfa. Við réttar-
haldið í gær kom fram að í hlið-
stæðum sakamálum hefur áður
verið dæmt 2ja ára fangeisi sem er
lágmark ef um augljósa almanna-
hættu er að ræða.
Dregiö hefur úr viðskiptahallanum
Aukinn álútflutningur talinn helsta
skýringin.
Vöruskiptajöfnuður:
Hefur skán-
að um 2,7
milljarða
- frá áramótum
í aprílmánuði voru fluttar út vör-
ur fyrir 15,8 milljarða króna og inn
fyrir 13,6 milijarða króna fob. Vöru-
skiptin í apríl voru því hagstæð um
2,2 milljarða en i apríl í fyrra voru
þau óhagstæð um 2,1 milljarð á
föstu gengi samkvæmt tölum Hag-
stofu íslands. Eru umskiptin helst
rakin til aukins útflutnings á áli.
Dregið hefur úr vöruskiptahalia
það sem af er árinu miðað við árið í
fyrra. Fyrstu íjóra mánuði ársins
voru fluttar út vörur fyrir 61,2 millj-
arða króna en inn fyrir 66,3 millj-
arða króna fob. Halli var því á vöru-
skiptunum við útlönd sem nam 5,1
milljarði króna en á sama tíma árið
áður voru þau óhagstæð um 7,8
milljarða á fóstu gengi. Miðað er við
meðalgengi á vöruviðskiptavog en
þar er meðalverð erlends gjaldeyris
12,4% hærra mánuðina janúar-apr-
íl 2001 en sömu mánuði fyrra árs.
Fyrstu fjóra mánuði ársins var
vöruskiptajöfnuðurinn því 2,7 millj-
örðum króna skárri en á sama tíma
í fyrra.
Verðmæti vöruútflutnings fyrstu
fjóra mánuði ársins var 8,8 milljörð-
um eöa 17% meira á fostu gengi en
á sama tíma árið áður. Aukningin
stafar að stórum hluta af útflutningi
á áli og auknum skipaútflutningi.
Sjávarafurðm voru 61% alls útflutn-
ings og var verðmæti þeirra 8%
meira en á sama tíma árið áður.
Aukningu sjávarafurða má einna
helst rekja til aukins útflutnings á
fiskimjöli.
Aukning var líka í verðmæti
vöruinnflutnings fyrstu fjóra mán-
uði ársins. Nam hann 6,1 milljarði
eða 10% meira á föstu gengi en á
sama tíma árið áður. Aðallega má
rekja vöxtinn til aukins innflutn-
ings á hrávörum og rekstrarvörum
og aukinna kaupa á flugvélum.
-HKr
Veöriö i kvöld
Léttskýjað víða á landinu
NV 8 til 13 m/s og skúrir verða á
norðausturhorninu fram eftir morgni en annars
norðlæg átt, 5 til 8, og víöast léttskýjað þegar
líöur á daginn. Hiti 4 til 12 stig, mildast á
Suðurlandi.
SH
Sólargangor og sjávarföll
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag i kvöld 23.31 23.54
Sólarupprás á morgun 03.20 02.28
Síödegisflóð 15.06 19.39
Árdegisflóó á morgun 03.23 07.56
Skýrlngar á veðurtáknum
^VINDATT ÍOV-H'TI
-10“
•VINDSTYRKUR VDn
I metrum S sokiindu
HEIÐSKÍRT
ÍD £5ÍO:
IÉTTSKYJAD HALF-
SKÝJAO
SKYJAÐ ALSKYJAÐ
V.v O? íi
RIGNING SKÚRIR
SNJÓKOiYIA
-h
ÉUAGANGUR Í>RUMU SKAF- ÞOKA
VEÐUR RENNiNGUR
MB—I
Vegir landsins
Upplýsingar um færð og ástand vega,
ásþungatakmarkanir, lokanir á vegum
og hvar vegaframkvæmdir standa yfir er
að finna á heimasíðu Vegagerðarinnar
eða í þjónustusíma hennar.
Skýjað með köflum austanlands
Suðvestan 5 til 8 m/s og dálítil rigning eða súld verður vestan til, en
skýjað með köflum um landið austanvert á morgun. Hiti 4 til 12 stig,
mildast austanlands.
Lauigard,
mf.
: J
m/í—'
Hiti 6” til 14°
Vindur:
5—8 m/i
Suövestan og vestan 5 til
8 m/s og rlgnlng eöa súld
vestan og sunnan tll, en
annars hæg breytileg átt
og skýjaö með köflum.
Surrnud.
Vindur:
3-5 m/s
1
Híti 4° tit 13'
Fremur hæg norölæg átt
noröan til og dálitlar skúrlr
en hæg austlæg eöa
breytlleg átt og bjart veöur
sunnanlands. Hiti 4 tll 13
stig, hlýjast sunnanlands.
Hiti 3°til 11'
Norövestlæg átt og rigning
viðast hvar á landinu.
Heldur kólnandi.
KSAtAM:fl IIÍIÉSÖ • ' -
AKUREYRI alskýjaö 2
BERGSSTAÐIR skýjaö 2
BOLUNGARVÍK skýjaö 2
EGILSSTAÐIR 3
KIRKJUBÆJARKL. skýjað 4
KEFLAVÍK skýjaö 5
RAUFARHÖFN súld 1
REYKJAVÍK skýjað 4
STÓRHÖFÐI alskýjaö 6
BERGEN 10
HELSINKI léttskýjaö 12
KAUPMANNAHÖFN þokumóöa 12
ÓSLÓ 10
STOKKHÓLMUR 12
ÞÓRSHÖFN skýjað 8
ÞRÁNDHEIMUR skýjað 10
ALGARVE léttskýjaö 20
AMSTERDAM hálfskýjaö 14
BARCELONA mistur 19
BERLÍN skýjað 10
CHICAGO rigning 11
DUBLIN súld 12
HALIFAX skúrir 10
FRANKFURT léttskýjaö 11
HAMBORG skúrir 12
JAN MAYEN skýjaö 0
LONDON alskýjaö 11
LÚXEMBORG skýjaö 9
MALLORCA heiöskírt 20
MONTREAL heiöskírt 9
NARSSARSSUAQ alskýjaö 6
NEW YORK hálfskýjaö 14
ORLANDO léttskýjaö 22
PARÍS hálfskýjaö 12
VÍN léttskýjað 14
WASHINGTON hálfskýjað 10
WINNIPEG þoka 10