Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2001, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2001, Side 12
12 FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2001 Skoðun íslendingar á ofur- skákmóti í Makedóníu Evrópumót einstaklinga í skák fer fram í Ohrid í Makedóníu frá 1. til 15. júní nk. Fjórir íslenskir skákmenn taka þátt í mótinu sem er eitt hið öfl- ugasta sem haldið hefur verið í Evr- ópu. Meðal fulltrúa íslands eru merk- isberar nýrrar kynslóðar skákmanna og markar þátttaka þeirra i þessu sterka móti viss tímamót í íslensku skáklífi. Eftir breytingar á mótakerfi FIDE er Evrópukeppnin orðin eitt af mikil- vægustu mótum skákheimsins. Þar mun það ráðast hvaöa 46 evrópskir skákmenn fá þátttökurétt á næsta heimsmeistaramóti FIDE enda streymdu flestir af sterkustu skákmönnum Evrópu á mótsstað í Makedóníu. Ríflega 200 stórmeist- arar taka þátt auk fjölda „minni spámanna". Fulltrúar íslands á mótinu eru þeir Hannes Hlífar Stefánsson stórmeistari, Stefán Kristjánsson, Jón Viktor Gunnarsson, alþjóðlegur meistari, og Bragi Þorfmnsson. Hannes Hlífar Stefánsson stórmeistari hefur að undan- fórnu sýnt og sannað að hann er einn öflugasti skák- maður sem ísland hefur alið. Eftir gott gengi á síðasta ári reiknast hann nú með 2570 Eló-stig. í síðasta mánuði sigraði hann á skákmóti í Egyptalandi og fylgdi þeim góða árangri eftir með því að hafna í öðru sæti á sterku móti sem haldið var á Kúbu til minningar um skákmeistarann Capablanca. Hannes Hlífar nálgast nú ört 2600 Eló-stiga múrinn og mun án nokkurs vafa gera harða atlögu að tryggu sæti á næsta heimsmeistaramóti meðal 46 öflugustu skák- manna Evrópu. Bragi Þorfinnsson, Jón Viktor Gunnarsson og Stefán Kristjánsson eru meðal okkar efnilegustu ungu skák- manna. Þátttaka þeirra í þessu sterka móti markar viss þátttaskil í íslensku skáklífi og ber vott um þau kyn- slóðaskipti sem fram undan eru. Jón Viktor er þegar orðinn alþjóðlegur meistari og hefur verið í Ólympíuliði Islands á tveimur síðustu mótum. Fram undan er þvi afar spennandi mót sem allir ís- lenskir skákáhugamenn ættu að fylgjast grannt með. Það er gömul og ný reynsla að þegar íslenskum skák- mönnum gengur vel á alþjóðavettvangi vex almennur áhugi meðal yngri kynslóða og enn fleiri en ella ganga þessari hollu listrænu íþrótt á hönd. Skákin hefur því sannarlega uppeldisgildi. Það er því margfold ástæða til að styðja við bakið á þeim skákmönnum sem nú eru fyr- Hannes Hlífar Stefánsson skákmaður. - „Nálgast nú ört 2600 Eló-stiga múrinn. “ „Bragi Þorfinnsson, Jón Viktor Gunnarsson og Stefán Kristjánsson eru meðal okkar efnilegustu ungu skákmanna. Þátttaka þeirra í þessu sterka móti markar viss þáttaskil í íslensku skáklífi og ber vott um þau kynslóðaskipti sem fram undan eru. “ ir hönd þjóðar sinnar að þreyta spennandi þolraun við erlenda kappa við skákborðið í Makedóníu. Áhugamönnum er bent á að hægt er að nálgast allar upplýsingar um Evrópukeppnina, m.a. úrslit og beinar útsendingar frá mótsstað, á heimasíðu mótsins http:/www.iecc2001.com.mk/ Hrannar Björn Arnarsson, forseti Skáksam- bands íslands, skrifar: Nekt og skít úr höfuðborginni Spurning dagsins Hver er eftirminnilegasti dagur í lífi þínu? Oýrleif Hallgrímsdóttir: Þaö er giftingardagurinn minn, 3. júní. Yndislegur dagur. Brynjar Mittinisson nemi: Á jólunum þegar ég var 7 ára, þá fékk ég allar óskagjafirnar mínar. Sandra Bjarnadóttir nemi: Þaö er aö vísu allur tíminn sem ég varöi á Mallorca í fyrra. Gylfi B. Einarsson: Dagurinn sem Eimskip keypti hlutabréfin mín í Flugleiöum. Kristín Þorsteinsdóttir nemi: Þaö er 31. mars, dagurinn sem ég kynntist kærastanum mínum. Hafdís Betty Helgadóttir nemi: Þaö er fermingardagurinn minn, 22. apríl. Runóifur skrifar: Ég, sem innfæddur Reykvíkingur og hef alið mestallan aldur minn hér á landi (að undanskildum tveimur árum), er ekki stoltur af borginni okkar. Og það er sárt að þurfa að viðurkenna það. Fyrir það fyrsta er það óþrifnaðurinn sem er að ríða borginni á slig. Bæði í mið- borginni og í mörgum ibúagötum, ekki síst í gamla bænum, allt vestur að Hringbraut, eru götur og gang- stéttir illa þrifnar með arfa og ill- gresi við gangstéttarbrúnir og stífl- uð ræsi. En á síðustu árum hefur bæst við óþrifnaður sem flestum ibúum er „Eigum við nú ekki að láta málið verða kosningamál í nœstu borgarstjórnarkosn- ingum ? Sá flokkur eða frambjóðendur sem skýrast ganga fram og berjast fyrir lokun þessara staða munu fá mikið fylgi. “ ekki kærkominn. Ég á viö kynóra- klúbbana og þá starfsemi sem þar fer fram. Það er ekki nóg að skrifa pistla og gagnrýna „kynlífskarlana" sem þeim stjórna og reka „úrsúl- urnar“ áfram, það verður engin breyting á þeirra lifsstíl eða löngun til að græða á soranum. Slíkir karl- ar og konur verða sífellt til. Það á aö gagnrýna Reykjavíkur- borg - borgarstjórnina - fyrir að leyfa þessa starfsemi yfrleitt. Eng- inn væri kynóraklúbburinn ef borg- arstjóm hefði ekki gefið samþykki sitt fyrir starfseminni. Eigum við nú ekki að láta málið verða kosningamál í næstu borgar- stjórnarkosningum? Sá flokkur eða frambjóðendur sem skýrast ganga fram og berjast fyrir lokun þessara staða munu fá mikið fylgi. Hreinsun borgarinnar er stórmál. - Höldum Reykjavík hreinni, yst sem innst... Garri Þetta eru asnar, Kristján Garri hlustaði með athygli í gær á fréttir af því hvernig skilningsleysi og fjárskortur er bókstaflega að leggja íslenskt menningarlíf á hliðina. Stundum mætti halda að í anda væru íslendingamir enn sömu kotbændumir og þeir vom fyrir 350 áram og sitji fastir í moldarkofahugsunarhættinum þar sem allt frumkvæði, áræði og dirfska er drepin í dróma. Einn af landsins allra dýrmætustu sonum, Kristján Jó- hannsson, var búinn að hafa fyrir því aö leggja drög að miklum óperuflutningi á íslandi á listahátið, þar sem sýnd yrði vestra-óperan La Fanciulla del West eftir sjálfan Pucchini. Þetta mun vera ópera sem ger- ist í villta vestrinu og krefst margra söngvara og mikillar breiddar. Kristján var búinn að setja sjálfan sig og Kristin Sigmundsson í stór hlutverk, auk þess sem hann var búinn að fá Höllu Margréti til að vera meö, sem og Öm Árnason og fleiri. Allt eru þetta, sem kunnugt er, stórvinir Kristjáns og þau Halla Margrét og Örn Árna komu t.d. fram með honum á tónleikum á Akureyri á dögunum. Þess utan var Kristján búinn að tala við breskan leikstjóra og vin sinn vegna kaupa á uppfærsu hans á verkinu og sið- ast en ekki sist var Kristján búinn að fá eiginkonu sína, leikkonuna Sigurjónu, til að leikstýra verkinu. Áhugaleysi Hugmyndin var að setja þessi herlegheit upp i sam- vinnu við Þjóðleikhúsið, íslensku óperana og Listahá- tíð og til að gera langa sögu stutta þá var ekki áhugi fyrir málinu hjá Listahátíö eða í Þjóðleikhúsinu. ís- lenska óperan tók hins vegar erindinu vel en átti bara enga peninga til að borga stórmennum fyrir upp- færsiu af þessu tagi. Þessi neikvæðni og molbúaháttur kemur Garra satt að segja ekki á óvart því hann hef- ur sjálfur reynt það á eigin skinni hve þröngsýnar listaklíkurnar á íslandi era og hve fastheldnar þær eru á þá peninga sem þær fá til ráðstöfunar ár hvert. Þannig var það fyrir nokkrum misserum að Garri var tilbúinn að setja upp ópera eftir frægt tónskáld og fór einmitt með þessa hugmynd til Þjóðleikhússins, Lista- hátíðar og Óperunnar. Ekki vantaði að búið væri að skipuleggja þetta mál út í æsar. Þannig hafði Garri séð sjálfan sig fyrir sér í hlutverki hetjutenórsins í stykkinu og Nonni, sem spilar fótbolta með Garra, var tilbúinn að taka að sér stórt bassahlutverk. Þá var Garri líka búinn að tala við strákana í fluguhnýt- ingaklúbbnum sem allir voru til í að syngja kóra óp- erunnar. Sigga frænka og stelpumar hennar þrjár, sem allar hafa gengið í tónlistarskóla, ætluðu að sjá um hljómsveitarundirleikinn. Og rúsínan í pylsuend- anum var að sambýliskona Garra til margra ára var tilbúin að sjá um alla leikstjórn og dansþjálfun. Slakar móttökur En móttökurnar ollu miklum vonbrigðum því lít- ill áhugi var á þessari uppfærslu. Satt að segja var það særandi fyrir Garra að mæta slíku fá- læti eftir að hafa lagt alla þessa vinnu í málið. Þess vegna getur Garri vel skilið vonbrigði Kristjáns Jó- hannssonar. Það hlýtur að vera sársauka- fullt að vera hafnað með þessum hætti - jafnvel þótt menn beri við peningaskorti. Og raunar snertir þetta ekki bara Kristján heldur líka vini hans alla og Qölskyldu sem hann var búinn að fá meö sér í þetta skemmtilega uppátæki. Garri vonar bara að Kristján líti ekki á þetta sem höfnun frá ís- lendingum öllum því það er ekki svo. Viðbrögðin segja mest um listamafíuna á íslandi sjálfa og vegna þess að Garri hefur verið í þessum sporam líka þá telur hann sig vera i góðri aðstöðu til að umorða hin frægu orð skáldins: „Þetta _ eru asnar, Kristján!" G3ITI Óeiröir í Manchester Angi sömu atburöa í Húnaveri? Kynþáttaóeirðir? Ásgeir Guðmundsson hringdi: Aðfaranótt sl. sunnudags urðu blóð- ug fjöldaslagsmál í Húnaveri að loknu sveitaballi þar. í fréttum Ríkisútvarps á sunnudagskvöld var greint frá því að Húnvetningar og Skagfirðingar hefðu flogist á í Húnaveri. í framhaldi af því hvarflaði það að mér hvort þessi slagsmál hefðu i raun verið kyn- þáttaóeirðir í líkingu við þær sem urðu sömu nótt í einni af útborgum Manchester á Englandi, þó með þeirri undantekningu að í Húnaveri var hvorki kveikt i húsum né bilar eyði- lagðir. - Spyr sá sem ekki veit. En þessir atburðir eru býsna keimlíkir þegar á allt er litið. Pravda og Mbl. Vilhjálmur Alfreðsson skrifar: Ég las um það i Fréttablaðinu þann 23. f.m. að Morgunblaðið hefði hótað blaðburðarfólki sínu. Ég verð því að segja að Morgunblaðið fer þarna svip- aða leið og Pravda gamla, en það var aldrei mikil frelsisást á bænum þeim. Ég treysti hinum sterka foringja, Valdimar Grímssyni framkvæmda- stjóra, fyrir dreifingu Fréttablaðsins til að ráða bót á þessu. - Og gangi ykk- ur öllum vel á Fréttablaðinu. Þar er nýjung sem á eftir að blómstra. Náðun refsing Friðrik Friðriksson skrifar: Fjölmenni i héraösdómi Dómar eiga að standa. í tilefni frétta um ný- legan dóm í morðmáli, þar sem maður er dæmdur í 16 ára fangelsi, hefur komið fram álit að- standenda hins myrta þess eðl- is, að dómurinn hafi ekki mátt vera vægari. Segir enda í dómnum að eng- ar refsilækkunarástæður séu fyrir hendi hjá ákærða. Ég er sammála þessum álitum. Ég er einnig ósam- mála því að forseti landsins eða aðrir utanaðkomandi megi, í tilefni hátíðis- daga þjóðarinnar, afmæla eða ann- arra atburða náða fanga, sama af hvaða tilefni refsingin er. Of oft hafa stórafbrotamenn verið náðaðir og gengið lausir, fórnarlömbum og að- standendum til hrellingar. Dómar eiga að standa. Réttarkerfið er ekki til að hræra í eða ómerkja. Takmörkum verkfallsréttinn Álfheiður skrifar: Enn einu sinni gengur ein heil- brigðisstéttin út af sjúkrahúsunum og segir: hingað og ekki lengra, nú hætt- um við að vinna og krefjumst hærri launa. Ekki veit ég hve miklu hærri en ég veit þó að hjúkrunarfræðingar hafa mun hærri laun en ég hef og tel mig þó ekkert minna menntaða en þá. Ég hef bara ekki neina samúð með hjúkrunarfræðingum, læknum eða sjúkraliðum og finnst þeir allir hafa næg laun, prýðilegan aðbúnað og vinnufyrirkomulag. Meira að segja hefur verið komið upp sérstakri bamagæslu fyrir börn þessara starfs- hópa. - Er ekki kominn tími til að tak- marka verkfallsrétt þessara stétta og annarra sem ógna samfélaginu í skjóli samúðar þeirra og hræðslu sem mest sækja til heilbrigðiskerfisins, og oftar en ekki að nauðsynjalausu? Lesendur geta hringt allan sólarhring- inn í síma: 550 5035. Eöa sent tölvupóst á netfangiö: gra@ff.is Eöa sent bréf til: Lesendasíða DV, Þverholti 11. 105 Reykjavík. Lesendur eru hvattir til aö senda mynd af sér til birtingar meö bréfunum á sama póstfang.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.