Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2001, Qupperneq 20
24
^ Tilvera
FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2001
I>V
Eftirspurn eftir
stórum brókum
Nærbuxur þurfa alls ekki að vera
litlar til að vera sexí. Það sannfærði
vinur Bridget Jones, sem Renée
Zellweger leikur, hana um þegar
hann var búinn að jafna sig eftir að
hafa séð hana í stóru nærbuxunum
sem áttu að halda inni maganum.
Hönnuðurinn Donna Karan ákvað
að setja á markaðinn linu stórra
undirfata og hún segir að erfitt sé
að anna eftirspuminni. Það þykir
ljóst að konur vilja vera eins og
Bridget Jones á mörgum sviðum, að
minnsta kosti þær sem hafa séð
kvikmyndina um hana.
Jack og Lara
saman á ný
Fyrir nokkrum mánuðum lét
Lara Flynn Boyle kærastann sinn,
Jack Nicholson, róa. Nú er hún sögð
hafa iðrast. Þau hafa að minnsta
kosti sést saman á ný að undan-
förnu. Að sögn sjónarvotts skein af
þeim hamingjan á körfuboltaleik í
Los Angeles. Samband turtildúfanna
hefur verið stormasamt frá því að
þau tóku saman fyrir tveimur árum.
Bandarísk slúðurblöð hafa keppst við
að segja frá háværum deilum þeirra á
hótelherbergjum og gagnkvæmu skít-
kasti. Lara er helmingi yngri en Jack
sem er orðinn 64 ára.
Downey sleppur
við fangelsi
Calista Flockhart í Ally McBeal
getur varpað öndinni léttar. Vinur
hennar, Robert Downey Jr. sleppur
við fangelsisvist. Allar likur eru á
því að leikarinn verði dæmdur til 12
mánaða vistar á meðferðarheimili
; i fyrir fíkniefnaneytendur. Downey,
sem var gripinn fyrir fikniefnabrot,
á að hafa komist að bráðabirgða-
samkomulagi við saksóknara um að
hann fari í meðferð í stað þess að
dvelja á bak við lás og slá. Leikar-
inn mun þegar hafið meðferð við
fíkniefnavanda sínum.
.
♦
Gönguleiöir
Ari Trausti Guðmundsson jarðfræðingur mælir með:
Hressandi gönguferð
á Hafnarfjall
„Hafnarfjall er stórlega vanmetið
fjall til gönguferða. Það er jafn
skemmtilegt eða skemmtilegra fjail en
Esjan að mörgu leyti og sáralitið
lengra frá Reykjavíkursvæðinu," segir
Ari Trausti Guðmundsson jarðfræð-
ingur. Hann mælir með leið sem ligg-
ur upp frá Háumelum, rétt innan við
suðurenda Borgaríjarðarbrúar. Þar
segir hann bíifært inn að gamalli stifLu
hvaðan kjörið sé að leggja til upp-
Ari Trausti og Thor Vilhjálmsson í
einni af gönguferðum sínum. Féiagi
þeirra, Ragnar Th. Sigurösson Ijós-
myndari, er bak viö myndavélina
göngu. En um fleiri en eina leið er að
velja. „Vissulega er hægt að taka stefn-
una til hægri, upp hrygginn sem er
næstur þjóðvegi 1 og þegar hann er
genginn á enda er farið til vinstri upp
á hæsta tindinn, Gildalshnúk, þar sem
gestabók er í vörðu. Slík ganga tekur
2-3 klukkustundir en þeir sem vilja
leggja meira á sig ættu hins vegar að
velja hrygginn vinstra megin í dalnum
og fara hring. Það tekur svona 4-5
tíma,“ segir Ari Trausti og er fús til að
lýsa þeirri leið aðeins nánar.
Hreykja sér á hæsta steininn
„Best er að skáskera hiíðina sem er
skriðurunnin, upp á hrygginn, uns
komið er að háu klettabelti uppi undir
fjallsbrún. Þar fer enginn upp nema
með einhverjum tólum og tækjum en
ef gengið er með fram beltinu nokkum
spöl til hægri er komið að klauf sem er
auðveld uppgöngu. Þarf ekki einu
sinni að nota hendumar til stuðnings.
Reyndar er líka hægt að ganga í hina
áttina með fram beltinu og út fyrir
það. „Þegar upp fyrir klettana er kom-
ið er gengið til suðvesturs upp á tind-
inn Þverfell og þaðan eftir allbröttum
HafnarQall. Þverfell og Gildalshnúkur gnæfa hæst á miöri mynd. Ljósm.
Agúst Guömundsson
alltaf hafa með sér tvo stafi í svona
göngur. Þeir líkist skíðastöfum, nema
hvað hægt sé aö leggja þá saman og
stinga í bakpoka. „Það er hjálp í þeim
en þeir em ekki lífsnauðsynlegir," seg-
ir hann. Ekki kemur á óvart að Ari
Trausti sé fróður um jarðsögu Hafnar-
fjalls og þyki hún spennandi „Fjallið er
í jaðri fjögurra milljóna ára gamallar
megineldstöðvar og sums staðar má
sjá gabbró standa út úr því. En flestir
era bara að hreyfa sig þegar þeir fara
í svona fjallgöngur og njóta fjallalofts
og útsýnis," segir hann og telur engan
verða fyrir vonbrigðum með útsýnið af
Hafnarfjalli, út yfir flóann, Snæfells-
nes, Borgarfjörð, Skarðsheiði og vest-
anvert miðhálendið. „Ég mundi setja
útsýnið númer eitt en hin lifandi og
dauða náttúra næst manni kemur sem
viðbót við það,“ segir hann.
Næringarrríkt nesti
Hafnarfjall er þekkt fyrir byljótt
ofsaveður sem koma undir hlíðum
þess og því er Ari Trausti spuröur
hvort ekki megi búast við gusti í göng-
unni. „Fólk fer varla í svona gönguferð
sér til skemmtunar nema í björtu og
góðu veðri og þá er enginn munur á
Hafnarfjalli og Esjunni hvað veðurfar
snertir. Hvassviðrin kringum Hafnar-
fjall koma einkum í norðaustan- og
suðaustanáttum og þá er ekkert göngu-
veður.“
Næst er Ari Trausti spurður um
nestið. „Það ætti enginn maður að
ganga meira en svona klukkutíma án
þess að hafa með sér ágætan drykk og
gott nesti. Ekki undir einum lítra af
vökva og eitthvað í fóstu formi, brauð
eða annað kjarnmeti. Aðalatriðið er að
bera ekki nesti sem inniheldur mikið
vatn, tómata eða ávexti heldur vera
með drykkinn sér og nestið vel sam-
þjappað og næringarríkt," er svarið.
Fólk sækist eftir bratta
Þótt í fjallgönguljóði Tómasar segi
að eiginlega sé ekkert bratt aðeins mis-
munandi flatt er Ari Trausti spurður
hvort gangan upp á Hafnarfjail sé erf-
ið. „Hafnaifjalliö er 740 metra hátt svo
auðvitað er leiðin talsvert á fótinn en
bratti í fjöllum er eitthvað sem fólk
sækist eftir meðan hann er ekki alltof
mikill. Þetta er kannski ekki ganga
fyrir algera viðvaninga en hún er góð
fyrir þá sem hafa einhverja reynslu og
vilja fá sér hressandi gönguferð á
fjöll.“ -Gun.
hrygg á Gildalshnúkinn.
Þar er sem sagt komið að
því að hreykja sér á
hæsta steininn og hvíla
beinin. Niðurleiðin er síð-
an greið eftir hryggnum
sem gnæfir yfir þjóðveg-
inum til Borgamess."
Útsýnið númer eitt
Ari Trausti kveðst
um
Hafnarfjall
Þverfel!
Gildalshnúkur Katlaþúfa
50f> 1000 m
—I—
Hróarstindur
618
Leiöin sem Ari Trausti valdi
Tungukollur
*666
Utiveitingahús á Akranesi:
Alltaf gott veður
- segir Anna Kjartansdóttir veitingahúsrekandi
DV, AKRANESI:___________________
„Markvisst hefur verið unnið að
því að fegra umhverfið í kringum
Café 15 og gera aðstöðuna innan-
húss sem best úr garði fyrir við-
skiptavini," segir Anna Kjartans-
dóttir sem rekur Kaffi 15 á Akra-
nesi. Þegar við tókum við rekstrin-
um í febrúar í fyrra gerðum við að-
stöðu í kjallara fyrir þá sem vilja
hofa á sjónvarp eða bara að spjalla
saman en samt hafa það eins og
heima hjá sér. Einnig gerðum við
aðstöðu í risi fyrir smærri fundi þar
sem hægt er að vera alveg út af fyr-
ir sig í rólegu og þægilegu um-
hverfi. Húsið hefur verið málað hátt
og lágt, að utan og innan og komið
fyrir öflugri loftræstingu til að gera
andrúmsloftið þægilegra, í orðsins
fyllstu merkingu. Ef einhvers staðar
er hægt að reka útiveitingahús þá
er það á Akranesi þar sem alltaf er
gott veður. Því höfum við komið
fyrir sólpalli við húsið þar sem gest-
ir geta notið veitinga utanhúss,"
segir Anna.
Anna segir jafnframt að þau leggi
áherslu á aö þjóna hópum jafnt sem
einstaklingum. En þegar margir
koma saman er gott að hafa ein-
hverja með í ráðum sem eru vanir
aö skipuleggja slíkar samkomur.
Þau hjálpi til að skipuleggja sam-
DV-MYND DVÓ
Veltingahúsaeigendur
Anna Kjartansdóttir og eiginmaöur hennar, Björn S. Lárus-
son, á nýja útiveitingastaönum.
kvæmi og geta
lokað staðnum
timabundið á
meðan gestir
sitja að snæð-
ingi eða lyfta
glösum. „í vor
kynntum við
nýjan matseðil
þar sem við
höfum á
boðstólum úr-
vals fisk ásamt staðgóðum
skyndiréttum. Hráefnið kemur frá
íslenskt-franskt hér á Akranesi og
erum við eina veitingahúsið á ís-
landi sem býður rétti frá því fyrir-
tæki. Þá bjóðum við upp á nýjung
sem er kjöt- eða fiskréttir eða súpa í
brauði sem við köllum brauðkollu.
Þetta eru saösamir réttir og fram-
andi en samt ódýrir.“ -DVÓ