Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2001, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2001, Síða 24
18______ Tilvera FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2001 DV Stórtónleikar í Höllinni Tónleikar verða í kvöld i Laugardagshöllinni. Land og synir, Buttercup, Sóldögg, íra- fár, Einar Ágúst, Páll Óskar, Two Tricky, Ensími og Andlát troða upp. Þetta eru vímulausir tónleikar fyrir 14 ára og eldri og hefjast kl. 19. Allur ágóðinn rennur til styrktar unglinga- göngudeildar SÁÁ. Klassík ■ TONLISTARANDAKT I HALL- GRIMSKIRKJU Dagskráin í dag hefst klukkan 12 með tónlistarandakt. Hörður Ás- kelsson leikur orgeltónlist eftir Bach og Boéllmann. ■ BJARTAR SUMARNÆTUR Í HVERAGERÐI Tónlistarhátíðin Bjartar sumarnætur veröur haldin fimmta sinni í Hvera- gerði um helgina. Tónleikarnir í kvöld hefjast klukkan hálfníu. ■ KÓRTÓNLIST VIÐ MIÐNÆTUR- SOL A Kirkjulistahátíð Hallgríms- kirkju í kvöld, klukkan 21, ætlar norski sönghópurinn Nordic voices að flytja Kórtónlist við miðnætursól. Flutt veröa kórverk eftir Purcell, Schiitz, Reger, Messiaen og fleiri. Leikhús ■ FEÐGAR A FERO Feðgarnir Arni Tryggvason og Orn Árnason eru höfundar og leikarar í leikritinu Feðgar á ferð sem er sýnt kl. 20 í kvöld í lönó. ■ MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM Leikritið IVIeö vífið í lúkunum eftir Ray Cooney veröur sýnt í kvöld klukkan 20 á Stóra sviði Borgarlelk- hússins. Leikstjóri er.Þór Túliníus og þýöandi Árni Ibsen. Örfá sæti laus. ■ RÚM FYRIR EINN Hádegisleikhús Iðnó sýnir klukkan 12 í dag leikritiö Rúm fyrir einn. ■ Á SAMA TÍMA SÍÐAR /erður sýnt í síöasta sinn í kvöld ídukkan 20 í Loftkastalanum. Nokk- ur sæti laus. ■ PÍKUSÖGUR eftir Eve Ensler veröa sýndar í kvöld klukkan 23 á þriðju hæð Borgarleikhússins. Leik- stjóri er Sigrún Edda Björnsdóttir en ieikkonur eru þær Halldóra Geir- harðsdóttir, Sóley Elíasdóttir og Jó- nanna Vigdís Arnardóttir. Órfá sæti eru laus. ■ FÍFL í HÓFI Gamanleikritiö Fífl í hófi veröur sýnt klukkan 20 í kvöld í Gamla bíói (hús íslensku óperunnar). Leikstjóri er IVIaría Siguröardóttir. Miöasala í síma 5114200. Örfá sæti laus. Opnanir ■ HANNES SCHEVING A VOPNA- FIRÐI Myndlistarmaöurinn Hannes Schev- ing heldur málverkasýningu í Safnahúsinu á Vopnafirði ■ ÁRBÆJARSAFN OPNAð Sumarstarfsemi Arbæjarsafns hefst í dag. Gömlu húsin veröa opnuö aft- ur og leiösögumennirnir klæðast búningum sinum. Feröir ■ UTIVIST: Farin veröur mögnuö útivistarferö í Barðastrandarsýslu í dag. Látrabjarg, Rauöisandur og Sjóundá. Farið veröur 1. júní en komiö aftur þann 4. Útivist. SJá nánar: Lífið eftir vinnu á Vísl.ís Vinsæll útvarpsmaður kveður: Mávarnir fljúga til hafs Fékk færustu sérfræðingana hingað til lands: Lækning er næsta skrefið „Þessi síðasti þáttur verður ekk- ert öðruvísi en hinir hafa verið, enda ástæðulaust. Ég er ekki fyrsti maðurinn í heiminum sem hættir í staifi," segir Gestur Einar Jónasson útvarpsmaður í samtali við DV. Gestur er sem kunnugt er að láta af störfum hjá Ríkisútvarpinu og munu Hvítir mávar, sem hafa verið á dagskrá Rásar 2 eftir hádegið hvern virkan dag, syngja sinn svanasöng á Rás 2 í dag. Útvarps- þátturinn sem mestra vinsælda hef- ur notið meðal þjóðarinnar, ungra sem aldinna. Þjóðarsálinni líður vel DV heimsótti Gest í hljóðstofu RÚV á Akureyri í gær þar sem hann var í útsendingu næstsíðasta þáttarins. Hann spilaði lög með Hljómum, Chubby Checker, sem og danska Euruvisiononlagið, auk þess sem hann las afmæliskveöjur hlust- enda. Með þeim hefur Gestur verið í miklu og góðu sambandi við þjóð- ina. „Ég held að þjóðarsálinni líði nokkuð vel, þó auðvitað sé alltaf einhver dagamunur á því. Það fer til dæmis eftir veðri en ástandið hefur verið gott í vor,“ sagði Gestur sem segir að yfirleitt hafi sér þótt starfið skemmtilegt. Erfiðustu tím- arnir á tuttugu ára útvarpsferli séu þó ugglaust þegar snjóflóðin féllu á Súðavík og Flateyri árið 1995. „Það var hrikalegt aö þurfa að vera í beinni útsendingu þá.“ Blanda sem fólki líkar vel Gestur segist enga reglu hafa haft á þvi hvernig tónlist hann leiki í Hvítum mávum. Slíkt ráðist ævin- lega af óskum hlustenda hvern dag og hreinlega því hvaða geisladiska hann dragi úr ógnarstórum bunkan- um í hljóðstofunni. Útkoman virðist þó i öllu falli vera blanda sem fólki líkar eins og hlustendakannanir sýna gleggst. Dyggir hlustendur Gests Einars geta huggað sig við að hann mun ekki alfarið hverfa frá útvarpsstörf- „Ef þær Ingibjörg Pálmadóttir og Gro Harlem Bruntland hefðu ekki lagst á árar með mér væri þessi draumur minn ekki orðinn að veru- leika," segir Auður Guðjónsdóttir hjúkrunarfræðingur sem nú hefur afrekað það að fá hingað tU lands ýmsa færustu sérfræðinga heimsins á sviði mænulækninga til að bera saman bækur sínar. Auður hefur fyrr vakiö athygli fyrir skelegga framgöngu því hún er móðirin sem fékk kínverskan skurðlækni til aö koma hingað árin 1995 og 1996 og gera aðgerðir á Hrafnhildi dóttur sinni sem hafði hlotið mænuskaða er hún var 16 ára gömul, aðgeröir sem skiptu sköpum í lífi hennar. Nú er Hrafnhildur komin með það mik- inn mátt í fæturna að hún getur gengið, keyrt bíl og tekur stöðugum framfórum, enda þjálfar hún sig þrotlaust frá morgni til kvölds. „Framfarirnar koma í hænufetum en koma samt,“ segir Auður bros- andi. Skyriö og ostarnir í góöan jaröveg Hún hefur nýlokið við að halda ráðstefnugestum hádegisverðarboð heima hjá sér þegar viðtalið fer fram, þar sem íslensk síld, ostar og skyr féllu í góðan jarðveg, og kveðst líka hafa verið svo heppin að hjúkr- unarfræðingar væru í verkfalli svo nokkrir þeirra hefðu farið meö gest- ina í útsýnisferð um borgina. En hvernig fór hún aö því að koma þessari ráðstefnu á koppinn? „Ég yissi um marga þessara sérfræðinga Auður Guðjónsdóttir hjúkrunarfræðingur „Framfarirnar koma í hænufetum en koma samt. vegna áhuga míns á málefnum mænuskaddaðra og hef verið í per- sónulegu sambandi við suma þeirra. Ég veit að það er til mikið af ónýttri þekkingu á þessu sviði. End- urhæfingin er búin að sanna sig og komið að næsta skrefi sem er lækn- ingin,“ svarar hún. Safnaði upplýsingum í gagnabanka Auður kveðst hafa fylgst með stöðugum framfórum dóttur sinnar og hugsað til þeirra þúsunda ung- menna sem fótunum er kippt und- an í slysum. Kveðst hún hafa verið búin að biðja stór félög mænu- skaddaðra í heiminum og yfirmenn á sjúkrahúsum að skoða þetta svið í heild en ekkert hafi gerst. „Þar kom að ég bað Ingibjörgu Pálma- dóttur, þáverandi heilbrigðisráð- herra, að koma á framfæri tillögu til Gro Harlem Bruntland, fram- kvæmdastjóra Alþjóða heilbrigðis- stofnunarinnar. Tillagan var um að stofna gagnabanka um þýðingar- miklar uppgötvanir sem verið væri að gera á þessu sviði. Gro sam- þykkti tillöguna og ætlaði að láta alþjóðamænuskaðafélagið sjá um málið en þar sofnaði það.“ Á end- anum kveðst Auður sjálf hafa feng- ið leyfi Bruntland til að safna upp- lýsingum saman. „Ég sendi um 200 bréf, bæði til manna sem ég þekkti og annarra. Þingið nú um helgina er meðal annars afrakstur þessarar vinnu.“ Gleymir aö borða og sofa Auður segir heilbrigðisráðuneyt- ið og utanríkisráðuneytið styrkja ráðstefnuna en kveðst líka vera með tvær og hálfa milljón sem hún hafi safnað með frjálsum framlög- um. „Þessa peninga þurfti til að tryggja þaö að þeir sem ég vildi fá gætu komið því sumir höfðu engin ráð á því öðruvísi." Nú er móðir Auðar komin inn í stofu til að athuga hvort dóttirin hafi ekki sjálf alveg gleymt að boröa. Jú, hún viðurkennir að hún bæði gleymi að borða og sofa þessa sólarhringana en nægur tími verði til þess eftir helgi.“ -Gun um, hann mun til að mynda áfram annast þáttinn Með grátt i vöngum sem er á Rás 2 síðdegis sérhvem laugardag. „En ég lifi ekki af því einu að annast þann þátt,“ segir Gestur sem segir enn óákveðið hvaða verkefni hann taki sér fyrir hendur nú þegar Hvítir mávar eru flognir til hafs. -sbs - síðasti dagur Gests Einars á RÚV DV/HYND BRINK í hljóöstofu í gær Síöasti starfsdagur Gests Einars hjá RÚV er í dag. Vinsæiasti útvarpsþáttur landsins leggst af.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.