Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2001, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2001, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2001 Fréttir I Fáir sækja um að byggja leiguíbúðir: Leiguíbúðalán hækkað um 717% - íbúðalánasjóður hefur samþykkt nær allar umsóknir íbúðalánasjóður greiddi út sam- tals 2,2 milljarða í lán til byggingar leiguibúða á fyrstu fjórum mánuð- um þessa árs sem ætti að duga fyr- ir a.m.k. 200 íbúðum. Upphæðin er 717% hærri fjárhæð en á sama tíma- bili í fyrra, þegar tæplega 270 millj- ónir voru lánaðar í þessu skyni. Lánsheimildir sjóðsins vegna leigu- íbúða eru 3 milljarðar á árinu öllu þannig að nær 3/4 þeirra hafa verið greiddir út á fyrsta þriðjungi ársins. Sjóðurinn vekur athygli á að út- greidd lán á þessu ári eru vegna lánsloforða sem veitt hafa verið á síðustu 2 árum, enda geti liðið allt að tvö ár frá samþykkt lánsloforða þar til framkvæmdir eru lánshæfar. Rétt er að geta þess að vextir á lán- um til sveitarfélaga hækkuðu um síðustu áramót. Sveitarfélög „stikkfrí" Að sögn Halls Magnússonar, upp- lýsingafulltrúa íbúðalánasjóðs, hef- ur sjóðurinn svarað jákvætt nær öllum umsóknum sem til hans hafa borist um lán til bygginga á leiguí- búðum. Fáar leiguíbúðir séu þvi ekki sök íbúðalánasjóðs heldur hafi skort framkvæmdaaðila til að takast á við þennan markað. Sveit- arfélög hafi næstum dregið sig út úr leiguíbúðabyggingum, að undan- skildum kaupum Félagsbústaða í Reykjavík á um 100 íbúðum á ári. Það séu einkum Búseti, Búmenn, námsmannasamtök og önnur slík sem staðið hafi að framkvæmdum á þessu sviði. -HEI Unniö höröum höndum Búseti og önnur samtök eru oröin nær ein um byggingu leiguíbúöa. Sameining ráðgjafarþjónustu Eyfirðinga og Þingeyinga í burðarlið: Fósturvísar valda formannaskiptum Aðalfundur Búnaðarsambands Eyjafjarðar var haldinn þann 26. apr- íl sl. Þar var kosinn nýr formaður, en Sigurgeir Hreinsson á Hrísum, sem hefur verið formaður undanfar- in ár, gaf ekki kost á sér til endur- kjörs. Sigurgeir segir að á nýafstöðn- um fundi Búgreinaráðs Búnaðar- sambands Eyjafjarðar hafi sitjandi formaður, Stefán Magnússon í Fagraskógi, ekki náð endurkosningu en í hans stað kosinn Þorsteinn Rútsson, á Þverá í Svarfaðardal, og ástæða þessarar „byltingar" hafi verið átök innan bændastéttarinnar um innflutning á norskum fósturvís- um og ljóst sé að þeir sem staðið hafi að því að fella Stefán séu andstæð- ingar innflutningsins og flestir fé- lagsmenn Búkollu, félags sem stofn- að var gegn innflutningi norsku fóst- urvísanna, en Stefán hafi verið fylgj- andi innflutningnum eins og hann. Stefán er auk þess varaformaður BSE. Sigurgeir er ósáttur við for- gangsröðun á fundi Búgreinaráðsins - áður hafi ekki verið rætt opinber- lega um breytingar á stjórn og þeir sem nú hafi náð meirihluta hafi ekki mikinn áhuga á því að horfa til framtíðar. Því hafi hann ekki viljað stjórna áfram Búnaðarsambandi Eyjafjarðar. í hans stað var kosinn í stjórn Jóhann Jónsson, Espihóli, en formaður Svana Halldórsdóttir, Mel- um í Svarfaðardal, og er hún fyrsta konan sem gegnir formennsku í bún- aðarsambandi hérlendis. Aðrir stjórnarmenn áttu ekki að ganga úr stjórn. Starf BE hefur þó að mestu snúist um annað að undanförnu, s.s. sam- einingu á ráðunautastarfmu í Eyja- firði og Þingeyjarsýslum og á leið- beiningarþjónustunni en þó er ekki fyrirhugað að sinni að slá saman búnaðarsamböndunum á svæðun- um. Svana Halldórsdóttir er félags- maður í Búkollu, en hún segir að formennskan í BSE hafi þó ekki verið ámálguð fyrst við hana af Búkollumönnum, en þó ekki fyrr en eftir að Sigurgeir hafi fyrst ámálgað að gefa ekki kost á sér til endur- kjörs sem formaður BSE. Ný stjórn hefur ekki komið saman enn en Svana segir að á fyrsta fundi verði sameiningarmál eitt helsta málið á dagskrá. -GG Vel á annað hundrað ljóð bárust í keppnina: Úrslit í Ijóðasam- keppni DV og MENOR Úrslit voru kunngerð í ljóðasam- keppni DV og Menningarsamtaka Norðurlands (MENOR) í gær og fór af- hending verðlaunanna fram í Zonta- húsinu á Akureyri. Það er greinilega mikill áhugi á ljóðagerð meðal fólks og hefur þátttakendum fjölgað jafnt og þétt og að þessu sinni bárust vel á annað hundrað ljóð í keppnina. Það hefur þvi augljóslega verið ærin vinna hjá dómnefndinni síðustu vikumar að velja sigurvegarana úr þessum stóra hópi keppenda en í fyrsta sæti var val- ið ljóðið Bemska eftir Njörð P. Njarð- vik prófessor. í annað sæti var valið ljóðið Kveðja eftir Hallgerði Gísladótt- ur, þjóðháttafræðing hjá Þjóöminja- safni íslands, og í þriðja sæti Snáði eft- ir Hjalta Finnsson, bónda i Ártúni, Eyjafjarðarsveit. -W Verðlaunaafhendingin dvmynd v Taliö frá vinstri: Björn Þorláksson, fulltrúi DV, Hjalti Finnsson, sem hlaut þriöju verölaun, Sigríöur Hjaltested, sem tók viö verölaunum f.h. Hallgerðar Gísladóttur sem hlaut önnur verðlaun, Kristín Árnadóttir, formaöur dóm- nefndar, sr. Ólafur Hallgrímsson, formaöur Menor, og Emelía Baldursdóttir sem einnig sat i dómnefnd ásamt þeim Kristínu og Sigmundi Erni Rúnars- syni, aöstoöarritstjóra DV, sem var fjarverandi, sem og vinningshafinn, Njöröur P. Njarövík. Keppt í handflökun Islandsmótið í handflökun verður haldið í 8. sinn í Faxaskála 9. júní nk. í tengslum við Hátíð hafsins í Reykja- vík. Það hefst kl. 12.30. Flakaðar verða þrjár físktegundir, þorskur, ýsa og karfi, í beinlaus flök. Dæmt verður eftir hraða, nýtingu og gæðum og er sigurvegari sá sem fær hæstu saman- lagða einkunn fyrir alla þættina og hlýtur hann að launum ferðaverð- laun, auk þess sem sá sem flest stig hlýtur fær sæmdarheitið íslands- meistari í handflökun árið 2001. Sig- urvegari síðasta árs var Ámundi S. Tómasson, Sætoppi, Reykjavík, hraðameistari Piotr Klimazewski, K&G, Keflavík, gæðameistari Ámundi S. Tómasson og nýtingar- meistari Kristófer Reyes, Bylgjunni, Ólafsflrði. Þorskmeistari var Grétar Karlsson, Sætoppi, Reykjavík, ýsumeistari Harpa Fold Ingólfsdóttir, Sæfold, Reykjavík, og karfameistari Ámundi S. Tómasson. -GG Uppboð Boðinn verður upp að Þverá, Akrahreppi, miðvikudaginn 13. júní 2001, kl. 16.00 4 vetra brtinn stóðhestur. Greiðsla við hamarshögg. SÝSLUMAÐURINN Á SAUÐÁRKRÓKI Uppboð Vanefndaruppboð á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri ________sem hér segir:_______ Krummahólar 2, 0406, íbúð á 4. hæð merkt C, Reykjavík, þingl. eig. Ásgeir Ásgeirsson, gerðarbeiðendur Bún- aðarbanki Islands hf., Ibúðalánasjóður og Tollstjóraembættið, miðvikudaginn 6. júní 2001 kl. 11.30. SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK UPPBOÐ Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri ________sem hér segir:______ Mararbraut 23, Húsavík, þingl. eig. Sig- urður Þór Bragason, gerðarbeiðandi Eignarhaldsfélagið Jöfur hf., fimmtudag- inn 7. júní 2001 kl. 10.00. SÝSLUMAÐURINN Á HÚSAVÍK Uppboð Eftirtaldar bifreiðar verða boðn- ar upp að lögreglustöðinni Suð- urgötu 1, Sauðárkróki, þriðju- daginn 12. júni 2001, kl. ____________16.00:___________ IL-676 MR-876 KK-125 SN-999 SK-090_______________________ Einnig verður boðið upp á sama stað og tíma ótollafgreitt sjónvarpstæki og hesta- kerra, fn. OF-959. Greiðsla við hamarshögg. SÝSLUMAÐURINN Á SAUÐÁRKRÓKI UPPBOÐ Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálf- um sem hér segir: Dalshraun I, 0106, Hafnarfirði, þingl. eig. FRM byggingar ehf., gerðarbeiðandi Hafnarfjarðarbær, fimmtudaginn 7. júní 2001 kl. 11.00. Dalshraun 1, 0107, Hafnarfirði, þingl. eig. FRM byggingar ehf., gerðarbeiðandi Hafnarfjarðarbær, fimmtudaginn 7. júní 2001 kl. 11.00. Dalshraun 1, 0201, Hafnarfirði, þingl. eig. FRM byggingar ehf., gerðarbeiðandi Hafnarfjarðarbær, fimmtudaginn 7. júní 2001 kl. 11.00. Krókahraun 10, 0102, Hafnarfirði, þingl. eig. Brynja Björk Kristjánsdóttir, gerðar- beiðandi Búnaðarbanki íslands hf., fimmtudaginn 7. júní 2001 kl. 14.00. Lækjarkinn 6,0101, ehl. gerðarþ. Hafnar- firði, þingl. eig. Katrín Jónína Óskars- dóttir, gerðarbeiðendur Búnaðarbanki Is- lands hf., fimmtudaginn 7. júní 2001 kl. 14.30. ___________________________ Reykjavíkurvegur 72, 3201, Hafnarfirði, þingl. eig. Húsmunir ehf., gerðarbeiðend- ur Grétar Sveinsson og Sparisjóður Hafn- arfjarðar, fimmtudaginn 7. júní 2001 kl. 10.30. SÝSLUMAÐURINN í HAFNARFIRÐI UPPBOÐ Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálf- um, sem hér segir: Fífurimi 36,0101,4ra herb. íbúð nr. 3 frá vinstri á 1. hæð, Reykjavík, þingl. eig. Fidelia Ásta Emmanúels, gerðarbeiðend- ur Gunnar Öm Ólafsson og Kristmann Þór Einarsson, miðvikudaginn 6. júní 2001 kl. 14.30. Hraunbær 68, 0302, 3. hæð t.v., Reykja- vík, þingl. eig. Gunnar Steinn Þórsson og Guðbjörg Kristín Pálsdóttir, gerðarbeið- endur Ibúðalánasjóður og Tollstjóraemb- ættið, miðvikudaginn 6. júní 2001 kl. 10.30. ______________________ Mosarimi 2, 0202, 2. íbúð f.v. á 2. hæð, 72,2 fm m.m., Reykjavík, þingl. eig. Elizabete Goncalves Batista og Sigur- bjöm Snjólfsson, gerðarbeiðandi íbúða- lánasjóður, miðvikudaginn 6. júní 2001 kl. 15.30. SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK UPPBOÐ Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálf- um, sem hér segir: Blöndubakki 3, 0202, 98,6 fm íbúð á 2. hæð m.m. ásamt herbergi í kjallara merkt 0009 og geymsla merkt 0005, Reykjavík, þingl. eig. Kristján Jónsson, gerðarbeið- endur Lífeyrissjóður starfsmanna ríkis- ins, B-deild, og Sýslumaðurinn í Kópa- vogi, fimmtudaginn 7. júní 2001 kl. 13.30. Eyjabakki 3, 0301, 4ra herb. íbúð á 3. hæð t.v., Reykjavík, þingl. eig. Bjarki Þór Sigurðsson, gerðarbeiðendur Eimskipafé- lag Islands hf. og íbúðalánasjóður, fimmtudaginn 7. júní 2001 kl. 14.00. Hverfisgata 74, 0501, 4ra herb. íbúð á 5. hæð t.v. m.m. ásamt geymslu merkt nr. 9 í rými 0601, Reykjavík, þingl. eig. Gerpla ehf., gerðarbeiðendur Hverfisgata 74, húsfélag, Rafveita Hafnarfjarðar og Toll- stjóraembættið, fimmtudaginn 7. júní 2001 kl. 10.30. Kambasel 26, íbúð merkt 0103, Reykja- vík, þingl. eig. Sigurjón Már Lárusson, gerðarbeiðendur Ibúðalánasjóður, Lífeyr- issjóðurinn Lífiðn, Lögreglustjóraskrif- stofa og Tollstjóraembættið, fimmtudag- inn 7. júní 2001 kl. 14.30. Laugamesvegur 104, 0101, 4ra herb. íbúð á 1. hæð t.v. í NA-enda, Reykjavík, þingl. eig. Sigurlína Kristín Magnúsdótt- ir, gerðarbeiðandi Ibúðalánasjóður, fimmtudaginn 7. júní 2001 kl. 11.00. Æsufell 6, 0504, 4-5 herb. íbúð á 5. hæð merkt D + B, Reykjavík, þingl. eig. Guð- rún Elísa Guðmundsdóttir og Hafliði Birgir ísólfsson, gerðarbeiðandi Ibúða- lánasjóður, fimmtudaginn 7. júní 2001 kl. 15.00. SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.