Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2001, Qupperneq 45
LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2001
5c
I>v
Tilvera
NEC-bikarkeppnin 2001:
Myndasögur
E-Bridge-sveit-
in sigraði
Flestar íþróttir þurfa á fjárhags-
legum stuðningi að halda og bridge-
íþróttin er ein af þeim. Á síðustu
mánuðum hefur komið fram félags-
skapur sem nefnir sig E-Bridge og
hann virðist hafa mikið fé umleikis
og er reiðubúinn að fjárfesta í okk-
ar ágætu íþrótt. Ástæða er til að
fagna komu hans og ekki síst vegna
þess að hann er reiðubúinn til að
vinna með bridgestjórnvöldum,
frekar en á móti þeim. E-Bridge er
netfyrirtæki þar sem félögum gefst
tækifæri til að læra, spila og fræð-
ast um bridge. E-Bridge hefur samið
við Bridgesamband Evrópu um að
styrkja bæði tvímennings- og sveita-
keppni sambandsins um 10.000 doll-
ara hvora. Enn fremur ætlar E-
Bridge að halda heimsmeistaramót í
tvímenningskeppni á Netinu og í
samvinnu við Alheimssambandið,
Evrópusambandið og Bandaríska
bridgesambandið. Vegleg verðlaun
eru í boði, en sá böggull fylgir
skammrifi að þú verður að vera fé-
lagi hjá E-Bridge til að geta tekið
þátt.
Auðvitað styrkir E-Bridge
bridgesveitir og ein slík vann
þekkta bikarkeppni sem japanska
tölvufyrirtækið NEC heldur árlega.
Það var alþjóðleg sveit skipuð Piotr
Gawrys, Sam Lev, John Mohan,
Jacek Pszczola og Pinhas Romik.
Keppnin er með svipuðu sniði og
heimsmeistarakeppni, fyrst er riðla-
keppni, síðan útsláttarkeppni. Átta
sveitir fara í útsláttarkeppnina. í
undanúrslitum vann sveit E-Bridge
sveit frá Argentínu/Ástralíu með
149-109 en Svíar unnu Englendinga
111-70.
Skoðum eitt spil frá úrslitaleik E-
Bridge og Svía.
4 ÁG104
S/Allir v kg4
♦ Á865
* 96
4 83
»63
4 932 -
* Á108732
4 KD6
» D9852
♦ K7
* D54
Þar sem gömlu jaxlamir Sylv-
an og Sundelin sátu n-s og Gawrys
og Pszczola a-v varð lokasamningur-
inn fjögur hjörtu.
Vestur spilaði út spaðaáttu,
Sundelin drap heima og spilaði
trompi á kóng. Austur gaf og
Sundelin gerði mistök þegar hann
spilaði hjartagosa. Nú drap austur,
spilaði laufakóng og síðan laufgosa.
Vestur drap á ásinn og gaf makker
stungu. Einn niður.
Sundelin átti að vita að laufstung-
an var eina hætta og því var nauð-
synlegt að eiga gosann í blindum.
Á hinu borðinu varð lokasamn-
ingurinn sá sami og Mohan í suður
spilaði einnig hjarta á kóng í öðrum
slag. Lindquist í austur drap strax á
ásinn, spilaði laufakóng og síðan
gosa. Vestur drap á ásinn og spilaði
meira laufi. Mohan trompaði með
gosanum, spilaði síðan trompi og
svínaði níunni. Slétt unnið og 12
impa gróði.
Smáauglýsingar
Þjónustu-
auglýsingar
►I550 5000
Myndgátan hér
til hiíöar lýsir
orðasambandi.
Lausn á gátu nr. 3018:
Rúinn inn að
skyrtunni
3
O)