Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2001, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2001, Qupperneq 8
8 Viðskipti „Sterkar llkur eru á því að verðbólgan fari upp fyrir þolmörk peningastefnu Seðlabankans í þessum mánuði og að hún verði þar næstu mánuði," segir Grein- ing Íslandsbanka-FBA sem segir erfitt og í raun óæskilegt að Seðla- bankinn bregðist við með auknu aðhaldi í peningamálum. Greining Íslandsbanka-FBA spáir því að verðbólgan yfir þetta ár verði 6,3% en að hún lækki síð- an nokkur snarlega og verði 3,6% næsta ár. Kemur þetta fram í Markaðsyfirliti íslandsbanka- FBA sem kom út í gær. Þar er þeirri skoðun lýst að það sé erfitt og I raun óæskilegt að Seðlabank- inn bregðist við með auknu að- haldi í peningamálum. „Slíkt kynni að kosta mikið í töpuðum hagvexti og atvinnu. Tæki bank- ans virka með mikilli töf og þegar litið er á verðbólgu yfir næsta ár er þess að vænta að hún verði innan þolmarka peningastefnunn- ar. í því ljósi virðist aðhaldið nægjanlegt. Greining íslands- banka-FBA gerir fastlega ráð fyr- ir því að bankinn sjái þetta og spáir því að hann muni lækka vexti frekar þegar líða tekur á þetta ár og á næsta ári,“ segir Greining fslandsbanka-FBA. Umsjón: Vidskiptablaöiö Verðbólgan líklega upp fyrir þolmörkin Bakkafoss leigður Eimskip hefur leigt Bakkafoss til skipafélagsins Hamburg Súd til gáma- flutninga á milli Flórída og Venesúela. Þetta verkefni mun standa a.m.k. næstu 3 mánuði og líklega lengur. Hringurinn tekur um hálfan mánuð og meðal staða sem komið er til er Jacksonville og Miami í Flórída, Aruba, Curacao og Venesúela. Skipið verður þannig í ferðum um Karíbahaf- ið. í frétt frá Eimskip kemur fram að áhöfn og starfsmenn skiparekstrar- deildar Eimskips unnu að undirbún- ingi þessa úthalds í síðustu viku enda að mörgu að hyggja þegar skip heldur á svo fjarlægar slóðir þar sem aðstæð- ur eru að ýmsu leyti ólíkar því sem hér er. Skipið fór héðan frá Reykjavík á fostudaginn og er nú við Nýfundna- land. GIÆÐIR -áburðarvökvi úr klóþangi! GLÆÐIR er mjög næringarríkur áburðar- vökví sem hentartil notkunar á grasflatir, íþrótta- og golfvelli, tré, runna, úti- og inni- plöntur, kartöflur og flestan annan gróður. GLÆÐIR er seldur í 5,10,20 og 25 lítra brúsum, 120 lítra tunnu og 1000 lítra tanki. Nánari upplýsingar á útsölustöðum. ÚTSÖLUSTAÐIR: Blómaval Sigtúni, S: 580 0500 Frjó Stórhöfða 35. S: 567 7860 Garðheimar Stekkjarbakka 6, S: 540 3300 Gjaldeyrisforðinn jókst í maímánuði Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst um tæpan milljarð króna í maí og nam 37 milljörðum króna í lok mánaðarins en það er jafnvirði 354 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok. Gengi islensku krón- unnar, mælt meö vísitölu gengis- skráningar, veiktist í mánuðinum um 5,9%. Erlend skammtímalán bankans lækkuðu um 1,6 milljarða króna í mánuðinum og námu 25,2 milljörð- um króna í maílok. Gjaldeyrisstaða Seðlabankans nettó batnaði um 2,5 milljarða króna vegna erlendra lánahreyfinga rikissjóðs. í frétt frá Seðlabanka íslands um helstu liði í efnahagsreikningi bankans í lok maí kemur enn frem- ur fram að markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 4,8 milljörðum króna í maUok miðað við markaðs- verð. Markaðsskráð verðbréf ríkis- sjóðs i eigu bankans námu 2 millj- örðum króna. Kröfur Seðlabankans á innláns- stofnanir lækkuðu um 1,5 miUjarða króna í maí og námu 42,6 milljörð- um króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir jukust i mánuðinum um 0,7 miUjarða króna og voru 22,8 mUljarðar króna í lok mánaðarins. Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 2 millj- arða króna í maí og voru neikvæðar um 13,8 mUljarða króna í lok mánað- arins, þ.e. nettóinnstæður ríkissjóðs námu 13,8 miUjörðum króna. Grunn- fé bankans jókst um 5,2 mUljarða króna i maí og nam 33,9 miUjörðum króna í lok hans. Meðallífeyrir Sameinaða lífeyrissjóðsins 33 þús. kr. Fá 110 þúsund eftir 12 ár - lífeyrisgreiðslur hækka hratt á næstu árum Útreikningar Sameinaða líf- eyrissjóðsins benda til að væntanlegur líf- eyrir þeirra sem nú eru 55 ára verði um 110.600 kr. á mánuði, eða ríflega tvö- falt hærri heldur en þeirra sem eru að fara á líf- eyri um þessar mundir og um þrefalt hærri heldur en meðaUífeyr- ir sjóðsins er nú. Þessar upplýsing- ar er að finna í skýrslu velferðar- nefndar ASÍ sem lögð var fram á ársfundi ASÍ. 80 til 155 þúsund eftir 12 ár Þessar 110.600 kr. voru útkoman úr framreikningi á réttindum aUra sjóðfélaga sem nú eru 55 ára, miðað við óbreyttar iðgjaldagreiöslur fram að lífeyrisaldri. Þeim úr hópnum sem greitt hafa í sjóðinn í 31 ár, frá stofnun hans, mega vænta lífeyris á bUinu frá 80.200 kr. sá/sú sem minnst fær og upp í 155.800 kr. á mánuði til þess sem mest á réttind- in. Sjóðurinn reiknaði einnig lífeyri aUra þeirra sem voru 66 ára um síð- ustu áramót, m.v. áunnin réttindi. Útkoman varð 48.000 krónur að meðaltali á mánuði. En það er nær 46% hærri lífeyrir en meðaUífeyrir sem sjóðurinn greiddi árið 2000; tæplega 33.000 kr. á mánuði. Fáir nú yfir 40 þúsund Upplýsingar frá Reiknistofu líf- eyrissjóðanna (RL) um meðal- greiðslur úr lífeyrissjóðum almenna vinnumarkaðarins (öðrum en versl- unarmanna og Samvinnusjóðnum) í ágúst 2000 sýna aðeins um 21.500 krónur á mánuði. Hjá Lífeyrissjóði verslunarmanna var meðaltalið 29.400 krónur. Af um 12.100 manna úrtaki RL var aðeins 7. hver sem fékk yfir 40.000 kr. á mánuði en rúmur þriðjungur hjá Sameinaða lífeyrissjóðnum. Árið 1998 fengu ellilífeyrisþegar að meðaltali um 32.900 kr. á mánuði greiddar úr líf- eyrissjóðum, samkvæmt skattfram- tölum. -HEI FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2001 I>v Þetta helst HEILDARVIÐSKIPTI 2.682 m.kr. - Hlutabréf 728 m.kr. - Húsbréf 483 m.kr. MEST VIÐSKIPTI 0 Samherji 160 m.kr. 0 Búnaöarbankinn 107 m.kr. 1 G Össur 96 m.kr. MESTA HÆKKUN | O SR-mjöl 15,4% i O Kögun 14,3% j ©íslenski hlutabréfasj. 4,1% MESTA LÆKKUN j O Mare| 12,5% o Skýrr 6,7% O Opin kerfi 5,0% ÚRVALSVÍSITALAN 1.063 stig - Breyting O -0,5% Dýr leik- fangabíll hjá Fisher-Price - fyrirtækið tapaði skaðabótamáli upp á meira en milljón dollara Leikfangafyrirtækið Fisher-Price hefur tapað skaðabótamáli sem bandarísk yfirvöld höfðuðu á hend- ur þess eft- ir að í ljós kom að for- svarsmenn Fisher- Price „gleymdu" að segja frá hugsanlegri eldhættu í rafknúnum leikfangabíl- um fyrirtækisins. Fisher-Price, sem er í eigu Mattel- samsteypunnar, samþykkti að borga skaðabótakröfu að upphæð 1,1 milljón dollara til handa nefndar á sviði öryggismála um neysluvör- ur, án þess þó að viðurkenna að hafa gert eitthvað rangt. Leikfangabíllinn sem um ræðir var innkallaður árið 1998 eftir að vandræða varð vart í raíkerfi bíls- ins sem gerði það að verkum að hann annaðhvort staðnæmdist fyr- irvaralaust eða að kviknaði í hon- um. Talið er að eignatjón vegna bíls- ins hlaupi á tugum milljóna króna auk minni háttar brunasára meðal nokkurra óheppinna barna. Power Wheels, en svo heitir leikfangabíll- inn, er hugsaður fyrir börn á aldrin- um 2 til 7 ára og fæst enn þá í versl- unum vestra. Yfirtökutilboð í The Body Shop? Breska heilsu- og fegrunarversl- unarkeðjan The Body Shop hefur staðfest að borist hafi yfirtökutilboð í félagið. Stjómendur Body Shop taka þó fram að viðræður séu á frumstigi og vilja ekki tilgreina við hvern er rætt. í dagblaðinu Wall Street Journal er því haldið fram að tilboðið sé frá mexíkósku fyrirtæki að nafni Omnilife. 08.06.2001 M. 9.15 KAUP SALA HMÍDollar 103,850 104,380 SSPund 143,340 144,070 1*1 Kan. dollar 68,310 68,730 Dönsk kr. 11,8500 11,9150 rl—ÍNorskkr 11,1140 11,1750 BHSænsk kr. 9,4830 9,5350 mark 14,8522 14,9414 O Fra. franki 13,4623 13,5432 1 Bolg. franki 2,1891 2,2022 Sviss. franki 57,9800 58,3000 CSHoll. gyllini 40,0719 40,3127 Þýskt mark 45,1506 45,4219 | E ít- líra 0,04561 0,04588 Œ Aust. sch. 6,4175 6,4561 í Port. escudo 0,4405 0,4431 Lfin|Spá. peseti 0,5307 0,5339 [•Jjap. yen 0,86090 0,86600 j írskt pund 112,126 112,800 SDR 129,9600 130,7400 gjECU 88,3069 88,8376

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.