Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2001, Qupperneq 4
Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2001
DV
Sjoppuræningjar dæmdir í 24 og 26 mánaða fangelsi:
Vantaði peninga
fyrir fíkniefnum
- brotin þykja stórfelld og alvarleg
Héraösdómur Reykjavíkur
dæmdi í gær tvo 21 árs karlmenn í
24 og 26 mánaða fangelsi fyrir rán
og tilraun til ráns í sex söluturnum
í Reykjavík. Auk sakarkostnaðar
var mönnum einnig gert að greiða
skaðabætur, samtals að upphæð 240
þúsund krónur. Mennirnir játuðu
brot sín en þeir hafa setið í gæslu-
varðhaldi frá þvi 12. febrúar sl. og
dregst sú vist frá refsingunni.
Fyrsta ránið var framið þann 14.
janúar á þessu ári en fóru mennirn-
ir vopnaöir hnífum og bareflum í
söluturn við Iðufell. Þeir hótuðu af-
greiðslustúlku og höfðu 62 þúsund
krónur auk tveggja sígarettupakka
upp úr krafsinu. Á næstu þremur
vikum létu mennirnir fjórum sinn-
um til skarar skríða, rændu sölu-
tuma við Dalveg, Grundarstig, Háa-
leitisbraut og Grandaveg. Þá mis-
heppnaðist ránstilraun mannanna í
eitt skiptið þar sem hurð sölutums
var læst og afgreiöslumaður varð
mannanna var. Alls höfðu tvímenn-
ingarnir um 240 þúsund krónur upp
úr krafsinu í öllum ránunum.
Að mati dómsins eru brot mann-
anna alvarleg og stórfelld. í öllum
tilfellum voru báðir vopnaðir hníf-
um og sýndu ógnandi framkomu, þó
að ekki hafi hlotist líkamstjón af. í
framburði mannanna kom fram að
þeir hafi fyrir fram ákveðið að
leggja niður vopn ef þeir mættu
mótspyrnu. I sum skiptin voru þeir
undir áhrifum fíkniefna. Mennirnir
kváðu fyrir dómi að þeir hefðu far-
ið i ránsferðirnar til að afla fjár til
fíkniefnakaupa og til að greiða nið-
ur fíkniefnaskuldir.
Metið var til mildunar refsingar
að mennirnir gengust skilmerkilega
við brotum sínum, bæði hjá lög-
reglu og fyrir dómi. Þá séu þeir ung-
ir að árum og hafi báðir óskað að-
stoðar við að ná sér út úr vítahring
fikniefna. Ekki þótti koma til greina
að skilorðsbinda refsinguna.
-aþ
Hlýraeldið í Neskaupstað:
Astalíf hlýrans vaktað fram á haust
- mikil eftirspurn eftir matfiski og roðið eftirsótt í skó og kvenveski
DV, NESKAUPSTAD:___________________
I maí var byrjað að safna hlýra
til eldis hjá Hlýra ehf., sem er að
stærstum hluta í eigu Síldar-
vinnslunnar hf. Fiskinum var
safnaö af smábátum en mest af ís-
fisktogaranum Bjarti sem hefur
tekið þann hlýra sem kemur lif-
andi úr trollinu. Milli 30 og 40 fisk-
ar eru nú í þremur kerum í bráða-
birgðaaðstöðu, en öll aðstaða til
eldisins veröur í gamla frystihús-
inu. Líklegt er að þar verði öll
fyrsta flokks aðstaða tilbúin í sept-
ember nk.
Stefnt að því að ná um 200 fisk-
um, 8 kíló og þar yfir. Þessi fiskur
verður síðan notaður til seiða-
framleiðslu. Mjög þarf aö vakta
fiskinn á meðan á ástalifi hans
stendur, frá því í júlí fram í sept-
ember.
Frá seiðum og að 5 kg slátur-
stærð líða um 40 mánuðir. Fyrst
Hlýranum klappað
Potaö meö putta aö
vel tenntum hlýra.
og fremst er horft á hlýraeldið sem
matvælaeldi og er jafnvel gert ráð
fyrir að með stöðugu framboði og
miklum gæðum veröi eftirspurn
mikil. Þá má ætla að roðið verði
einnig nýtt en það er eftirsótt í
veski, skó og ýmislegt fleira. Ritt
Bjerregaard, sjávarútvegs- og mat-
vælaráöherra Dana sem var hér á
ferðinni fyrir helgina og skoðaði
hlýraeldið, fékk að gjöf veski úr
roöi af þessum góða fiski. -Eg
Thermo plus
Óvissa er um framhaldiö.
^ Thermo Plus:
Utlendingar
til bjargar
Vonir eru nú bundnar við að er-
lendir aðilar komi til, og kaupi þrota-
bú kælitækjaverksmiðjunnar Thermo
Plus Europe á íslandi, í Reykjanesbæ.
Kröfulýsingafrestur í þrotabúið
rann út um mánaðamótin, en reiknað
var með að kröfur í þrotabúið mundu
nema hundruðum milljóna eða jafnvel
allt að milljarði. Kanadíski bankinn
North Star og Sparisjóður Keflavíkur
eru væntanlega stærstu kröfuhafar.
Möguleikar á sölu þrotabúsins hafa
verið kannaðir, enda miklir hagsmun-
ir í húfi og fjöldi starfa í Reykjanes-
bæ. Heyrst hefur að tveir af stofnend-
um fyrirtækisins hér á landi, Ragnar
Sigurðsson og Einar I. Sigurbergsson,
myndu hugsanlega gera tilboð í fyrir-
tækið, einnig hefur hópur fjárfesta
undir forustu Fjárfestingarfélags Suð-
urnesja verið orðaður í þessu sam-
bandi, og nú síðast er rætt um að er-
lendir aðilar hafi sýnt áhuga, en það
hefur ekki fengist staðfest. -gk
Góð karfaveiði:
Höfrungur III
í metkarfatúr
PV, AKRANESI:_______________
Höfrungur III AK 250 kom inn í
gærmorgun eftir 20 daga veiðiferð
með fullt skip af úthafskarfa, 415 tonn
af afurðum sem samsvarar 755 tonn-
um af karfa upp úr sjó. Aflaverðmæt-
ið er um 80 milljónir króna sem er
mesta verðmæti sem skipið hefur
fengið fyrir úthafskarfaveiðiferð. Þó
hefur skipið áður komið með meira
verðmæti úr hefðbundinni veiðiferð á
heimamiðum.
Þetta er hausskorinn karfi, ekki
flök, þ.e. hann er frystur heill nema
hvað hausinn er skorinn af. Skipstjóri
í veiðiferðinni var Sturlaugur L.
Gíslason,
Mjög góð karfaveiði hefur verið á
Reykjaneshryggnum undanfarna
daga, að sögn Sturlaugs Haraldssonar,
sölustjóra hjá Haraldi Böðvarssyni hf.
á Akranesi. Skipin eru yfirleitt að fá
þetta 3 tonn á togtímann. Helga María
er langt komin með að fylla aftur,
verður e.t.v. komin aftur til löndunar
í lok vikunnar ef allt gengur að ósk-
um en skipið landaði síðast fyrir viku,
þ.e. síðasta mánudag. -DVÓ
Veöríð í kvöld
Sólargangur og sjavarföll ■ Veöriö a morgun
REYKJAVIK AKUREYRI
H
Víöa rigning eöa súld
Hæg breytileg átt en norölægari síðdegis. Víða
veröur rigning eöa súld meö köflum en skúrir,
einkum inn til landsins, síðdegis. Léttir heldur
til f kvöld og nótt.
Sólartag í kvöld 23.53 00.25
Sólarupprás á morgun 03.11 02.06
Síódeglsflóó 17.17 21.50
Árdegisflóó á morgun 05.32 10.05
Skýringar á veöurtáknum
^VINDATT lOV-Hm -10° ^XVINDSTYRKUR Vconcr I metrum á sekúndu 1 HEIÐSKIRT
€3 O
LÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKYJAO SKÝJAÐ AISKÝJAÐ
í <—> w W : . kí
RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOMA
Q m i* =
ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA
Fært i Loömundarfjörö
Búiö er aö opna flesta hálendisvegi á
landinu. Sprengisandur hefur verið
opnaður um Bárðardal. Fært er inn í
Kverkfjöll af þjóövegi 1. Einnig hefur
veriö gert fært í Loðmundarfjörð, yfir
Snæfellsjökul og inn í Kerlingarfjöll.
iHdóMiijaMiMip.M.itmwwfii.iiiianiii.d
Hlýjast í innsveitum austanlands
Gengur í S og SA 5-10 m/s með rigningu annaö kvöld sunnan og vestan
til en annars úrkomulítið og skýjaö meö köflum á morgun. Hiti 6 til 16
stig, hlýjast í innsveitum austanlands.
Fiinnitiidaj
Vindur:
W, Fostiid.igii & Lmijfarda
Hiti 8” til 19“ * I I
Vindur:
4-8 nvA-
Hiti 8“ til 19” *%%'
SV-læg átt. Dálitll rignlng
eóa súld vestan til en
annars skýjaó meó köflum
og hætt vió siódegls-
skúrum á Noróausturlandl.
SV-læg átt. Dálítil rignlng
eóa súld vestan til en
annars skýjaó meó köflum
og hætt vló síódegls-
skúrum á Noróausturiandl.
A-læg átt og dálrtll rignlng
sunnan og austan tll en
annars skýjaó meó köflum.
Hltl 8-15 stlg, hlýjast
Hltl 8-19 stlg.
Hltl 8-19 stlg.
noróan til.
AKUREYRI skúr 12
BERGSSTAÐIR rigning og súid 11
BOLUNGARVÍK snjóél 9
EGILSSTAÐIR 11
KIRKJUBÆJARKL. skúr 11
KEFLAVÍK rigning 10
RAUFARHÖFN alskýjaö 6
REYKJAVÍK úrkoma í gr. 11
STÓRHÖFÐI þoka 10
BERGEN alskýjaö 16
HELSINKI léttskýjaö 17
KAUPMANNAHÖFN heiöskírt 19
ÓSLÓ þokumóöa 15
STOKKHÓLMUR 22
ÞÓRSHÖFN skýjaö 12
ÞRÁNDHEIMUR rigning og súld 14
ALGARVE heiöskírt 21
AMSTERDAM léttskýjaö 18
BARCELONA léttskýjaö 22
BERLÍN heiöskírt 17
CHICAGO skyjaö 20
DUBLIN skýjaö 16
HALIFAX heiöskírt 11
FRANKFURT heiöskíert 17
HAMBORG þoka 15
JAN MAYEN súld 6
LONDON mistur 18
LÚXEMB0RG heiöskírt 16
MALLORCA léttskýjaö 22
MONTREAL heiösklrt 15
NARSSARSSUAQ alskýjaö 7
NEW YORK heiöskírt 18
0RLAND0 alskýjaö 24
PARÍS heiöskírt 20
VÍN skýjaö 16
WASHINGTON heiöskírt 11
WINNIPEG heiöskírt 15
■ AW«:«nnVtll.'HII.'.nT>JJf>TII:l.-ióldll.H»J!Tia