Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2001, Blaðsíða 9
9
MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLl 2001
DV
Þetta helst
ESSmaZiaBniEBSl
HEILDARVIÐSKIPTI 4.214 m.kr.
Hlutabréf 120 m. kr.
Spariskírteini 2.330 m. kr.
MEST VIÐSKIPTI
0 íslandsbanki 43 m. kr.
£ Össur 27 m. kr.
© Kaupþing 18 m. kr
MESTA HÆKKUN
o Flugleiðir 5,3%
o íslenski fjársjóðurinn 3,8%
O Fjárfestingarfélagið Straumur 1,5%
MESTA LÆKKUN
o Lyfjaverslun íslands 19,4%
o íslenska járnblendifélagiö 5,9%
O Íslandssími 5,0%
ÚRVALSVÍSITALAN 1046 stig
- Breyting Q °>3 %
Merril Lynch tak-
markar hlutabréfa-
eign starfsmanna
Bandaríski fjárfestingarbankinn
Merril Lynch hefur bannað starfs-
mönnum greiningardeildar sinnar
að eiga hlutabréf í þeim fyrirtækj-
um sem þeir fjalla um á vegum
bankans.
Stjórnendur Merril Lynch segja
að þessi regla muni gilda fyrir
starfsfólk bankans um allan heim
og taka gildi nú þegar.
Samtök iðnaðarins:
Gera athuga-
semdir við fram-
kvæmd útboðs
hjá Ríkiskaupum
Samtök iðnaðarins hafa sent Rík-
iskaupum bréf þar sem gerðar eru
athugasemdir við útboð stofnunar-
innar á prentun bæklinga fyrir
Ferðamálaráð en útboðsgögnin voru
á ensku.
Á heimasíðu Samtaka iönaðarins
kemur fram að i bréflnu telja Sam-
tökin það furðu sæta að íslenskum
fyrirtækjum sé gert torvelt að bjóða
í íslensk verk með því að hafa gögn
opinberra útboða á erlendu tungu-
máli. .Samtökin telja eðlilegt að út-
boðsgögn séu á íslensku og það sé á
herðum þeirra sem bjóða i verkið
að sjá um þýðingar á þeim yfir á er-
lend tungumál, telji þeir sig þurfa
þess. Það hljóti að teljast óeðlilegt
að íslensk fyrirtæki þurfi að láta
þýða útboðsgögn, á vegum íslenska
ríkisins, yfir á móðurmálið.
11.07.2001 kl. 9.15
KAUP SALA
; Dollar 101,690 102,200
: PSS Pund 144,000 144,730
Kan. dollar 66,860 67,270
SSlDónsk kr. 11,7450 11,8100
i IHHHI Norsk kr 10,9430 11,0030
SSSsænsk kr. 9,3860 9,4380
mark 14,7013 14,7896 |
1 l ÍFra. franki 13,3256 13,4056
! 1 1 Belg. frankl 2,1668 2,1799
tn Sviss. franki 57,5400 57,8600 j
|C3hoII. gyllini 39,6649 39,9033
""í Þýskt mark 44,6920 44,9606
U ít. líra 0,04514 0,04541
□ClAust. sch. 6,3523 6,3905 |
jPort. escudo 0,4360 0,4386 .
_jSpá. peseti 0,5253 0,5285 !
1 * |jap. yen 0,81440 0,81930 j
ÍLjírskt pund 110,987 111,654
SDR 127,1900 127,9500 j
0ÍECU 87,4100 87,9352 1
Viðskipti
Umsjón: Viðskiptablaðið
Delta stofnar
dótturfélag á Mön
- gert ráð fyrir að félagið skili hagnaði þegar á þessu ári
er mikilvægur liður í að fá mark-
aðsleyfi tímanlega, þ.e. áður en
einkaleyfi renna út á markaðssvæð-
um erlendis. Gert er ráð fyrir að hið
nýja félag taki formlega til starfa 1.
ágúst nk. og er áætlað að starfsemin
verði komin í fullan gang nú í
haust. í rekstraráætlunum er gert
ráð fyrir að félagið skili hagnaði
þegar á þessu ári og er það í sam-
ræmi við rekstraráætlun Delta fyrir
árið 2001.
Að sögn Guðbjargar Eddu Egg-
ertsdóttur, forstöðumanns útflutn-
ingssviðs Delta, eru góðar horfur i
útflutningi hjá félaginu á næstunni
en í ágúst nk. fer sýklalyfið Cípró-
floxasín af einkaleyfi í Þýskalandi
og hefur Delta þegar tryggt sér mik-
ilvæga sölusamninga við helstu
samheitalyfjafyrirtæki í Þýska-
landi. Auk þess mun sala á Cípró-
floxasíni til Bretlands og fleiri Evr-
ópulanda hefjast í ársbyrjun 2002.
Þá hafa verið gerðir samningar um
sölu á ofnæmislyfinu Cetirizin til
nokkurra Evrópulanda í febrúar nk.
Delta hf. hefur stofnað nýtt dótt-
urfélag, Medis Ltd., sem mun ann-
ast sölu- og markaðsmál félagsins á
skilgreindum markaðssvæðum er-
lendis.
í frétt frá Delta segir að þetta sé í
samræmi við þá stefnu Delta að við-
halda vexti félagsins með þvi að efla
sölu- og markaðsstarfsemi erlendis,
en stefnt er að þvi að innri vöxtur
félagsins verði að jafnaði um 25% á
ári fram til ársloka 2003. Enn frem-
ur er þetta skref í þá átt að setja á
stofn eigin söluskrifstofur erlendis
en stefnt er að stofnun enn fleiri er-
lendra söluskrifstofa í framtíðinni.
Delta hefur verið að styrkja innviði
sína til að takast á við hinn hraða
vöxt félagsins. Eftir kaup þess á
lyfjafyrirtækinu Pharmamed á
Möltu hefur félagið tvöfaldað starfs-
mannafjölda sinn og nú stefnir í að
veltan á 12 mánaðá timabili verði
yfir 5 milljarðar króna.
Dótturfélagið Medis Ltd. er stað-
sett á eyjunni Mön (Isle of Man) og
mun þjóna Bretlandseyjum ásamt
nokkrum markaðssvæðum i Evr-
Róbert Wessmann, forstjóri Delta hf.
ópu. Framkvæmdastjóri Medis Ltd.
verður Mary Purcell en hún hefur
sem framkvæmdastjóri SEQ Ltd.
verið umboðsaðili Delta um árabil
og býr yfir mikilli og víðtækri þekk-
ingu á samheitalyfjamarkaðnum.
Auk markaðssetningar og sölu á
lyfjum og lyfjahugviti Delta mun
Medis Ltd. veita viðskiptamönnum
sínum skráningarþjónustu en það
Baugur opnar TopShop í Gautaborg
- fjórða verslun Baugs í Svíþjóð
Baugur Sverige AB, dótturfélag
Baugs, mun opna TopShop verslun í
Gautaborg, Svíþjóð, þann 25. októ-
ber nk. Þetta er fjórða verslunin
sem Baugur er opnuð i Svíþjóð en
þegar hefur Baugur opnað TopShop
og tvær Miss Selfridge verslanir í
Stokkhólmi.
Eins og áður hefur verið greint
frá er Baugur sérleyfishafi Deben-
hams- og Arcadia-verslana á Norð-
urlöndum en frekari áætlanir
Baugs gera ráð fyrir opnunum á 15
Arcadia-verslunum á Norðurlönd-
um fyrir árslok 2002, þar af fjórum á
íslandi.
Verslunin verður staðsett í Arka-
den, þekktu verslunarhúsnæði í
miðborg Gautaborgar sem nú
standa yfir gagngerar endurbætur
á. Kristjón Grétarsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Baugi Sverige
AB, segir að um mjög sterka stað-
setningu sé að ræða en Arkaden er
staðsett beint á móti Norstad,
stærstu verslunarmiðstöð á Norður-
löndum.
Kristjón segir enn fremur að ráð-
gert sé að opna fleiri Miss Selfridge
verslanir á árinu í Svíþjóð og þá lík-
lega í Gautaborg en viðræður vegna
vænlegra staðsetninga eru komnar
vel áleiðis.
10. október nk. mun Baugur svo
opna Debenhams sem er þekkt
deildarverslanakeðja (Dept. store)
frá Bretlandi í nýrri verslunarmið-
stöð við Smáralind, auk TopShop,
Miss Selfridge, Zöru, Hagkaup, Úti-
líf og Lyfju.
Haustið 2002 verður svo opnuð
9.500 fermetra Debenhams-verslun
við Drottningargötu í Stokkhólmi,
Svíþjóð. Enn fremur er líklegt að
þriðja Debenhams-verslunin verði
opnuð í nýrri verslunarmiðstöð í
Danmörku 2003.
SP-fjármögnun
kaupir skulda-
bréfakerfi af
Mens Mentis
SP-fjármögnun hf. hefur samið
um kaup á nýju skuldabréfakerfí af
Mens Mentis hf. Gert er ráð fyrir að
innleiðing nýja kerfisins, sem kall-
ast Esja, hefjist í árslok og verði lok-
ið um mitt ár 2002.
Að sögn Mens Mentis eykur Esja
rekstraröryggi og styrkir stöðu SP á
sviði fjármögnunar vegna bíla-
kaupa og eignarleigu. Kerfið stuðlar
að hámarks hagkvæmni í rekstri
með því að auka sjálfvirkni til
muna. Þá er í Esju lögð sérstök
áhersla á heildaryfirsýn og aðgengi
viðskiptavinanna sjálfra að upplýs-
ingum. Kerfið skiptist upp í nokkur
undirkerfi, þ.e. viðskiptamanna-
kerfi, samningakerfi, innheimtu-
kerfi, baktryggingar, fjárstýringu og
reikningakerfi. Þá tengist skulda-
bréfakerfið fjölmörgum öðrum kerf-
um og upplýsingagjöfum, s.s. reikn-
inga- og innheimtukerfum hjá
Reiknistofu bankanna, þjóðskrá
Hagstofu íslands, Axapta-bókhalds-
kerfum, kerfum tryggingafélaga,
sölukerfum bílaumboða og upplýs-
ingakerfum Reuters.
Furukawa 740
Til
afgreiðslu
strax
• Cummins mótor
• 850 mm breið belti,
breidd 3230 mm,
lengd 4420 mm
• Vökvakerfi: 4381, Load
sensing vökvakerfi
• Fleyglagnir, lagnir fyrir
“tiltskóflu” og lagnir
fyrir vökvahraðtengi
Vökvahraðtengi
Léttefnisskófla 1900 I án tanna
Malarskófla HD 1400 I með tönnum
Vökvatiltskófla 2.2 m, 1400 I
Búnaður:
1 I 5 r Helgason hf.
Sœvarhöfba 2 - Sími 525 8070 - Fax: 587 9577 Véladeild - www.ih.is