Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2001, Side 12
12
______________________________ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2001
Skoðun I>V
Miöborgin aö næturlagi
Hræösla viö aö afhjúpa fretsisstefnuna?
Áfengið er undir-
rót vandans
Spurning dagsins
Notarðu Internetið mikið?
Anna Körö, vinnur hjá Terra Nova:
Já, mjög mikiö, helst tengt vinnunni
og þaö kemur aö góöum notum.
Bendt ívarsson, vinnur hjá ístex:
Nei, það höföar ekki til mín.
Guðjón Sigurösson, vinnur
í Dressmann:
Já, ég skoöa oft myndir af djamminu
á Reykjavik.com.
Bragi Gunnarsson, vinnur
í Dressmann:
Já, ég finn oft ritgeröir fyrir skólann
á Netinu og þaö styttir mér
ótrúlega tímann.
Veigar Jónsson, nemi:
Já, ég finn mér oft góóa tölvuleiki þar.
Díana Hilmarsdóttir, vinnur hjá TM,
og Kormákur, 4ra ára:
Já, ég nota þaö í vinnunni og leita
mér upplýsinga þar.
Umræðan að
undanfórnu um
vanda miðborgar-
innar hefði átt að
kalla fram ýmsar
áleitnar spurnir,
ekki sizt um undir-
rót þess vanda sem
þar er svo sannar-
lega við aö fást. Ég
sakna opinskárrar
og hreinskilinnar
umræðu þar um.
Máske vilja menn ekki fara út í þessa
umræðu af ótta við að afhjúpa „bless-
aða“ frelsisstefnuna í þessum málum
sem ljóslega blasir við í nær óteljandi
drykkjustöðum sem dritað hefur verið
þarna niður.
Inn í þetta blandast raunar um-
ræðan um hið óhugnanlega fyrir-
bæri vændi svo víða sem ugglaust
er alvarleg staðreynd enda fátt sem
gróðafíklar samfélagsins láta fram
hjá sér fara ef arðs er von og þá eins
og alltaf áður í engu skeytt um
skömm eða heiður. Einnig þar kem-
Baldur Kristinsson
skrifar:
Ég er einn fjölmargra áhorfenda
sem sátu gapandi yfir Kastljósinu i
sl. viku þar sem Gunnar Þór læknir
og Arnþrúður Karlsdóttir sögðu frá
þeim ofsóknum sem Gunnar hefur
mátt þola af fámennri valdaklíku í
Háskóla íslands svo og hjá Landspít-
ala Háskólasjúkrahúsi. Og að eftir
úrskurð nefndar og ákvörðun
tveggja dómstiga sé enn verið að
bregða fæti fyrir Gunnar er ákaf-
lega óíþróttamannslegt svo ekki sé
meira sagt. Þaö er ljótt til þess aö
vita að einelti skuli viðgangast hjá
æðstu menntastofnun þjóðarinnar
„Á sama tíma er skellt
skollaeyrum við ákalli
þeirra sem við afleiðingarn-
ar fást, aðvaranir þeirra
byggðar á biturri reynslu
jafnvel hafðar að hálfgerðu
fíflskaparmáli einstaka fjöl-
miðlunga. “
ur undirrótin til sögu, neyzlan
hömlulausa, hvort sem er á áfengi
eða öðrum eiturefnum, en áfengið
er auðsuppspretta kráareigenda og
aðaltekjulind. Og því þá ekki að
nýta hana til örvunar þess að mega
þjóna lægstu hvötum mannskepn-
unnar? Og láta engu skipta örlög
stúlknanna sem eru þolendur þessa.
Það gleymist sem sé í allri þessari
undarlegu umræðu hvert frelsisstefn-
an óhefta hefur leitt okkur þar sem
allt er leyft og ekkert má banna, ekki
einu sinni koma minnstu vörnum við.
„Það er hins vegar skylda
alþingismanna að skipa
nefnd til að fara ofan í
saumana á þessu máli og
kalla menn til ábyrgðar
ef sannanlega er í pottinn
búið eins og þau
hjón lýstu.“
og á íjölmennasta vinnustaö i eigu
ríkisins á meðan verið er að kenna
börnum og unglingum að varast
slikt hið sama.
Ekki er nokkur leið að bæta
Við höfum enda nú um skeið lifað eft-
ir því boðorði að frelsi íjármagnsins
skuli gilda ofar velferð fólks og auð-
vitað er þaö fjármagnið sem hér hefur
knúið á um farveg eiturefnanna sem
allra greiðastan og þá sem þar ráða
ferð skiptir auðvitað engu hverjar af-
leiðingarnar kunni að vera.
Á sama tíma er skellt skollaeyrum
við ákalli þeirra sem við afleiðingarn-
ar fást, aðvaranir þeirra byggðar á
biturri reynslu jafnvel haíðar að hálf-
gerðu fiflskaparmáli einstaka fjöl-
miðlunga. Ég hefi stundum spurt mig
að því hve skelfilegt ástandið þurfi að
vera orðið til þess að snúa þessari
óheillaþróun við, að það megi verða
algáð vitundarvakning meðal þjóðar-
innar um að nú verði aö stemma á að
ósi og menn fari í alvöru að hlusta á
þá sem stöðugt fást við hinar hræði-
legu afleiðingar sem svo víða sér
stað í samfélagi okkar. Ég er sann-
færður um að sú stund rennur upp,
mér þykir aðeins grátlegt að hún
skuli ekki löngu runnin upp miðað
við ástand og afleiðingar.
Gunnari Þór þann mannorðsskaða
sem hann hefur þegar orðið fyrir
eða bæta þær þjáningar sem yfir
þau hjón hafa gengið vegna málsins.
Það er hins vegar skylda alþingis-
manna að skipa nefnd til að fara
ofan í saumana á þessu máli og
kalla menn til ábyrgðar ef sannan-
lega er í pottinn búinn eins og þau
hjón lýstu.
Kjósendur og skattgreiðendur
þessa lands munu ekki liða annað
en að farið sé að lögum i þessum
ríkisstofnunum og menn séu ekki
lagðir í einelti ef þeir falla ekki í
kramið hjá valdaklíkum sem telja
sig eiga viökomandi stofnanir.
Gullfoss
Orkugjafi eins og aörir.
Vetni þarf orku
Torfi hringdi:
Það er sífellt verið að óskapast
yfir því að við íslendingar skulum
ætla að virkja og taka land undir
virkjanir og mannvirki. Og sumir
þessara manna tala um að biða
skuli eftir annarri og hagkvæmari
orku, og eiga þá við vetnið. En vetn-
ið þarf líka mikla orku. Ég sé ekki
mikinn mun á baráttumálum um-
hverfissinnanna svonefndu sem
vilja drepa allt í dróma og þeirra
sem sjá vetni sem orkugjafa fram-
tíðarinnar. Hér þarf að virkja og
það svo um munar. Auðvitað eigum
við að nota þennan orkugjafa, foss-
ana og einnig öll fallvötn, hverju
nafni sem þeir nefnast, líka þá fal-
legu og þá sem ort hefur verið um
falleg ljóð. Ekkert myndi halda
þeim fastar í hugum fólks og í
minningunni en fogur umgjörð af
manna höndum þar sem sem aflið
og orkan kraumaði undir.
Sakna pólitísku
blaðanna
Kjartan Kjartansson skrifar:
Ég las grein Árna Bergmanns í
DV sl. föstudag um að elta tíðarand-
ann. Ég er sammála Árna að mörgu
leyti þótt ekki sé ég sömu skoðunar
og hann í pólitíkinni. En ég sakna
(eins og hann líklega) pólitísku dag-
blaðanna. Það var miklu meira líf í
skrifum manna í þeim, og það var
tekist á í stjómmálunum. Núna er
þetta dæmalaus holtaþoka og væl í
henni. Það er mikil hræsni í um-
ræðunni í dag. Þar eltir hver annan,
þótt menn skiptist í fylkingar. Fylk-
ingamar eru líka litlausar og eiga
fáa málflytjendur af viti, varla að
þeir séu talandi (og alls ekki skrif-
andi margir hverjir). Einstaka
penna má þó greina en þeir hafa
ekki nennt einhvern veginn að raða
sér í fylkingarbrjóst neinna gilda
eða samtaka. Já, ég sakna pólitísku
blaðanna.
Kjötmarkaðurinn við Kirkjusand
Veröur lokað á næstunni.
Helgi Seljan,
form. Bindindissam-
takanna IOGT,
skrifar:
Einelti er óþolandi
Garri
Stofnanir
Garri er hneykslaður á aðför fjölmiðla, stjórn-
málamanna og almennings að Áma Johnsen.
Augljóst er aö störf Árna og viðskiptafærslur i
byggingarnefnd Þjóðleikhússins em mistúlkaðar
á alla kanta og slitnar úr samhengi við raun-
verulegt innihald þeirra. Aðalatriði málsins er
að Árni er að framkvæma mikið þjóðþrifaverk
og er í raun að gera hluti sem aðrir stjómmála-
menn og heilu stofnanimar hafa ekki treyst sér
til að gera. Hann er að flytja ríkisstofnanir út á
land. Störf Árna eru þannig í raun byggðapólitík
í verki og því mætti allt eins kalla byggingar-
nefnd Þjóöleikhússins byggðanefnd Þjóðleikhúss-
ins. Hver segir að leikmunageymsla Þjóðleik-
hússins þurfi endilega að vera í Reykjavík? Er
hún ekki alveg jafn vel komin í grillhúsi Árna í
Vestmannaeyjum? Það er því ekkert náttúrulög-
mál sem segir að nauðsynlegt sé að „leiðrétta"
pöntunarseðil fyrir byggingarefni hjá BYKO fyr-
ir leikmunageymslu Þjóðleikhússins þó efnið
eigi að fara til Eyja.
Flytja tröppurnar líka
Sama er að segja um óðalssteinana góðu sem
fóru í hleðslu við títtnefnt grillhús i Eyjum.
Hver segir að austurtröppurnar á Þjóðleikhúsinu
geti ekki að hluta til verið úti í Eyjum? Hugsan-
út á land
lega gætu þær meira aö segja legið upp að leik-
munageymslunni sem þar væri þá fyrir. Garra
þykir sérkennileg sú afstaða að telja að allir
skapaðir hlutir þurfi aö vera í Reykjavík og að
allar framkvæmdir þurfi að fara fram á suðvest-
urhorninu. Leikmunageymslan myndi sóma sér
vel í Eyjum. Umhverfið er dramatískt. Og hver
veit nema sú staðreynd ein og sér, að búningarn-
ir væru komnir út á land, myndi verða til þess
að leikaramir fylgdu á eftir og Þjóðleikhúsið
setti loksins upp eitthvað af leikverkum í Eyjum
og jafnvel annars staða á landsbyggðinni. Bún-
ingamir úr Kardemommubænum gætu þannig
kallað á uppfærslu á þessu sígilda leikriti í grill-
skálanum góða, en spuming væri hvort ekki
mætti stílfæra nöfn ræningjanna krúttlegu til
heiðurs byggðastefnu Árna og kalla þá Kasper,
Jesper og Johnsen.
Smámunasemi - mismæli
Garri vill því mótmæla illri meðferð á Árna
og að hann skuli nú hafa verið knúinn til þess
að segja af sér I byggingamefndinni. Fyrr má nú
vera smámunasemin ef menn ætla að fara að
hengja sig í ómerkileg mismæli hjá Áma um aö
óðalssteinar séu í vörslu á brettum úti í bæ.
Auðvitað meinti hann að steinarnir væru í grill-
húsi á eyju úti í sæ. Og Garri er illa svikinn ef
félagar og samherjar Árna i pólitíkinni, sem 1
raun hafa bakkað hann upp og gefið honum
tækifæri til að láta gott af sér leiða fyrir byggðir
landsins með því að flytja ríkisstofnun út á land,
koma honum ekki til hjálpar. Garri auglýsir því
eftir stuöningi við Áma frá Birni Bjamasyni
menntamálaráðherra, sem er jú sá aðili sem
Árni sækir umboð sitt til, og þá ekki síður frá
Davíð Oddssyni sem er nú sá pólitíski foringi
sem valið hefur Áma til trúnað-
arstarfa í liði sínu. Gðfll
Ódýrasta kjöt-
staðnum lokað
Kristnn Sigurðsson skrifar:
Nú mun ódýmstu kjötsölunni hér
í borginni, Kjötmarkaðinum við
Kirkjusand, verða lokað á næstunni.
Því miður munu þúsundir manna
segja því vörur á Kjötmarkaðinum
eru miklu ódýrari en í Bónusi, Hag-
kaupi eða Nóatúni, svo dæmi séu
tekin, en þar er öll kjötvara seld á
toppverði. Ég skora á nýja eigendur
að sýna smátillitssemi og halda kjöt-
markaði með ódýrari kjötvörur
áfram, kannski í samvinnu við
Nettó eða jafnvel í Nettóversluninni
sjálfri. Vonandi hugsa þeir hlýlega
til okkar sem sjáum mikið eftir Kjöt-
markaðnum viö Kirkjusand þar sem
allt var ódýrara.
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eða sent tölvupóst á netfangiö:
gra@ff.ls
Eða sent bréf til: Lesendasíða DV,
Þverholti 11,105 ReyKjavík.
Lesendur eru hvattir til aö senda mynd
af sér til birtingar með bréfunum á
sama póstfang.