Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2001, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2001, Blaðsíða 4
MÁNUDAGUR 23. JULI 2001 Fréttir DV Batnandi atvinnuástand milli maí og júní: Fjórðu ngsfækku n atvinnuleysisdaga Skráðum atvinnuleysisdögum í júni fækkaði um 25 prósent frá maímánuði, eða úr 51 þúsund í 38 þúsund. Atvinnuástand hefur alls staðar á landinu batnað verulega frá því í maí, nema á höfuðborg- arsvæðinu þar sem atvinnuleysi hefur aukist nokkuð. Mest er at- vinnuleysið á Norðurlandi eystra en minnst á Vesturlandi. Atvinnuleysisdagar í síðasta mánuði jafngilda því að um 1820 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. Konur eru þar í miklum meiri- hluta, rúmlega helmingi fleiri en karlarnir, eða tæplega 1176 á móti 644. Atvinnuleysið er 1,2 prósent helmingi fleiri konur atvinnulausar en karlar Þó er tæplega 1 prósents meira at- af áætluðum mannafla á vinnumarkaði og hefur atvinnu- lausum fækkaö um tæplega 20 prósent frá því í maí. Ástæða batn- andi atvinnu- ástands milli mánaða skýrist samkvæmt yfir- liti Vinnumála- stofnunar af opn- un fiskvinnslu- húsa eftir sjó- mannaverkfall. vinnuleysi nú en í júní í fyrra. í yfirlitinu kemur enn fremur fram að flestir atvinnulausir eru á aldrinum 25 til 29 ára. í lok júní voru 620 störf skráð laus hjá vinnumiðlunum svo ein- hver er vandfýsinn meðal at- vinnulausra en búist er við að at- vinnuleysi í þessum mánuði verði svipað og í júní, eða 0,9 til 1,3 prósent. Á vefsíðu Vinnumálastofnunar er auglýst eftir 300 manns til ávaxtatínslu i Hollandi í haust svo ævintýramenn með hendur í skauti gætu farið að spýta í lóf- ana. -fln Fyrirtækiö íslensk matvæli selt til Eyja: í gang næstu daga - segir Þorsteinn Sverrisson stjórnarmaður Eýrirtækið Islensk matvæli er nú að koma upp vinnsluaðstöðu til bráða- birgða í húsi Fiskmarkaðarins í Vest- mannaeyjum. í vetur brann húsnæði fyrirtækisins i Hafnarflrði og síðan hef- ur verið unnið að því að finna fyrirtæk- inu nýjan samastað. „Við flytjum nánast að öllu leyti nema hvað sölustarfsemi og dreifing til verslana verður áfram í Reykjavík. Öll framleiðslustarfsemin flytur til Vest- mannaeyja," segir Þorsteinn Sverris- son hjá Þróunarfélagi Vestmannaeyja sem jafnframt situr í stjóm íslenskra matvæla hf. Framkvæmdastjóri verður Snorri Finniaugsson sem var einnig framkvæmdastjóri íslenskra matvæla uppi á meginlandinu og einnig mun Ingvar Karlsson koma að uppbygging- unni í Eyjum. Það er Eignarhaldsfélag Vestmanna- eyja sem hefur keypt íslensk matvæli af Pharmaco. Fyrirtækið fer því á eigin kennitölu undir nafninu íslensk mat- væli hf. Aðilar að eignarhaldsfélaginu eru Byggðastofnun, Pharmaco, Spari- sjóður Vestmannaeyja, Lífeyrissjóður Verstmannaeyja, Tryggingamiðstöðin, Skeljungur og fleiri aðilar. „Við verðum hér i fiskmarkaðnum fyrstu tvo til þrjá mánuðina þar til end- anlega er búið að ganga frá húsnæðis- málum íslenskra matvæla. Við þurft- um strax að kom ákveðnum þætti framleiðslunnar í gang og töldum þá réttara að flytja starfsemina tO Eyja en að vera áfram á höfuðborgarsvæðinu,“ segir Þorsteinn. - Hvar komið þið til með að vera með ykkar framtíðaraðstöðu? „Það eru þrír eða fjórir möguleikar í stöðunni en verið er að vinna að mál- inu. Við gerum ráö fyrir að klára þau mál á næstu tveim eða þrem mánuð- um. Þetta húsnæði dugar vel þangað til." - Hvað verðið þið með margt starfs- fólk? „Þetta kallar á svona tuttugu manns hér í Eyjum og síðan fjóra til fimm ein- staklinga á höfuðborgarsvæðinu." - Hvers vegna urðu Vestmannaeyjar fyrir valinu? „Við teljum þetta faila vel að því starfsumhverfi sem hér er. Það er allt til staðar og svo er laxeldi að hefjast hér eftir tíu daga í Kiettsvíkinni. Ann- að hráefni sem íslensk matvæli er mjög sterkt í, eins og síld, kemur hér mikið á land. Við erum því að ná hér í aðfóng og skila af okk- ur vörum á um 500 metra radíusi. Viö telj- um fyrirtækið því eiga hér vel heima. Þá er er- lendi markaðurinn að verða stærsti hluti um- svifa fyrirtækisins. Staðsetningin er því mjög hentug og ekki nema 50 metrar í skip til að koma vörunni til útlanda." - Þið eruð að setja upp nýjar sjáifvirkar vélar, hvenær verða þær komnar í gang? „Við erum að vonast til að það geti orðið nú ,næstu daga. Umsóknar- frestur í störf í fyrirtæk- inu rann út á miðviku- dag og við erum að ræða við fólk,“ sagði Þorsteinn Sverrisson. -HKr. OV-MYND GVA Fyrirtækið íslensk matvæli komið til Vestmannaeyja Þorsteinn Sverrisson og ingvar Björnsson fram- leiöslustjóri voru aö fínstilla nýjar vélar sem skera reykta laxinn og pakka honum í neytendaumbúöir. í8 Sólnrlag í kvöld 23.01 Sólarupprás á morgun 04.09 Síödegisfló& 20.31 Árdegisflóð á morgun 09.01 Skýringar á vsðurtáíattím Í*^,nunirr 10V-HITI 23.07 03.30 12.45 01.04 Víða síðdegisskúrir Norðaustlæg eöa breytileg átt, 5-8 m/s, en 8- 13 við norður- og austurströndina. Dálítil súld eöa rigning austanlands en annars skýjaö meö köflum og víða síðdegisskúrir. Hiti 6 til 16 stig, hlýjast í uppsveitum suövestanlands. 'J>‘VINDSTYRKUR í metrum á sekúndu ^FROST HEIÐSKIRT •&> 3D o IÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ SKÝJAÐ AISKÝJAO 'w %id © RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOMA ö *V«.° Þ ===== ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA Allt eftí t JbljÚuíi Bjartar sumarnætur Arsmeöaltal birtutímans hér á landi er mun hærra en birtutíminn á jafndægrum sem er um 13,9 stundir á sólarhring. Þaö er því ekki reyndin að birta tapist í skammdeginu til jafns við þaö sem unnist hefur á björtum sumarnóttum. Vinningurinn er miklu meiri en tapið. Þetta kemur fram á vefnum http://www.almanak.hi.is Ólafsfjörður: Sumarferming Sá óvenjulegi viðburður var í messu í Ólafsfjarðarkirkju í gær, 22. júní, að þá fór fram sumaiferming. Prestur var séra Stina Gísladóttir en sá fermdi heit- ir Hjalti Rögnvaldsson, Hlíðarvegi 42, Ólafsfirði. Skýringin á þessari sumar- fermingu er sú að foreldrar Hjalta hafa verið við nám í Bandaríkjunum og misstu því af hefðbundinni fermingu, en Hjalti er einmitt sonur sóknarprests- ins í Ólafsfirði, sr. Sigriðar Guðmars- dóttur. Sigríður sagði í samtali við DV að þeim hefði líkað vel í Bandaríkjun- um og ákveðið hefði verið að þau héldu utan aftur í haust þar sem hún myndi fara í doktorsnám og verða í því næstu þijú árin. -bg Búfjárslysum fækkar: Ríkissmali rekur rollur af vegum DV, BORGARNESI: Slys af völdum búflár hafa á undan- fómum árum verið flest i umdæmi lög- reglunnar í Borgamesi. Nú kann að verða breyting á þvf. Eins og síðastliðið sumar hefur verið ráðinn ríkissmali til að reka féð af vegunum aðfaranótt fóstudags til loka ágúst. Átakið hófst í júní og hefur verið smalað fimm sinn- um. Að meðaltali hefur ríkissmalinn rekið 150 flár f hverri ferð en mest hef- ur flöldinn farið í 190. Guðmundur Guðmundsson, bóndi á Kalastöðum, sinnir starfi ríkissmalans i sumar. Hann smalar jafnan við annan mann og hefur hund til aðstoðar enda svæðið stórt; hringvegurinn frá Hval- flarðargöngum og upp í Sveinatungu, Akraflailsvegur, Hvítárvallavegur að Andakílsá og Snæfellsnesvegur frá Borgarnesi að Hltará. Þegar smölun hófst höfðu orðið níu óhöpp vegna búflár en aðeins eitt hefur orðið eftir að smölun hófst. -DVÓ Nýr fram- kvæmdastjóri DV, SIGLURRÐI:_________________ Um síðastliðin mánaðamót urðu framkvæmdastjóraskipti viö Heil- brigðisstofhun Sigluflarðar. Þórarinn Gunnarsson, sem gegnt hafði starfinu í ár, lét af störfúm og við tók Konráð Baldvinsson. Konráð er Siglfirðingur segir stefn- una alltaf hafa verið að snúa heim og flölskyldan sé mjög ánægð. Þórarinn Gunnarsson tekur við starfi fiármálastjóra hjá Landlækn- Veöriö í kvöld | Sólargangur og sjávarf EOŒfe: . 1 Hlýjast sunnanlands NA 8-13 m/s noröan- og norövestan til en annars heldur hægari. Dálítil rigning noröan og austan til en skýjað með köflum og hætt við skúrum suðvestan til, hiti 7 til 16 stig, hlýjast sunnanlands. MííWikudagur BMSEB Vindur: C 5-10rn/*^ wo HitiGtil 15»WAV Vindur: C A— Hiti 6” til 15° T N-læg átt, yfirleltt 5-10 N-læg eöa breytlleg átt, m/s. Dálrtil rlgnlng um yflrleltt 3-8 m/s. Skýjaö noröanvert landiö en meö köflum og hætt vlö skýjaö meö köflum og skúrum. Hltl 6 tll 15 stig, skúrir sunnan tll. Hlti 6 tll kaldast á annesjum 15 stlg. noröan til. L. ji O Vindur: 4-7 Hiti 9° tii 18° ÍTí Suölæg átt og viöa dálítil rlgning, elnkum um sunnan- og vestanvert landlö. Hlýnandl veöur. imbættinu. -ÖÞ AKUREYRI alskýjaö 11 BERGSSTAÐIR skýjaö 10 BOLUNGARVÍK skýjaö 11 EGILSSTAÐIR 10 KIRKJUBÆJARKL. skýjaö 14 KEFLAVÍK léttskýjaö 12 RAUFARHÖFN rigning 8 REYKJAVÍK léttskýjaö 13 STÓRHÖFÐI skýjað 13 BERGEN skúr á síö. kl. 16 HELSINKI léttskýjað 24 KAUPMANNAHOFN skýjað 22 ÓSLÓ alskýjað 18 STOKKHÓLMUR 21 ÞÓRSHÖFN þokumóöa 10 ÞRÁNDHEIMUR skýjaö 20 ALGARVE skýjaö 28 AMSTERDAM léttskýjað 22 BARCELONA heiöskírt 23 BERLÍN hálfskýjaö 26 CHICAGO léttskýjað 24 DUBUN skýjaö 18 HALIFAX léttskýjaö 20 FRANKFURT léttskýjaö 26 HAMBORG léttskýjaö 24 JAN MAYEN alskýjaö 7 LONDON rign. á síö. kls. 19 LÚXEMBORG léttskýjaö 24 MALLORCA heiöskírt 28 MONTREAL léttskýjaö 24 NARSSARSSUAQ skýjaö 15 NEW YORK hálfskýjaö 23 ORLANDO hálfskýjaö 23 PARÍS léttskýjaö 27 VÍN skýjaö 23 WASHINGTON hálfskýjaö 17 WINNIPEG heiösklrt 22 | HYGGT A UW1YSJNGI1M FHA VlfHlKSTOfU IMANUs 1

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.