Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2001, Blaðsíða 24
36
Tilvera
MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2001
DV
Hugleiðingar á
Café Presto
Hugleiðingar nefnist sýning á
Café Presto, Hlíðasmára 15 í
Kópavogi. Þar sýnir Anna Sig-
ríður Sigurjónsdóttir skúlptúra.
Sýningin verður opin alla virka
daga frá 10-23 og laugardaga og
sunnudaga frá 12-18. Henni lýk-
ur 24. ágúst.
Djass
■ DJASS I HAFNARKIRKJU A
HOFN Jasskvintett Hauks Gröndals
heldur tónleika í Hafnarkirkju í kvöld
kl. 20.30. Kvintettinn skipa Haukur
Gröndal, saxófónleikari, Olafur
Jonsson, saxófónleikari, Davíö Þór
Jónsson, píanóleikari, Tómas R.
Einarsson, bassaleikari og Matthías
M.D.Hemstock, trommuleikari og
munu þeir leika tónlist eftir
ameríska djasspíanistann Thelonius
Monk.
Sýníngar
9 ERLA VAN DYCK í LISTHtJSI
ÓFEIGS I Listhúsi Ofeigs aö Skóla-
vöröustíg 5 er sýning á teikningum
eftir Erlu Reynisdóttur van Dyck.
Frla er búsett á Englandi og starfar
1. ar sem kennari en hún kennir vefn-
-.5 og hrynjandilist. Erla notar auk
)lýants ýmis óhefðbundin áhöld eins
g t.d. reyrstifti, fjaðrir og fingurna
.'g notar báðar hendur jafnt í list-
3köpun sinni. Sýningin verður opin á
/erslunartíma til 8. ágúst.
■ STIAN RÖNNING í GALLERÍ
GEYSI Stian Rönnlng heitir ungur
maður frá Noregi sem er með fyrstu
einkasýningu sína á íslandi í Gallerí
Geysi við Ingólfstorg. Sýningin hefur
yfirskriftina „Sérö Þú þaö sem Ég
sé“. Stian sýnir Ijósmyndir sem eru
jeknar á Taflandi, Laos, Noregi og
Islandi á árunum 1999-2001.
■ TOGNUÐ TUNGA í GALL-
ERI@HLEMMUR.IS Guöný Rósa
Ingimarsdóttir er með sýningu á
gal!eri@hlemmur.is. Þetta er hennar
sjötta einkasýning og ber
yfirskriftina „Tognuö tunga". Þar
ferðast listakonan á milli nokkurra
augnablika með aðstoð verka frá
þessu og síðasta ári.
■ ÓLÖF BJÓRK í SAL
ISLENSKRAR GRAFIKUR Olöf
Björk Bragadóttir sýnir nú í sal
íslenskrar grafíkur í Hafnarhúsinu,
Tryggvagötu 17, hafnarmegin.
Sýning hennar nefnist
Róamarkaöur.
■ LEIRLIST í GULLSMIÐJU
HANSINU JENS Þóra
Sigurþórsdóttir leirlistakona sýnir í
Gullsmiöju Hansínu Jens að
Laugavegi 20 b.
■ ÞÓRÐUR Á MOKKA Þórður
Ingvarsson sýnir tölvugrafíkmyndir á
Mokkakaffi við Skólavörðustíg.
■ KÍNAKRAKKAR í GALLERÍ
GEYSI Hafllðl Sævarsson sýnir í
Galleríi Geysi í Hinu húsinu.
Sýninguna nefnir hann Kínakrakka.
Þar eru aðallega málverk en einníg
skúlptúrar og teiknaðar skissur.
■ RAGNAR PÁLL í LÓNKOTI
Ragnar Páll Elnarsson listmálari
heldur málverkasýningu í Galleríi
Sölva Helgasonar í Lonkoti í
Skagafirði um þessar mundir. Þar
eru eingöngu myndir frá Skagafirði,
olíumálverk og vatnslitamyndir.
■ MYNDLIST í MAN Mvndiistar-
konurnar Helga Birgisdóttir og Olga
Pálsdóttlr sýna í listasalnum Man,
Skólavörðustíg 14. Sýninguna nefna
þær: Líf og dauöi. Hvaðan komum
viö - hvert förum við.
Eggert Pétursson sýnir blómamyndir
sinar í galleríi i8 á Klapparstíg 33.
SJá nánar: Lífið eftir vlnnu á Vísi.is
DV-MYNDIR EINAR J.
Tvær meö öllu
Áður en lagt var í hann var þátttakendum boöiö upp á heitar pylsur.
Barnlek 2001:
Þjóðdansiball í miðbænum
Um helgina fór fram
norrænt þjóðdansa- og
þjóðlagamót í Grafarvogi
þar sem saman komu á
þriðja þúsund börn frá öll-
um Norðurlöndunum. Á
laugardaginn brugðu
krakkarnir undir sig betri
fætinum og fóru i skrúð-
göngu frá Hallgrímskirkju
niður á Ingólfstorg. Þótti
skrúðgangan hin glæsileg-
asta enda voru allir uppá-
klæddir í fallega og lit-
skrúðuga þjóðbúninga. Að
göngu lokinni dreifðist
hópurinn um miðbæinn
og voru stigin dansspor á
hverjum auðum bletti,
jafnt á hafnarbakkanum
sem Austurvelli.
Danskur dans
Danskur þjóödansahópur sýnir hvaö í honum býr fram-
an viö styttuna af Leifi heppna.
Biöin
Hann minnir óneitanlega svolítiö á Emil frá Kattholti
þessi ungi drengur sem hér bíður eftir því aö skrúö-
gangan leggi af staö.
A þjóölegu nótunum
Þessir tónlistarmenn komu alla leiö frá Noregi til aö
skemmta sjálfum sér og öörum.
Rnnskir harmoníkutónar
Fjölmargir tónlistarmenn tðku þátt í Barnlek 2001
enda ekki gaman aö dansa án tónlistar.
Þjóöleglr Islendingar
Þessir félagar úr Þjóödansafélagi Reykjavíkur voru óneit-
anlega glæsilegir á aö líta í þjóöbúningunum sínum.
Rðluspil í Bankastræti
Skrúögangan var sannkölluö veista, jafnt fyrir augaö
sem eyraö.
Hefur áhyggjur
af heilsu Geri
Fyrrum sportkryddið, Mel C, hef-
ur áhyggjur af engiferinu Geri Hall-
iwell. Flestir hafa tekið eftir ofsa-
fenginni megrun Geri. Hún keppist
nú um að sýna stinnan líkama sinn,
ólíkt því sem áður var þegar hinar
kryddpíurnar kölluðu hana feita.
Mel C opinberaði áhyggjur sínar í
útvarpsviðtali á dögunum. Hún
sagðist sjálf þekkja átröskun af eig-
in raun. „Ég hef átt í vandræðum
með yfirgengilega þjálfun og neyslu-
hætti,“ segir hún. Hún segist bara
hafa áhyggjur af Geri, hún líti hins
vegar frábærlega út. Sportkryddið
hnykkir svo á með því að lýsa yfir
væntumþykju sinni á Geri. „Ég
elska hana í tætlur," segir hún.
Diddi þakkar
lögreglunni
Rapparinn Sean Combs, sem ný-
verið hefur verið kallaður P. Diddy,
eða bara Diddi, þakkar lögreglunni
í Miami fyrir að koma frábærlega
fram við sig. Hann gaf þessa yfirlýs-
ingu á blaðamannafundi á dögun-
um, sem hann mætti reyndar
klukkutíma of seint á. Þar var hann
að kynna nýjustu breiðskífu sína, P.
Diddy and The Bad Boy Family.
Hann segist ætla að eyða fleiri
stundum í Miamiborg vegna frá-
bærs viðmóts íbúa og lögreglu.
Reyndar er lögreglan í Miami undir
rannsókn, meðal annars fyrir að
skjóta mann í hjólastól fjórum sinn-
um í bakið. Kannski Diddi fái væg-
ari meðferð vegna ofsaaksturs síns
á dögunum fyrir vikið.
Fór út meö
strippara
í réttarhöldum yfir eiganda nekt-
ardansstaðarins The Gold Club í
Atlanta kemur fram að Madonna
hafi verið einn viðskiptavina stað-
arins. Áður hefur komið fram að
Karl Gústav Svíakonungur hafi sótt
staðinn og sægur af körfubolta-
stjömum. Eigandi staðarins er sak-
aður um að hafa boðið tryggum við-
skiptavinum kynlíf strippdansar-
anna að launum.
Madonna mun hafa beðið um að
fá að yfirgefa klúbbinn með stripp-
ara að nafni Baby. Talsmaður henn-
ar neitar ásökununum.